Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Velti jeppa við Hraunaveitur Ökumaður jeppa var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur í gærkvöld eftir að jeppi hans valt í hálku skammt frá Hraunaveitum Kárahnjúkavirkjunar. Maðurinn var fyrst fluttur á sjúkrahúsið á Egilsstöðum en þar sem hann var með höfuðáverka var ákveðið að flytja hann með flugvél til Reykjavíkur og dvelur hann nú á Landspítalanum í Fossvogi. 16.9.2007 09:49
Slapp vel þegar bíll fór þrjár veltur Ungur karlmaður þykir hafa sloppið vel þegar hann missti stjórn á bíl sínum á Skeiðavegi við Merkurhraun rétt eftir miðnætti í nótt. Bíllinn fór út af veginum og fór einar þrjár veltur að sögn lögreglunnar á Selfossi. 16.9.2007 09:38
Tuttugu og fjórir teknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Tuttugu og fjórir voru handteknir í miðbæ Reykjavíkur í nótt fyrir brot á lögreglusamþykkt, en eins og kunnugt er hefur lögregla tekið harðar á slíkum brotum síðustu tvær helgar þar sem eftirlit hefur verið hert. Alls hafa því 38 verið teknir fyrir slík brot um helgina. 16.9.2007 09:31
Lugovoj til liðs við Zhírínovsky? Andrei Lugovoi, njósnarinn fyrrverandi sem bresk stjórnvöld hafa sakað um morðið á öðrum fyrrverandi njósnara, Alexander Litvinenko, hyggst bjóða sig fram til þingsetu fyrir hægriöfgaflokkinn LDPR, flokk Vladímírs Zhírínovsky, í kosningum 2. desember. 15.9.2007 22:30
Hellisheiðin opnuð á ný Búið er að opna Hellisheiðina á ný en henni var lokað um sjöleytið í kvöld eftir að tveir fólksbílar rákust saman í Kömbunum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi komu bílarnir tveir úr gagnstæðri átt og var áreksturinn allharður. 15.9.2007 21:00
Missti stjórn á bíl sínum og endaði á vegriði Ungur maður slapp án teljandi meiðlsa þegar hann missti stjórn á bíl sínum á Snæfellsnesvegi við Grundará laust eftir klukkan tíu í morgun. Bíllinn hafnaði á vegrið og skemmdist svo mikið að það varð að draga hann burt með kranabíl. 15.9.2007 20:00
Hellisheiðin lokuð vegna umferðarslyss Hellisheiðin er lokuð vegna bílslyss sem þar varð upp úr klukkan sjö. Þá rákust tveir bílar saman í Kömbunum og þurfti að flytja einn með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. 15.9.2007 19:50
Hvalir vekja athygli í Vestmannaeyjahöfn Óvanalegrar hvalagengdar hefur orðið vart í höfninni í Vestmannaeyjum. Tvær ólíkar hvalategundir virðast hafa tekið sér bólfestu um stund í innsta hluta hafnarinnar. Hvalirnir hafa vakið mikla athygli hjá bæjarbúum og hefur fjöldi manna lagt leið sína niður á bryggju. 15.9.2007 19:30
Alhvít jörð á Hellisheiði og snjóar í Esjuna Veturinn gekk í garð á Hellisheiði í dag og í Þrengslum og Esjan setti upp hvítan koll. Þótt Hellisheiðin sé hvít yfir að líta þá var vegurinn að mestu auður enda veghitinn allt að þremur gráðum meiri en lofthitinn. Sumstaðar var þó krapi og hvatti lögreglan í dag ökumenn til að fara varlega. 15.9.2007 19:15
Stjórnvöld flýta ekki fyrir vistvæðingu bílaflotans Stjórnvöld þurfa að gera gangskör í að breyta gjöldum vistvænna bíla, segir framkvæmdastjóri Orkuseturs. Sýnishorn af vistvænustu bílum landsins eru til sýnis í Perlunni um helgina. 15.9.2007 19:00
Rökstuddan grun um brot þarf til að heimila líkamsleit lögreglu Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður segir að lögreglan þurfi að hafa rökstuddan grun til að leita á fólki. Með hertum aðgerðum sínum fann lögreglan vopn og fíkniefni á fólki í gær í miðborginni. Sveinn Andri segir að borgarar hafi úrræði telji þeir á sér brotið við slíka líkamsleit. 15.9.2007 18:45
Strákar í Víðistaðaskóla gera stuttmynd um afleiðingar eineltis Krakkar í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði búa sjálfir til námsefni fyrir aðra nemendur í skólanum um þeirra hjartans mál. Sex strákar eru að gera stuttmynd og vefsvæði um áhrif eineltis. 15.9.2007 18:39
Glórulaust að fara yfir Reynisfjall á sumardekkjum Tveir bílar hafa farið út af veginum á Reynisfjalli vestan við Vík í Mýrdal í dag. Bæði óhöppin má rekja til mikillar hálku á svæðinu og hvassviðris og segir lögreglan á Hvolsvelli að það sé glórulaust að fara yfir fjallið á sumardekkjum. 15.9.2007 15:52
Veskjum vistmanna í Hlaðgerðarkoti stolið í nótt Brotist var inn í meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot í Mosfellsdal einhvern tíma í nótt og veskjum nokkurra vistmanna þar stolið. Veskin voru geymd í hirslum í vaktmannsherbergi en svo virðist sem þjófurinn hafi komið utan frá og náð að hafa veskin á brott án þess að nokkur yrði hans var. 15.9.2007 15:28
Lögmaður Færeyja sæmdur stórriddarakrossi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi í dag Jóannes Eidesgaard, lögmann Færeyja, stórriddarakrossi með stjörnu fyrir framlag hans til að styrkja samvinnu Íslendinga og Færeyinga. Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu að þetta hafi verið gert við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. 15.9.2007 14:30
Hestur sparkar í konu í réttum Kona var flutt á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í dag eftir að hestur hafði sparkað í hana. Konan var í hestaréttum í Tungnarétt í Biskupstungum þegar eitt hrossanna sparkaði í hana. Ekki liggur fyrir hvers eðilis meiðsl hennar voru en rannsókn mun hafa leitt í ljós að þau voru ekki alvarleg. 15.9.2007 14:15
Varað við krapa á Hellisheiði Vetur konungur hefur heldur betur bankað á dyrnar bæði á Suður- og Norðurlandi, þó einungis með ofankomu sunnan heiða. Lögreglan á Selfossi varar við krapa á Hellisheiði. 15.9.2007 14:00
Hátíðahöld vegna 60 ára afmælis Selfoss Selfyssingar fagna sextíu ára afmæli bæjarins í dag en Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri í Árborg, setti afmælishátíðina í Sigtúnsgarðinum í gærkvöldi. 15.9.2007 13:30
Falla frá hugmyndum um stækkun hafnar í Kársnesi Útlit er fyrir að sættir séu í sjónmáli í deilu íbúa á Kársnesi í Kópavogi og bæjaryfirvalda eftir að Gunnar I. Birgisson tilkynnti á fundi í morgun að til stæði að falla frá stækkun hafnarinnar og hafnsækinni starfsemi á Nesinu. Formaður Samtakanna betri byggð fagnar breytingunum og segist tilbúinn til viðræðna um framhald mála. 15.9.2007 13:18
Vistvænir bílar til sýnis í Perlunni Tveir fyrstu etanólbílar landsins verða til sýnis í Perlunni um helgina. Útblástur koltvíoxíðs frá þessum bílum er um áttaíu prósent minni en í venjulegum bensínbíl. 15.9.2007 13:00
Nutu ljúffengra veitinga í boði Kaupþings Tugir sparibúinna manna lagði leið sína í Listasafn Reykjavíkur í gærkvöldi, ekki til að njóta lista heldur ljúffengra veitinga í boði Kaupþings. 15.9.2007 12:25
Verkalýðsforkólfar í hár saman út af fiskvinnslu Verkalýðsforkólfar á Akureyri eru komnir í hár saman vegna ítrekaðra spádóma annars þeirra um að fiskvinnsla sé að hverfa burt úr bænum. 15.9.2007 12:01
Starfshópur ráðherra ákveður samningsmarkið í loftlagsmálum Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra stýrir sérstökum starfshópi ráðherra sem ætlað er að móta samningsmarkmið Íslands í væntanlegum viðræðum um samkomulag í loftslagsmálum eftir 2012. Auk Þórunnar verða þeir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra í starfshópnum. 15.9.2007 11:55
Sex gripnir í fíkniefnaátaki lögreglunnar Þeir sem fara á skemmtistaði borgarinnar geta búist við því að lögreglumenn taki þá til hliðar og leiti á þeim. Lögreglumenn fóru um skemmtistaði í Reykjavík í nótt og leituðu á fólki sem var að skemmta sér. Í þessari aðgerð segist lögreglan hafa fundið fíkniefni á sex mönnum. 15.9.2007 10:30
Hjálmur bjargaði ungum reiðhjólamanni Reiðhjólahjálmur er talinn hafa bjargað því að ekki fór ver þegar ungur drengur hjólaði ofan í skurð við Kambahraun í Hveragerði í gær. Eftir því sem fram kemur á vef Félags sjúkraflutningamanna í Árnessýslu var drengurinn þó fluttur á Landspítalann í Fossvogi þar sem hann skarst mikið í andliti. 15.9.2007 10:23
Ók á stólpa við Vogaafleggjara Tvennt var flutt á slysadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í nótt eftir að bifreið fór út af veginum við Vogaafleggjarnann á Reykjanesbraut og hafnaði á vegstólpa. 15.9.2007 10:00
Tönn brotin í friðarstilli Einn var færður í fangageysmlur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir líkamsárás í miðbænum í nótt. Til átaka kom á milli hans og annars manns í Hafnarstræti og hugðist þriðji maðurinn ganga á milli. 15.9.2007 09:51
Eldur læsti sig í kertaskreytingu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að húsi í Hraunbæ í Árbæ um klukkan hálfellefu í gærkvöld vegna elds í íbúð. Þar hafði eldur af kerti læst sig í plast í kertaskreytingu sem heimilisfólk hafði gleymt einhverja stund. 15.9.2007 09:48
Finna strax mun á ástandinu eftir að eftirlit var aukið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók 14 manns og kærði þá fyrir brot á lögreglusamþykkt í eftirliti sínu í miðbænum í nótt. Líkt og um síðustu helgi var lögregla með aukinn mannskap í miðbænum og segist hún strax finna mun á hegðun manna eftir að eftirlitið var aukið. 15.9.2007 09:32
Listi yfir 10 menguðust borgir í heimi Listi yfir 10 menguðustu staði í heiminum hefur litið dagsins ljós. Það er Blacksmith stofnunin í Bandaríkjunum birti listann í skýrslu sem stofnunin gefur út. Þessir staðir eru í gömlu Sovétríkjunum, Rússlandi, Kína og Indlandi. Perú og Zambía voru einnig á listanum. 14.9.2007 22:31
Fundu ökumann í fjöru Lögreglan á Selfossi stöðvaði ölvaðan ökumann í fjörunni við Óseyrabrú á Eyrabakka um sexleytið í dag. Að sögn lögreglunnar hafði maðurinn, sem er erlendur, sopið all hressilega af guðaveigunum og var ástandið á honum eftir því. Maðurinn var sendur í blóðprufu en erfiðlega gekk að taka skýrslu af honum sökum ölvunar og tungumálaerfiðleika. Hann verður því kallaður seinna til skýrslutöku. 14.9.2007 20:18
Lítill drengur slasaðist þegar hann datt ofan í skurð Fimm ára gamall drengur var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa hjólað ofan í skurð við Kambshraun í Hveragerði um þrjúleytið í dag. Þar er verið að grafa fyrir hitaveitulögnum. Strákurinn var með hjálm á höfðinu en lenti með andlitið í malbiksbrún og skar sig töluvert. Hann gekkst því undir lýtaaðgerð um leið og hann kom á sjúkrahús. 14.9.2007 20:09
Etanólbílar sýndir um helgina Um helgina verður haldin bílasýning í Perlunni á visthæfum bílum. Þar verða meðal annars til sýnis tveir fyrstu etanólbílarnir sem Brimborg flutti til landsins. 14.9.2007 19:14
Slökkviliðsbílar ná upp í hæstu hæðir Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir lið sitt í stakk búið að bjarga fólki af efstu hæðum háhýsa svæðisins, þrátt fyrir að körfubílarnir nái aðeins upp á áttundu hæð. Vinnureglur varðandi eldsvoða í háhýsum eru í endurskoðun. 14.9.2007 19:00
Formaður menntaráðs í skólaakstri Formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, Júlíus Vífill Ingvarsson, er stjórnarformaður rútufyrirtækis sem hefur hundruð milljóna króna samning um skólaakstur fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu. Júlíus segir skólaakstur aldrei koma inn á borð menntaráðs og hagsmunaárekstur því ekki fyrir hendi. 14.9.2007 18:45
Ársyfirdráttur 400 manna gæti borgað lúxusferð Yfirdráttarvextir rétt rúmlega fjögur hundruð einstaklinga þarf til að standa undir áætluðum kostnaði við lúxusferð Landsbankans til Ítalíu. Tvö hundruð útvaldir viðskiptavinir bankans flugu til Ítalíu í morgun. 14.9.2007 18:45
Alvarlegur kúasjúkdómur í Eyjafirði Kúabú í Eyjafirði hefur verið sett í einangrun eftir að alvarlegur sjúkdómur sem borist getur milli manna og dýra kom þar upp. Héraðsdýralæknir segir málið alvarlegt. 14.9.2007 18:37
Fráfarandi formaður höfðar mál á hendur ríkinu Borgar Þór Einarsson fráfarandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna hyggst höfða mál á hendur flokksbróður sínum Árna Mathiesen fjármálaráðherra, fyrir hönd íslenska ríkisins, vegna opinberrar birtingar álagningarskráa. 14.9.2007 18:31
Viðbrögð LÍÚ til skammar Iðnaðarráðherra segir viðbrögð LÍÚ við mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar Landssambandinu til skammar. Stórútgerðarvaldið eigi ekkert inni hjá ríkisstjórninni. 14.9.2007 18:30
Forstjóri BYKO senn í atvinnuleit Ásdís Halla Bragadóttir hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri BYKO í lok september. Ásdís segir í samtali við Vísi að hún hafi tekið þessa ákvörðun fyrir örfáum vikum og þá tilkynnt Jóni Helga Guðmundssyni, forstjóra og eiganda fyrirtækisins um hana. Hún segir að tími hennar hjá fyrirtækinu hafi verið ánægjulegur og einkennst af mikilli uppbyggingu. 14.9.2007 18:04
Lögreglan hljóp uppi ölvaðan hjólreiðamann Lögreglumenn hlupu uppi ölvaðan karl um þrítugt sem reyndi að komast undan á stolnu reiðhjóli í miðbæ Reykjavíkur í gær. Sökum ölvunar átti maðurinn í mestu erfiðleikum með að halda jafnvægi á hjólinu og var för hans stöðvuð á Laugavegi. 14.9.2007 17:37
Lögreglan handtók fjóra í fíkniefnamálum Karl á þrítugsaldri og tvær konur um tvítugt voru handtekin í íbúð í vesturbænum í Reykjavík síðdegis í gær. Á staðnum fundust fíkniefni og nokkrir hnífar. Í Grafarvogi var karl á þrítugsaldri handtekinn um miðjan dag en í bíl hans fundust ætluð fíkniefni og hafnaboltakylfa, segir í tilkynningu frá lögreglunni. 14.9.2007 17:25
Ekið á barn á Sundlaugarvegi Ekið var á barn á Sundlaugarvegi um klukkan hálf fimm í dag. Barnið var á reiðhjóli þegar bíllinn skall á það. Barnið var flutt á slysadeild. Að sögn vakthafandi læknis þar bendir fyrsta skoðun ekki til þess að barnið sé alvarlega slasað. 14.9.2007 16:42
Olíuflutningabíll valt á Þingvallavegi Olíuflutningabíll valt á Þingvallavegi um klukkan hálf fimm í dag. Slökkvilið, sjúkraliðar og lögregla eru á leið á staðinn en ekki er vitað um slys á fólki. 14.9.2007 16:40
Herflugvél nauðlendir á Keflavíkurflugvelli Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli laust fyrir klukkan þrjú í dag eftir að flugmaður bandarískrar herflugvélar tilkynnti að einn hreyfill vélarinnar hefði bilað á flugi. Um þrettán farþegar auk áhafnar voru um borð í vélinni sem er fjögurra hreyfla skrúfuþota af gerðinni Herkúles. 14.9.2007 16:14