Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yfir helmingur ók of hratt fram hjá Ingunnarskóla Meira en helmingur ökumanna sem ók fram hjá Ingunnarskóla í hádeginu í gær ók of hratt og má eiga von á sekt. Eftir því sem fram kemur í frétt frá lögreglunni fóru 70 ökutæki um Kristnibraut í Grafarholti fram hjá skólanum á einni klukkustund og óku 39 þeirra of hratt. 4.9.2007 16:08
Sölumenn SS í samúðarverkfalli Tíu til tólf sölumenn hjá Sláturfélagi Suðurlands mættu ekki til vinnu í morgun og báru við veikindum. Heimildir Vísis herma að sölumennirnir séu ósáttir við að sölustjóra þeirra hafi verið sagt upp. Forstjóri SS segir þetta valda ákveðinni truflun hjá fyrirtækinu en segist ekki vilja ætla mönnum það að þeir geri sér upp veikindi. 4.9.2007 16:03
Að minnsta kosti 1500 athugasemdir vegna hafnarsvæðis á Kársnesi „Þetta fer fram úr okkar björtustu vonum," segir Arna Harðadóttir, formaður Betri byggðar á Kársnesi, en bæjaryfirvöldum í Kópavogi bárust að minnsta kosti 1500 athugasemdir vegna skipulagstillögu á hafnarsvæði á Kársnesi. Athugasemdafrestur vegna tillagnanna rann út í gær. 4.9.2007 15:50
Biskup var búinn að blessa auglýsingar Jón Gnarr, hugmyndasmiður auglýsingaherferðar Símans, sem sýnir síðustu kvöldmáltíðina í spaugilegu ljósi, fundaði með Biskupi Íslands, Hr. Karli Sigurbjörnssyni, áður en herferðin fór í loftið. Jón leiklas handrit auglýsingarinnar fyrir Biskup sem síðan gerði engar efnislegar athugasemdir við auglýsingarnar en bað Jón um að fara varlega og sýna tillitsemi. Í dag sagði biskup auglýsingarnar smekklausar. Jón Gnarr er undrandi á ummælum biskups. 4.9.2007 15:21
Kynna niðurstöðu í hugmyndasamkeppni á fimmtudag Dómnefnd sem skipuð var vegna hugmyndasamkeppni um nýtt skipulag í Kvosinni skilar tillögum sínum á fimmtudag. Þetta kom fram í máli Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, formanns skipulagsráðsráðs borgarinnar og formanns dómnefndarinnar, á fundi borgarstjórnar í dag. Þar var verið að ræða niðurrif húsanna að Laugavegi 4 og 6. 4.9.2007 14:48
Vill aðgerðaáætlun í landgræðslu Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti í morgun ræðu á alþjóðlegri ráðstefnu um landgræðslu og loftslagsbreytingar sem haldin er á Selfossi. Ráðstefnan er haldin í tilefni af 100 ára afmæli Landgræðslu ríkisins og fjölmargir sérfræðingar og alþjóðlegir áhrifamenn eru meðal þátttakenda. 4.9.2007 14:08
Auglýsing Símans er ósmekkleg - Biskupsstofa Ný auglýsing frá Símanum hefur farið fyrir brjóstið á mörgum. Verið er að auglýsa nýjan farsíma og talað um að hann breyti gangi sögunnar. Og það er sannarlega farið inn í söguna því inn í þessa auglýsingu er skeytt síðustu kvöldmáltíðinni og samskiptum Júdasar og Krists. Auglýsingin er birt bæði í sjónvarpi og dagblöðum. 4.9.2007 14:06
Sýknaður af því að hafa nauðgað þroskahamlaðri konu 33 ára gamall misþroska karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sýknaður af ákæru þess efnis að hann hefði nauðgað 31 árs greindarskertri konu á heimili sínu í maí á síðasta ári. Ákærði viðurkenndi að hafa haft samræði við konuna en hann bar að það hefði verið með samþykki hennar. Í dómsorði kemur fram að framburður konunnar hafi verið efnislítill og óstöðugur og það megi rekja til mikillar greindarskerðingar hennar. Því var það talið ósannað að ákærði hefði þröngvað konunni til samræðis. 4.9.2007 13:31
Lánasýsla ríkisins lögð niður og verkefni færð undir Seðlabankann Verkefni Lánasýslu ríkisins verða færð til Seðlabanka Íslands og stofnunin formlega lögð niður samkvæmt tillögu sem Árni Mathiesen fjármálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun 4.9.2007 13:10
Öryggismat ekki gert eftir forskrift forsetans Ríkislögreglustjóri neitar því að öryggismat sem embættið gerði fyrir Laufásveg 72 hafi ekki verið gert eftir forskrift forseta. Húsið er gestahús forsetaembættisins en nágrannar hússins hafa ekki fengið að gera breytingar á húsum sínum á þeirri forsendu að öryggismat ríkislögreglustjóra komi í veg fyrir þær. 4.9.2007 13:08
Mun fleiri taka strætó í haust en á sama tíma í fyrra Mun fleiri taka strætó á höfuðborgarsvæðinu núna í haust en í fyrra, að sögn framkvæmdastjóra Strætó. 4.9.2007 12:52
Tólf stútar undir stýri á sunnudag Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu á sunnudaginn var. Alls voru sautján ölvaðir ökumenn stöðvaðir yfir helgina, ellefu í Reykjavík, fimm í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að um hafi verið að ræða sextán karla á aldrinum 18 - 48 ára og eina konu á fertugsaldri. 4.9.2007 12:46
Lausamunir á fleygiferð í fyrstu haustlægðinni Lausamunir hafa fokið víða um land en ekki er vitað um alvarleg óhöpp eða slys í þessari fyrstu alvöru haustlægð sem gengur yfir landið. 4.9.2007 12:30
Skora á stjórnvöld að bæta kjör öryrkja Heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytunum hafa í dag borist tölvupóstar þar sem skorað er á íslensk stjórnvöld að leiðrétta þegar í stað kjör öryrkja og aldraðra til samræmis við íslenskan veruleika. 4.9.2007 12:20
Verið að ganga frá skráningu starfsmanna Hunnebeck Verið er að ganga frá því að skrá tæplega fjörutíu starfsmenn pólska fyrirtækisins Hunnebeck, sem starfsmenn Arnarfells. Starfssemi fyrirtækisins verður því ekki stöðvuð í hádeginu, eins og útlit var fyrir. 4.9.2007 12:15
Íslandspóstur má gefa út persónuleg frímerki Póst- og fjarskiptastofnun hefur heimilað Íslandspósti að gefa út persónuleg frímerki með áletruninni „Bréf 50 g Innanlands" í stað áletrunar um verðgildi. Íslandspóstur óskaði eftir því fyrr á árinu þar sem fyrirtækið hygðist bjóða viðskiptavinum upp á að setja eigin mynd eða velja mynd úr myndabanka á frímerki. 4.9.2007 12:04
Danskir hermenn í hálendisferð Hópur danskra hermanna kom með Norrænu til Seyðisfjarðar í morgun. Þeir flytja með sér vígalega herjeppa sem þeir ætla að spreyta sig á í óbyggðum á hálendi landsins næsta hálfa mánuðinn. 4.9.2007 11:31
Íslensk rannsókn á sýklalyfjanotkun vekur athygli Um þriðjungur íslenskra barna ber bakteríur serm eru ónæmar fyrir sýklalyfjum og geta auðveldlega smitast á milli þeirra, til dæmis á leikskólum. Þá fær þriðja hvert barn hljóðhimnurör á Íslandi í tengslum við eyrabólgu sem er algengasti sjúkdómur íslenskra barna. 4.9.2007 11:04
Haraldur ráðinn ritstjóri hjá Viðskiptablaðinu Haraldur Johannessen, fyrrverandi aðstoðarmaður umhverfisráðherra, hefur verið ráðinn ritstjóri Viðskiptablaðsins við hlið Jónasar Haraldssonar. 4.9.2007 11:02
Sautján ára sektaður þrisvar á einni viku Sami sautján ára ökumaðurinn var sektaður þrisvar fyrir umferðarlagabrot í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Hann fékk bílpróf fyrir hálfum öðrum mánuði. 4.9.2007 10:05
Lækkuðu verð á bensíni Stóru olíufélögin þrjú lækkuðu öll verð á bensíni um tvær krónur á lítrann síðdegis í gær, og er hækkunin frá því á föstudag því gengin til baka. Síðast í gærmorgun réttlættu talsmenn félaganna hækkunina með hækkun á heimsmarkaðsverði. 4.9.2007 07:25
Veiðitímabilið í Norðurá lengt Veiðitímabilið í Norðurá í Borgarfirði verður lengt um átta daga og stendur til tólfta september, en því átti að ljúka á morgun. Seldir verða stakir dagar í framlengingunni. Ástæðan er sú að laxinn gekk mun seinna í ánna en venjulega , sem einkum er rakið til vatnsleysis framan af sumri. Mjög góð veiði hefur verið í ánni síðustu daga, eða eins og hún gerist best í júlí, í venjulegu ári. 4.9.2007 07:23
Telja óhjákvæmilegt að kæra verktakafyrirtækið Hunnebeck Samráðsnefnd landssambanda innan Alþýðusambandsins, sem aðild eiga að virkjanasamningi, telur óhjákvæmilegt að að pólska verktakafyrirtækið Hunnebeck verði kært vegna ólögmætrar starfssemi hér á landi. Fyrirtækið er undirverktaki hjá Arnarfelli við Hraunveitu Kárahnjúkavirkjunar, en samráðsnefndin segir að félagið sé óskráð og ólöglegt hér á landi. Vinnumálastofnun framlengdi í gær frest fyrirtækisins til hádegis í dag, til að sýna fram á að kjör og tryggingar starfsmanna þess séu í lagi. Að öðrum kosti verði starfssemi þess stöðvuð.- 4.9.2007 07:21
Aukinn bílainnflutningur í júlí Innflutningur á bílum jókst um 80 prósent í júlí síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra og mikil aukning varð líka á innflutningi varanlegra neysluvara á borð við raftæki til heimilisnota. Þriðjungs samdráttur varð hinsvegar á innflutningi fjárfestingarvara. Þrátt fyrir það varð vöruskiptahallinn hátt í 15 milljarðar króna í júlí, sem er mesti halli í einum mánuði það sem af er árinu. Talið er að sterk staða krónunnar skýri mikinn bíla- og raftækjainnflutning.- 4.9.2007 07:19
Vilja kæra þýskt-pólskt fyrirtæki fyrir ólögmæta starfsemi Óhjákvæmilegt er að þýsk-pólska þjónustufyrirtækið Hunnenbeck verði kært fyrir ólögmæta starfsemi hér á landi að mati Starfsgreinasambands Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sambandinu. Gerðar eru alvarlegar ahugasemdir við samvinnu GT verktaka við fyrirtækið og því haldið fram að hér á landi séu starfandi fjöldi manns án dvalarleyfis og utan við skattar og skyldur. 3.9.2007 23:51
Ekkert spurst til strokupilta Lögreglunni á Húsavík hefur enn ekki borist neinar vísbendingar um piltana tvo sem struku frá meðferðarheimilinu í Aðaldal í gærkvöldi. Talið er að piltarnir hafi stolið bíl skammt frá heimilinu og hefur lögreglan lýst eftir bifreiðinni. 3.9.2007 22:52
Strokupiltar taldir vera á stolinni bifreið Talið er líklegt að piltarnir tveir sem struku frá meðferðarheimilinu Bergi í Aðaldali í gærkvöldi séu nú á stolnum bíl. Formlegri leit var hætt á svæðinu í kringum meðferðarheimilið síðdegis í dag eftir að sporhundur rakti slóð piltanna upp að þjóðvegi. Lögreglan lýsir eftir bifreið með númerið UT-493. 3.9.2007 20:24
Vilja herða eftirlit til að tryggja réttindi erlenda starfsmanna Brotalamir í framkvæmd laga um réttindi erlendra starfsmanna valda því að sum fyrirtæki koma sér hjá því að skrá erlenda verkamenn hérlendis. Um er að ræða innlend og erlend fyrirtæki og sum þeirra hafa margsinnis gerst sek um að brjóta á réttindum starfsmanna. Þverpólitísk samstaða náðist innan félags- og tryggingamálanefndar í dag um að herða eftirlit og gera lögin skilvirkari. 3.9.2007 20:15
Dómsmálaráðuneytið bregst við frávísunardómi Hæstaréttar Dóms- og kirkjumálaráðuneytið mun í samráði við embætti ríkissaksóknara gera viðeigandi ráðstafanir til að bregðast við dómi Hæstaréttar frá því í dag vegna netbankasvindls. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. 3.9.2007 19:51
Á annað þúsund manns mótmæla niðurrifi Pakkhússins á Selfossi Á annað þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til bæjaryfirvalda á Selfossi að þyrma Pakkhúsinu. Pakkhúsið, sem var reist árið 1941 af Kaupfélagi Árnesinga, á að víkja fyrir nýju skipulagi í miðbæ Selfoss. Frestur til að skila inn athugasemdum við skipulagið rann út á föstudag. 3.9.2007 19:11
Sigurður Kári vill selja og einkavæða Íslandspóst Einkavæða á og selja Íslandspóst segir Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður. Hann segir fyrirtækið seilast langt út fyrir starfssvið sitt með samkeppni við einkafyrirtæki. 3.9.2007 19:06
Byltingarkenndur íslenskur blöndungur sparar mikið bensín og dregur úr mengun Nýr íslenskur blöndungur getur valdið byltingu í sparnaði á eldsneyti auk þess sem hann dregur verulega úr mengun. Markaður fyrir þessa íslensku uppfinningu er töluvert stærri en heimsmarkaður á nýjum bifreiðum. 3.9.2007 19:00
Olíufélögin hækkuðu á sama tíma um sömu krónutölu - en N1 lækkaði aftur í dag Talsmaður Atlantsolíu segir stórundarlegt að stóru olíufélögin hafi öll hækkað verð um sömu krónutölu á nákvæmlega sama tímanum. Stóru olíufélögin segja að heimsverðshækkun hafi áhrif til hækkunar hér. 3.9.2007 18:53
Heyrnarlausir geta loks talað í gemsa Samfélag heyrnarlausra á Stór-Reykjavíkursvæðinu á líklega eftir að liggja í gemsanum næstu dagana. Arnar Ægisson segir að samskiptin við eiginkonuna eigi eftir að batna til muna frá og með morgundeginum. 3.9.2007 18:45
Iðnaðarráðherra tekur vel í beiðni um hlutafélagavæðingu Meirihluti stjórnar Orkuveitunnar ákvað í morgun að óska eftir því að fyrirtækinu verði breytt í hlutafélag. Til þess að svo geti orðið þarf iðnaðarráðherra að leggja fram frumvarp um málið. Hann segist taka slíkri beiðni vel að því gefnu að tryggt verði að Orkuveitan verði áfram í félagslegri eigu. 3.9.2007 18:42
Rannsóknarleyfi á Gjástykkissvæði felur ekki í sér leyfi til borana Rannsóknarleyfi á Gjástykkissvæði felur ekki í sér leyfi til rannsóknarframkvæmda á svæðinu hvort sem er yfirborðsrannsóknir eða boranir. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá iðnaðarráðuneytinu. Ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum gilda um allar framkvæmdir rannsóknarleyfishafa þrátt fyrir útgáfu rannsóknarleyfis. 3.9.2007 18:32
Fjármálaráðherra ber ábyrgðina Langur fundur fjárlaganefndar í morgun um Grímseyjarferju staðfesti subbuskapinn í stjórnsýslunni, að mati Bjarna Harðarsonar, þingmanns Framsóknarflokksins. Klúðrið má rekja til galopinnar heimildar fjármálaráðuneytisins, að mati Bjarna sem segir þáverandi og núverandi fjármálaráðherra bera ábyrgð á málinu. 3.9.2007 18:22
Hæstiréttur staðfestir frávísun vegna netbankasvindls Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag frávísun Héraðsdóms Norðurlands eystra í máli gegn fjórum mönnum sem var gert að sök að hafa með sviksamlegum hætti hagnast á kerfisvillu í netbanka. Mennirnir högnuðust um tugir milljónir króna á villunni. 3.9.2007 17:47
Rafrænir lyfseðlar í gagnið á næstu mánuðum Stefnt er að því að rafrænir lyfseðlar verði orðnir að veruleika alls staðar á landinu á fyrstu mánuðum næsta árs en verkefni þar að lútandi var hleypt af stokkunum í dag. Það var Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra sem hóf verkefnið á Selfossi þegar hann heimsótti Heilbrigðisstofnun Suðurlands. 3.9.2007 17:07
350 sektaðir fyrir hraðakstur í Hvalfjarðargöngum 350 ökumenn sem fóru um Hvalfjarðargöng um helgina mega eiga von á sektum vegna hraðaksturs. Þeir náðust allir á hraðamyndavél í göngunum. 3.9.2007 16:49
Hrein eign lífeyrissjóðanna 1500 milljarðar króna Hrein eign lífeyrissjóða landsins nam tæplega 1500 milljörðum króna í árslok 2006 og jókst um nærri fjórðung á árinu. Þetta kemur fram í skýrslu Fjármálaeftirlitsins um ársreikninga lífeyrissjóða fyrir síðasta ár. 3.9.2007 16:40
Vinnumálastofnun kanni samninga starfsmannaleiga og sjúkrahúsa Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri - grænna og fulltrúi flokksins í félags- og tryggingamálanefnd, hyggst fara fram á það á fundi nefndarinnar í dag að Vinnumálastofnun kanni samninga sem heilbrigðisstofnanir hafa gert við starfsmannaleigur. Hann segist hafa séð samning hjá sjúkraliða á vegum starfsmannaleigu þar sem launin séu undir ákvæðum kjarasamninga. 3.9.2007 16:21
Faðernismál Lúðvíks sett í dóm Fyrirtaka í máli Lúðvíks Gizurarsonar á hendur þeim Steingrími og Pálínu Steingrímsbörnum vegna faðernismáls Lúðvíks var tekið fyrir og sett í dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 3.9.2007 16:01
Össur vill að Birkir líti í eigin barm Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, segir að framsóknarmenn hafi sjálfir beitt því vinnulagi sem notast var við í Grímseyjarferjumálinu. Þetta kemur fram í pistli á heimasíðu Össurar en þar lýsir hann því einnig yfir að hann hyggist láta rannsaka aðkomu Birkis Jóns Jónssonar, að Byrgismálinu svokallaða. 3.9.2007 16:00
Bjarni tekur upp hanskann fyrir Einar Einar Hermannsson skipaverkfræðingur fól Bjarna Harðarsyni, þingmanni Framsóknarflokksins, að biðja Kristján L. Möller samgönguráðherra um rökstuðning á þeim orðum sem ráðherra hefur látið falla um Einar í tengslum við Grímseyjarferjumálið. 3.9.2007 15:43