Fleiri fréttir

Nýr aðstoðarmaður utanríkisráðherra

Aðalheiður Sigursveinsdóttir hefur verið ráðin nýr aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Aðalheiður er 33 ára. Hún útskrifaðist með BA gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, með sérstakri áherslu á stjórnun í alþjóðlegu umhverfi og rafræna viðskiptahætti.

Sjötti snjólétti veturinn í röð

Veðrið á árinu sem er að líða hefur almennt verið gott. Hlýtt var um land allt og ekkert lát virðist á þeim hlýindum sem hófust fyrir tíu árum. Í Reykjavík var hiti 1,1 stigi ofan meðallags og á Akureyri 1,3 stigi ofan meðallags.

Flugstoðir og Samgönguráðuneyti undirrita þjónustusamning

Skrifað var undir þjónustusamning samgönguráðuneytisins og Flugstoða ohf, um þjónustu á sviði flugvallarekstrar og flugumferðarþjónustu kl. 16.00 í dag, föstudaginn 29. desember 2006, en alls hafa hátt í þrjátíu flugumferðarstjórar ráðið sig til starfa hjá Flugstoðum, sem hefur rekstur á miðnætti 1. janúar næstkomandi.

Forseti Íslands veitir viðurkenningu Alþjóðahússins

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Séra Miyako Þórðarsyni, Önnu Guðrúnu Júlíusdóttur og Morgunblaðinu viðurkenningu Alþjóðahúss ,,Vel að verki staðið" fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda á Íslandi við athöfn í Alþjóðahúsinu í dag.

Óbrigðult ráð við timburmönnum

Það eru að koma áramót og þá getur stundum verið votviðrasamt innvortis. Það þykir mönnum voða gaman, en kannski ekki eins gaman daginn eftir. En nú er loksins búið að finna óbrigðult ráð við timburmönnum.

Vararíkislögreglustjóri lætur af embætti um áramótin

Þórir Oddson, vararíkislögreglustjóri, lætur af störfum um áramótin en honum var í dag veitt viðurkenning fyrir starf sitt í þágu löggæslu á landinu. Þórir hefur starfað við embættið frá stofnun þess, eða 1. júlí 1997.

Ingimundur skipaður dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur skipað Ingimund Einarsson, varalögreglustjóra í Reykjavík, til þess að gegna stöðu héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. janúar 2007.

Ögmundur efstur í Suðvesturkjördæmi

Kjörstjórn VG á höfuðborgarsvæðinu hefur nú gengið frá tillögu sinni til félagsfunda um uppröðun í fimm efstu sæti lista til alþingiskosninga í Reykjavík norður, Reykjavík suður og Suðvesturkjördæmum. Mesta athygli vekur að Ögmundur Jónasson hefur verið færður úr Reykjavík norður og í Suðvesturkjördæmi en þar hafa Vinstri grænir engan þingmann.

Sameining lífeyrissjóða skilar félögum auknum réttindum

Nýjar samþykktir voru staðfestar af fjármálaráðuneytinu í dag fyrir lífyrissjóðinn Stafi, sem varð til nýlega við sameiningu Lífiðnar og Samvinnulífeyrissjóðsins. Aldurstengd lífeyrisréttindi sjóðfélaga í Lífiðn og Samvinnulífeyrissjóðnum aukast um 16-20% við sameininguna núna um áramótin og til verður einn af stærstu lífeyrissjóðum landsins með yfir 50.000 sjóðfélaga.

21 kertabruni það sem af er desember

Fyrstu 28 daga í desember hefur aðeins verið tilkynnt um 21 kertabruna til tryggingafélaga en sambærileg tala yfir sama tímabil í fyrra var mikið hærri, eða 131 tilvik.

Pálmi Guðmundsson verður sjónvarpsstjóri Stöðvar 2

Pálmi Guðmundsson verður sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 frá og með áramótum. Hann ber þá ábyrgð á markaðsmálum stöðvarinnar auk þeirra verkefna sem áður heyrðu undir forstöðumann Stöðvar 2, Heimi Jónasson, en hann mun verða í ráðgjafarhlutverki fyrir stöðina á næstu vikum.

Settu ránið í 11-11 á svið

Rán sem framið var í 11-11 í Garðabæ í fyrrakvöld var sviðsett af starfsmanni búðarinnar og ræningjanum, að sögn lögreglu. Lögregla hefur fundið hluta þýfisins og járnstöngina sem ræninginn svokallaði ógnaði félaga sínum með. Báðir hafa játað brot sitt, sem og tveir til viðbótar sem aðstoðuðu við glæpinn.

Stefnir í óefni

Breska flugfélaginu British Airways hefur ekki verið tilkynnt um hugsanleg vandræði í flugstjórn á íslenska flugstjórnarsvæðinu eftir áramótin. Talsmaður flugfélagsins segir að röskun á áætlunum félagsins yrðu bagalegar fyrir félagið. Flugmálayfirvöld í Bretlandi segja að flugumferð verði beint suður fyrir flugstjórnarsvæði Íslands ef á þarf að halda.

Búrhvalurinn tapaði baráttunni um kýrnar

Stóran búrhval hefur rekið á land í Þykkvabæjarfjöru, skammt þar frá sem flutningaskipið Vikartindur strandaði fyrir tæpum tíu árum. Búrhvali rekur hér af og til á land og eru það alltaf tarfar sem hafa orðið undir í harðri lífsbaráttu um yfirráð yfir kúahjörðum.

KB banki verður Kaupþing

Um áramótin breytist heiti KB banka á Íslandi í Kaupþing, en lögformlegt heiti bankans er Kaupþing banki hf. Breytingin er liður í langtímaáætlun stjórnar bankans um að hann starfi undir sama nafni hvar í heimi sem er. Nú er unnið að því að skipta um merkingar á útibúum og verður því verki væntanlega lokið í fyrstu viku janúar.

Vaxandi fylgi við Íbúðalánasjóð

Vaxandi fylgi er við það meðal almennings, að Íbúðalánasjóður starfi áfram í óbreyttri mynd og færri en áður vilja að bankarnir taki við starfsemi sjóðsins. Um það bil 83% landsmanna vilja að sjóðurinn starfi áfram í óbreyttri mynd, samkvæmt nýrri skoðanakönnnun Capacent, og hefur stuðningur almennings við sjóðinn aukist frá því í ársbyrjun.

Iðnskólarnir eignast kortaútgáfu Landmælinga

Iðnskólar landsins eignast landakortaútgáfu Landmælinga Íslands þegar ný lög um Landmælingar Íslands taka gildi um áramótin og stofnunin hættir útgáfu og sölu landakorta. Iðnmennt ses. átti hæsta tilboðið, tæpar 30 millljónir króna, í landakortaútgáfuna, sem Ríkiskaup auglýsti til sölu fyrir skömmu.

365 miðlar selja DV, Hér og Nú og Veggfóður

365 miðlar hafa selt útgáfuréttinn á DV til útgáfufélagsins Dagblaðsins Vísis ehf, sem er að 40 prósentum í eigu 365 miðla, en aðaleigandi er Hjálmur ehf. með 49% og Sigurjón Egilsson fyrrverandi ritstjóri Blaðsins, sem verður ritstjóri DV, og sonur hans eru meðal annarra eigenda.

Guðjón Valur íþróttamaður ársins

Handknattleiksmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson var nú rétt í þessu valinn íþróttamaður ársins. Þetta er í fyrsta sinn sem Guðjón Valur verður þessa heiðurs aðnjótandi. Knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen, sigurvegari síðustu tveggja ára, varð í öðru sæti og handknattleiksmaðurinn Ólafur Stefánsson þriðji.

Afsláttarkort send heim frá áramótum

Tryggingastofnun stefnir að því að verða notendavænni og nær nútímanum, og spara þannig sjúklingum sporin, segir forstjóri Tryggingastofnunar. Um áramót mun stofnunin byrja að senda sjúklingum afsláttarkort sjálfkrafa. Um er að ræða gríðarlega mikilvægt réttindamál, segir formaður öryrkjabandalagsins. Hingað til hefur fólk þurft að safna kvittunum og senda Tryggingastofnun til að fá afsláttarkort sem færir því afslátt af lyfjum og þjónustu.

Þúsund tonn og hörkusamkeppni

Í morgun hófst flugeldasala fyrir áramótin þegar sölustaðir opnuðu víða um land. Tæp þúsund tonn af flugeldum voru flutt til landsins fyrir þessi áramót og má gera ráð fyrir að rúmlega fimm hundruð þúsund flugeldum verði skotið á loft um áramótin. Á fimmta tug smásölustaða eru í Reykjavík fyrir þessi áramót þar af eru einkaaðilar með um tuttugu staði, og samkeppnin er hörð.

Leikskólagjöld lækkuðu í haust en hækka um áramót

Leikskólagjöld í Reykjavík, sem lækkuðu um tuttugu og fimm prósent í haust, hækka um tæp níu prósent um áramótin. Stefnan er tekin frá fjölskylduvænni borg, segir oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ótrúlegur útúrsnúningur, segir oddviti Framsóknarflokksins.

Íslendingar með heimsmet í viðskiptahalla

Viðskiptajöfnuður Íslendinga við útlönd hefur aldrei verið óhagstæðari en nú. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, segir slíkan viðskiptahalla ekki geta staðist til lengdar en telur að horfur séu betri á næsta ári. Sérfræðingur í fjármálum telur hins vegar vissa hættu á að efnahagslífið nái ekki lendingu vegna fyrirhugaðra stórframkvæmda á næstu árum, meðal annars með stækkun álversins í Straumsvík.

Engin lög um skilarétt

Nokkur fjöldi jólagjafa er á leið aftur í verslanir nú á milli jóla og nýárs. Skilaréttur neytenda er þó eingöngu upp á vilja verslunareigenda kominn þar sem engin lög eru til um slíkt.

Stórfundur um Byrgið í félagsmálaráðuneytinu

Fulltrúar frá Félagsmálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg, Lögreglustjóranum í Reykjavík, Landlækni og Fasteignum ríkissjóðs funduðu í dag um málefni meðferðarheimilisins Byrgisins að Efri-Brú í Grímsnesi. Það var Félagsmálaráðuneytið sem kallaði til fundarins sem lið í upplýsingaöflun sinni um starfsemi Byrgisins og aðstæður skjólstæðinga þess. Í tilkynningu frá ráðuneytinu nú rétt fyrir fréttir kemur fram að Ríkisendurskoðandi skili niðurstöðum um skoðun sína á opinberu fé í rekstri Byrgisins í annarri viku janúar á nýju ári.

Pólskur maður úrskurðaður í farbann

Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag farbann yfir pólskum manni sem nýlega var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára stúlku.

Tvær milljónir farþega um Leifstöð

Tvær milljónir farþega hafa farið um Flugstöð Leifs Eiríkssonar á árinu 2006 en aldrei hafa jafn margir farþegar farið um flugstöðina á einu ári.

Fjórir handteknir vegna ráns í verslun 11-11

Fjórir karlmenn á tvítugsaldri hafa verið handteknir vegna ráns sem framið var í verslun 11-11 í Gilsbúð í Garðabæ í gærkvöldi. Þeir bíða nú yfirheyrslu hjá lögreglunni.

Ný stjórn Landsvirkjunar

Í morgun var skipuð ný stjórn Landsvirkjunar sem tekur við frá og með næstu áramótum. Fækkað var í stjórninni úr sjö í fimm. Jóhannes Geir verður áfram stjórnarformaður Landsvirkjunar og Ágúst Einarsson situr einnig áfram í stjórninni en þrír stjórnarmannanna eru nýir.

Flugeldasýningum frestað á Suðurnesjum

Flugeldasýningu björgunarsveitanna sem vera átti í Reykjanesbæ í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs, að sögn Víkurfrétta. Sömuleiðis hefur flugeldasýningunni í Grindavík verið frestað af sömu sökum. Ráðgert er að þær fari fram á sama tíma annað kvöld.

Rafræn skýrsluskil hjá Fjármálaeftirlitinu

Frá og með ársbyrjun 2007 fer Fjármálaeftirlitið fram á að reglubundum skýrslum verði skilað á rafrænu formi inn á sérstakan vef eftirlitsins. Greint er frá þessu á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins.

Seinni ferð Herjólfs í dag felld niður

Seinni ferð Herjólfs í dag hefur verið felld niður vegna veðurs. Herjólfur átti að fara klukkan fjögur frá Vestmannaeyjum og hálf átta í kvöld frá Þorlákshöfn.

Nýr aðstoðaryfirlögregluþjónn á Ísafirði

Jón Svanberg Hjartarson hefur verið settur aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum frá og með 1. janúar 2007. Jón er varðstjóri lögreglunnar á Ísafirði en hann mun sinna starfinu á Patreksfirði og gegna því í eitt ár.

550 þúsund flugeldum skotið upp

Gert er ráð fyrir að 550 þúsundum flugeldum verði skotið á loft upp um áramótin. Flutt hafa verið inn 991 tonn af flugeldum. Ellefu brennur verða um áramótin og sex flugeldasýningar fyrir áramótin.

Flugfélagið Ernir fær nýja flugvél

Flugfélagið Ernir fær nýja flugvél af gerðinni Jetstream 32 til landsins síðdegis. Hún lendir í Reykjavík um kl. 18:00. Nýja vélin verður notuð í áætlunarflug á Höfn í Hornafirði og Sauðárkrók ásamt því að fljúga leiguflug. Hún er búin jafnþrýstibúnaði með auknum þægindum fyrir farþega og tekur 19 manns í sæti, segir í frétt frá félaginu.

Kalla þurfti til lögreglu vegna slagsmála systkina

Kalla þurfti til lögregluna vegna slagsmála systkina í gær en flytja þurfti stúlkuna undir læknishendur þar sem hún meiddist á baki. Bróður hennar varð hins vegar ekki meint af. Á vef lögreglunnar er einnig sagt frá því að veggjakrotarar hafi verið á ferðinni í Reykjavík í gær en ummerki eftir þá sáust bæði á húsum og bílum.

Póstkössum læst yfir áramótin

Íslandspóstur ætlar í ár líkt og fyrri ár að læsa póstkössum sem eru utandyra á höfuðborgarsvæðinu yfir áramótin. Skemmdir hafa ítrekað verið unnar á póstkössunum í kringum áramót og því var ákveðið að grípa til þessa ráðs. Verið er nú að vinna í því að læsa kössunum og verða þeir ekki opnaðir aftur fyrr en miðjan janúar.

Ráðist á lögreglumenn

Tveir lögreglumenn meiddust og voru fluttir á Slysadeild, eftir að þeir urðu fyrir fólskulegri líkamsárás í vesturbæ Reykjavíkur um fjögur leytið í nótt. Þeir höfðu verið kallaðir að fjölbýlishúsi vegna hávaða af skoteldum, sem verið var að skjóta úr einni íbúðinni. Annar þeirra var meðal annars sleginn á barkann.

Erlendum ferðamönnum fjölgar um hátíðarnar

Erlendum ferðamönnum sem dvöldu á hótelum í Reykjavík nú um jólin fjölgaði um nær 50% frá jólunum í fyrra. En um 1200 erlendir ferðamenn dvöldu um þessi jól á hótelunum.

Gjaldskrár borgarinnar hækka umfram verðbólgu

Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar gagnrýna að hækkanir á verðskrám borgarinnar á nýrri fjárhagsáætlun nemi meiru en verðbólguáætlun sem miðað er við, við gerð fjárhagsáætlunarinnar. Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um að ekki mætti hækka gjaldskrár umfram verðbólgu var felld í morgun.

Sjá næstu 50 fréttir