Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sægreifinn nær alþjóðlegri frægð Bandaríska dagblaðið New York Times fjallaði nýlega um Ísland á vefsíðu sinni. Greinin fjallaði um humarsúpuna sem er á boðstólum á veitingastaðnum Sægreifanum í Reykjavík og var henni lýst sem þeirri bestu sem blaðamaðurinn hafði bragðað. 13.11.2006 21:05
Vitlaust veður á Skagaströnd Vitlaust veður er á Skagaströnd núna og er búist við skemmdum á skemmu þar í bæ. Einnig hafa stillasar fokið og bátar slitnað upp. Björgunarsveitarmenn eru að störfum á svæðinu og segja þeir að ekkert ferðaveður sé á þessum slóðum. 13.11.2006 20:15
Slæmt færi víða um land Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir. Óveður er á Holtavörðuheiði, Kolgrafafirði og í Staðarsveit. Snjóþekja er í Ísafjarðardjúpi og á Steingrímsfjarðarheiði er þæfingur og stórhríð, hálka er á vegum í Strandasýslu. 13.11.2006 19:21
Slökkviliðsmenn hafa náð yfirhöndinni Slökkvilið Reykjavíkur sendi alla tiltæka slökkvibíla niður á Laugaveg 84 rúmlega hálfsjö í kvöld. Í húsnæðinu er verslun og íbúðarhús. Slökkviliðsmenn eru á þessari stundu komnir fyrir eldinn og byrjaðir að reykræsta húsið. 13.11.2006 19:16
Eldsvoði á Laugavegi Slökkvilið Reykjavíkur hefur sent alla tiltæka slökkvibíla niður á Laugaveg 84 en tilkynning barst um eldsvoða þar rétt í þessu. Í húsnæðinu er verslun og íbúðarhús. Sem stendur er ekki vitað meira um ástandið. 13.11.2006 18:46
180 milljónir í verkefni í Malaví Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur ákveðið að leggja 180 milljónir króna til umfangsmikils vatns- og hreinlætisverkefnis í suðurhluta Malaví. Verkefnið er til fjögurra ára og unnið í samvinnu við þrjú ráðuneyti í Malaví og héraðsstjórnina á Monkey Bay-svæðinu - en þar verður verkið unnið. 13.11.2006 18:45
Ekkert ferðaveður fyrir norðan Ekkert ferðaveður er á norður- og norðausturlandi og beinir Vegagerðin þeim tilmælum til fólks að vera ekki á ferðinni þar því ekki sést á milli stika vegna stórhríðar. Þá er ófært um Klettsháls og Eyrarfjall. Fólk er einnig beðið að aka með gát um Svínadal í Dölum vegna foks á bárujárnsplötum. Hálkublettir eru á Hellisheiði og voru þrír fluttir á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur, á móts við Skíðaskálann í Hveradölum í dag, en enginn alvarlega slasaður. Þá voru fimm fluttir á slysadeild án alvarlegra meiðsla eftir bílveltu rétt austan við Litlu kaffistofuna á sjötta tímanum. 13.11.2006 18:43
Margsinnis kvartað yfir lélegum merkingum Vegfarandi segist hafa kvartað þrisvar vegna lélegra merkinga við framkvæmdir á Reykjanesbraut, þar sem banaslys varð um helgina. Árangurinn varð enginn. Vegatálmar úr plasti sem Borgarplast hefur hannað eftir erlendri fyrirmynd hafa fengið litlar undirtektir. Þeir eiga að vera mun hættuminni en steinklumpar sem notaðir hafa verið. 13.11.2006 18:38
Kortanúmer birtast á kassastrimlum Kassastrimlar eru ekki mikilvægir pappírar í augum margra en í nokkrum verslunum á Íslandi er þó ráð að gæta þeirra eins og sjáaldurs augna sinna. 13.11.2006 18:32
Áfram vonskuveður víða um land Áfram er búist við stormi víða á landinu í kvöld og fram eftir nóttu. "Já veðurspáin er slæm. Það má búast við mikilli ofankomu á Norður og Austurlandi í kvöld og nótt samfara sterkum vindi eða 15-23 m/s" segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur á Veðurstofu NFS. 13.11.2006 18:30
Jóhannes í Bónus yfirheyrður vegna skattamála Jóhannes í Bónus var í dag yfirheyrður hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra vegna rannsóknar á meintum skattalagabrotum. Ríkislögreglustjóri og efnahagsbrotadeildin hafa orðið sér til ævarandi skammar, segir Jóhannes Jónsson. 13.11.2006 18:25
Íslenskar ljósmæður láta til sín taka í Afganistan Áttunda nóvember síðastliðinn lauk tveggja vikna ljósmæðurnámskeiði sem íslenskar ljósmæður héldu en námskeiðið var haldið í Afganistan en um 40 konur sóttu námskeiðið. 13.11.2006 18:05
Heilbrigðisráðherra frestar ákvörðun um sólarhringsvaktir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Launakostnaður við bakvaktir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) er nú um 15 milljónir króna en talið er að þær verði að lágmarki um 60 milljónir ef bakvaktir verða settar á allan sólarhringinn allan ársins hring. Heilbrigðisráðherra telur því rétt að bíða með ákvörðun um sólarhringsvakt á skurðstofu HSS. 13.11.2006 17:48
Íbúar við Höfðatorg mótmæla skipulagi Sól og skjól eru einkunnarorð fyrir háreista íbúðabyggð sem fyrirhugað er að rísi við Skúlatúnsreit við Höfða gangi nýtt deiliskipulag eftir. Þrír turnar, 14 til 19 hæða háir, munu hins vegar stuðla að skugga og sólarleysi fyrir lágreista nágrannabyggðina og íbúarnir mótmæla harðlega. 13.11.2006 17:20
Skipstjóri á Sancy dæmdur fyrir ólöglegar veiðar Skipstjóri á færeyska togaranum Sancy var í dag dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir ólölegar veiðar innan íslenskrar efnahagslögsögu, þann 18. júní síðastliðinn, og að hafa meinað skipverjum á Óðni, skipi Landhelgisgæslunnar, aðgang að togaranum. Hann þarf jafnframt að greiða 600.000 króna sekt. 13.11.2006 17:09
Við handalögmálum lá hjá farþegum Svo gæti farið að Iceland Express hætti millilandaflugi til Akureyrar vegna ítrekaðra árekstra við farþega. Við handalögmálum lá í gær þegar farþegar lentu í 17 tíma hrakningum á leið til Akureyrar frá Kaupmannahöfn. 13.11.2006 16:55
Brottkast á þorski jókst Brottkast þorsks var talsvert meira á síðasta ári en þrjú árin á undan. Brottkast þorsks á árinu 2005 var 2.594 tonn eða 1,27% af lönduðum afla. Brottkast á ýsu árið 2005 var 4.874 tonn eða 5,24% af lönduðum afla en það er svipað hlutfall og árin 2002 og 2003. 13.11.2006 16:32
Hefja vatns- og hreinlætisverkefni í Malaví Þróunarsamvinnustofnun Íslands ætlar að hefja umfangsmikið vatns- og hreinlætisverkefni í Malaví. Verkefnið á að vinna í samstarfi við þrjú ráðuneyti í Malaví og héraðsstjórnir á Monkey Bay svæðinu í suðurhluta landsins. Verkefnið nær til fjögurra ára og hefst fyrir áramót en lýkur í árslok 2010. 13.11.2006 16:09
Fékk árs fangelsi fyrir árás á lögregluþjón Karlmaður var í dag dæmdur í árs fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að ráðast á lögregluþjón við skyldustörf og veita honum áverka. Hann var jafnframt dæmdur fyrir vörslu fíkniefna og að til að sæta upptöku þeirra. 13.11.2006 15:41
Bárujárnsplötur fjúka Bárujárnsplötur fjúka nú í norðan verðum Svínadal í Dölum og eru vegfarendur sem eiga þar leið um beðnir um að fara með gát. Hvassviðri og ófærð er víða um land. Ófært og stórhríð er á Víkurskarði. 13.11.2006 15:29
Gagnrýndi vinnubrögð ríkisstjórnarinnar gagnvart fjárlaganefnd Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri-grænna og fulltrúi í fjárlaganefnd Alþingis, gagnrýndi við upphaf þingfundar í dag vinnubrögð ríkisstjórnarinnar gagnvart fjárlaganefnd Alþingis. Nefndinni barst á föstudaginn beiðni um að samþykkja 120 milljarða króna lántöku ríkisins. 13.11.2006 15:26
Tuttugu og níu vilja á lista Vinstri-grænna á höfuðborgarsvæðinu Tuttugu og níu bjóða sig fram í prófkjöri Vinstri-grænna á höfuðborgarsvæðinu. Sameiginlegt prófkjör er fyrir félög hreyfingarinnar í báðum Reykjavíkurkjördæmum og Suðvesturkjördæmi. Framboðsfrestur rann út á laugardaginn en prófkjörið verður haldið 2. desember næstkomandi. 13.11.2006 14:36
Dagur Kári verðlaunaður Leikstjórinn Dagur Kári Pétursson hlýtur í næstu viku stærstu kvikmyndaverðlaun Dana Peter Emil Refn verðlaunin. Dagur Kári er fimmti leikstjórinn sem fær verðlaunin en þeim fylgja rúm ein milljón íslenskra króna. Þeir sem hlotið hafa verðlaunin eru Lars von Trier, Lukas Moodysson, Nicolas Winding Refn og Natasha Arthy. 13.11.2006 14:00
Vegagerðin skoðar framkvæmdirnar við Reykjanesbraut Vegagerðin er nú að fara yfir framkvæmdirnar við Reykjanesbraut þar sem banaslys varð um helgina. Jón Rögnvaldsson, vegamálastjóri, segir að verið sé að fara yfir þátt verktakans og eftirlit Vegagerðarinnar með framkvæmdunum. 13.11.2006 13:43
Tveir fluttir á slysadeild eftir árekstur á Hellisheiði Flytja þurfti tvo á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur á Hellisheiði. Ekki er talið að þeir séu alvarlega slasaðir. Slysið var rétt hjá Skíðaskálanum í Hveradölum. Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan hálf eitt og eru lögreglumenn enn að störfum á vettvangi. 13.11.2006 13:02
Síðasti bóndinn á leið af þingi Síðasti starfandi bóndinn er á leið af þingi ef bændur fá ekki ekki fulltrúa í þeim prófkjörum sem eftir eru eða í flokksvali. 13.11.2006 12:53
Suðurnesjamönnum gengur illa í prófkjörum Flokksmenn í tveimur stærstu stjórnmálaflokkum landsins hafa hafnað Suðurnesjamönnum í prófkjörum í Suðurkjördæmi. Sjálfstæðismenn höfnuðu Kristjáni Pálssyni úr Keflavík og þingmanninum Gunnari Erni Örlygssyni af Suðurnesjum. Þar eru nú Árnesingar og Vestmannaeyingar í toppsætum. 13.11.2006 12:30
Húsnæðisverð hækkar hraðar nú en undanfarna mánuði Húsnæðisverð heldur áfram að hækka, og hækkar nú hraðar en undanfarna mánuði. Á einum mánuði hefur það hækkað um 0,7%,sem er mikil hækkun ef litið er til þess að að á síðustu 6 mánuðum nemur hækkunin saman lagt innan við þremur prósentum. Mesta hreyfingin virðist vera á ódýrari eignum. 13.11.2006 12:15
Úrskurðaðir í farbann eftir banaslys Mennirnir tveir sem komust af úr bílslysinu á Reykjanesbrautinni um helgina hafa verið úrskurðaðir í farbann. Þriðji maðurinn sem var bílnum lést í slysinu. Ekki var ljóst eftir slysið hver ók bifreiðinni og voru þeir sem lifðu slysið af handteknir og vistaðir í fangaklefa eftir skoðun á sjúkrahúsi. 13.11.2006 12:08
Víða stórhríð og ófærð Björgunarsveit var kölluð út í Ólafsvík á ellefta tímanum til að hemja járnplötur, sem voru farnar að fjúka af gistiheimilinu þar. Víða um land er hvassviðri, stórhríð og ófærð. 13.11.2006 11:52
Undanúrslit Skrekksins hefjast í kvöld Skrekkurinn hefst í kvöld, þetta þarfnast ekki nánari útskýringa fyrir nemendur í 8.-10. bekk í grunnskólum Reykjavíkur. Fyrir hina sem ekki eru farnir að hlakka til er Skrekkurinn hæfileikakeppni grunnskólanna í Reykjavík. Allir skólarnir í Reykjavík munu mæta til leiks og er búist við geysiharðri keppni í Borgarleikhúsinu þrjú komandi kvöld. 13.11.2006 11:48
Hátt í hundrað atkvæði gleymdust í prófkjöri Samfylkingar í SV-kjördæmi Kjörstjórn í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi hefur uppgötvað að 87 atkvæði úr einum kjörkassa voru ekki talin í prófkjöri flokksins sem fram fór fyrir rúmri viku. Hún hefur yfirfarið þessi atkvæði og breyta þau í engu röð frambjóðenda á listanum eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá kjörstjórninni. Kjörstjórn biðst velvirðingar á þessum mistökum. 12.11.2006 19:46
Vill íslensk heiti á erlendum kvikmyndir Menntamálaráðuneytið vill sporna við þeirri þróun að heiti erlendra kvikmynda, sem sýndar eru hér á landi, séu einungis á ensku og vill íslenska heitin. 12.11.2006 19:29
Kallar eftir strangari reglum um merkingar á framkvæmdum Maður lést í bílslysi á Reykjanesbraut í gærkvöldi en vegaframkvæmdir standa yfir þar sem slysið átti sér stað. Umferðarstofa gagnrýnir að merkingar á slystað hafi ekki verið í samræmi við reglur. Þetta sé vandamál víða þar sem framkvæmdir eru á vegum og götum. Kallar umferðarstofa eftir strangari reglum og harðari eftirliti með að þeim sé fylgt. 12.11.2006 18:56
Rekstur peningaspila innan þess ramma sem Háskóli Íslands setur sér Rektor Háskóla Íslands segir að rekstur peningaspila sé innan þess ramma sem skólinn setji sér. íbúasamtök Breiðholts hafa sakað Háskólann um siðleysi fyrir að gera út á spilafíkn fólks. 12.11.2006 18:55
Á leið inn á Alþingi á ný þremur árum eftir fangelsisvist Þremur árum eftir að Árni Johnsen losnaði úr fangelsi fyrir fjárdrátt og mútuþægni er hann á leið inn á Alþingi á ný. Árni kvaðst í dag kjósa að gleyma því sem liðið er en sækjast í það sem er fram undan. 12.11.2006 18:50
Spáir stormi með ofankomu víða um land á morgun „Það má búast við stormi víða um land á morgun með snjókomu og skafrenningi á norðanverðu landinu og á Vestfjörðum en úrkomulitlu veðri syðra,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur á veðurstofu NFS um veðurhorfurnar næsta sólarhring. 12.11.2006 17:57
Kostnaður Guðrúnar við prófkjör um ein milljón króna Kostnaður Guðrúnar Ögmundóttur alþingiskonu vegna prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavík nam einn milljón og sextíu þúsund krónum samkvæmt uppgjöri sem hún birtir á heimasíðu sinni. Þar segir Guðrún að hún hafi ákveðið að hafa að leiðarljósi reglur flokksins um heillindi og leiðbeinandi kostnað, en þar var rætt um eina milljón króna og að bannað væri að auglýsa í sjónvarpi. 12.11.2006 16:28
TF-LÍF sækir slasaðan sjómann á olíuskip Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, er nú á leið til Reykjavíkur með slasaðan sjómann sem hún sótti út á stórt olíuflutningaskip sem statt er 210 sjómílur suðvestur af landinu. Maðurinn mun hafa hlotið opið fótbrot en beiðni barst frá björgunarmiðstöðinni í Sankti Pétursborg um klukkan hálfeitt í dag. 12.11.2006 16:13
Flugfélög sökuð um samráð Icelandair og Iceland Express eru sökuð samráð um fjargjalda- og flugskattahækkanir á síðustu þremur árum í nýju blaði Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Þar er bent á að skattar og gjöld sem þau leggi á fargjöld hafi hækkað um allt að 147 prósent á síðustu þremur árum og þá hafi lægstu fargjöld hækkað um fimmtíu prósent. 12.11.2006 15:57
Atvinnuleysi ekki minna í sex ár Atvinnuleysi í nýliðnum októbermánuði var eitt prósent og hefur ekki verið minna í sex ár samkvæmt áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins. 12.11.2006 14:34
Listi sjálfstæðismanna í NV-kjördæmi kynntur um næstu helgi Kjörnefnd kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fundaði í Hrútafirði í gær um framboðsmál flokksins en þar er nú unnið að því að stilla upp lista fyrir komandi þingkosningar. 12.11.2006 14:12
Varað við óveðri á Norðausturlandi Vegagerðin varar við hvassviðri með norðausturströndinni og óveðri allt frá Raufarhöfn að Borgarfirði eystra. Jafnframt er varað við óveðri á Fjarðarheiði. 12.11.2006 13:59
Vilja 30 km hámarkshraða í flestum íbúðargötum bæjarins Bæjarráð Garðs hefur samþykkt samhljóða tillögu frá umferðarnefnd bæjarins um að hámarkshraði verði 30 kílómetrar í flestum íbúðargötum bæjarins. Þetta kemur fram á fréttavef Víkufrétta. 12.11.2006 13:51
Vinstri - grænir stilla upp lista í Norðvesturkjördæmi Fulltrúaráð Vinstri - grænna í Norðvesturkjördæmi samþykkti á fundi sínum í Búðardal í gær að stilla upp á lista flokksins í kjördæminu fyrir komandi þingkosningar. 12.11.2006 13:15