Fleiri fréttir

Björn opinn fyrir einkareknum fangelsum

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir ekki óeðlilegt, að þeirri spurningu sé velt fyrir sér, hvort stofna eigi með samningi til samstarfs við einkaaðila um byggingu og jafnvel rekstur fangelsa. Þessi orð lét ráðherrann falla í ávarpi sínu á Kvíabryggju í dag er kynnt var þar fjölgun á rýmum úr 14 og í 22.

Stærri Lagarfossvirkjun vígð

Nýr áfangi Lagarfossvirkjunar verður vígður á laugardaginn kemur. Hornsteinn að virkjuninni verður lagður af fjármálaráðherra Árna M. Mathiesen. Nýji áfanginn stækkar Lagarfossvirkjun úr 8 MW í rúm 28 MW og orkuframleiðsla RARIK samstæðunnar tvöfaldast, að því er fram kemur í tilkynningu.

Framsóknarmenn gagnrýna Ingibjörgu

Framsóknarmenn gagnrýndu utanríkisráðherra harðlega á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Telja þeir að ákvörðun ráðherra um að draga starfsmann friðargæslunnar í Írak til baka sendi röng skilaboð út í alþjóðasamfélagið. Eðlileg ákvörðun segir varaformaður nefndarinnar.

Guðni var skemmtilegastur

Vísir fékk Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðing til að leggja mat sitt á ræður formanna stjórnmálaflokkanna á Alþingi í gærkvöld. Ræðurnar voru líflegar eins og venja er þegar forsætisráðherra flytur stefnuræðu. Einar Mar hafði þetta að segja um málið.

Flestir landeigendur við Jöklu vilja dómsmál

Meginþorri eigenda vatnsréttinda við Jökulsá á Dal eða 61 þeirra hefur ákveðið að una ekki úrskurði matsnefndar um verðmæti réttindanna vegna Kárahnjúkavirkjunnar og skjóta ágreiningnum til dómstóla. Frestur til að ákveða slíkt rann út í dag, 3. október. Það verður lögmannstofan Regula á Egilsstöðum sem annast málið fyrir landeigendur.

Rifu hús án tilskilinna leyfa

Deildarstjóri Mengunarvarna Reykjavíkurborgar rak upp stór augu þegar hann las á Vísi í gær að hafið væri niðurrif á húsinu á Grenimel 46. Þar á bæ kannaðist nefnilega enginn við að hafa veitt tilskilin leyfi fyrir niðurrifinu. Fulltrúar mengunarvarna og vinnueftirlitsins mættu á svæðið í morgun og þar var farið yfir málið. Komust menn þá að þeirri niðurstöðu að réttast væri að halda niðurrifinu áfram þar sem ófært væri að láta húsið standa að svo komnu máli.

Undrast umfjöllun norsks fjölmiðils um rítalínnotkun hérlendis

Ekkert bendir til þess að rítalín sé ofnotað hér á landi að sögn Matthíasar Halldórssonar, landlæknis. Hann segir umfjöllun norska dagblaðsins Dagsavisen þar sem rítalínnotkun hér á landi er borin saman við neyslu í fátækrahverfum Bandaríkjanna vera einkennilega.

Líkt og Kínaforseti væri með innkaupalista yfir samstarfsmál

Forseti Íslands segir engu líkara en Kínaforseti hafi verið með innkaupalista Íslendinga yfir samstarfsmál við Kínverja þegar forsetarnir tveir hittust á fundi í Sjanghæ í gær. Málefnin sem hafi borið á góma hafi verið margfalt fleiri nú en í heimsókn til Kína fyrir tveimur árum.

Smákafbátar í rannsóknum milli Íslands og Færeyja

Rannsóknir með þremur fjarstýrðum smákafbátum á hafsvæðinu á milli Íslands og Færeyja ganga vel að því er fram kemur á heimasíðu færeysku hafrannsóknastofnunarinnar. Öldungadeild bandaríska þingsins lætur sig málið varða þar sem að bandaríski sjóherinn hefur fjármagnað rannsóknirnar að hluta.

Bætur Tryggingastofnunnar hækka um fjórðung

Bætur sem Tryggingastofnun greiðir út hafa í heild aukist um rúmlega fjórðung þegar borinn er saman reikningur árisins 2006 og fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár. Hækkun bóta Tryggingastofnunar ríkisins er með öðrum orðum 25,4% hærri samkvæmt fjárlagafrumvarpinu en þær voru samkvæmt reikningi ársins 2006.

Lækka skatta á fólk og fyrirtæki

Ríkisstjórnin hyggst lækka skatta á fólk og fyrirtæki á kjörtímabilinu. Þetta kom fram í stefnuræðu forsætisráðherra á alþingi í gærkvöldi. Persónuafslátturinn verður hækkaður og almannatryggingar endurskoðaðar til að bæta hag lágtekjufólks og millitekjufólks. Stjórnarandstaðan sagði ræðuna flata.

Þjófagengi lék lausum hala í borginni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti þjófagengi í borginni í gær. Sjö útlendingar voru handteknir vegna gruns um skipulagða þjófnaði úr hinum ýmsu verslunum.

Samskiptaerfiðleikar ástæða þess að samningum var sagt upp

Miklir samskiptaerfiðleikar urðu til þess að talmeinafræðingar hjá Talþjálfun Reykjavíkur sögðu sig af gildandi samningum við Tryggingastofnun. Það á þó ekki að koma í veg fyrir að foreldrar barna sem eru í þjálfun hjá fyrirtækinu fái styrk frá ríkinu að mati Daggar Pálsdóttur.

Rætt um friðargæsluna á fundi utanríkismálanefndar

Utanríkismálanefnd Alþingis kom saman til fundar í morgun þar sem málefni íslensku friðargsælunnar voru meðal annars til umræðu að beiðni Sivjar Friðleifsdóttur, fulltrúa Framsóknarflokksins, í nefndinni.

Strokufangarnir handteknir í húsi í Vesturbænum

Strokufangarnir sem struku frá fangelsinu að Litla-Hrauni voru handteknir í húsi í miðborginni nú fyrir stundu. Bifreiðin sem þeir stálu í nótt er einnig komin fram. Mennirnir veittu enga mótspyrnu við handtökuna.

Breytir ekki skilyrðum vegna samruna á sviði fraktflutninga

Samkeppniseftirlitið telur ekki forsendur fyrir því að fella niður skilyrði sem sett voru fyrir samruna Icelandair, Bláfugls og Flugflutninga árið 2005. Þetta kemur fram á vef Samkeppniseftirlitsins. Þá rannsakar eftirlitið hvort félögin hafi brotið gegn skilyrðium ákvörðunarinnar.

Hörð gagnrýni á Ríkiskaup vegna sölu NATO-eigna

Einar Örn Thorlacius sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar hefur sent Ríkiskaupum bréf vegna fyrirhugaðrar sölu ríkisins á fyrrum eignum NATO í Hvalfirði. Í bréfinu koma m.a. fram alvarlegar athugsemdir við framkvæmd sölunnar þar sem þessar eignir séu ekki til í fasteignamatinu og að svæðið sé ekki til á neinu skipulagi.

Strokufangar á Skoda

Fangarnir sem struku frá Litla-Hrauni í gærkvöldi eru enn ófundnir. Lögreglu hafa borist tilkynningar um innbrot í hesthús á Eyrarbakka og eru vísbendingar um að þar hafi menn dvalið um stund. Þá segir lögregla að Í Tjarnarbyggð á milli Eyrarbakka og Selfoss hafi verið brotist inn í vinnuskúr og þaðan stolið mat en engu öðru. Lögreglan telur víst að fangarnir séu komnir á Höfuðborgarsvæðið.

Strokufangarnir ófundnir

Lögreglan hefur enn ekki fundið fangana sem létu sig hverfa í lok AA fundar á Litla Hrauni, um klukkan níu í gærkvöldi.

Geir Haarde syngur I Walk The Line á nýrri plötu

Geir H. Haarde forsætisráðherra sýnir á sér nýja hlið nú í haust þar sem hann tekur lagið með hljómsveitinni South River Band á nýrri plötu sveitarinnar sem hlotið hefur nafnið Allar stúlkurnar. Lagið sem Geir valdi að syngja er hið þekkta I Walk The Line eftir Johnny Cash.

Slösuðust í árekstri við rútubíl

Ökumaður og farþegi í jeppa slösuðust þegar jeppinn lenti í árekstri við rútubíl á mótum Grensásvegar og Fellsmúla síðdegis í gær.

Slasaðist í bílveltu

Einn slasaðist en tveir sluppu ómeiddir þegar bíll valt út af þjóðveginum í Mjóafirði við Ísafjarðardjúp síðdegis í gær.

Á leikskóla í 40 ár

Það er gefandi að vinna á leikskóla með börnum segir Þóra María Stefánsdóttir sem í dag hélt upp á fjörutíu ára starfsafmæli sitt á leikskólanum Laugaborg.

Sérstakt eftirlit með erlendu vinnuafli

Í það minnsta 1700 erlendir verkamenn starfa hér á landi en eru hvergi skráðir. Sérstakt eftirlitsátak vegna erlendra starfsmanna hófst í dag og stendur næstu mánuði.

Tendrun friðarsúlu Yoko Ono vekur heimsathygli

Það er langur listi fyrirmenna sem fengið hefur boð um að vera við tendrun á friðarsúlu Yoko Ono í Viðey á fæðingardegi bítilsins John Lennon. Nærri öruggt þykir að Ringo Starr muni baða sig í sviðsljósinu með ekkjunum Yoko Ono og Oliviu Harrison. Ingólfur Margeirsson bítlasérfræðingur vonar að Paul McCartney mæti á svæðið.

Erlendir mótorhjólamenn spóla á hálendi Íslands

Á sama tíma og sjóstangveiði er að vaxa sem grein í ferðaþjónustu er önnur ný í vexti sem reyndar hefur farið fram hjá flestum. Vélhjólamenn sem vilja vaða á vegleysur inn til fjalla eru nýr hópur ferðamanna sem á eftir að láta að sér kveða í íslenskri ferðaflóru.

Tveir á slysadeild

Klukkan 17:30 í dag rákust saman rúta og jeppi á horni Fellsmúla og Grensásvegar. Í jeppanum voru tveir farþegar og voru þeir báðir fluttir með sjúkrabíl á slysadeild. Bílstjóri og farþegar rútunnar hlutu alvarleg meiðsl. Ekki fást nánari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Tekist á í borgarstjórn

Snörp orðaskipti hafa verið á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag á milli forseta borgarstjórnar, Björns Inga Hrafnssonar og oddvita Samfylkingarinnar, Dags B. Eggertssonar um málefni Sundabrautar.

Engar vísbendingar um að svefnlyf hafi verið notuð af nauðgurum

Notkun lyfja á borð við flunitrazepam hér á landi hefur aldrei komið fram við sýnatöku hjá fórnarlöbum nauðgara hér á landi. Þetta segir landlæknir en hann lét gera athugun á málinu í kjölfar mikillar umræðu á Netinu og í fjölmiðlum. Hann segir því litla ástæðu til þess að taka flunitrazepam, sem hefur sömu innhaldsefni og rohypnol, af markaði en lyfið er vinsælt svefnlyf, sérstaklega á meðal eldra fólks. Rohypnol hefur lengi haft orð á sér að vera notað af nauðgurum til þess að sljóvga fórnarlömb sín.

Leifur Örn á topp Cho Oyu

Leifur Örn Svavarsson fjallaleiðsögumaður náði tindi Cho Oyu, sjötta hæsta fjalls heims, í nótt. Hann var í hópi manna sem gengu á tindinn sem er í 8201 metra hæð.

Vilja heimsmeistaraeinvígi Anands og Kramniks í borgina

Samþykkt var einróma á fundi borgarstjórnar í dag að leggja til að Reykjavíkurborg kanni í samvinnu við Skáksamband Íslands og jafnvel fleiri aðila hvort möguleiki sé að halda heimsmeistaraeinvígið í skák í hér á landi á næsta ári. Þá eru 35 ár frá heimsmeistaraeinvígi Fischers og Spasskys hér á landi.

Of lítið af sérmenntuðu fólki í upplýsingatækni

Geir H. Haarde forsætisráðherra ávarpaði ráðstefnuna "Upplýsingatækni - á leið úr landi?" og gerði að umtalsefni að of lítið framboð væri af sérmenntuðu fólki í upplýsingatækni hérlendis. "Staðan sem nú virðist blasa við er sú að viðvarandi skortur er á fólki með menntun á sviði upplýsingatækni og áhugi framhaldsskólanema fyrir því að sækja nám á því sviði er of lítill," segir Geir.

Skilorðsbundið fangesi fyrir eignaspjöll

Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt konu í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir eignaspjöll þegar hún reyndi að brjótast inn í verslun á Egilsstöðum í febrúar síðastliðnum.

Bankar rukka fyrir upplýsingar um reikningsstöðu

Flestir bankar hér á landi taka gjald fyrir að veita viðskiptavinum sínum upplýsingar um stöðu á reikningi þegar hringt er í þjónustuver. Gjaldið er á bilinu 100 til 65 krónur. Glitnir, einn banka, tekur ekkert gjald fyrir viðvikið. Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna leggur áherslu á að gjaldtaka bankanna í tilvikum sem þessum sé í samræmi við kostnað sem hlýst af.

Læknar LHS til alþjóðasveitarinnar

Slysavarnafélagið Landsbjörg og Landspítali hafa gert með sér samning um þátttöku lækna LSH í starfi Íslensku alþjóðasveitarinnar.

Fjórir undir áhrifum fíkniefna

Fjórir ökumenn voru teknir fyrir aka undir áhrifum fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Tveir voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Garðabæ.

Sjá næstu 50 fréttir