Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Engar breytingar á samþykktum HS án aðkomu allra eigenda Bæjarráð Hafnarfjarðar ítrekar á grundvelli hluthafasamkomulags milli fjögurra stærstu hluthafa Hitaveitu Suðurnesja frá því í sumar að engar breytingar verði gerðar á samþykktum og félagslegri stöðu fyrirtækisins án aðkomu allra eigenda þess. 18.10.2007 15:15
Breiðavíkurdrengur fékk ritskoðaða skýrslu frá barnavernd Guðmundur Gissurarson, einn af Breiðavíkurdrengjunum, segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum við barnaverndarnefnd Kópavogs. Hann sendi inn beiðni um að fá skýrslu nefndarinnar um dvöl sína í Breiðavík og ástæður þess að hann var sendur þangað. Eftir nokkrun tíma fékk hann fjórar síður af 60 og voru þær þar að auki ritskoðaðar. 18.10.2007 15:01
Ár liðið frá brotthvarfi hersins Heildarvelta Flugmálastjórnarinnar á Keflavíkurflugvelli það ár sem íslensk stjórnvöld hafa stýrt honum er áætluð um 2,7 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugmálastjórninni. 18.10.2007 14:45
Heitu vatni aftur hleypt á í Kópavogi Orkuveitan er nú að hleypa heitu vatni aftur á þau hverfi í Kópavogi sem urðu vatnslaus í morgun í kjölfar þess að aðalæð fyrir heitt vatn austan við Reykjanesbraut gegnt Smáralind bilaði 18.10.2007 14:32
Fá bara inni á frístundaheimili þrjá daga í viku Börnin á frístundaheimilinu í Vesturhlíð fara ekki varhluta af þeirri manneklu sem nú er á frístundaheimilum borgarinnar. Vesturhlíð er frístundaheimili fyrir krakkana í Öskjuhlíðarskóla og nú er svo komið að börnin fá flest bara inni á frístundaheimilinu þrjá daga vikunnar. „Það vantar helling af fólki hjá okkur ennþá," segir Heiður Baldursdóttir í Vesturhlíð. Hún segir mun erfiðara fyrir börnin í Vesturhlíð að takast á við óstöðugleikann sem fylgir manneklunni en fyrir krakka sem ekki búa við fötlun af neinu tagi. 18.10.2007 14:32
Milljarðaverkefni hjá REI þrátt fyrir óvissa framtíð Í næstu viku verða opnuð tilboð í 40% hlut í stærsta jarðvarmaorkufyrirtæki heims, PNOC EDC á Filippseyjum. REI er eitt þeirra fyrirtækja sem bjóða í hlutinn en reiknað er með að andvirði hans nemi um einum tug milljarða kr.. Einnig verður undirrtaður samstarfssamningur REI við fyrirtækið Pertamína um orkuvinnslu í Indónesíu. “Við höldum okkar áætlunum og markmiðum áfram þar til annað kemur í ljós,” segir Hafliði Helgason talsmaður REI í samtali við Vísi. 18.10.2007 14:16
Jafnréttisráðherra Noregs kynnir sér fæðingarorlof á Íslandi Karita Bekkemellem, jafnréttisráðherra Noregs, kemur hingað til lands í næstu viku til þess að kynna sér nánar fæðingarorlof hér á landi og barnaverndarmál. 18.10.2007 14:05
Lagt til að prestum verði heimilað að staðfesta samvist Lagt verður til á Kirkjuþingi sem hefst á laugardag að prestum sem það kjósa verði veitt heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra. Tillagan er samræmi við ályktun Kenningarnefndar Þjóðkirkjunnar og jafnframt í takt við niðurstöðu skoðanakönnunar meðal presta sem birt var í sumar. Hún sýndi að nærri tveir af hverjum þremur prestum væru fylgjandi slíkri heimild. 18.10.2007 13:35
Vanhirða á laufi veldur stíflum á umferðaræðum Nú er sá tími kominn að viðamiklir pollar myndasta víða á umferðaræðum borgarinnar þar sem niðurföllin á þeim eru stífluð. Stíflurnar má svo rekja til þess að tré borgarinnar fella laufin á þessum tíma. Laufin safnast síðan saman í niðurföllin og stífla þau. Almenningur getur dregið mjög úr þessu vandamáli með því að hirða betur um garða sína. 18.10.2007 13:12
Fjórir af hverjum fimm telja útvarpsstjóra ofalinn Liðlega áttatíu prósent þátttakenda í netkönnun Vísis telja að laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra séu of há. 18.10.2007 13:00
Miriam Rose ekki vísað úr landi Útlendingastofnun hefur ákveðið að Miriam Rose, breskum umhverfisfræðingi í samtökunum Saving Iceland, verði ekki vísað úr landi. 18.10.2007 12:45
Einar boðar byggðakvóta á færri byggðalög Einar K. Guðfinnson segir í ræðu sinni á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda sem nú stendur yfir að byggðakvótinn eigi að renna til færri byggðalaga en nú er. Einar segir að margir líti á byggðakvóta sem almenna uppbót á aflaheimildir manna en það sé ekki hugsunin á bakvið hann. 18.10.2007 12:34
Síldarævintýri í Grundarfirði Síldarævintýri er brostið á í Grundarfirði og stefna síldveilðiskipin þangað eitt af öðru til að vera klár í veiðarnar um leið og vind lægir. 18.10.2007 12:30
Kannað verði hvernig framsóknarmenn högnuðust á VÍS Sverrir Hermannsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, vill að rannsókn verði gerð á því hvernig ákveðnir framsóknarmenn högnuðust óeðlilega á kaupum hlutabréfa Landsbankans í VÍS á sínum tíma. 18.10.2007 12:24
Hörð atlaga verður gerð að launamun kynjanna Hækkun lægstu launa og hörð atlaga að launamun kynjanna er það sem koma skal í kjarabaráttunni, segir Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ á ársfundi ASÍ sem hófst í morgun. Félagsmálaráðherra boðaði uppstokkun velferðarkerfisins og sagði mikilvægt að sporna gegn fátækt, leysa vanda húsnæðislausra og finna nýjar lausnir að nýju almannatryggingakerfi. 18.10.2007 12:12
Bíða þess að vatn í tengibrunni sjatni Fjölmennir viðgerðarflokkar frá Orkuveitu Reykjavíkur bíða þess nú að heitt vatn sjatni í tengibrunni á aðalæð fyrir heitt vatn austan Reykjanesbrautar gegnt Smáralind, en þar kom í ljós bilun yfir rúmri klukkustund. 18.10.2007 11:52
Meirihluti vill þyngri dóma Ef marka má könnun, sem Afstaða - félag fanga, stóð fyrir á heimasíðu sinni vilja 84 prósent landsmanna að dómar á Íslandi verði þyngdir. í könnuninni var spurt um viðhorf fólks til þess hvort dómar hér á landi séu og langir eða stuttir. 18.10.2007 11:51
Segja Hafró stunda veiðar uppi í kálgörðum í Djúpinu Smábátasjómenn á Vestfjörðum eru ævareiðir yfir því sem þeir kalla botntrollsveiðar á grunnsævi en frystitogarinn Örfirisey hefur stundað tilraunaveiðar í Ísafjarðardjúpi í nærri vikutíma. 18.10.2007 11:49
Litlar líkur á að vatnsból Reykvíkinga mengist Afar litlar líkur eru á því að vatnsból Reykjavíkur geti mengast á svipaðan hátt og gerðist í Osló að sögn Arnar Sigurðssonar, sviðsstjóra umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. Hann segir mikið eftirlit vera viðhaft með neysluvatni hérlendis. 18.10.2007 11:37
Forsetinn verðlaunaður í Alaska Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók í gærkvöld við viðurkenningu fyrir forystu um samstarf og sjálfbæra þróun á Norðurslóðum. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Anchorage í Alaska að viðstöddum fjölmörgum þátttakendum á alþjóðlegri ráðstefnu um orkumál á Norðurslóðum og forystumönnum Alaskaríkis. 18.10.2007 11:27
Ekki verið tekin afstaða til hlutafélagavæðingar LV Forsætisráðherra segir að ekki hafi verið tekin afstaða til þess hvort Landsvirkjun verði gerð að hlutafélagi. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins gerði málið að umtalsefni á Alþingi í dag. 18.10.2007 11:16
Alvarleg bilun á heitavatnsæð í Kópavogi Stór hluti Kópavogs er án heits vatns þessa stundina vegna alvarlegrar bilunar sem varð á aðalæð austan við Reykjanesbraut gegnt Smáralind í Kópavogi. 18.10.2007 11:09
Um 430 ökumenn sektaðir fyrir hraðakstur á Sæbraut Liðlega 430 ökumenn verða sektaðir vegna hraðakstursbrota sem mynduð voru á mótum Sæbrautar og Langholtsvegar á mánudaginn var. 18.10.2007 10:50
Mun berjast fyrir bættum hag starfsmanna RÚV Svanhildur Kaaber, fulltrúi Vinstri - grænna í stjórn Ríkisútvarpsins, segist ekki hafa bókað andstöðu á stjórnarfundi um að tvöfalda laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra þegar stofnuninni var breytt í opinbert hlutafélag. Hún segir launin há en að hún muni leggja sín lóð á vogarskálarnar til þess að bæta hag annarra starfsmanna RÚV. 18.10.2007 10:39
Sjaldan hafa fleiri tekið þátt í flóttamannaverkefni Alls hafa 58 manns eða sex til sjö fjölskyldur á hverja flóttamannafjölskyldu frá Kólumbíu boðist til að aðstoða flóttafólkið með stuðningi sínum næstu tólf mánuði. Hafa sjaldan eða aldrei svo margir tekið þátt í flóttamannaverkefni að því er segir í nýju fréttabréfi Rauða krossins. 18.10.2007 10:31
Níu kærðir fyrir stuld á heitu vatni Alls hafa níu kærur nú borist til lögreglunnar á Selfossi vegan stulds á heitu vatni í sumarhúsum í Grímsnesi og Bláskógabyggð. Orkuveita Reykjavíkur hefur kært átta sumarbússtaðaeigendur í Grímsnesi og einn í Bláskógabyggð. 18.10.2007 10:12
Ófremdarástand á Hafnarfjarðarvegi Íbúar í Hafnarfirði eru orðnir langþreyttir á umferðartöfum á Hafnarfjarðarvegi á morgnana. Bæjarstjórinn segir ófremdarástand ríkja og horfir til þess með skelfingu að nú sé enn einn veturinn að bresta á án úrbóta. Engin áform eru um endurbætur á Hafnarfjarðarvegi enn sem komið er að sögn vegamálastjóra. Þó hefur verið samþykkt að veita 400 milljónum króna til framkvæmda við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar. 18.10.2007 10:06
Gróðurhúsalömpum stolið til kannabisræktar Átta gróðurhúsalömpum var stolið úr gróðurhúsi í Hveragerði í nótt. Þetta er í þriðja eða fjórða skiptið á skömmum tíma sem brotist er inn í húsið í þessum tilgangi og telur lögreglan í Árnessýslu afar líklegt að að kannabisræktendur hafi verið á ferð. 18.10.2007 09:45
Aflaverðmæti íslenskra skipa eykst um ellefu prósent Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst um fimm og hálfan milljarð króna á fyrstu sjö mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra samkvæmt tölum Hagstofunnar. 18.10.2007 09:15
Starfshópur kanni allar hliðar samruna REI og GGE Nýr meirihluti í borgarstjórn hyggst leggja fram tillögu á fundi borgarráðs sem hefst klukkan 9.30 um að stofna starfshóp undir stjórn Svandísar Svavarsdóttur sem fara á yfir samruna Reykjavik Eneregy Invest og Geysir Green Energy, en eins og kunnugt er varð málið fyrri meirihluta að falli. 18.10.2007 09:01
Stefndu lífi og limum samborgara sinna í hættu Tveir ökumenn gista nú fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að hafa stefnt lífi og limum samborgara sinna í hættu með háska akstri undir áhrifum áfegnis og fíkniefna. 18.10.2007 07:12
Dregur úr áfengisneyslu Óvenju mikil söluaukning í áfengi í sumar virðist vera að ganga til baka samkævmt mælingum Rannsóknaseturs verslunarinnar. Áfengissalan dróst saman um 26 prósent í september, frá sölunni í ágúst. 18.10.2007 07:03
Einkarannsókn á Hafskipsmálinu Hópur sérfræðinga vinnur nú að viðamikilli rannsókn á allri umgjörð Hafskipsmálsins svokallaða, eins umdeildasta saka og gjaldþrotamáls síðustu áratuga. 18.10.2007 07:00
Dýrasta flugfargjaldið innanlands Vopnfirðingar njóta þess vafasama heiðurs að fá að kaupa dýrasta flugmiðann í innanlandsflugi. Vilji þeir komast fljúgandi fram og til baka milli Vopnafjarðar og Reykjavíkur kostar miðinn 38.600 krónur. 17.10.2007 19:00
Sjálfstæðismenn fara ofan í kjölin á falli meirihlutans í borginni Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík hefur farið ofan í saumana á atburðarásinni sem leiddi til falls meirihluta Sjálfstæðismanna og Björns Inga Hrafnssonar í borgarstjórn. Sjálfstæðismenn neita að rannsókn fari fram á málinu innan Valhallar og að borgarfulltrúar flokksins hafi verið yfirheyrðir. 17.10.2007 18:48
Kristján Möller undirbýr samgöngumiðstöð í Reykjavík Samgönguráðherra er ósammála borgarstjóra um framtíð Reykjavíkurflugvallar og stefnir að því að samgöngumiðstöð verði tilbúin þar vorið 2009. Hann segir unnið að því að skapa Iceland Express aðstöðu á vellinum svo félagið geti hafið innanlandsflug þaðan þegar á næsta ári. 17.10.2007 18:45
Skattbyrði þyngdist úr 31,2% upp í 41,4% á einum áratug Skattbyrði á landsmenn þyngdist úr liðlega þrjátíu prósentum upp í fjörutíu prósent af landsframleiðslu í stjórnartíð síðustu ríkisstjórnar. Engu að síður eru skattar lægri hérlendis en á hinum Norðurlöndunum, samkvæmt tölum OECD. 17.10.2007 18:15
Fulltrúi VG í stjórn RÚV samþykkti laun Páls Svanhildur Kaaber, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn RÚV ohf., samþykkti að tvöfalda laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra þegar RÚV var breytt í opinbert hlutafélag. Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður VG hefur gagnrýnt launin í dag. 17.10.2007 18:10
Litháarnir grunaðir um að stela rakvélarblöðum fyrir hálfa milljón Í gæsluvarðhaldsúrkurði yfir einum Lithánna sem handtekinn hefur verið vegna gruns um aðild að stórfelldu, skipulögðu búðarhnupli hér á landi kemur fram að Litháarnir níu sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins eru grunaðir um að stela rakvélarblöðum fyrir tæpa hálfa milljón króna. 17.10.2007 17:26
Leggur til umbætur á vegamótum eftir umferðarslys Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur lagt til umbætur á vegamótum Akrafellsvegar og Innessvegar vegna banaslyss sem þar varð í sumar. 17.10.2007 16:57
Hjúkrunarfræðingar sendi tölvupóst til að fá 30.000 kr. Á síðasta fundi stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var ákveðið að fara þess á leit við þá hjúkrunarfræðinga sem eru á netfangaskrá félagsins, að þeir leggðu sitt af mörkum til að knýja fram 30 þúsund króna álagsgreiðslu á mánuði til hjúkrunarfræðinga, líkt og dómsmálaráðherra hefur ákveðið að greiða lögreglumönnum. 17.10.2007 16:47
Páll Magnússon: Laun mín í takt við aðra stjórnendur Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að laun sín séu nálægt því sem gengur og gerist hjá framkvæmdastjórum í meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi. 17.10.2007 16:19
Matvælaeftirlit undir eina stofnun Til stendur að koma á fót sérstakri stofnun, Matvælaeftirlitinu, sem heyra mun undir sameinað sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti og tekur við verkefnum sem Landbúnaðarstofnun, Umhverfisstofnun og Fiskistofa hafa sinnt. Þetta kemur fram í stjórnarfrumvarpi sem lagt hefur verið fram á Alþingi um breytta verkaskiptingu ráðuneyta. 17.10.2007 16:05
Norðmenn hafna óskum um flutning á síldarkvóta Norska sjávarútvegsráðuneytið hefur hafnað ósk íslenskra stjórnvalda um að íslenskar útgerðir fái heimild til að færa hluta síldarkvóta síns í norskri lögsögu á milli ára. 17.10.2007 15:32
Um 770 kúabú á landinu Um 770 kúabú voru á landinu um síðustu áramót samkvæmt því sem fram kemur á vef Landssambands kúabænda. Búin eru flokkuð innan tiltekinna varnarhólfa vegna sjúkdómahættu og eru 40 slík hólf á landinu. 17.10.2007 15:32