Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hjálmur bjargaði miklu Hjólreiðamaðurinn sem varð fyrir bíl við Keldur í morgun er ekki í lífshættu. Hann var fluttur meðvitundarlaus og með mörg beinbrot á bráðamóttöku Landspítala-Háskólasjúkrahúss þar sem hann gekkst undir aðgerð. 22.7.2007 18:15
Saving Iceland mótmælti við Ráðhús Reykjavíkur Hópur úr samtökunum Saving Iceland strengdi fána utan á Ráðhús Reykjavíkur í dag með áletruninni „Vopnaveita Reykjavíkur?". Hópurinn hefur staðið að baki ýmsum skemmdarverkum að undanförnu og slettu meðal annars málningu á skrifstofuhúsnæði almannatengslafyrirtækisins Athygli í gær. 22.7.2007 17:10
Taka þátt í þrekraunakeppni Fjórir íslenskir ævintýramenn taka þátt í þrekraunakeppni sem fram fer á Grænlandi þessa dagana. Keppnin sem ber titilinn SIKU Extreme Arctic Challenge hófst í gær. 22.7.2007 14:27
Flugvél Iceland Express varð fyrir eldingu Eldingu laust niður í flugvél Iceland Express þegar hún var í lendingu á Keflavíkurflugvelli í gær. Vélin var að koma frá Lundúnum. Matthías Páll Imsland, forstjóri Iceland Express, segir að engin hætta hafi verið á ferðum. 22.7.2007 13:54
Heyjað á gamla mátann í Árbæjarsafni Heyannadagur upp á gamla mátann verður haldinn í Árbæjarsafni í dag. Allt fram undir 1940 tíðkaðist víða um land að slá gras með orfi og ljá. Þessi gömlu heyvinnuverkfæri verða nú dreginn fram og er gestum og gangandi boðið að fylgjast með. 22.7.2007 12:41
Tuttugu flóttamenn dvelja á Fit Hostel Samkvæmt heimildum fréttastofu dvelja rúmlega 20 flóttamenn á gistiheimilinu Fit Hostel og koma þeir flestir frá Rússlandi og svæðum þar í kring, Írak, Íran, Afganistan og Afríku. 22.7.2007 12:38
Viðskiptaráðherra vill tryggja garðyrkjubændum raforkuverð á lægra verði Garðyrkjubændur á Suðurlandi hafa lengi kvartað undan of háu raforkuverði í gróðurhúsum. Þeir hafa gagnrýnt stjórnvöld fyrir að þurfa greiða hærra raforkuverð fyrir starfsemi sína en til að mynda álver hafa þurft að greiða. 22.7.2007 12:34
Nýr upplýsingavefur um íslenska tónlist opnaður Ný upplýsingavefur um íslenska tónlist var opnaður á miðvikudag. Vefnum, sem er ríkisstyrktur, er ætlað að auka aðgengi á íslenskri tónlist um allan heim. Á honum er að finna upplýsingar um íslenska tónlistarmenn, tónlistarviðburði og annað það sem tengist íslenskri útgáfu á tónlist sem og fréttir og aðrar upplýsingar sem gagnast geta þeim sem vilja kynna sér tónlistarflóru Íslands. 22.7.2007 12:24
Velheppnaðri listahátíðinni lokið Vikulangri Listahátíð ungs fólks á Austurlandi lauk í gær með uppskeruhátíð á Seyðisfirði og gekk hátíðin vel fyrir sig. Þetta er í áttunda sinn sem listahátíðin fer fram á Seyðisfirði og tóku alls um 130 ungmenni frá sex löndum þátt í henni að þessu sinni. Á hátíðnni voru reknar sjö listasmiðjur þar sem ungmennum gafst tækifæri til að spreyta sig í myndlist, tónlist, leiklist og sirkusfimi svo eitthvað sé nefnt. 22.7.2007 12:22
Karlmaður mikið slasaður eftir bílslys Hjólreiðamaður var fluttur alvarlega slasaður á bráðamóttöku Landspítala -Háskólasjúkrahúss eftir að ekið var á hann við Keldur um kl. 9 í morgun. Samkvæmt upplýsingum vakthafandi læknis mun maðurinn gangast undir aðgerð á eftir og verður fluttur á gjörgæsludeild eftir það. 22.7.2007 11:45
Rólegt í miðborginni í nótt Fámennt var í miðborg Reykjavíkur í nótt og var mikil kyrrð yfir bænum að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fimm voru teknir fyrir ölvunarakstur sem þykir ekki mikið á aðfararnótt sunnudags. 22.7.2007 10:28
Vinsæll sjónvarpspredikari fallinn frá Tammy Faye Messner fyrrverandi sjónvarpsprestur og gospel söngvari í Bandaríkjunum lést í gær. Hún var 65 ára og barðist við eiturlyfjafíkn og síðar ólæknandi krabbamein. 22.7.2007 10:24
Íslenskt bakarí nýtur vinsælda í Orlando Íslenska bakaríið Bread´n Buns í Flórída er nú í fjórða sæti í netúrslitkeppni hjá sjónvarpsstöðinni TV Channel two þar í landi sem besta bæjarfyrirtækið í Orlando. 22.7.2007 10:20
Á 142 kílómetra hraða við Húsafell Ellefu ökumenn hafa verið stöðvaður fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í dag. Sá sem ók hraðast var á 142 kílómetra hraða. Hann var stöðvarður í Reykholtsdal skammt frá Húsafelli. Að öðru leyti hefur umferð gengið vel á vesturlandi, að sögn lögreglunnar í Borgarnesi. 21.7.2007 20:30
Ekki heimsfrægur og þó? Páll Óskar Hjálmtýsson, söngvari, kannast ekki við að vera orðinn heimsfrægur, þrátt fyrir að myndband hans við lagið Allt fyrir ástina hafi verið sett inn á bloggsíðu slúðurkóngsins Perez Hilton sem milljónir manna heimsækja dag hvern. 21.7.2007 20:06
Féll af vélhjóli Betur fór en á horfðist þegar vélhjólamður féll af bifhjóli í Finnafirði innan af Bakkafirði á fjórða tímanum í dag. Maðurinn var fluttur með sjúkraflugi frá Þórshöfn til Reykjavíkur en mun ekki vera alvarlega slasaður samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á bráðamótttöku. 21.7.2007 19:21
Viðskiptaráðherra afhuga stóriðju Viðskiptaráðherra er andvígur því að reistar verði þrjár nýjar virkjanir í neðri hluta Þjórsár og vonar að stóriðjutímabilinu sé lokið á Íslandi. Hann segir samkomulag um það í ríkisstjórninni að taka aftur til Alþingis ákvarðanir um virkjanaleyfi. 21.7.2007 19:15
Aukið umferðareftirlit kostnaðarsamt Lögregluembætti landsins greiða ríkislögreglustjóra kílómetragjald fyrir hvern ekinn kílómetra en bílarninr sem lögreglan ekur á eru í eigu ríkislögreglustjóra. Þetta þýðir að aukið og virkt umferðareftirlit eykur kostnað lögregluembættanna á rekstri bifreiðanna. Dæmi eru um að bílarnir standi ónotaðir við lögreglustöðvar landsins vegna þessa. 21.7.2007 19:14
Leystu gátuna um dammtafl Íslenskur vísindamaður, doktor Yngvi Björnsson, tók þátt í að leysa gátuna um eitt vinsælasta borðspil heims en unnið hefur verið að lausn gátunnar í hart nær 20 ár. Hugbúnaðurinn sem notaður var til að útbúa lausnina byggir á gervigreindartækni og markar niðurstaðan mikilvæg þáttaskil í stærð vandamála sem hægt er að leysa með slíkri tækni. 21.7.2007 19:13
Hakkarar eyðileggja íslenskar heimasíður Erlendir tölvuhakkarar herja á íslenska vefi en þrír austfirskir vefir hafa orðið fyrir barðinu á hökkurunum og liggja niðri. Vefirnir eiga það allir sameiginlegt að vera hannaðir af veffyrirtækinu Galdri á Hornafirði og eru hýstir í Þýskalandi. Svo virðist sem óheppnin ein hafi ráðið því að hakkararnir brutu sér leið inn á þessa vefi. 21.7.2007 19:06
Neytendastofa annist verðlagseftirlit Neytendastofa á að annast allt verðlagseftirlit á matvöru segir forstjóri Neytendastofu og telur skynsamlegast að opinber stofnun annist slíkt eftirlit. Hann segir aðferðir ASÍ við verðlagseftirlit úreltar og vill fá matvöruverslanir til liðs við sig svo unnt sé að vinna með rafrænar upplýsingar beint frá verslununum. 21.7.2007 19:04
Ráðherra minnir á reglur um útgáfu leyfa vegna útihátíða Björn Bjarnarson, dóms-, og kirkjumálaráðherra, hefur sent ríkislögreglustjóra og öllum lögreglustjórum bréf þar sem minnt er á þær reglur sem gilda um útgáfu leyfa vegna útihátíða. Venja hefur verið undanfarin ár að senda slíkar áminningar þegar verslunarmannahelgin er í nánd. 21.7.2007 17:26
Verð á bifreiðum lækkar vegna styrkrar stöðu krónunnar Bílabúð Benna hefur ákveðið að lækka verð á öllum nýjum bílum sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Benedikt Eyjólfsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir ástæðuna vera þá að gengi krónunnar sé ákaflega hagstætt fyrir innflutning. 21.7.2007 16:13
Ók á ljósastaur Ökumaður Suzuki bifreiðar ók bíl sínum á ljósastaur við BYKO á Akureyri um eittleytið í dag. Að sögn lögreglu gereyðilagðist bíllinn en ökumaður slasaðist ekki. 21.7.2007 16:01
Nýttu daginn til að fegra borgina Margir íbúar í hverfum í nálægð við Laugardalinn nýttu daginn í dag til að fegra umhverfi sitt og mátti víða sjá iðjusamt fólk að störfum. Tiltektardeginum lauk klukkan 14 með grillhátíð við Þróttaraheimilið í Laugardalnum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri veitti fólkinu liðsinni. Hann gróðursetti meðal annars blátopp, sultartopp og reyniblöðkur við Engjaveg í morgun. 21.7.2007 14:37
Á 180 kílómetra hraða á Reykjanesbraut Ökumaður um þrítugt var stöðvaður á 180 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, við álverið í Straumsvík um áttaleytið í morgun. Hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund á þessum veg. Maðurinn var færður á lögreglustöð og sviptur ökuréttindum. 21.7.2007 14:23
Bifreið rann inn í húsagarð Bifreið rann niður götu og hafnaði í húsagarði í Lundabrekku í Kópavogi skömmu eftir hádegið í dag. Lögregla og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru kvödd á staðinn enda lagði nokkurn reyk frá bílnum. Sem betur fer urðu engin slys á fólki. Ekki er vitað hvað orsakaði atvikið. 21.7.2007 14:17
Skemmdaverk unnin á húsnæði Athygli Málningu var slett á skrifstofuhúsnæði almannatengslafyrirtækisins Athygli ehf í Reykjavík í nótt. Einnig er ritað með bleki slagorðið „Iceland is bleeding“ eða „Íslandi blæðir“. 21.7.2007 13:27
Á annað þúsund Harry Potter bóka seldist í gærkvöld Hátt í tvö þúsund eintök af bókinni Deathly Hallow, sjöundu og jafnframt síðustu bókinni í ritröðinni um galdradrenginn Harry Potter, seldust í bókaverslunum í gærkvöld. 21.7.2007 12:29
Fagna ákvörðun um fjölgun sjúkraflutningamanna Landsamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fagnar vilja heilbrigðisráðherra til að bæta þjónustustig sjúkraflutninga á andsbyggðinni. Landsambandið hefur mörg undanfarin ár gagnrýnt ástandið sem á sumum stöðum hefur verið algerlega óviðunandi að þeirra mati. 21.7.2007 12:26
Hátt í 250 manns á ungmennamóti á Gufuskálum Landsmót ungmenna á aldrinum 14-18 ára stendur yfir um helgina, á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Hátt á annað hundrað ungmenna eru þar samankomin ásamt fimmtíu umsjónarmönnum. Þau sækja námskeið í skyndihjálp, læra sigtækni, meðferð björgunarbáta og grunnatriði í leitartækni. Ungmennin eru öll virk í ungliðastarfi björgunarsveita Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. 21.7.2007 10:46
Slökkviliðið kallað að Caruso í nótt Allt tiltækt lið slökkviliðsins í Reykjavík var kallað að veitingastaðnum Caruso um tvöleytið í nótt vegna reyks. Þegar fyrsti slökkvibíll kom á staðinn varð ljóst að enginn eldur var í húsinu og að reykurinn kom úr bökunarofni. 21.7.2007 10:32
Sex teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í nótt Sex voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í nótt. Mikil ölvun var í miðborginni og var nokkuð um minniháttar pústra. Allt gekk þó vel að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 21.7.2007 10:28
Framlag Íslendinga til flóttamannahjálpar Palestínu tvöfaldað Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra tilkynnti í gær að framlag íslendinga til flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Palestínu yrði tvöfaldað á næsta ári. Þá mun íslenska ríkið greiða 28 milljónir til verkefnisins. 21.7.2007 10:11
Húsbíll sprakk Mikil mildi var að ekki fór verr þegar húsbíll sprakk við Oddastaðarvatn á Snæfellsnesi í nótt. Gas lak út frá ferðaísskáp sem var í bílnum með þeim afleiðingum að ógnarsprenging varð. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi voru eigendur bílsins fjarverandi og enginn meiddist við atvikið en bíllinn er mikið skemmdur. Lögreglan vill brýna fyrir fólki að það gangi vel frá gastækjum sem það hefur meðferðis í ferðalögum. 21.7.2007 10:10
Gátan um eitt vinsælasta borðspil heims leyst Dr. Yngvi Björnsson, dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík,tók þátt í að finna hina fullkomnu lausn á því hvernig eigi að spila leikinn dammtafl án þess að eiga minnsta möguleika á því að tapa. 20.7.2007 23:35
Bílslys í Axarfirði Harður árekstur varð á vegamótum að skólanum Lundi og þjóðvegar um Axarfjörð um klukkan hálfsjö í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Húsavík var bíl ekið í veg fyrir annan en um fólksbíl og jeppa er að ræða. Annar bíllinn er mikið skemmdur en engin slys urðu á fólki. 20.7.2007 22:50
LSS lýsir yfir ánægju með viðbrögð heilbrigðisráðherra Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir ánægju með viðbrögð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra við þeim vanda sem hefur verið með mönnun og þjónustustig sjúkraflutninga sums staðar á landsbyggðinni. 20.7.2007 20:53
Sátt um lækkun áfengisverðs? Álögur á áfengi eru meira en helmingi hærri á Íslandi en að meðaltali í Evrópu. Þverpólitískur vilji virðist vera að myndast til þess að lækka áfengisverð hér á landi, en í öllum flokkum eru samt Alþingismenn sem efast. Erna Hauksdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir settust hjá Sölva í Íslandi í dag. 20.7.2007 20:20
Samtök ferðaþjónustunnar fagna vilja til að lækka áfengisverð Samtök ferðaþjónustunnar fagna þverpólitískum vilja til að lækka áfengisverð. Framkvæmdastjóri samtakanna vonar að ný kynslóð þingmanna og ný ríkisstjórn geti gert í eitthvað í þessu áralanga baráttumáli samtakanna. 20.7.2007 20:15
Styttri biðlistar eftir augasteinaaðgerðum náist samningar við ríkið Augnlæknir í Reykjavík segist geta stytt biðlistana fyrir augasteinaaðgerðir náist samningar við ríkið um niðurgreiðslu á slíkum aðgerðum. Rúmlega sjö hundruð og fimmtíu manns bíða eftir að komast í augasteinaaðgerð á Landspítalanum og biðtíminn getur verið allt að eitt ár. 20.7.2007 20:12
Segir ný lög um einkasýningar stríða gegn atvinnufrelsi Ný lög sem banna með öllu hvers konar einkasýningar á nektardansstöðum stríða gegn atvinnufrelsi. Þetta segir lögmaður eiganda Goldfingers. Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi er ósammála túlkun Héraðsdóms Reykjaness á vafa með hugtakið "lokað rými". 20.7.2007 19:57
Saving Iceland býður OR til opinna viðræðna um siðgæði fyrirtækisins Í tilkynningu frá Saving Iceland segir að samtökin hafi óskað eftir því að fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur taki þátt í opnum umræðum við þau um siðgæði þess að selja orku til fyrirtækja sem stunda glæpsamlega iðju, eins og bæði Century-Rusal og Alcan-Rio Tinto gera. 20.7.2007 19:22
Áhöfnin á TF-SIF fór á ný í loftið í dag Áhöfnin á TF-Sif hélt í sína fyrstu flugferð í framhaldi af nauðlendingu þyrlunnar við Straumsvík á mánudag. Það var smáskjálfti í flugstjóranum en áhöfnin óskaði eftir því að komast í loftið sem allra fyrst. 20.7.2007 18:59
Lélegt sílamáfsvarp vísbending um hrun í sandsílastofni og slaka nýliðun þorsks Flótti sílamáfs frá Reykjavík er vísbending um hrun í sandsílastofninum. Á tveimur árum hefur varppörum fækkað úr 37 þúsund niður í 7 þúsund. Fuglafræðingar telja jafnvel samhengi milli fjölda sílamáva við landið og nýliðunar í þorski. 20.7.2007 18:54