Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vestmannaeyjagöng talin kosta 50 til 80 milljarða Áhætta við gerð jarðganga til Vestamannaeyja er mikil og álitamál hvort slíkt sé réttlætanlegt miðað við jarðfræðilega virkni svæðisins. Þetta kemur fram í skýrslu sem Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. vann fyrir Vegagerðina en skýrsluna á enn eftir að opinbera. Talið er að Vestmannaeyjagöng muni kosta 50 til 80 milljarða króna. 24.7.2007 16:26
Íslandsmót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara Fyrstu helgina í september verður haldið svokallað ÍSMÓT 2007 hér á landi. Á því safnast saman hársnyrtar, snyrtifræðingar, gullsmiðir, klæðskerar og ljósmyndarar og munu þeir keppa á Íslandsmótum í sínum greinum. 24.7.2007 16:26
Íslenskir auðmenn skrá einkaþotur sínar á Caymaneyjum Engin íslenskur forstjóri eða stórfyrirtæki hafa látið skrá einkaþotur sínar á Íslandi, en þær eru orðnar að minnstakosti fimm og tvær hið minnsta munu vera væntanlegar. 24.7.2007 14:56
Þrettán mótmælendur handteknir við álverið í Straumsvík Um þrettán mótmælendur á vegum samtakanna Saving Iceland voru handteknir vegna mótmæla við álverið í Straumsvík laust eftir klukkan tvö í dag. Hluti hópsins hlekkjaði sig við hlið að vinnusvæði álversins og tókst þannig að loka tímabundið fyrir alla umferð að svæðinu. Þá fóru nokkrir mótmælendur inn á vinnusvæðið. 24.7.2007 14:31
Lýsa yfir áhyggjum vegna sífellt flóknari reglna Sífellt flóknari regluverk um vigtun sjávarafla og aukin ábyrgð á starfsmenn hafna án endurgjalds frá ríkinu er áhyggjuefni að mati stjórnar Hafnasambands Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sambandinu. 24.7.2007 14:05
Þrír mótmælendur handteknir við álverið í Straumsvík Um 20 mótmælendur á vegum samtakanna Saving Iceland hafa stöðvað alla umferð að álverinu í Straumsvík. Þá hafa nokkrir mótmælendur farið inn á vinnusvæðið. Lögreglan hefur nú þegar handtekið þrjá mótmælendur. 24.7.2007 13:26
Vegagerðin ætlar ekki að fjölga ferðum Herjólfs um Verslunarmannahelgina Vegagerðin mun ekki verða við beiðni Vestmannaeyjabæjar um að bæta við fleiri næturferðum með Herjólfi um Verslunarmannahelgina. Ástæðurnar eru aukinn kostnaður og það að ekki er uppselt í þær ferðir sem áður hafði verið bætt við. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir þetta mikil vonbrigði. 24.7.2007 13:09
Iðnaðarráðuneytið endurskoðar virkjanaleyfi Múlavirkjunar Iðnaðarráðuneytið vinnur að endurskoðun virkjanaleyfis Múlavirkjunar á Snæfellsnesi, í ljósi þess að framkvæmdir á svæðinu eru ekki í samræmi við upphaflegar áætlanir. 24.7.2007 13:02
Þrír unglingar slösuðust í bílveltu í gærkvöldi Þrír sautján ára unglingar slösuðust, en enginn alvarlega, þegar bíll þeirra valt út af Reykjanesbraut norðan við Kúagerði um klukkan ellefu í gærkvöldi. 24.7.2007 12:53
Lögreglubílum fjölgað undanfarin ár Lögreglubílum hefur fjölgað, meðalaldur þeirra lækkað og akstur þeirra aukist verulega, frá því að Ríkislögreglustjóri tók við innkaupum og rekstri allra lögreglubíla í landinu fyrir nokkrum árum. 24.7.2007 12:49
Laxveiði að glæðast á ný Laxveiði er víða að glæðast eftir mjög lélega veiði að undanförnu, sem aðallega er rakin til vatnsleysis í ánum vegna þurrka. 24.7.2007 12:47
Legnámsaðgerðir algengar hér á landi Hlutfallslega flestar legnámsaðgerðir voru framkvæmdar hér á landi árið 2004 borið saman við hin Norðurlöndin samkvæmt samantekt Norræna heilbrigðistölfræðiráðsins. Alls voru 365 slíkar aðgerðir framkvæmdar á Íslandi á hverja 100 þúsund íbúa en næst flestar voru aðgerðirnar í Finnlandi eða 354 talsins. 24.7.2007 12:45
Sautján ára tekinn fyrir fjögur innbrot Lögreglan á Akureyri hefur haft hendur í hári unglings á sautjánda ári, sem framið hefur mörg innbrot í bænum að undanförnu og var að koma sér upp glæpaklíku. 24.7.2007 12:44
Skýfall í höfuðborginni í gærkvöldi Úrhellis rigningu eða skýfall gerði á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og var slökkviliðið kallað í þrjú hús til að dæla út vatni, sem kom upp úr niðurföllum í þeim. 24.7.2007 12:42
Rúmlega fimmtíu styrkir veittir úr tónlistarsjóði Alls voru veittir 51 styrkur úr tónlistarsjóði fyrir seinni helming þessa árs samkvæmt tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. Hæsta styrkinn hlaut tónlistarhátíðin Ung Nordisk Musik eða 3 milljónir króna. Þá fékk Hamrahlíðarkórinn ferðastyrk upp á 800 þúsund krónur. 24.7.2007 12:06
Mikil eftirspurn eftir íbúðum á gamla varnarsvæðinu Umsóknir bárust um allar þær 300 íbúðir sem leigja á út á gamla varnarsvæðinu í fyrsta áfanga. Fyrstu íbúarnir komu í morgun til að undirrita leigusamninga en áætlað er að um 700 manns muni búa á svæðinu frá ágústlokum. 24.7.2007 10:35
Mannlaus bíll keyrði á hús Húsráðanda á Akranesi brá heldur betur í brún í gær þegar mannlaus bifreið kom niður götuna og keyrði beint á húsið hans. Ökumaður hafði skroppið út úr bílnum en hins vegar láðst að taka bifreiðina úr akstursgír. Bíllinn rann 150 metra áður en hann keyrði á húsið. 24.7.2007 10:21
Veiðifélag hafnar virkjunum í Þjórsá Hætta er á að lífríki í neðri hluta Þjórsár raskist komi til virkjunarframkvæmda þar að mati Veiðifélags Þjórsár. Félagið skorar á Landsvirkjun að falla frá virkjunarframkvæmdum á svæðinu og á sveitarstjórn Flóahrepps að hafna Urriðafossvirkjun í skipulagi sveitarinnar. Félagið lýsir þungum áhyggjum vegna virkjunarinnar. 24.7.2007 09:59
Bílslys á Reykjanesbraut Bílslys varð á Reykjanesbraut norðanmegin við Kúagerði nú fyrir skömmu. Lögregla og sjúkraflutningamenn eru á staðnum og samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er talið einhverjir séu fastir í bílum. Lögreglan hafði ekki frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu. 23.7.2007 23:21
Verðlag enska boltans Eftir rétt um þrjár vikur hefst útsending á enska boltanum á sjónvarpsstöðinni SÝN 2. Deilt hefur verið á verðlagið á stöðinni sem sumir telja alltof dýra. 23.7.2007 21:15
Á skaki frá Rifi Það er bölvað basl að standa í trilluútgerð segir Sigurður Páll Jónsson trillukarl. Hann segir kvótaverð orðið svo hátt að menn séu hættir að geta veitt upp í kostnað. 23.7.2007 21:03
Læknanýlenda í Ungverjalandi Milli fimmtíu og sextíu Íslendingar stunda nú nám í læknisfræði í Ungverjalandi. Stærstur hluti þeirra reyndi að komast í læknisfræði við Háskóla Íslands en hafði ekki erindi sem erfiði. Læknanámið ytra er fullgilt á Íslandi, sem og í öðrum löndum innan ESB. 23.7.2007 20:58
Sveitarstjórn hundsar eftirlitsskyldu vegna virkjunar Skipulagsstofnun telur Eyja- og Miklaholtshrepp hafa hundsað eftirlitsskyldu sína gagnvart Múlavirkjun á Snæfellsnesi. Framkvæmdir eru ekki í samræmi við þau gögn sem stuðst var við þegar stofnunin mat að virkjunin skyldi undanskilin mati á umhverfisáhrifum. Oddviti sveitarstjórnarinnar er jafnframt er forsvarsmaður virkjunarinnar. 23.7.2007 19:33
Danir gefast upp á Tetra-kerfinu Danskir slökkviliðsmenn hafa gefist uppá Tetra fjarskiptakerfi sem hefur verið til reynslu í Kaupmannahöfn í nokkurn tíma. Í Bretlandi hafa líka orðið vart um vandræði með samskonar kerfi. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir kerfin ekki sambærileg við það íslenska, sem sé nýjustu gerðar. 23.7.2007 19:17
Samfylkingin svíkur kosningaloforð segja andstæðingar virkjana í Þjórsá Guðfinnur Jakobsson bóndi í Skaftholti segir að Samfylkingin sé að svíkja kosningaloforð verði virkjanir í neðri hluta Þjórsár að veruleika. Heimamenn sem eru andsnúnir virkjununum þremur hittu iðnaðarráðherra að máli í vikunni og segja að hann hafi ekki útilokað að tekið yrði eignarnám vegna framkvæmdanna. 23.7.2007 19:01
Dæmi um sumarbústaðir fari á allt að hundrað milljónir króna Gríðarlega hækkanir hafa orðið sumarhúsum og virðast miklar framkvæmdir við smíði sumarbústaða ekki draga úr verðhækkunum. Dæmi er um að sumarhús fari á allt að hundrað milljónir króna. 23.7.2007 18:48
Nokkur eldfjöll líkleg til að gjósa Nokkrar þekktar eldstöðvar eru að gera sig líklegar til goss og jarðhræringarnar norðan Vatnajökuls benda til þess að eldgoss sé í aðsigi í Kverkfjöllum eða Öskju að mati Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings. Ómögulegt er þó að segja til um hvar eða hvenær næsta eldgos á Íslandi verður. 23.7.2007 18:30
Vill að Hagstofan fari með verðlagseftirlit Finnur Árnason, Forstjóri Haga er hlynntur rafrænum verðkönnunum en segist ekki sjá fyrir sér að hægt verði að fylgjast með verðþróun dag frá degi. Hagar funduðu með Hagstofunni í lok júní þar sem þeir viðruðu þá hugmynd sína að veita Hagstofunni aðgang að gagnagrunni fyrirtækisins. Finnur segir eðlilegra að Hagstofan fari með verðlagseftirlit fremur en ASÍ eða Neytendastofa. 23.7.2007 18:30
Áreitti flugfreyjur og hótaði þeim Ofurölvaður flugdólgur, sem handtekinn var í Leifsstöð við komuna til landsins í gærmorgun frá Bandaríkjunum, á yfir höfði sér himin háar sektir og janfvel fangelsisdóm. Maðurinn veittist meðal annars að flugfreyjum og brást ókvæða við þegar lögregla hugðist ræða við hann. 23.7.2007 18:04
Næturferðum Herjólfs ekki fjölgað frekar Vegagerðin sér ekki ástæðu til þess að fara fram á það við Eimskip að fleiri næturferðir verði farnar milli lands og Eyja um verslunarmennahelgi en nú þegar hefur verið ákveðið. Þetta kemur fram í skeyti sem Elliða Vignissyni barst frá Gunnari Gunnarssyni aðstoðarvegamálastjóra í dag. 23.7.2007 17:57
Lögregluembættin greiða ekki kostnað við aukið umferðaeftirlit Embætti ríkislögreglustjóra áréttar vegna frétta, um að aukið umferðareftirlit sé kostnaðarsamt fyrir lögreglembætti landsins, að þau beri ekki kostnað sem til fellur vegna aukins umferðareftirlits á vegum landsins. 23.7.2007 17:27
Réttindalaus á níræðisaldri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði um helgina réttindalausan ökumann á níræðisaldri. Hann var sá elsti af sautján réttindalausum ökumönnum sem voru stöðvaðir í bænum um helgina. En flestir hinna eru á þrítugs- eða fertugsaldri. Þeir höfðu ýmist verið sviptir ökuleyfi eða höfðu aldrei öðlast ökuréttindi. Fimmtán þeirra voru karlar og tvær konur. Fimm hinna réttindalausu reyndust jafnframt vera ölvaðir og tveir eru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. 23.7.2007 16:11
Lúkas kominn heim Hundurinn Lúkas er kominn heim heill á húfi. Egnt var fyrir hann með æti og náðist hann í felligildru í morgun. Hann hefur verið týndur frá því í maí og hinar furðulegustu sögur gengið um afdrif hans síðan þá. Lögreglan á Akureyri rannsakaði meðal annars meint dráp á honum, þangað til að sást til hans sprellifandi í hlíðunum fyrir ofan Akureyri á dögunum. 23.7.2007 14:22
21 stútur undir stýri um helgina Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tveir voru stöðvaðir á föstudag, ellefu á laugardag, sjö á sunnudag og einn í nótt. Sextán voru teknir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og Hafnarfirði og einn í Mosfellsbæ. Þetta voru sextán karlar og fimm konur. Fjórar kvennanna eru um tvítugt en ein er rúmlega hálffertug. Tæplega þriðjungur karlanna er undir tvítugu. Þar af eru tveir 17 ára en annar þeirra var á stolnum bíl. 23.7.2007 14:21
Kvartað yfir reykjandi veitingahúsagestum Nokkuð hefur borið á kvörtunum til lögreglu vegna háreysti gesta sem bregða sér út af veitingastöðum til að reykja. En eins og kunnugt er hefur verið bannað að reykja innandyra á öldurhúsum frá 1. júní. Í dagbók lögreglu kemur fram að hún hafi verið að benda gestgjöfunum á að það er bannað að hafa með sér áfengi út úr veitingahúsum, jafnvel þó það sé „bara" út á gangstétt. Lögreglan mun herða eftirlit með þessari hegðan gesta. 23.7.2007 14:13
Ekkert bendir til að handtökuskipun hafi verið gefin út Ræðismaður Íslands á Möltu segir ekkert benda til þess að handtökuskipun hafi verið gefin út á hendur skipstjóranum á Eyborginni. Ekkert bendir heldur til þess að yfirvöld á Möltu vilji ná tali af Ólafi Ragnarssyni skipstjóra Eyborgar. 23.7.2007 13:59
Miklar líkur á eldgosi á næstunni Miklar líkur eru á að eldgos verði á Íslandi á næstunni, að mati Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings.. Nokkrar þekktar eldstöðvar eru að gera sig líklegar til goss og aðrar eru í startholunum. Jarðhræringarnar norðan Vatnajökuls gætu allt eins bent til eldgoss sé í aðsigi í Kverkfjöllum eða Öskju. 23.7.2007 12:34
Skemmdir unnar á bílum á Selfossi Nokkuð hefur verið um að skemmdir séu unnar á bílum í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Í síðustu viku bárust lögreglunni fjórar tilkynningar þar sem búið var að rispa lakk á bílum. Þá var umferðarmerkjum að verðmæti um 200 þúsund krónum stolið um helgina. 23.7.2007 12:26
Tvær bílveltur í Borgarfirði í morgun Tvær bílveltur urðu í morgun í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi. Flytja þurfti þrjá á slysadeild með minniháttar meiðsl. Báðir bílarnir eru gjörónýtir að sögn lögreglu. 23.7.2007 11:30
Fjallað um Ísland í virtu bandarísku ferðatímariti Fjallað er ítarlega um Norðurland og Vestfirði í nýjasta tölublaði bandaríska ferðatímaritsins Condé Nast Traveler. Greinin er 13 síður að lengd og er auglýsingaverðmæti umfjöllunarinnar metið á um 5,5 milljónir króna. 23.7.2007 10:19
Matís leitar að óþekktum örverum Matís tekur nú þátt í rannsóknum á lífríki lónsins í Skaftárkötlum sem hafa það að markmiði að finna óþekktar örverutegundir sem má nota í líftækni. Sérstakur bræðslubor var notaður til að bora í gegnum þrjúhundruð metra þykka íshellu til að komast að lóninu. Aðstæður eru einstakar, því lón undir íshellu jökla eru mjög sjaldgæf og þar má finna mjög einangruð og vel varðveitt vistkerfi. 23.7.2007 10:15
Svindlað á íslenskum gististöðum Dæmi eru um að erlendir aðilar reyni að svindla á gististöðum hérlendis og hafa af þeim fé. Um er ræða svindl þar sem notast er við stolin greiðslukort eða bankaávísunum. Upplýsingamiðstöðin á Hólmavík hefur sent út sérstaka viðvörun vegna þessa. 23.7.2007 09:54
Krefjast þess að Múlavirkjun verði lagfærð Svo kann að fara að Múlavirkjun valdi tjóni á lífríki Straumfjarðarár og Baulárvallavatns að mati Landverndar, landgræðslu og umhverfisverndarsamtaka Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum. Þau krefjast þess að virkjunin verði lagfærð til samræmis við þau gögn sem lágu til grundvallar ákvörðun skipulagsstofnunar um að virkjunin skyldi ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Segja þau að lög hafi verið brotin. 23.7.2007 09:30
Ölvaður í flugi Lögreglan á Suðurnesjum handtók í morgun karlmann sem var að koma úr flugi frá Bandaríkjunum. Að sögn lögreglunnar var maðurinn mjög ölvaður og lét ófriðlega. Honum var sleppt að lokinni skýrslutöku. 22.7.2007 21:15
Stöðvaður á 192 kílómetra hraða Ökumaður var stöðvaður á 192 kílómetra hraða á klukkustund á Reykjanesbraut við Strandarheiði um tvöleytið í dag. Hámarkshraði þarna er 90 km/klst. Maðurinn var sviptur ökuréttindum á staðnum og má búast við hárri sekt. 22.7.2007 20:45