Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bræla víða við strendur landsins Bræla er víðast hvar við strendur landsins og sárafá skip á sjó. Nokkrir bátar, sem héldu í róður frá Norðurlandi í morgun, sneru við vegna óveðurs og spáin er afleit þegar líður á daginn. Ekki er vitað um nein óhöpp á sjónum þrátt fyrir veðrið. 29.9.2005 00:01
Fiskistofa flutt í Hafnarfjörð Eitt síðasta verk Árna Mathiesen, fráfarandi sjávarútvegsráðherra, var að flytja Fiskistofu í heimabæ sinn Hafnarfjörð. Fiskistofa hefur verið staðsett í Höfn við Ingólfsstræti frá 1992 og þar starfa 94 starfsmennn auk 33 veiðieftirlitsmanna. Fyrir utan höfuðstöðvarnar í Hafnarfirði eru einnig starfrækt útibú á Ísafirði og Akureyri. 29.9.2005 00:01
Tókst ekki að semja um kolmunna Samningamenn Rússa, Íslendinga, Færeyinga, Norðmanna og Evrópusambandslandanna náðu ekki samkomulagi um skiptingu kolmunnakvótans á milli ríkjanna á fundi sem lauk í Reykjavík í gær. Enn krefjast þjóðirnar samanlagt yfir hundrað prósenta af því magni sem vísindamenn telja ráðlegt að veiða úr stofninum árlega. 29.9.2005 00:01
Fosshótel sýknað af kröfum banka Kaupþing banki tapaði máli í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær sem höfðað var gegn Fosshótel ehf. Kaupþing banki krafðist þess að Fosshótel greiddi leiguskuld að upphæð 1,8 milljónir krónur. Greindi deilendur á um eðli og formgerð húsaleigusamnings og var öllum kröfum Kaupþings banka um leiguskuld hafnað og Fosshótel sýknað af öllum kröfum og málskostnaður milli aðila felldur niður. 29.9.2005 00:01
Bætur vegna rangs flatarmáls húss Íslenska ríkið var í gær dæmt til þess að greiða fyrirtækinu Löngustétt rúmar sjö milljónir króna í skaðabætur og 700 þúsund í málskostnað. Forsaga málsins er sú að Langastétt fékk húseignina Eldshöfða 9 af Fjarðartorgi við gjaldþrotaskipti þess, sem þá hafði nýlega keypt eignina af ríkinu. 29.9.2005 00:01
Víða hált á vegum Hálka er á heiðum og sums staðar einnig á láglendi á Norðurlandi og snjóþekja með ströndinni á Norðausturlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálkublettir eru á Fróðarheiði og Holtavörðuheiði og í Bröttubrekku. Hálka og hálkublettir eru á vestfirskum fjallavegum og einhver hálka á velflestum heiðum á Norðaustur- og Austurlandi. 29.9.2005 00:01
SUS gagnrýnir Heimdall Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) og Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, virðast komin í hár saman vegna þings SUS sem fram fer í Stykkishólmi um helgina. Í ályktun sem stjórn SUS sendi frá sér í dag lýsir hún furðu sinni á þeim vinnubrögðum stjórnar Heimdallar við val á fulltrúum á þingið og segir forystumenn Heimdallar hafa synjað mörgum af virkustu meðlimum ungliðahreyfingarinnar um sæti sem aðalfulltrúar á þinginu. 29.9.2005 00:01
Íbúðaverð yfir meðallagi Evrópu Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu virðist vera komið vel yfir meðallag íbúðaverðs í helstu höfuðborgum Evrópu. Þá býr rífur meirihluti landsmanna í eigin húsnæði ólíkt því sem gerist í Sviss. 29.9.2005 00:01
Reynt áfram að ná samkomulagi Ekki náðist samkomulag fjölda strandríkja við Atlantshaf um skiptingu á kolmunnakvótanum á fundi sem lauk í Reykjavík í gær. Reynt verður áfram til þrautar að ná samkomulagi. 29.9.2005 00:01
Skúta sé enn á Grænlandshafi Talið er að skútan Vamos sem lenti í sjávarháska á þriðjudag þar sem einn áhafnarmeðlimur lést og öðrum var bjargað sé enn á reki á Grænlandshafi. Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar er á eftirlitsflugi á því svæði sem talið er að skútan sé en þó er ekki um eiginlega leit að ræða. Slökkt er á neyðarsendi skútunnar svo illmögulegt er að staðsetja hana nákvæmlega. 29.9.2005 00:01
Látið verði af tortryggni Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að í ljósi þess að umboðsmaður Alþingis sjái ekki forsendu til þess að kanna hæfi hans við sölu ríkisins á Búnaðarbankanum, sé orðið tímabært að stjórnarandstaðan láti af tortryggni sinni í garð hans og að þau atriði sem umboðsmaður spyrji um séu nú þegar til athugunar í ráðuneytinu. 29.9.2005 00:01
Ekki strengir um lengri veg Háspennustrengir verða aldrei lagðir í jörð um lengri veg þótt vera megi að það verði gert á stuttum köflum, segir forstjóri Hitaveitu Suðurnesja. Bæði er kostnaðurinn of mikill og svo fylgja því ýmis vandamál sem ekki fylgja loftlínum og möstrum. 29.9.2005 00:01
Fiskistofa flytur í Hafnarfjörð Eitt síðasta verk Árna Mathiesen fráfarandi sjávarútvegsráðherra var að flytja Fiskistofu í heimabæ sinn Hafnarfjörð. 29.9.2005 00:01
Skiptiaðstöðu vanti á karlasalerni Á Íslandi er greinilega ekki gert ráð fyrir að karlmenn skipti á börnum á ferðalögum þar sem í ljós hefur komið að aðeins einn söluskáli við þjóðveg eitt býður upp á slíka aðstöðu á karlasnyrtingu, það er veitingaskálinn á Brú í Hrútafirði - og er búið að vera í mörg ár. 29.9.2005 00:01
Seldu til fagfjárfesta í BNA Íslandsbanki gekk í dag frá samningi um skuldabréfaútgáfur fyrir rúmlega 1 milljarð bandaríkjadollara, sem jafngildir um 66 milljörðum íslenskra króna. Um 40% útgáfanna voru seld til bandarískra langtímafjárfesta og er þetta í fyrsta sinn sem íslenskur banki selur skuldabréf til bandarískra fagfjárfesta. 29.9.2005 00:01
Mótmæla uppsögnum á Siglufirði Bæjarráð Siglufjarðar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Símans að leggja niður starfsstöð fyrirtækisins á Siglufirði og segja upp tveimur starfsmönnum í ályktun sem ráðið sendir frá sér í dag. Þar er bent á að á tímum geti Siglufjörður verið einangraður staður og gríðarlega mikilvægt sé að á staðnum séu aðilar sem geta sinnt fyrirtækjum og einstaklingum varðandi fjarskiptamál. 29.9.2005 00:01
Samþykktu kjarasamning Nýr kjarasamningur milli SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu og SFH - Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu var samþykktur í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna SFR. Talning atkvæða fór fram síðastliðinn mánudag. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var um 56%. Já sögðu 71% en nei sögðu 28%. 29.9.2005 00:01
Kringlan stækkuð Hafist hefur verið handa við byggingu 1.700 fermetra viðbótar við suðurbyggingu Kringlunnar. Í vor opnar verslunin NEXT svokallaða „flaggskipsverslun" á tveimur hæðum í þessu húsnæði en NEXT hefur nú um 1.000 fermetra til umráða í Kringlunni. 29.9.2005 00:01
Þorsteinn J. ráðinn til 365 Þorsteinn J. Vilhjálmsson hefur hafið störf hjá 365 ljósvakamiðlum. Hann mun bæði starfa við þáttinn Ísland í dag og þáttagerð á Fréttastöðinni sem verið er að setja á laggirnar. Þorsteinn starfaði um árabil á Stöð 2 áður en hann sneri sér að heimildamyndagerð og öðrum tengdum verkum. 29.9.2005 00:01
Sakarefni hafa fyrnst Hluti sakarefna í málum Lífeyrissjóðs Austurlands hefur fyrnst í meðförum efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á síðustu mánuðum, samkvæmt svörum embættisins til fjögurra sjóðsfélaga í Lífeyrissjóði Austurlands sem kærðu fyrrverandi stjórn, framkvæmdastjóra og endurskoðanda sjóðsins fyrir ólöglega meðferð á fjármunum sjóðsins. 29.9.2005 00:01
Búist við stormi Búist er við stormi sunnan- og vestan til á landinu í kvöld og miðhálendinu í nótt og á morgun. Einnig má búast við mjög sterkum vindhviðum á stöku stað, svo sem Kjalarnesi, Hafnarfjalli og víða við suðurströndina. Veðurstofan segir ástæðu til að vara ökumenn við sem leið eiga um þessa staði. 29.9.2005 00:01
Baugsmál: Búið að skipa dómara Fimm dómarar munu fjalla um Baugsmálið þegar frávísun Héraðsdóms í málinu verður tekin fyrir í Hæstarétti. Dómararnir eru Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir. 29.9.2005 00:01
Fimm dómarar í Baugsmáli Hæstiréttur hefur þegar hafið skoðun á því hvort frávísun héraðsdóms í Baugsmálinu svokallaða sé réttmæt. Forseti Hæstaréttar hefur ákveðið að fimm dómarar muni dæma í kærumálinu varðandi ákvörðun héraðsdóms Reykjavíkur að vísa frá öllum fjörutíu ákæruliðum í Baugsmálinu svokallaða. 29.9.2005 00:01
Spörkuðu í höfuð manns Aðalmeðferð í máli tveggja tæplega tvítugra manna fór fram í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrr í vikunni. 29.9.2005 00:01
Morgunblaðið birti einkapósta Einkatölvupóstar Össurar Skarphéðinssonar og Gunnlaugs Sigmundssonar hafa birst án þeirra samþykkis á síðum Morgunblaðsins. Blaðið birti jafnframt bréfaskipti Norðurljósa og Landsbankans vegna fjárhagsstöðu Norðurljósa. Ritstjóri Morgunblaðsins hefur undanfarið gagnrýnt Fréttablaðið fyrir að birta tölvupósta manna. </font /></b /> 29.9.2005 00:01
Opið daglega eftir áramót "Sögusagnir um að loka eigi Fjarskiptasafninu við Suðurgötu eru ekki sannar," segir Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður. 29.9.2005 00:01
Lausn ekki í sjónmáli Ráðið var í 22 stöðugildi starfsmanna leikskóla í síðustu viku, samkvæmt upplýsingum frá Menntasviði Reykjavíkurborgar. Enn eru um 80 stöður á leikskólunum ómannaðar. Þá fengu um 100 börn pláss á frístundaheimilum í borginni. 29.9.2005 00:01
Vill fjórða sæti Örn Sigurðsson arkitekt og formaður Höfuðborgarsamtakanna hefur skilað inn framboði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Örn sækist þar eftir fjórða til fimmta sæti á lista. Fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar stóðu Höfuðborgarsamtökin fyrir sínu eigin framboði og var Örn þá í efsta sæti. 29.9.2005 00:01
Fréttin ekki mistök Mikael Torfason, annar af ritstjórum DV, kannast ekki við að frétt blaðsins á mánudag, um að Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, og Jónína Benediktsdóttir hafi átt í ástarsambandi á sama tíma og þau stóðu í tölvupóstsamskiptum vegna málefna Jóns Geralds Sullenberger hafi verið mistök. 29.9.2005 00:01
Hákon Eydal í sextán ára fangelsi Hákon Eydal var dæmdur til sextán ára fangelsisvistar fyrir morðið á fyrrum sambýliskonu sinni Sri Rahmawati. Hæstiréttur staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. Honum ber jafnframt að greiða börnum Sri bætur að upphæð 22 milljónir króna og þriggja og hálfrar milljónar króna sakarkostnað. 29.9.2005 00:01
Umræðu ekki lokið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir umræðuna um einkavæðinguna og hvernig að henni hafi verið staðið ekki lokið. Halldór Ásgrímsson sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag, að í ljósi þess að umboðsmaður Alþingis sjái ekki forsendu til þess að kanna hæfi hans við sölu ríkisins á Búnaðarbankanum, sé orðið tímabært að stjórnarandstaðan láti af tortryggni sinni í garð hans. 29.9.2005 00:01
Álykta gegn framboði Íslands? Svo gæti farið að Landsfundur sjálfstæðismanna álykti gegn framboði Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og krefjist þess að framboðið verði dregið til baka. Í drögum að ályktunum fyrir flokksþing Ungra sjálfstæðismanna segir að sambandið vilji að framboð Íslands verði dregið til baka. 29.9.2005 00:01
Gagnrýnir fyrningu Formaður Lögmannafélags Íslands, Helgi Jóhannesson hæstaréttarlögmaður, segir mjög baglegt ef sakir fyrnist í málum sem til rannsóknar eru hjá yfirvöldum vegna tafa á rannsóknum. Helgi segir það bagalegt fyrir hvort tveggja fórnarlömb brota og ekki síst fyrir meinta sakamenn ef mál fyrnist í meðförum lögreglu, eins og nú sé raunin í máli Lífeyrissjóðs Austurlands. 29.9.2005 00:01
Fatlaðir lyfta á Lækjartorgi Heimsmeistaramótið í aflraunum fatlaðra hefst á Lækjartorgi í dag. Tíu keppendur reyna með sér en íranskir aflraunamenn geta ekki tekið þátt þar sem þeir fengu ekki vegabréfsáritun í tæka tíð. </font /></b /> 29.9.2005 00:01
Skandall á Bifröst Rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst hefur áminnt sex nemendur skólans fyrir að halda úti heimasíðu þar sem dreift var óhróðri um aðra nemendur. Heimasíðunni hafði verið haldið úti um nokkurt skeið og bar heitið skandalar. Þar var aðfinna slúður og fleira um aðra nemendur skólans. Upplýsingafulltrúi skólafélagsins á Bifröst var meðal þeirra sem hélt úti síðunni, og sagði hann af sér í kjölfarið á áminningunni. 29.9.2005 00:01
Ójafnrétti í vegasjoppum Feður hafa bersýnilega ekki sömu möguleika og mæður á að skipta um bleiur á börnunum sínum þegar ferðast er um hringveginn. Jafnréttisráð og Félagsvísinda-og lagadeild Háskólans á Akureyri stóðu fyrir könnun í sumar um aðstöðu til umönnunnar ungbarna á karlasnyrtingum í söluskálum við hringveginn. 29.9.2005 00:01
Óvíst hvenær Sigrún byrjar "Það er ekki búið að taka endanlega ákvörðun um hvenær nýr dagskrárstjóri kemur til starfa. Hún kemur að öllum líkindum til með að hefja störf annað hvort 1. nóvember eða 1. desember," segir Páll Magnússon, útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins. 29.9.2005 00:01
Ríkið var bótaskylt Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða fyrirtækinu Löngustétt 7,2 milljónir króna með vöxtum auk 700 þúsund króna í málskostnað vegna rangskráningar fermetrafjölda á fasteign við Eldshöfða í Reykjavík sem fyrirtækið fékk árið 2000 og seldi aftur tæpu ári síðar. 29.9.2005 00:01
Fasteignasala greiði bætur Fasteignasali hefur verið dæmdur til að greiða konu 1,3 milljónir króna vegna þess að risíbúð sem hún keypti í Reykjavík veturinn 2001 reyndist ósamþykkt þegar eignaskiptasamningur var gerður eftir kaupin. 29.9.2005 00:01
Starfsemi að íslenskri fyrirmynd Barnahús að íslenskri fyrirmynd verður opnað í Linköping í Svíþjóð í dag. Húsið verður opnað með formlegri athöfn að viðstaddri Silvíu Svíadrottningu. Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu, og Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Stokkhólmi, verða viðstaddir athöfnina. 29.9.2005 00:01
Vill þjóðskrána til Ísafjarðar "Þetta smellpassar við stefnu ríkisstjórnarinnar," segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, sem vill að Hagstofan flytji starfsemi sína til Ísafjarðar. 29.9.2005 00:01
Utanbæjargjald leggst af Sameining takmörkunarsvæða leigubíla á höfuðborgarsvæðinu, Grindavík og Reykjanesbæ tekur gildi á morgun, samkvæmt auglýsingu samgönguráðuneytisins. Við þetta leggst utanbæjargjald af innan svæðisins, en á daginn var það rúmar 219 krónur á kílómetra. Venjulegt daggjald er tæpar 95 krónur. 29.9.2005 00:01
Sextán ára fangelsi staðfest Hæstiréttur staðfesti í gær dóm héraðsdóms frá því í mars yfir Hákoni Eydal, banamanni Sri Rahmawati. Hákon skal sæta fangelsi í sextán ár fyrir morð á fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður. 29.9.2005 00:01
Bakvakt hjá héraðsdómstólunum Lágmarksstarfsemi er hjá dómstólum landsins vegna árshátíðar Dómstólaráðs sem haldin er í Kaupmannahöfn núna um helgina. 29.9.2005 00:01
Sextán ára fangelsi staðfest Hæstiréttur staðfesti í gær dóm héraðsdóms frá því í mars yfir Hákoni Eydal, banamanni Sri Rahmawati. Hákon skal sæta fangelsi í sextán ár fyrir morð á fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður. 29.9.2005 00:01