Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verklagsreglur settar um þvagsýnatöku Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað nefnd til þess að búa til reglugerð um samræmdar verklagsreglur fyrir öll lögregluumdæmi um hvernig standa skuli að þvagsýnatöku þegar fólk er grunað um akstur undir áhrifum vímugjafa en neitar að veita þvagsýni. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Katrínar Júlíusdóttur, flokkssystur hans, á Alþingi í dag. 17.10.2007 14:03
Einsemd og einangrun eykst Innflytjendur hér á landi eru gjarnan illa settir félagslega. Þetta á sérstaklega við um eiginkonur farandverkamanna sem hafa enga tengingu við íslenskt samfélag. Rauði kross Íslands stendur nú fyrir átaki til að fá fólk til sjálfboðavinnu við ýmis verkefni á vegum samtakanna, meðal annars til að aðstoða þennan hóp. 17.10.2007 13:52
Æ fleiri kveðja nagladekkin Æ fleiri landsmenn hafna nagladekkjunum og búa sig undir vetrarfærðina með öðrum leiðum. Fagnaðarefni, segja heilbrigðisyfirvöld, enda minni hætta á svifryki. 17.10.2007 13:15
Banna súludans en leyfa stauradans Á síðasta fundi landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar var samþykkt að nektar-eða súludans yrði alfarið bannaður í sveitarfélaginu. Hinsvegar hefði nefndin ekkert á móti því að leyfa stauradans. Í framhaldi af þessu bárust fregnir af því að stjórn sveitarfélagsins ætli að beita sér af alefli fyrir uppsetningu á ljósastaur í sveitarfélaginu. 17.10.2007 13:13
Handtekinn fyrir að stela blómum Lögregla handtók í gær karlmann í Kópavogi um kvöldmatarleytið vegna gruns um þjófnað en þetta er í annað skiptið á nokkrum dögum sem hann var handtekinn vegna slíks. 17.10.2007 12:55
Bensínverð hækkar í kjölfar hækkunar á olíuverði Verð á olíutunnu lækkaði örlítið í morgun eftir að hafa farið yfir 88 bandaríkjadollara vestanhafs í gær. Tunnan hefur hækkað um tæpa átta dollara á nokkrum dögum og byrjaði sú hækkun að skila sér í bensínhækkun hér á landi í morgun. 17.10.2007 12:45
Útvarpsstjóri með þreföld laun þingmanna Páll Magnússon útvarpsstjóri er með nærri þreföld laun þingmanna. Hann er með 1500 þúsund á mánuði, eftir því sem fram kemur í Fréttablaðinu í morgun. 17.10.2007 12:40
Fráleitt að kalla Herdísi heim frá Írak Jason Jones, fulltrúi bandaríska sjónvarpsþáttarins The Daily Show, sem staddur er hér á landi sagði fráleitt af íslenskum stjórnvöldum að kalla heim Herdísi Sigurgrímsdóttur fulltrúa Íslands í Írak. Jones lét öllum illum látum á blaðamannafundi sem hann boðaði til á Hilton hótelinu fyrir stundu. 17.10.2007 12:37
Fá fjögur kíló af Rússaþorski fyrir eitt kíló af íslenskum Íslenskir útgerðarmenn eru farnir að leigja þorskkvóta af Rússum í Barentshafi. Þeir geta leigt upp í fjögur kíló fyrir andvirði eins kílós á Íslandsmiðum. 17.10.2007 12:30
Tölur um skattbyrði bárust ekki OECD í tæka tíð Engar tölur um heildarskattbyrði á Íslandi í samanburði við önnur lönd eru birtar í nýjustu skattaskýrslu OECD. Ástæðan er sú að tölurnar bárust ekki til OECD frá fjármálaráðuneytinu íslenska í tæka tíð. 17.10.2007 12:03
Rannsaka ástæður stjórnarslita í borginni Sjálfstæðismenn í Reykjavík rannsaka nú atburðarrásina sem varð til þess að meirihlutinn í Reykjavík féll. 17.10.2007 12:00
Jafnt kynjahlutfall í ráðum hjá nýjum meirihluta Jafnt kynjahlutfall er samanlagt hjá nýjum meirihluta í níu helstu ráðum borgarinnar og þá er hlutfallið 60-40 körlum í hag hjá minnihluta sjálfstæðismanna. Hins vegar er enginn karlmaður í mannréttindanefnd borgarinnar. 17.10.2007 12:00
Frjósemi í fjósinu í Húsdýragarðinum Ný íbúi í Húsdýragarðinum leit dagsins ljós í gær þegar kýrin Blökk bar myndarlegum nautkálfi. Hann reyndist 44 kíló við burð og braggast vel að sögn stjórnenda Húsdýragarðsins. 17.10.2007 11:50
Morgunblaðið braut ekki gegn siðareglum í umfjöllun um nauðgunarleik Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands úrskurðaði í dag að Morgunblaðið hafi ekki brotið gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands í umfjöllun um nauðgunarleikinn "Rape Lay". 17.10.2007 11:33
Nýi borgarstjórinn er hraðlæs og kann ensku Dagur B. Eggertsson, sem tók við embætti borgarstjóra í gær, lærði hraðlestur í menntaskóla og telur sig enn búa að þeirri reynslu. 17.10.2007 10:59
Metupphæð greidd fyrir verk Ólafs Elíassonar Listaverkið Fivefold eye eftir Ólaf Elíasson seldist fyrir litlar 80 milljónir króna á uppboði hjá Christie´s í Lundúnum á sunnudaginn var. Það er að líkindum mesta upphæð sem greidd hefur verið fyrir verk eftir Íslending að sögn Jóhanns ÁgúSts Hansens, listmunasala hjá Gallerí Fold. 17.10.2007 10:28
Umferðaróhöpp á helstu stofnæðum Töluverðar umferðartafir urðu í borginni í morgun vegna umferðaróhappa sem urðu á stofnbrautum sem liggja frá nágrannasveitarfélögum og úthverfum inn í Reykjavík. 17.10.2007 10:02
Starfandi á vinnumarkaði fjölgar um átta þúsund milli ára Starfandi fólki á vinnumarkaði fjölgaði um 7.600 á þriðja ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra samkvæmt tölum Hagstofunnar. Á þriðja ársfjórðungi voru nærri 185 þúsund manns sem jafngildir því að atvinnuþátttaka hér á landi sé 84 prósent. 17.10.2007 09:22
Leigja þorskkvóta af Rússum Íslenskir útgerðarmenn eru farnir að leigja þorskkvóta af Rússum í Barentshafi. Verðið er aðeins 64 krónur á kílóið, en við íslandsstrendur gengur leigukvótinn á um og yfir 200 krónur kílóið. 17.10.2007 07:29
Kastaðist á kyrrstæðan bíl Sautján ára kappa á tryllitæki, brást bogalistin þegar hann var að reykspóla í hringi á bílastæði útgerðarfélagsins Brims á Akureyri upp úr miðnætti. Hann missti stjórn á bílnum, sem kastaðist á kyrrstæðan bíl og þaðan upp í steinbeð, þar sem hann hafnaði á gamalli skipsskrúfu, sem þar er til skrauts. 17.10.2007 07:28
Féll fyrir borð á slöngubát Björgunarsveitarmaður , sem var við æfingar, féll fyrir borð á slöngubáti á fullri ferð í Hofsvík við Kjalarnes laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi. Félagar hans fundu hann ekki í myrkrinu og kölluðu eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem var við æfingar við Akranes. 17.10.2007 07:26
Eskimo bregst við umfjöllun um átröskun Eskimo vill koma eftirfarandi yfirlýsingu á framfæri vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um heimildarmynd um veikindi ungrar stúlku sem þjáist af átröskunarsjúkdómi. 16.10.2007 19:16
Ástæða til að Geir grípi inn í? Sá styr sem staðið hefur um fyrrverandi borgarstjóra hefur dregið úr trúverðugleika hans segir prófessor í stjórnmálafræði, sem spyr sig hvort ástæða sé til að formaður flokksins grípi inn í málið. 16.10.2007 19:07
Lífsnauðsyn að fá meðferðarstofnun fyrir átröskunarsjúklinga Alma Geirdal, formaður Forma, félags sjúklinga með átröskun, segir lífsnauðsynlegt að koma á meðferðarstofnun fyrir sjúklinga með þennan lífshættulega sjúkdóm. Hún segir rétt að fárveik stúlka með átröskun hafi fengið tilboð um módelstörf hjá Eskimo. Talsmenn Eskimo segja að stúlkan hafi aldrei starfað hjá fyrirtækinu. 16.10.2007 18:59
Nafn mannsins sem lést í Krýsuvík Vélhjólamaðurinn sem lést í gær eftir að hafa farið útaf Krýsurvíkurvegi um klukkan 16 í gær hét Magnús Jónsson. Magnús var 32 ára gamall, búsettur í Jöklaseli í Reykjavík. Hann var barnlaus en lætur eftir sig sambýliskonu. 16.10.2007 17:53
Árni tók við verðlaunum í Lávarðadeildinni Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, hlaut í dag Animal Action verðlaunin sem Alþjóðlegu dýraverndunarsamtökin (IFAW) veita árlega. Árni veitti verðlaununum viðtöku í Lávarðadeild enska þingsins í London. 16.10.2007 17:45
Tilboð í landbúnaðartollkvóta töluvert lægri með nýjum reglum Tilboð í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópusambandslöndum voru allt að 66 prósentum lægri nú en í vor þegar slíkir kvótar voru síðast boðnir út. Þetta kemur fram í tilkynningu frá landbúnaðarráðuneytinu. 16.10.2007 17:44
Sóttu veika konu í hlíðar Valahnjúks Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, lenti nú á fimmta tímanum við Landspítalann í Fossvogi eftir að hafa sótt hollenska konu upp í hlíðar Valahnjúks í Þorsmörk. 16.10.2007 17:29
Berst fyrir lífi tveggja ára gamallar dóttur sinnar Ragna Erlendsdóttir er 27 ára gömul, einstæð, tveggja barna móðir. Fyrir 12 dögum greindist Ella Dís, tæplega tveggja ára gömul dóttir hennar með SMA. Það er lífshættulegur og ólæknandi hrörnunarsjúkdómur sem ræðst á mænuna og veldur lömun. 16.10.2007 17:21
Héraðsdómur staðfestir stjórnvaldssekt Skífunnar Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað þeim kröfum Árdegis að fella úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að félagið skyldi greiða 65 milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna samkeppnisbrota. 16.10.2007 17:09
Hanna Birna: Persónuleg samskipti verða aldrei söm Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins deildu hart á Björn Inga Hrafnsson, fyrrverandi samstarfsmann þeirra í borgarstjórn, á fundi borgarstjórnarinnar í dag. 16.10.2007 16:51
Prestar og Samtökin 78 þinga Prestar og Samtökin 78 munu efna til málþings í Þjóðminjasafninu á fösturdaginn kemur en þar á að ræða hjónabandið og staðfesta samvist. Fundarstjóri verður Ólafur Stephensen en málshefjendur verða fimm. 16.10.2007 16:40
Mannekla rædd í fyrramálið Dagur B. Eggertsson, nýr borgarstjóri, lýsti því yfir á borgarstjórnarfundi í dag að ekki yrðu gerar meiri háttar stjórnkerfisbreytingar á þessu kjörtímabili. 16.10.2007 16:19
Vilhjálmur vill að borgarstjórn styðji málssókn Svandísar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi borgarstjóri, lagði fram tillögu á fundi borgarstjórnar í dag um að borgarstjórnin styddi við málssókn Svandísar Svavarsdóttur vegna eigendafundar Orkuveitu Reykjavíkur. Þessa tillögu lagði hann fram fyrir hönd borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins sem nú er í minnihluta. 16.10.2007 16:06
Uppsagnir á Reykjalundi, störf boðin út Sjö starfsmönnum á Reykjalundi hefur verið sagt upp störfum, þar á meðal þremur vaktmönnum auk starfsfólks í þvottahúsi og við símavörslu. Jón Benediktson framkvæmdastjóri Reykjalundar segir að um sparnað og hagræðingu sé að ræða í rekstrinum. 16.10.2007 15:46
Dæmt í morðmáli Gísla Þorkelssonar Búist er við að dómur falli í Jóhannesarborg í vikunni í morðmáli Gísla Þorkelssonar sem myrtur var í Suður-Afríku sumarið 2005. Fjórir vinir Gísla eru ákærðir fyrir aðild að morðinu, en einn þeirra, Willie Theron, játaði við yfirheyrslur að vera valdur að dauða hans. 16.10.2007 15:25
Kosið í nefndir og ráð í borginni Björn Ingi Hrafnsson verður formaður borgarráðs en auk hans sitja Svandís Svavarsdóttir, Margrét Sverrisdóttir og Björk Vilhelmsdóttir í borgarráði fyrir X-listann eins og hann var nefndur í atkvæðagreiðslu um fulltrúa í nefndum og ráðum borgarinnar á borgarstjórnarfundi í dag. 16.10.2007 15:25
Kristinn H. Gunnarsson: Ríkisstjórnarfundir teboð frekar en stjórnvaldsstofnanir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagði á Alþingi í dag, að ríkisstjórnarfundir væru frekar teboð en stjórnvaldsstofnanir. Grímseyjarferjumálið var til umræðu á Alþingi í dag. 16.10.2007 15:16
Dagur: Verkefni borgarstjórnar að endurvekja traust Dagur B. Eggertsson var kjörinn borgarstjóri á fundi borgarstjórnar sem hófst klukkan 14. Hann sagði verkefni borgarstjórnar sem heildar að endurvekja traust meðal borgarfulltrúa. 16.10.2007 14:41
Mokar „framsóknarflórinn" úr iðnaðarráðuneytinu „Vatnalögin eru eitt af þeim stóru ágreiningsmálum sem komin eru upp á milli stjórnarflokkanna. Þeir vita ekkert hvernig þeir eiga að leysa úr málinu,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra við upphafi þingfundar í dag. 16.10.2007 14:20
Samið um flug til Vestmannaeyja Flugfélag Íslands skrifaði á dögunum undir samning við Vegagerðina um flug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Í framhaldi af útboði sem haldið var sl. sumar ákvað samgönguráðherra að fela Vegagerðinni að semja við Flugfélag Íslands um flug á þessari leið. 16.10.2007 14:06
Margrét tekur Hönnu Birnu sér til fyrirmyndar Nýr meirihluti Samfylkingarinnar, Vinstri - grænnna, Framsóknarflokksins og Frjálslyndra og óháðra tók formlega við völdum í borgarstjórn Reykjavíkur í dag þegar fram fór borgarstjórnarfundur. Borgarstjórnarfundurinn hófst klukkan 14 og var byrjað á því að greiða atkvæði um nýjan forseta borgarstjórnar. 16.10.2007 14:03
Bryndís verður stjórnarformaður OR tímabundið Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi þingmaður og núverandi aðstoðarrektor á Bifröst, verður stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur á meðan pólitískir fulltrúar í borginni fara yfir málefni fyrirtækisins í heild sinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nýjum meirihluta. 16.10.2007 13:46
Kvíðaraskanir hjá börnum áhyggjuefni Börn eru kvíðin, haga sér illa, eru stressuð, þunglynd og með lífstíl fræga fólksins á heilanum. Þetta er niðurstaða rannsóknar á grunnskólabörnum í Bretlandi, þeirri fyrstu sinnar tegundar í 40 ár. Hér á landi eru kvíðaraskanir hjá börnum að verða meira áberandi og talið að nokkuð vanti upp á að greina tilfelli. 16.10.2007 13:44
Landsmenn hugi að tungunni Menntamálaráðuneytið hefur sent út dreifibréf þar sem hvatt er til þess að landsmenn hugi nú, eins og undanfarin ár, að íslenskri tungu þann 16. nóvember og dagana þar í kring. 16.10.2007 13:35