Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Með tófu sem húsdýr Fjölskyldan að Goðatúni 4 á Flateyri hefur frá því í vor haft nokkuð óvenjulegt húsdýr en það er tófan hún Birtan. 29.10.2007 19:31
Færsla hringvegar í Hrútafirði boðin út Staðarskáli verður byggður upp á nýjum stað vestan Hrútafjarðarár samfara færslu hringvegarins, sem Vegagerðin bauð út í dag. 29.10.2007 19:14
Fossinn við Kárahnjúka hannaður með líkanaprófunum í Sviss Afl nýja fossins við Kárahnjúka er þvílíkt að menn óttuðust að hann gæti brotið niður barma Hafrahvammagljúfurs. Því var ákveðið að hanna fossinn með líkanaprófunum í háskóla í Sviss. 29.10.2007 19:09
Mikið um umferðaróhöpp vegna hálku Talsvert var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í dag vegna hálku. Harður árekstur varð á Reykjanesbraut við Stekk í Reykjanesbæ og þá hafnaði einn bíll á ljósastaur á Vallarheiði. 29.10.2007 19:07
Fjórtán ökumenn stungu af frá slysstað Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um 51 umferðaróhapp um helgina. í fjórtán tilfellum stungu ökumenn af frá slysstað. 29.10.2007 18:21
Reyndu að villa á sér heimildir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði um helgina ellefu ökumenn sem ýmist höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi eða aldrei öðlast ökuréttindi. Tveir þeirra reyndu að villa á sér heimildir og gaf annar þeirra upp nafn bróður síns. Þá framvísaði einn ökuskírteinin sem rann út fyrir hálfum öðrum áratug. 29.10.2007 18:20
Stjörnulögfræðingur ver íslenska konungskúgarann Annar mannanna sem er í haldi bresku lögreglunnar vegna fjárkúgunarmáls sem tengist bresku konungsfjölskyldunni er af íslenskum ættum. 29.10.2007 17:24
Fjórtán teknir fyrir ölvunarakstur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði 14 ökumenn fyrir ölvunarakstur um helgina. Í flestum tilvikum var um að ræða karla á aldrinum 20 til 45 ára. 29.10.2007 17:21
Við Dabbi erum góð blanda Tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker hefur samið sálmalög sem hann ætlar að gefa út fyrir þarnæstu jól. Hann fékk Davíð Oddson, seðlabankastjóra í lið með sér sem situr nú við sálmaskriftir í frítíma sínum. 29.10.2007 17:00
Staðfestir farbann yfir manni í Hraunaveitumáli Hæstiréttur hefur staðfest farbannsúrskurð Héraðsdóms Austurlands yfir Letta sem tengist rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á kæru á hendur starfsmannaleigunni NCL og GT verktökum. 29.10.2007 16:46
Fráleitt að Viðskiptaráð vinni gegn samkeppni á bankamarkaði Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, hafnar því sem fram kom í hádegisfréttum Stöðvar 2 að ráðið vinni gegn samkeppni á bankamarkaði. 29.10.2007 16:25
Á 186 km hraða á Jökuldal Lögreglumenn hjá embætti lögreglunnar á Seyðisfirði höfðu hendur í hári ökumanns aðfaranótt laugardagsins eftir að hann var mældur á 186 kílómetra hraða á klukkustund á þjóðvegi 1 á Jökuldal. 29.10.2007 15:18
Lögðu vegslóða án leyfis Umhverfisnefnd og bæjarráð Akureyrar átelja vinnubrögð forsvarsmanna skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli sem gerðu vegslóða upp á brún Hlíðarfjalls án þess að hafa fyrir því tilskilin leyfi. 29.10.2007 15:03
Telur flugmenn hafa brugðist hárrétt við Framkvæmdastjóri flugfélagsins JetX, sem á flugvélina sem hafnaði utan flugbrautar á Keflavíkurflugvelli í fyrrinótt, telur að flugmenn vélarinnar hafi brugðist hárrétt við þeim aðstæðum sem komu upp í lendingunni. 29.10.2007 14:55
Negrastrákarnir seljast eins og heitar lummur Barnabókin Tíu litlir negrastrákar hefur selst gríðarlega vel en útgáfa bókarinnar hefur valdið nokkru fjaðrafoki. Bryndís Loftsdóttir, sölustjóri íslenskra bóka hjá Eymundsson segir að bókin hafi selst feykilega vel um helgina og að svo virðist sem sumir standi í þeirri trú að til standi að banna bókina og ætli sér því að tryggja sér eintak í tíma. 29.10.2007 14:34
Strætó kvartar yfir aðstæðum á Hverfisgötunni Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó, segir að þar á bæ hafi menn ekki enn heyrt í konunni sem Vísir sagði frá fyrir helgi en hún varð fyrir heldur óskemmtilegri lífsreynslu í leið 13 á Hverfisgötunni þegar vagnstjórinn hótaði að henda henda henni út úr vagninum þegar hún kvartaði yfir aksturslagi hans. Í framhaldi fréttaflutnings Vísis af málinu sendi Strætó frá sér yfirlýsingu þar sem atvikið var harmað og óskaði Reynir eftir því að konan hefði samband við Strætó til þess að þeir gætu beðið hafa afsökunar. Af því hefur þó ekki orðið enn. Reynir segir að aðstæður á Hverfisgötunni geri vagnstjórum kjög erfitt fyrir. 29.10.2007 13:57
Geir fundar með norrænum starfsbræðrum Geir H. Haarde forsætisráðherra fundar í dag með norrænum starfsbræðrum sínum og forsætisráðherrum Eistlands, Lettlands og Litháens. 29.10.2007 13:57
Vakningu þarf til þess að uppfræða erlenda ökumenn Af þeim ellefu sem látist hafa í umferðinni á þessu ári eru þrír útlendingar. Talsmaður Umferðarstofu segir ekki einfalt að fræða útlendinga um hættur í umferðinni hér. Hann segir að vakningu þurfi meðal almennings við að uppfræða erlenda ökumenn. 29.10.2007 12:58
Áfram þvaglát og ólæti miðborginni um helgar Ekkert lát virðist vera á því að fólki kasti af sér vatni á almannafæri eða hafi í frammi ýmiss konar ólæti í miðbænum um helgar þrátt fyrir að lögregla hafi tekið harðar á slíkum brotum undanfarna mánuði. 29.10.2007 12:45
Fasteignasali kærður fyrir svindl L94 ehf, sem er í eigu athafnamannsins Andrésar Péturs Rúnarssonar, hefur kært Ernu Valsdóttur, löggiltan fasteignasala, hjá fasteignasölunni Fasteignakaup hf. til eftirlitsnefndar Félags fasteignasala. 29.10.2007 12:45
Stóri nagladekkjadagurinn í dag Stóri nagladekkjadagurinn er á höfuðborgarsvæðinu í dag, eftir að fólk vaknaði í fyrsta sinn við alhvíta jörð á þessu svæði í haust. 29.10.2007 12:37
Stjórnvöld hemji gjaldtöku bankanna Stjórnvöld verða að grípa inn í og hemja gjaldtöku bankanna, að mati Jóhannesar Gunnarssonar, formanns Neytendasamtakanna. Hann segir fámennið og krónuna hindra erlenda banka í að koma til Íslands. 29.10.2007 12:29
Fékk tveggja mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur 22 ára karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í sextíu daga fangelsi fyrir ölvunarakstur. Hann var einnig sviptur ökuréttindum ævilangt. Þetta er í fjórða skiptið á tveimur árum sem maðurinn var dæmdur fyrir að aka undir áhrifum áfengis. 29.10.2007 12:21
Flugriti sendur út til rannsóknar Flugstjóri JetX-farþegavélarinnar, sem hafnaði utan brautar á Keflavíkurflugvelli í fyrrinótt, segist hafa fengið rangar upplýsingar um bremsuskilyrði á vellinum áður en hann lenti. Flugriti vélarilnnar verður sendur út til rannsóknar. 29.10.2007 12:13
Heilbrigðisráðherra ekki starfi sínu vaxinn Landspítalinn skuldar ellefu hundruð milljónir króna við birgja sem eru gjaldfallnar, segir Alfreð Þorsteinsson fyrrverandi formaður framkvæmdanefndar um byggingu hátæknisjúkrahúss. Ráðherra sem ekki taki á fjárhagsvanda spítalans sé ekki starfi sínu vaxinn. 29.10.2007 12:07
Spyr hvort ekki sé kominn tími til að skipta krónunni út Starfsgreinasamband Íslands spyr hvort ekki sé kominn tími til að skipta yfir í alvöru gjaldmiðil fyrir íslenskt launafólk ef ekki er hægt að treysta krónunni. Tilefni þessarar spurningar eru nýjustu tíðindi í evrumálum en eins og kunnugt er hefur Kaupþing ákveðið að skrá hlutabréf sín í evrum. 29.10.2007 11:25
Vilja að Svandísarmáli verði vísað frá Orkuveita Reykjavíkur vill að mál sem Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, höfðaði til þess á fá skorið úr um lögmæti eigendafundar fyrr í mánuðinum verði vísað frá. Krafan var lögð fram í fyrirtöku við málinu í morgun. 29.10.2007 10:59
Heimilt að leita í vélum sem hingað koma Íslensk yfirvöld hafa skýrar heimildir til þess að fara um borð í flugvélar sem lenda hér á landi. Ef grunur leikur á um að um sé að ræða fangaflug geta bæði tollayfirvöld og lögregla farið um borð í vélarnar. 29.10.2007 10:41
Meirihluti fylgjandi því að gefa ekki út hvalveiðikvóta nú Tveir af hverjum þremur eru sammála þeirri ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra að gefa ekki út kvóta til hvalveiða fyrr en markaðsaðstæður fyrir hvalkjöt hafa batnað. 29.10.2007 10:40
Vill endurbætur á vegi vegna mikillar umferðar Einar Örn Thorlacius, sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit, hefur óskað eftir fundi með samgönguráðherra til þess að ræða mikla aukningu á umferð á veginum undir Hafnarfjalli á síðustu árum og þarfar endurbætur á honum. 29.10.2007 10:22
Bílvelta við Höfðabakka Lögreglan, sjúkrabíll og tækjabíll eru nú við Höfðabakka, rétt fyrir neðan Fálkabakka en þar valt bíll fyrir 20 mínútum síðan. Að sögn lögreglunnar var ein kona í bílnum. Slysið er ekki talið alvarlegt. 28.10.2007 20:26
Vopnfirðingar fá betri höfn Vopnafirðingar státa nú af einni skjólbestu höfn landsins eftir viðamiklar hafnarbætur, sem gera stærstu fiskiskipum flotans kleift að leggjast að. 28.10.2007 19:30
Áfengisdauður í flugstöðinni Einn flugfarþegi á leið úr landinu var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í dag en sá svaf áfengissvefni í brottfararsal flugstöðvarinnar. Fékk hann að sofa lengur í fangaklefa lögreglunnar. 28.10.2007 19:24
Auglýst eftir lögbroti Karlmaður í atvinnuleit fer ekki leynt með ætlun sína að brjóta gegn skattalögum í blaðaauglýsingu í dag. Hann óskar eftir svartri vinnu. 28.10.2007 14:00
"Vélin skall harkalega niður í lendingunni" "Vélin skall harklega niður í lendingunni og um leið slökknaði á öðrum hreyfli hennar. Síðan var hún keyrð á miklum hraða eftir flugbrautinni og fór of hratt í beygju inn að flugstöðinni," segir Georg Guðjónsson en var ásamt konu sinni farþegi með flugvélinni sem lenti í óhappinu á Keflavíkurvelli í nótt. 28.10.2007 12:38
Fall meirihlutans frestaði enn Ásatrúarhofi Ásatrúarmenn reikna með að borgarráð afgreiði endanlega óskir þeirra um nýtt hof á fundi sínum í komandi viku. Málið hefur frestast af ýmsum ástæðum nú síðast ftrestaist það þar sem meirihlutinn féll í borginni. Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði segir að Kafka sé eins og krakkaleikur í samanburði við hvernig ferillinn hefur verið. 28.10.2007 11:18
Ölvaður og óviðræðuhæfur varðist handtöku Ölvaður og óviðræðuhæfur ökumaður reyndi að hlaupa frá lögreglunni eftir að hann lenti í umferðaróhappi í nótt. Er lögreglan náði í skottið á honum varðist hann handtöku en gistir nú fangageymslur. 28.10.2007 10:30
Eldur í sorpgeymslu í tólf hæða húsi Slökkvilið var kallað út var vegna elds sem kviknaði í sorpgeymslu í tólf hæða fjölbýlishúsi í Hátúni í Reykjavík í nótt. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en nokkur viðbúnaður var á vettvangi enda fjölmargir í húsinu. Ekki er vitað um eldsupptök. 28.10.2007 10:08
Alvarleg líkamsárás á Solon Mikill erill var hjá lögreglu í höfuðborginni í nótt og voru nokkrar líkamsárásir kærðar samkvæmt venju. Alvarlegasta árásin var á dyravörð á skemmtistaðnum Solon sem skaddaðist í andliti. 28.10.2007 09:58
Ók dópaður á götuvita og veittist að sjúkraliðum Klukkan þrjú í nótt ók maður undir áhrifum fíkniefna á götuvita á mótum Grensásvegar og Bústaðavegar. Götuvitinn hafnaði á vélarhlíf bifreiðarinnar, en það hamlaði ekki förinni. 28.10.2007 09:54
Rafmagn fór af Efra-Breiðholti í nótt Rafmagn fór af Efra-Breiðholtinu í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur var það bilun í háspennusteng milli Hraunbergs og Iðufells sem olli því að rafmagn fór af í Berg-, Hóla- og Fellahverfum. 28.10.2007 09:47
Hálka í borginni og víða um land Mikil hálka er nú víða á höfuðborgarsvæðinu og ástæða til að bílstjórar fari varlega í moegunsárið. Einnig eru hálkublettir í öllum fjórðungum landsins að Austfjörðum undanskildum. 28.10.2007 09:22
Flugslysanefnd kannar óhapp á Keflavíkurflugvelli Starfsmenn Flugslysanefndar eru nú staddir á Keflavíkurflugvelli að kanna óhapp sem þar varð í nótt. Farþegavél með farþega á heimleið frá Tyrklandi fór út af flugbrautinni þegar nefhjól hennar affelgaðist í lendingu. Hálku er kennt um óhappið. 28.10.2007 09:09
Rafmagnslaust í Efra-Breiðholti í klukkutíma Rafmagnið fór af í Hóla-, Berg- og Fellahverfum í Efra-Breiðholti kl. 23.15 í kvöld vegna háspennubilunnar. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni var rafmagnslaust í rétt rúman klukkutíma en allt rafmagn var komið á 25 mínútum eftir miðnætti. 27.10.2007 23:55
Fjórir kærðir fyrir akstur utan vega Lögreglan á Suðurnesjum var með sérstakt eftirlit með akstri utan vega í dag. Fjórir voru kærðir fyrir utanvega akstur við Grindavík í þessu átaki. 27.10.2007 20:17