Fleiri
Jafntefli við Dani 7.1.2007 15:20 Opinberir aðilar búnir að kasta krónunni Opinberir aðilar, bæði ríkisstofnanir og sveitarfélög, hafa kastað krónunni með því að fjármagna verkefni sín í erlendri mynt. Þetta sagði forstjóri Marels, Hörður Arnarson, í hádegisviðtalinu á Stöð tvö í gær. Hann segir þetta mikið meiri aðför að krónunni heldur en ákvarðanir banka að gera upp í evrum. 7.1.2007 13:30 Náttúruperlur spillast vegna nýs Vestfjarðavegar Mikil náttúruverðmæti fara til spillis með nýju vegarstæði Vestfjarðavegar, að mati eins helsta talsmanns landeigenda við Þorskafjörð, Gunnlaugs Péturssonar verkfræðings Hann telur jarðgöng undir Hjallaháls mun betri lausn. Þau yrðu bæði ódýrari og öruggari. 7.1.2007 13:06 Árlegi fuglatalningadagurinn í dag Hinn árlegi vetrarfuglatalningadagur er í dag. Náttúrufræðistofnun Íslands stendur fyrir fuglatalningunni sem hefur farið fram reglulega í fimmtíu og fimm ár eða frá árinu 1952. 7.1.2007 12:05 Sjá næstu 50 fréttir
Argóarflísin gerir það gott í Danmörku Argóarflísin, bók rithöfundarins SJÓN, sem kom út í fyrra, hefur fengið lofsamlega dóma í Danmörku og verið valin ein af bókum ársins í einu dagblaða landsins. 9.1.2007 13:16
Matvælaverð á Íslandi hæst í heimi Matvælaverð hér á landi er að öllum líkindum hið hæsta í heimi og það sama á við heildarútgjöld heimilanna. 9.1.2007 12:30
Handtekinn grunaður um vegabréfafölsun Erlendur karlmaður var í gær handtekinn á Flugstöð Leifs Eiríkssonar en hann er grunaður um vegabréfafölsun. Víkurfréttir greina frá þessu og jafnframt að málið sé nokkuð umfagnsmikið. 9.1.2007 12:09
Vilja að ákæru um samráð verði vísað frá Verjendur forstjóra olíufélaganna þriggja sem sæta ákæru í samráðsmálinu á hendur olíufélögunum kröfðust þess í héraðsdómi í morgun að málinu yrði vísað frá. Allir þrír ákærðu voru viðstaddir þingfestingu í héraðsdómi í morgun. 9.1.2007 12:05
Varað við barnaníðingi á Akureyri Lögreglan á Akureyri leitar nú manns sem tvívegis hefur reynt að lokka átta og níu ára drengi upp í bíl sinn í grennd við Síðuskóla. Hvorugur piltanna þáði boð hans en þeir hafa gefið trúverðuga lýsingu á bílnum sem maðurinn var á en lýsing á manninum sjálfum er meira á reiki. 9.1.2007 11:56
Vestfirðingum fækkaði fyrri hluta 2006 Alls fluttust 202 einstaklingar frá Vestfjörðum fyrstu 6 mánuði ársins 2006 en 163 fluttu til landsfjórðungsins á sama tíma. Fækkunin er því 39 manns. Flestir, sem fóru, fluttust til höfuðborgarsvæðisins, eða 123. Á sama tíma fluttust 163 til Vestfjarða, einnig flestir af höfuðborgarsvæðinu eða 59 einstaklingar. Sagt er frá þessu í blaðinu Bæjarins Besta í dag, en tölurnar koma frá Hagstofu Íslands. 9.1.2007 11:42
Kviknaði í út frá potti á Húsavík Slökkvilið Húsavíkur var kallað að fjölbýlishúsi í bænum á áttunda tímanum í kvöld. Kviknað hafði í eldhúsinnréttingu út frá potti og var talsverður reykur. Lítill eldur reyndist vera í íbúðinni, en nokkrar skemmdir eru urðu vegna reyks og sóts. Sameign hússins slapp þó nær alveg við skemmdir. 8.1.2007 21:34
Tveir dvergkafbátar seldir Íslenska hátæknifyrirtækið Hafmynd hefur samið við tvo kaupendur um sölu á dvergkafbát sem fyrirtækið hefur framleitt. Samanlagt kaupverð er tæpar hundrað milljónir. Annar báturinn fer til Ástralíu en ekki fæst gefið upp að sinni hvert hinn fer. Vonast er til að fimm til átta kafbátar til viðbótar verði seldir síðar á árinu. 8.1.2007 19:15
Icelandair tilnefnt til alþjóðlegra vefverðlauna Icelandair hefur verið útnefnt til alþjóðlegu „Technology For Marketing“ verðlaunanna fyrir best hannaða vefsvæði ársins, eða „Best Website Design of the Year“ eins og það heitir á frummálinu. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í London þann 6. febrúar næstkomandi. Icelandair er eina íslenska fyrirtækið sem hlotið hefur útnefningu til verðlaunanna en keppt er í 12 flokkum. Icelandair keppir í sínum flokki við fyrirtækin Orange, Dabs, Odeon og Xchange Wales. 8.1.2007 19:11
Bætur skertar eða felldar niður að óbreyttu Lífeyrisbætur ríflega 2000 öryrkja eiga að falla niður eða lækka, að óbreyttu, um mánaðarmótin. Lífeyrissjóðir frestuðu þessum aðgerðum í október en sá frestur rennur út fyrsta febrúar. Í desember var því beint til fulltrúa fjórtán lífeyrissjóða, í stjórn Greiðslustofu lífeyrissjóðanna, að fresta skerðingum fram til sumarsins en niðurstaða liggur enn ekki fyrir. Öryrkjabandalagið telur hins vegar að félagsmenn þess þurfi ekkert að óttast. 8.1.2007 18:39
Jólatrén hirt fram á föstudag Hátt í áttatíu tonn af jólatrjám fara upp á pallbíla framkvæmdasviðs borgarinnar þessa vikuna. Starfsmenn borgarinnar verða að fram á föstudag við að fjarlægja jólatrén. 8.1.2007 18:32
Áhætta í evrulaunum Launþegar taka mikla áhættu með því að þiggja laun í evrum, segir aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Hann telur hverfandi líkur á að evran laumi sér bakdyramegin inn í íslenskt efnahagslíf. Hún verði aldrei tekin upp nema um það ríki pólitísk sátt. 8.1.2007 18:30
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda á mótum Laugavegar og Nóatúns um klukkan fimm í dag. Lögregla og sjúkralið eru enn á vettvangi og ekki fást upplýsingar um líðan vegfarandans að svo stöddu. 8.1.2007 17:20
Spilakassana í Örfirisey Spilakössum í borginni hefur fjölgað um meira en helming á tveimur árum. Borgarstjóri vill að fólk spyrji sig hvar eðlilegt sé að slík tæki séu staðsett og stingur sjálfur upp á því að þeim verði fundinn staður í Örfirisey. 8.1.2007 17:08
Hjartavernd tekur í notkun nýjan hjartarita Hjartavernd hefur tekið í notkun nýjan og fullkominn hjartarita sem keyptur var fyrir áheitafé sem safnaðist í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í ágúst síðastliðnum. 8.1.2007 17:04
Bilun í aðveitustreng olli rafmagnsleysi á Akranesi Skömmu eftir hádegi í gær varð bilun í aðveitustreng að dreifistöð Orkuveitu Reykjavíkur við Smiðjuvelli á Akranesi. Við það sló út rafmagni á öllu Akranesi um skamma stund. Á meðan starfsmenn Orkuveitunnar unnu við að komast fyrir bilunina, eða í um eina klukkustund, var hins vegar rafmagnslaust á neðri hluta Skagans. Skessuhorn skýrði frá þessu í dag. 8.1.2007 16:36
Nær 80 tonn af jólatrjám falla til í ár Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar áætlar að um 80 tonn af jólatrjám falli til á þessu ári en starfsmenn sviðsins hófu yfirreið sína yfir Reykjavík í dag. 8.1.2007 16:21
Styttist í að kalkþörungaverksmiðja hefji starfsemi Stefnt er að því að þurrkarar í kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal verði prufukeyrðir í fyrri hluta febrúarmánaðar og því styttist í að hún hefji starfsemi. 8.1.2007 16:10
Skrifað undir samkomulag vegna fatlaðra og geðfatlaðra Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu í dag þriggja ára samning um málefni fatlaðra á Eyjafjarðarsvæðinu. Samningsfjárhæð er rúmir 2,2 milljarðar króna. Ennfremur var skrifað undir samkomulag til eflingar búsetu, dagþjónustu og dagvist geðfatlaðra á Akureyri. 8.1.2007 16:00
Hagar mega ekki heita Hagar Neytendastofa hefur bannað Högum hf., sem reka bæði Bónus, Hagkaup og 10-11 ásamt fjölda fataverslana, að nota nafnið Hagar. Það var heildsalan Hagi ehf. sem kvartaði til stofnunarinnar og vísaði meðal annars til þess að Hagi hefði verið stofnað og skráð hjá fyrirtækjaskrá 1993 en Baugur Ísland hf. hefði breytt nafni sínu í Hagar hf. árið 2003 8.1.2007 14:56
Rafmagn aftur komið á í Sala- og Kórahverfi Rafmagn er aftur komið á í Sala- og Kórahverfi í Kópavogi en þar varð háspennubilun laust fyrir klukkan tvö með þeim afleiðingum að rafmagn fór af hluta hverfsins. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitur Reykjavíkur var háspennustrengur grafinn í sundur fyrir slysni. 8.1.2007 14:32
Rafmagnslaust í hluta af Sala- og Kórahverfi Rafmagnslaust er nú í hluta af Sala- og Kórahverfi í Kópavogi eftir háspennubilun sem varð laust fyrir klukkan tvö. Þær upplýsingar fengust hjá Orkuveitur Reykjavíkur að verið væri að leita að biluninni. 8.1.2007 14:06
Sakfelldur fyrir ölvunarakstur á bílaplani Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur til greiðslu 135 þúsund króna í sekt og var sviptur ökuskírteini í eitt ár fyrir að hafa ekið bíl undir áhrifum áfengis fyrir utan skemmtistað á Selfossi. 8.1.2007 13:43
Nýr vegur milli Hafna og Sandgerðis Nýr vegur á milli Hafna og Sandgerðis, svokallaður Ósabotnavegur, verður senn opnaður fyrir umferð, að því er fram kemur í Víkufréttum í dag. Framkvæmdum er að ljúka við þann áfanga sem Vegagerðin bauð út í sumar. Fyrst um sinn verður eingöngu um malarveg að ræða en óvíst er hvort eða hvenær slitlag verður lagt á veginn. 8.1.2007 13:32
Brenndist á andliti að kvöldi þrettándans Drengur á sjöunda ári brenndist í andliti að kvöldi þrettánda á Selfossi eftir að eldur kom í flíspeysu sem hann var í. Fram kemur í frétt lögureglunnar á Selfossi að faðir drengsins hafi útbúið lítinn bálköst sem hann hellti bensíni á úr brúsa. 8.1.2007 13:00
200 milljónir fyrir dvergkafbát Íslenska hátæknifyrirtækið Hafmynd hefur samið við tvo kaupendur um sölu á dvergkafbát sem fyrirtækið hefur framleitt. Samanlagt kaupverð er tæpar hundrað milljónir. Annar báturinn fer til Ástralíu en ekki fæst gefið upp að sinni hvert hinn fer. 8.1.2007 12:45
Styrkir veittir til atvinnuleikhúsa fyrir árið 2007 Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör hlaut hæstan verkefnastyrk atvinnuleikhópa fyrir árið 2007 samkvæmt ákvörðun menntamálaráðherra að fenginni umsögn leiklistarráðs. Hafnarfjarðarleikhúsið fær 20 milljónir samkvæmt samstarfssamningi en þar á eftir koma Artbox, Evrópa kvikmyndir, Rakel Garðarsdóttir og fleiri sem fengu sjö milljónir til uppsetningar á leikritinu Faust. 8.1.2007 12:45
Einn frægasti sonur Íslands látinn Magnús Magnússon sjónvarpsmaður BBC, rithöfundur og þýðandi, lést að heimili sínu í Skotlandi í gær, 77 ára að aldri. 8.1.2007 12:30
Safnað fyrir fjölskyldu Nóna Sæs Nóni Sær Ásgeirsson er átta ára drengur sem lamaðist fyrir neðan mitti í alvarlegu bílsslysi þar sem fimm ára systir hans, Svandís Þula, lét lífið. Nóni Sær hefur átt erfitt eftir slysið, meðal annars hefur hann hafnað næringu. Bergvin Oddsson, blindur maður úr Vestmanneyjum, hefur nú hafið söfnun fyrir fjölskyldu Nóna, til að létta af þeim fjárhagsáhyggjum í þeim hörmungum sem þau hafa orðið að þola. 8.1.2007 12:12
Enn óvíst með rekstur þrotabús Ágústs og Flosa Ekkert liggur enn fyrir um framtíð framkvæmda og starfsmanna byggingarfyrirtækisins Ágústs og Flosa á Ísafirði sem úrskurðað var gjaldþrota í Héraðsdómi Vestfjarða á föstudaginn var. 8.1.2007 12:03
Íslendingur lét lífið þegar fallhlífarstökk mistókst Tuttugu og sjö ára íslenskur karlmaður lét lífið í Ástralíu í gær þegar fallhlífarstökk hans úr þyrlu mistókst. 8.1.2007 11:31
Brutust inn í Verkmenntaskólann á Akureyri Lögreglan á Akureyri hafði morgun afskipti af pilti og stúlku sem brotist höfðu inn í Verkmenntaskólann í bænum. Lögregla fékk tilkynningu snemma í morgun um að þjófavarnarkerfi hefði farið í gang í Verkmenntaskólanum og þegar hún kom á vettvang kom í ljós að þar hafði verið brotist inn með þvi að brjóta rúðu en þjófarnir haft sig á brott þegar þjófavarnarkerfið fór í gang. 8.1.2007 11:22
Sómalir segjast hafa sigrað islamista Foringi í her Sómalíu segir að þeir séu búnir að brjóta islamska uppreisnarmenn á bak aftur, með aðstoð frá eþíópiska hernum. Islamistarnir höfðu verið hraktir frá flestum héruðum landsins í en áttu enn nokkur vígi í suðurhlutanum, rétt við landamærin að Kenya. 7.1.2007 20:15
Krónan leiðir til verri lífskjara á Íslandi Forstjóri Marels segir að lífskjör muni versna hérlendis, haldi Íslendingar krónunni. Hann undrast hvernig rætt er um Evrópusambandið hér á landi og telur umræðuna ekki samrýmast veruleikanum. Hann spáir því að krónan muni verðleggjast út af markaðnum. 7.1.2007 18:58
Jólatrén sótt heim Nú þegar jólin hafa runnið sitt skeið er víst að margir taka niður jólaskrautið í lok helgarinnar, þar á meðal blessuð jólatrén. Jólatré seldust upp fyrir jólin á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum og því má búast við gríðarlegu magni trjáa á ruslahaugana. 7.1.2007 18:54
Íslenskur dvergkafbátur seldur til tveggja erlendra sjóherja Tveir erlendir sjóherir, til viðbótar við Bandaríkjaher og kanadíska ríkið, hafa ákveðið að kaupa íslenskan dvergkafbát. Kafbáturinn hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu sem tæki sem gagnast til varna gegn hryðjuverkum á hafnarsvæðum. 7.1.2007 18:48
Stækka þarf Hvalfjarðargöngin fyrir árið 2012 Umferð um Hvalfjarðargöngin jókst um tæplega tíu prósent á síðasta ári. Talið er að umferð um göngin verði orðin meiri en þau þola árið 2012. Farið er að huga að stækkun ganganna og ættu tillögur að liggja fyrir innan skamms. 7.1.2007 18:45
Forynjur á álfabrennu Fjölmenni og forynjur skemmtu sér við álfabrennu Bolvíkinga í gærkvöldi. 7.1.2007 18:45
Ráðherra opin fyrir aukinni veiðiskyldu Sjávarútvegsráðherra vill skoða hvort tilefni sé til að auka veiðiskyldu þeirra sem ráða yfir aflaheimildunum í framhaldi af sviptingum í sjávarútvegi að undanförnu. Formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins segir veiðiframsalið undirrót vandans í greininni. 7.1.2007 18:30
Fokker með bilaðar bremsur Fokker flugvél Flugfélags Íslands, sem var að koma frá Akureyri, síðdegis, lenti á Keflavíkurflugvelli í stað Reykjavíkurflugvelli, vegna gruns um að einhver bilun væri í bremsum vélarinnar. 7.1.2007 17:05
Tvær stúlkur börðu með hafnaboltakylfu Tvær unglingsstúlkur, á 15. og 14. aldursári játuðu í gærkvöldi að hafa slegið stúlku á 16. ári í höfuðið með hafnaboltakylfu. Atburðurinn átti sér stað á leikvelli við Ásabraut í Keflavík á tíunda tímanum og hlaut stúlkan skurð á hnakkann. 7.1.2007 16:02
Opinberir aðilar búnir að kasta krónunni Opinberir aðilar, bæði ríkisstofnanir og sveitarfélög, hafa kastað krónunni með því að fjármagna verkefni sín í erlendri mynt. Þetta sagði forstjóri Marels, Hörður Arnarson, í hádegisviðtalinu á Stöð tvö í gær. Hann segir þetta mikið meiri aðför að krónunni heldur en ákvarðanir banka að gera upp í evrum. 7.1.2007 13:30
Náttúruperlur spillast vegna nýs Vestfjarðavegar Mikil náttúruverðmæti fara til spillis með nýju vegarstæði Vestfjarðavegar, að mati eins helsta talsmanns landeigenda við Þorskafjörð, Gunnlaugs Péturssonar verkfræðings Hann telur jarðgöng undir Hjallaháls mun betri lausn. Þau yrðu bæði ódýrari og öruggari. 7.1.2007 13:06
Árlegi fuglatalningadagurinn í dag Hinn árlegi vetrarfuglatalningadagur er í dag. Náttúrufræðistofnun Íslands stendur fyrir fuglatalningunni sem hefur farið fram reglulega í fimmtíu og fimm ár eða frá árinu 1952. 7.1.2007 12:05