Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vinnukrani rakst á Höfðabakkabrú Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út laust eftir klukkan ellefu í morgun eftir að vinnukrani á vörubifreið rakst á Höfðabakkabrú. Svo virðist sem ökumaður vörubifreiðarinnar hafi ekki áttað sig á því að kraninn var enn uppi. 8.10.2007 11:47
Blaðið verður 24 stundir Nafni Blaðsins verður breytt frá og með morgundeginum og mun það framvegis heita 24 stundir. Fram kemur í tilkynningu frá Árvakri, sem rekur blaðið, að þetta sé hluti af sókn á dagblaðamarkaði sem hófst í sumar og verður nú fram haldið undir nýju nafni og með því að gera efni blaðsins enn aðgengilegra og skemmtilegra. 8.10.2007 11:34
Staðfest að Ringo og Olivia komi Nú hefur verið staðfest að Ringo Starr og Olivia Harrison ekkja Georgs Harrison munu koma til landsins og verða viðstödd í Viðey þegar friðarsúla Yoko Ono verður formlega tekin í notkun á morgun. Hinsvegar hefur Paul McCartney afboðað komu sína. 8.10.2007 11:30
RES semur við bandarískann háskóla um samvinnu Forsvarsmenn RES Orkuskólans á Akureyri undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu við tækniháskólann Colorado School of Mines í Bandaríkjunum um rannsóknir og kennslu í auðlinda- og orkumálum. 8.10.2007 11:15
Vilja afnema einokun ÁTVR Lagt er til að einokun ÁTVR í sölu léttvíns og bjórs verði afnumin í frumvarpi sem sautján þingmenn úr þremur flokkum standa á bak við. Þetta er í fimmta skiptið sem frumvarpið er lagt fram á Alþingi. 8.10.2007 11:10
Sakfelldur fyrir að ráðast tvisvar á sama manninn Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í morgun karlmann um tvítugt í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast tvisvar á sama manninn með um mánaðarmillibili. 8.10.2007 10:47
Melahverfi kemur út úr skápnum Í síðustu viku voru merkingar við Melahverfi í Hvalfjarðarsveit endurbættar. Sumir þekkja Melahverfið betur undir nafninu Hagamelur. Segja má að Melahverfið hafi verið hálfgert leynihverfi, því það var mjög illa merkt. Farið var fram á bættar merkingar við Vegagerðina og nú eru þær komnar upp. Greint er frá þessu á vefsíðu sveitarinnar 8.10.2007 10:36
Lést eftir líkamsárás Maðurinn sem fannst illa leikinn í íbúð sinni við Hringbraut í Reykjavík í gærdag er látinn. Hann lést af sárum sínum í nótt. 8.10.2007 10:19
Verslun í eigu íslensks verðbréfafyrirtækis hlýtur verðlaun í Lundúnum Verslunin Duchamp Store við Regent Street í Lundúnum, sem er að stórum hluta í eigu íslensks verðbréfafyrirtækis, var útnefnd „besta litla verslunin í London" á verðlaunahátíðinni Retail Interior Awards í Lundúnum í síðustu viku. 8.10.2007 10:16
Kaupþing rannsakað í kjölfar Carnegie-málsins Hið svokallaða Carnegie mál í Svíþjóð teygir nú anga sína um öll Norðurlöndin. Sænska fjármálaeftirlitið hefur hafið rannsókn á átta öðrum norrænum bönkum þar á meðal Kaupþing banka. Hinir bankarnir eru HQ Bank, Kaupthing Bank, Erik Penser Fondkommission, SEB, Swedbank, Öhman og Handelsbanken. Þetta kemur fram í blaðinu Wall Street Journal í morgun. 8.10.2007 10:08
Vilja þingmenn með í baráttu gegn Guantánamo og leynifangelsum Íslandsdeild Amnesty International hefur sent öllum þingmönnum landsins bréf þar sem þeir eru hvattir til að skrifa undir áætlun samtakanna um að binda enda á ólöglegt varðhald í hinu svokallaða stríði gegn hryðjuverkum. 8.10.2007 09:47
Minkur í Eyjabát Sprelllifandi minkur sást um borð í fiskiskipinu Stíganda VE í Vestmannaeyjahöfn á laugardag, en eyjamenn hafa til þessa prísað sig sæla að vera lausir við þann vágest. 8.10.2007 08:34
Ákvörðun um gæsluvarðhald í dag Það ræðst í dag hvort lögreglan á höfuðborgarsvæðinu krefst gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir manni, sem handtekinn var í tengslum við rannsókn á alvarlegri líkamsárás í húsi við Hringbraut í gærdag. 8.10.2007 08:05
Sjálfstæðismenn funda í dag Borgarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins koma saman til fundar í dag til að ræða aðild Orkuveitu Reykjavíkur að sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy og verður jafnvel boðað til blaðamannafundar að honum loknum. 8.10.2007 08:00
Í lífshættu eftir líkamsárás Karlmaður á fimmtugsaldri liggur lífshættulega slasaður á gjörgæsludeild eftir líkamsárás sem hann varð fyrir á heimili sínu í vesturbæ Reykjavíkur. Einn maður hefur verið handtekinn vegna málsins sem enn er í rannsókn. 7.10.2007 18:27
Yoko og Sean Lennon komin, Ringo er á leiðinni Yoko Ono er komin til landsins til að tendra friðarsúluna í Viðey sem mun lýsa upp íslenskan næturhimin í minningu John Lennon. Sean, sonur þeirra hjóna, er einnig í Reykjavík. Mikið umstang var í Viðey í dag þegar langferðarbílar voru fluttir þangað út. Trymbillinn Ringo er hins vegar ekki enn mættur en von á honum um eða eftir helgina. 7.10.2007 18:09
Formannsskipti í UJ Á landsþingi Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, sem nú stendur yfir í Reykjavíl mun nýr formaður formlega taka við völdum. Við formennskunni tekur Anna Pála Sverrisdóttir en Magnús Már Guðmundsson hefur verið formaður undanfarin ár. 7.10.2007 14:36
Slysagildra í Salahverfi Í Salahverfi í Kópavogi er ekkert sem varar fólk við vatni sem fyllir undirgöng undir Fífuhvammsveg. Mikið vatn hefur safnast þar fyrir í rigningunum að undanförnu og er nú svo komið að ekki er hægt að komast þarna í gegn. Því verður fólk að fara yfir veginn. Börn hafa talsvert sótt í að leika sér í og við göngin sem sjást illa frá veginum. 7.10.2007 12:35
Aðsóknarmet í sundlaugina í Bolungarvík Fjöldi gesta í sundlaugina í Bolungarvík hefur aldrei verið meiri en undanfarna daga. Um síðustu helgi sóttu um 400 manns sundlaugina heim sem er aðsóknarmet. 7.10.2007 12:31
Bjarni græðir tæpa milljón á hvern starfsmann OR Hluturinn sem Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður REI, fékk að kaupa í dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, á genginu 1,28, er nú metinn af REI á 1082 milljónir. 7.10.2007 10:56
Táragasi beitt í Reykjanesbæ Rétt fyrir kl. 05:00 í morgun brutust út hópslagsmál á Tjarnargötu í Reykjanesbæ. Lögreglumenn fóru á staðinn sökum óspekta og lentu þar í átökum við fjölda fólks. 7.10.2007 09:50
Níu árásir í nótt Níu líkamsárásir voru kærðar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, þar af voru fimm i miðborginni. Sextán voru kærðir fyrir brot á lögreglusamþykkt og fimm voru teknir fyrir ölvunarakstur. 7.10.2007 09:34
Stuðlabergið tískufyrirbrigði? Þrjú þúsund tonna stuðlabergsklæðning sem þekja mun menningarhúsið á Akureyri hefur vakið mikla athygli. Svo gæti farið að stuðlabergið yrði að tískufyrirbrigði. 6.10.2007 18:45
Skítur og viðbjóður á flugvellinum Frárennslislagnirnar á Reykjavíkurflugvelli hafa verið stíflaðar frá því í febrúar með tilheyrandi sóðaskap og óþægindum.Enginn kannast við að bera ábyrgð á lögnunum. 6.10.2007 18:45
Milljónatjón verður úr sögunni Tugmilljónatjón verður árlega þegar ökumenn dæla röngu eldsneyti á bíla sína. Þetta tjón getur heyrt sögunni til því fram er komin ný lausn sem á að tryggja að ekki er lengur hægt að dæla röngu eldsneyti á bílinn. 6.10.2007 18:41
ÖBÍ fagnar stefnu stjórnvalda Á aðalfundi Öryrkjabandalags Íslands sem lauk í dag var einróma samþykkt ályktun þar sem stefnu stjórnvalda um umbætur í velferðakerfinu er fagnað. ÖBÍ leggur áherslu á að skipulagt verði eitt nýtt og betra almannatryggingakerfi fyrir alla landsmenn. 6.10.2007 16:03
Selja lykil að lífi Landssöfnun Kiwanishreyfingarinnar til styrktar geðsjúkum og aðstandendum þeirra, Lykill að lífi, stendur nú sem hæst. Um þúsund fótgönguliðar úr Kiwanisklúbbum um land allt ganga í hús, ásamt fjölmörgum aðstoðarmönnum sem leggja þeim lið við sölu K-lykilsins. 6.10.2007 14:21
Dómsmálaráðherra: Dapurlegt tímanna tákn að Alfreð skuli verja sjálfstæðismenn í OR Björn Bjarnason dómsmálaráðherra heldur áfram að fjalla um málefni Orkuveitu Reukjavíkur og Reykjavík Energy Invest á bloggi sínu. Í gærkvöld skrifaði hann að í ljósi þess sem á undan er gengið og gagnrýni sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur á Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarformann OR, hefði verið dapurlegt að horfa á hann í Kastljósi og verja stjórnahætti núverandi meirihluta. 6.10.2007 13:50
Tvennt flutt á slysadeild vegna gruns um reykeitrun Tilkynnt var um að eldur væri laus í gömlu húsi við Búðarstíg á Eyrarbakka laust eftir klukkan 16:00 í gær. Sjúkraflutningamenn voru fyrstir á staðinn og voru húsráðandi og gestir komnir út. 6.10.2007 11:40
Rafmagnslaust á Húsavík Rafmagnslaust er á Húsavík sem stendur. Rarik vinnur að viðgerðum en vitlaust veður er í bænum, norðanátt og slydda. Einn viðmælandi Vísis á Húsavík lýsti yfir áhyggjum af því að ekki næðist útvarp á svæðinu en svo virðist sem útvarpssendingar Ríkisútvarpsins liggi niðri í rafmagnsleysinu. 6.10.2007 11:02
Jón forseti Fundur Alþjóðsamtaka lækna sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn kaus í dag Jón Snædal lækni til þess að gegna embætti forseta samtakanna. Jón er 58. forseti samtakanna og fyrsti Íslendingurinn sem gegnir starfinu. Jón hefur verið varaformaður Læknafélags Íslands og formaður siðanefndar Alþjóðasamtaka lækna. 6.10.2007 10:10
Vatnstjón í vesturbæ Reykjavíkur Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að fjölbýlihúsi í vesturbæ Reykjavíkur laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. Þar hafði gleymst að skrúfa fyrir krana í eldhúsi íbúðar á þriðju hæð með þeim afleiðingum að vatn lak niður á hæðina fyrir neðan. 6.10.2007 10:09
Tekinn tvisvar fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna Tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður var tvisvar í nótt stöðvaður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Lögreglan á Akranesi stöðvaði manninn fyrst laust fyrir miðnætti í gær. 6.10.2007 10:04
Nítján teknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erilsamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Talsverð ölvun var í miðbæ Reykjavíkur og nokkuð um pústra að sögn lögreglu. 6.10.2007 10:01
Tvær bílveltur á Ísafirði Tvær bílveltur urðu í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði í nótt. Klukkan hálfþrjú fór fólksbíll útaf veginum í Hnífdal með þrjá farþega, allt ungmenni, innanborðs. Öll þrjú voru flutt á sjúkrahús með minniháttar meiðsli. 6.10.2007 09:34
Forstjóri OR leyfði kaup Bjarna í REI Hjörleifur B. Kvaran forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, samþykkti laun Bjarna Ármannssonar og heimild hans til kaupa á 500 milljóna króna hlut á sérkjörum. 6.10.2007 06:30
Ísafjarðarbær samþykkir nýtt stjórnskipulag Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær nýtt stjórnskipulag fyrir Ísafjarðarbæ. Hinu nýja stjórnskipulagi er ætlað að bæta þjónustu og auka skilvirkni. 5.10.2007 21:23
Dagar veiðisamfélagsins taldir? Bakkfirðingar spyrja sig hvort dagar íslensks veiðisamfélags séu taldir. Þeim sýnist eina mótvægisaðgerð stjórnvalda verða sú að íbúarnir skiptist á um að mála rafmagnsskúr. 5.10.2007 20:28
Borgarstjóri klagaður Fréttastofa Sjónvarps greindi frá því í fréttum sínum í kvöld að allir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins nema Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri hafi gengið á fund formanns flokksins, Geirs H. Haarde og varaformanns, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur til þess að greina þeim frá óánægju sinni með vinnubrögð Vilhjálms við sameiningu REI og GGE. 5.10.2007 19:06
Eru einkarekin fangelsi hagkvæm? Dómsmálaráðherra hyggst skoða það í fullri alvöru hvort einkarekstur sé hagkvæmur kostur til að koma nýju fangelsi á höfuðborgarsvæðinu á laggirnar. 5.10.2007 18:45
Ofvirkniaukandi E-efnablanda Neytendasamtökin hvetja neytendur til að sneiða hjá matvælum sem innihalda blöndu af litarefnum og rotvarnarefni sem nýleg bresk rannsókn bendir til að auki ofvirkni barna. 5.10.2007 18:45
Villi ekki rúinn trausti Borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna, Júlíus Vífill Ingvarsson, gagnrýnir harðlega aðdraganda samruna orkuútrásarrisanna en segir það fjarri sanni að borgarstjóri sé rúinn trausti flokkssystkina sinna. Viðskiptaráðherra segir að tryggja þurfi með lögum að einkaaðilar geti ekki eignast meirihluta í almannaveitum eða auðlindirnar sjálfar. 5.10.2007 18:30
Þýfi Litháana átti að nota til að fjármagna fíkniefnasölu Þýfi fimmtán Litháa, sem nú hafa verið handteknir fyrir umfangsmikinn búðaþjófnað, var að öllum líkindum gjaldmiðill í fíkniefnaviðskiptum og áttu fíkniefnin að fara á markað hér. Öryggisvörður varð fyrir líkamsárás þegar hann reyndi að stöðva tvo þeirra við iðju þeirra. 5.10.2007 18:03
Lettarnir aldrei starfsmenn GT verktaka Gt verktakar, sem nýverið voru kærðir fyrir að hafa ekki staðið rétt að launagreiðslum til 13 lettneskra verkamanna sem voru á þeirra vegum að vinna við aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunnar, segja að umræddir verkamenn séu ekki, og hafi aldrei verið starfsmenn fyrirtækisins. 5.10.2007 17:37
Miklar umferðartafir á Miklubraut Umferðarslys varð við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar fyrir skömmu sem hefur valdið miklum töfum við gatnamótin. Engin slys urðu á fólki en olía lak á götuna. 5.10.2007 17:22