Fleiri fréttir

Herjólfur sigli tvisvar á dag

Herjólfur fer tvær ferðir daglega milli lands og Vestmannaeyja frá og með næstu áramótum. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur beint þeim tilmælum til yfirmanna Vegagerðarinnar að þeir semji við Samskip um að fjölga ferðum. Þær eru nú 590 á ári, eða rúmlega ein og hálf ferð á dag að meðaltali. Samgönguráðherra hefur jafnframt skipað Guðjón Hjörleifsson, þingmann og fyrrverandi bæjarstjóra Vestmannaeyja, sem formann nýrrar nefndar sem á að leita leiða til að efla ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum.

Í úrslit Nýmiðlunarverðlauna SÞ

DVD-Kids leiktækið frá íslenska fyrirtækinu 3-PLUS er komið í úrslit í flokki rafrænnar afþreyingar í keppni um Nýmiðlunarverðlaun Sameinuðu þjóðanna. Alls voru sex verkefni valin úr um þúsund tilnefningum frá 168 löndum og er 3-PLUS eina fyrirtækið frá Norðurlöndum sem kemst í úrslit. DVD-KIDS er þráðlaust leiktæki fyrir börn sem breytir DVD-spilara í leikjavél fyrir börn frá þriggja ára aldri.

Þotur lentu á Reykjavíkurvelli

Fjórar Harrier-þotur frá konunglega breska flughernum lentu á Reykjavíkurflugvelli um klukkan þrjú í dag. Þær voru á leið til Keflavíkur en gátu ekki lent þar vegna veðurs og fóru til Reykjavíkur í staðinn. Þotur þessarar tegundar hafa löngum verið þekktar fyrir eiginleika sinn til taka á loft og lenda lóðrétt, en flugvélarnar lentu þó upp á gamla mátann á Reykjavíkurflugvelli í dag.

Fjórar Harrier herþotur lentu í Reykjavík

Fjórar Harrier herþotur frá breska flughernum lentu í Reykjavík kl 14:57 í dag. Á vef Flugmálastjórnar segir að þoturnar hafi verið að koma frá Kinnloss á Bretlandseyjum á leið til Keflavíkur. Þar gátu þær hins vegar ekki lent vegna lélegs skyggnis. Flugvélarnar munu taka eldsneyti í Reykjavík og halda svo til Keflavíkur um leið og veðurskilyrði leyfa.

Aldrei fleiri útlendingar

Tuttugasti hver starfsmaður á Íslandi er útlendingur og er hlutfallið það næsthæsta á Norðurlöndunum. Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi eru tvöfalt fleiri nú en fyrir áratug. </font /></b />

Erlendir starfsmenn óvíða fleiri

Erlendir ríkisborgarar á Íslandi eru tvöfalt fleiri nú en fyrir áratug. Hlutfall erlends vinnuafls er með því sem mest þekkist á Norðurlöndunum og töluvert hærra en í Danmörku. Tæp 3.000 störf eru laus á Íslandi. Sigríður Dögg Auðunsdóttir ræddi við sérfræðinga og rýndi í nýjar tölur. </font /></b />

Fleiri treysta Vilhjálmi en Gísla

Reykvíkingar treysta Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni betur en Gísla Marteini Baldurssyni til þess að gegna starfi borgarstjóra, samkvæmt niðurstöðum úr nýrri skoðanakönnun sem unnin var á vegum Gallup.

Tíu vilja í sex efstu sætin

Tíu gefa kost á sér í sex efstu sætin á lista Vinstri - grænna fyrir næstu borgarstjórnarkosningar, en forval á listann fer fram 1. október. Framboðsfrestur vegna forvalsins rann út í dag og þá höfðu eftirtaldir gefið kost á sér: Árni Þór Sigurðsson, Ásta Þorleifsdóttir, Grímur Atlason, Guðný Hildur Magnúsdóttir, Magnús Bergsson, Sóley Tómasdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Ugla Egilsdóttir, Þorleifur Gunnlaugsson og Þorvaldur Þorvaldsson.

Grunuð um að hafa neytt áfengis

Lögregla segir rökstuddan grun um að hvort tveggja eigandi bátsins sem steytti á skeri á Viðeyjarsundi aðfaranótt laugardags og kona hans hafi neytt áfengis um kvöldið áður en slysið varð. Bæði njóta þau réttarstöðu sakborninga við yfirheyrslur vegna rannsóknar málsins.

TF-SIF leitaði Friðriks í dag

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, leitaði við strendur, eyjar og sker allt frá Skerjafirði inn Kollafjörð, út með Kjalarnesi og upp á Akranes í dag að Friðriki Ásgeiri Hermannssyni sem saknað hefur verið í tæpa viku eftir að bátur sem hann var í steytti á skeri. Flogið var í kringum allar eyjar, m.a. Þerney, Lundey, Viðey, Engey og Akurey en leitin bar engan árangur.

Tengjast kerfi Neyðarlínunnar

Farsímanotendur, sem skipta við Og Vodafone, tengjast staðsetningarkerfi Neyðarlínunnar á næstu tveimur mánuðum. Eftir það búa þeir við sama öryggi og viðskiptavinir Landssímans.

Kynbundinn launamunur 14 prósent

Kynbundinn launamunur er 14 prósent samkvæmt launakönnun VR. Heildarlaun hafa hækkað um tíu prósent á milli ára og sýnir könnunin að þeir sem fóru í starfsmannaviðtal á síðasta ári eru með fjórum prósentum hærri laun en þeir sem ekki fóru í viðtal.

Ekki athugasemdir við orð Halldórs

Davíð Oddssson, utanríkisráðherra, gerir engar athugasemdir við það að Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra skyldi nefna framboð Íslands til öryggisráðsins á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.

Óljós afstaða í flugvallarmáli

Samgönguráðherra telur augljóst að innanlandsflugið flytjist til Keflavíkur ef það fer yfirhöfuð úr Reykjavík. Fyrir tveimur vikum sagðist hann þó ekki vilja bera ábyrgð á því.

Rökstuddur grunur um áfengisneyslu

Eigandi bátsins, sem fórst á Viðeyjarsundi fyrir tæpri viku, og kona hans hafa réttarstöðu sakborninga við rannsókn slyssins. Rökstuddur grunur er um að þau hafi neytt áfengis kvöldið örlagaríka.

Hestamenn grunaðir um óvarkárni

Sauðfjárriða er skæður sjúkdómur, en þar sem hún kemur upp þarf alla jafna að lóga öllu fé. Sérfræðingur Yfirdýralæknis hvetur menn til varkárni og átelur skemmdir á sauðfjárveikivarnagirðingum.

Sigldu bátnum af skerinu

Eigandi skemmtibátsins sem fórst um síðustu helgi og eiginkona hans njóta stöðu sakborninga í rannsókn lögreglu á slysinu. Báturinn sat í fyrstu á skerinu, en var svo siglt af því og sökk á sundinu. Símasamband var við bátinn í rúman hálftíma.

Málsaðilar bera hver sinn kostnað

Hæstiréttur staðfesti í vikunni dóm Héraðsdóms Reykjaness frá því í fyrravetur um landamerki Vogajarða og jarða í Brunnstaðahverfi í Vatnsleysustrandarhreppi utan að felldur var niður málskostnaður bæði í héraði og fyrir Hæstarétti.

Unglingar til starfa á leikskólum

Sautján ára unglingar og fólk sem talar litla íslensku hefur verið ráðið til starfa í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu undanfarið. Dæmi eru um að foreldrar hafi þurft að senda börn sín til Vestmannaeyja vegna manneklu á leikskólum.

Fjöldi manns við leit í dag

Stórleit verður framkvæmd í dag að líki 34 ára karlmanns sem fórst eftir að skemmtibátur ók á Skarfasker á Viðeyjarsundi aðfararnótt síðasta laugardags. Jónas Hallsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir að leitað verði á svæði sem nær allt frá Gróttu og upp á Akranes.

Norðmenn kynna sér offituaðgerðir

Tólf norskir offitusjúklingar eru staddir hér á landi til að leggjast undir hnífinn. Hópur norskra heilbrigðisstarfsmanna fylgir hópnum til landsins en hann ætlar að reyna að læra af góðum árangri Íslendinga.

Lagði hald á tæki slippstöðvar

Fjármögnunarfyrirtæki lagði í nótt hald á hluta af tækjabúnaði sem Slippstöðin á Akureyri hefur notað við Kárahnjúka. Lögfræðingur Slippstöðvarinnar vill ekki staðfesta að fyrirtækið hafi átt tækin. Slippstöðin hefur séð um vinnu við rör inni í göngunum til Fljótsdals, en vinna þar hefur legið niðri eftir að tækin voru fjarlægð.

Dæmdir fyrir að skjóta á pilt

Tveir menn voru dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag fyrir að skjóta að pilti úr lítilli loftbyssu í apríl. Mennirnir hlutu 8 og 5 mánaða fangelsi. Þeir létu fórnarlambið afklæðast á berangri á Vaðlaheiði og skutu á það alls sautján sinnum. fjórar kúlur voru fjarlægðar úr líkama hans.

Tíu í framboð VG

Ljóst er hverjir verða í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík. Kosnir verða fulltrúar í sex efstu sæti listans.

Megrun ekki lausnin við offitusýki

Megrun er ekki lausnin við sjúklegri offitu. Þetta var meðal þess sem kom fram á blaðamannfundi sem haldinn var á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í gær.

Hræddu borgarbúa

Fjórar Harrier-þotur Konunglega breska flughersins lentu á Reykjavíkurflugvelli í gærdag. Flugvélarnar höfðu áætlað lendingu á Keflavíkurflugvelli en var beint til Reykjavíkur vegna slæms skyggnis í Keflavík að sögn Heimis Más Péturssonar, upplýsingafulltrúa

Tilboðið mistök

"Það kom okkur verulega á óvart hvað menn eru tilbúnir að greiða fyrir sérleyfisferðina," segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Kynnisferða. Í fyrradag voru opnuð tilboð í Ríkiskaupum í skóla- og áætlunarakstur á nokkrum sérleyfisferðum. Athygli vöktu svokölluð mínustilboð en nokkur fyrirtæki voru reiðubúin að greiða Vegagerðinni tugi og allt að 469 milljónir með leyfinu fyrir akstur frá Reykjavík til Suðurnesja.

Bílakirkjugarður burtu

Bílakirkjugarðurinn að Garðsstöðum við Ísafjarðardjúp mun að mestu hverfa ef samkomulag sem sveitastjórn Súðavíkur gerði við landeiganda í gær gengur eftir. "Nú eru eitthvað um 580 bílar á landinu og við ætlum að vinna að því með landeiganda að þetta verði komið í skikkanlegt horf og orðið öllu minna og snyrtilegra næsta sumar," segir Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri á Súðavík.

Stefnir Sigurði Líndal

Lögfræðingur Friðriks Þórs Guðmundssonar, faðir pilts sem lést í flugslysi í Skerjagarði fyrir fimm árum, hefur ritað Sigurði Líndal, fyrrverandi prófessor, bréf þar sem þess er krafist að hann dragi ummæli sín til baka og biðji Friðrik afsökunar. Verði Sigurður ekki við þessu muni Friðrik stefna honum fyrir dóm og freista þess að fá ummæli hans dæmd dauð og ómerk.

Samstarfi við Icelandair slitið

Forstjóri SAS segir í viðtali við danska viðskiptablaðið <em>Börsen</em> í morgun að öllu samstarfi við Icelandair um flug innan Skandinavíu verði slitið ef FL Group, móðurfélag Icelandair, kaupi Sterling-flugfélagið.

Slapp ótrúlega vel úr bílveltu

Ökumaður jeppa slapp ótrúlega lítið meiddur þegar hann missti stjórn á jeppa sínum á Strandarheiði á Reykjanesbraut laust fyrir klukkan sjö í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn valt út af veginum. Klippa þurfti manninn úr bílnum.

Íslendingar með þeim stoltustu

Íslendingar, Austurríkismenn og Lúxemborgarar eru lang stoltastir Evrópubúa af þjóðerni sínu samkvæmt könnum sem Gallup vann í tuttugu og þremur Evrópulöndum fyrir breska ríkisútvarpið, BBC.

Vélhjóli ekið á 13 ára pilt

Þrettán ára piltur hlaut opið fótbrot þegar jafnaldri hans ók á hann á vélhjóli við sveitabæ í Rangárvallasýslu í gær. Þrír jafnaldrar höfðu verið þar að leik á tveimur óskráðum vélhjólum, og að sjálfsögðu réttindalausir, sem endaði með þessum hætti.

Leitað á saklausum nemendum

Lögreglumenn og fíkniefnahundur biðu á Akureyrarflugvelli þegar leiguflugvél, sem flutti væntanlega útskriftarnemendur Menntaskólans á Akureyri heim úr skemmtiferð frá Tyrklandi í gær, og var leit gerð á farþegum og í farangri. En ekki komust þeir í feitt í þetta sinn. 

Höfuðborg án skuldbindinga

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að flestir borgarfulltrúar í Reykjavík álíti að borgin sé höfuðborg án skuldbindinga. Þetta kemur fram í nýjum pistli sem hann skrifar á heimasíðu sinni.

Lögregla gefur ekkert upp

Lögregla hefur yfirheyrt þá sem komust lífs af úr sjóslysinu á Viðeyjarsundi aðfaranótt laugardags. Lögreglan vill þó ekkert gefa út um ástæður eða aðdraganda slyssins þar sem rannsókn er enn í fullum gangi.

Höfða mál gegn olíufélögunum

Útgerðarmenn eru farnir að undirbúa málshöfðanir gegn olíufélögunum vegna taps sem þeir telja sig hafa orðið fyrir vegna samráðs olíufélaganna.

Of seint að hætta við framboðið

Formaður Frjálslynda flokksins segir réttast að hætta við framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Formenn Samfylkingar og Vinstri - grænna telja hins vegar of seint að hætta við.

Leikskólabörn send heim

Útlit er fyrir að senda þurfi allt að fjörutíu leikskólabörn heim daglega af leikskólanum Rjúpnahæð í Kópavogi frá og með næstu mánaðamótum. Ekkert hefur gengið að ráða starfsmenn í lausar stöður og nokkrir starfsmenn láta af störfum um mánaðamótin.

Allir andvígir sameiningu

Allir bæjarfulltrúar í Sandgerði eru andvígir því að sveitarfélagið sameinist Reykjanesbæ og Garði. Þetta varð ljóst eftir bæjarstjórnarfund í gær. Kjósa á um sameiningu sveitarfélaganna áttunda október.

Fæðingarorlofið verði 15 mánuðir

Karl Petter Thorwaldsson, þingmaður á sænska þinginu, hefur lagt fram frumvarp þess efnis að fæðingarorlof sænskra foreldra verði samanlagt fimmtán mánuðir. Samkvæmt frumvarpinu myndi orlofið skiptast þannig að móðir fái fimm mánuði, faðir fimm og síðustu fimm mánuðunum geti foreldrarnir skipt á milli sín eins og þeir vilja.

Ólafur Ragnar á ráðstefnu í BNA

Ólafur Ragnar Grímsson forseti er farinn til Bandaríkjanna þar sem hann tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu sem Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur skipulagt. Á ráðstefnunni verður fjallað um nýjar leiðir í baráttunni gegn fátækt, hættu á loftslagsbreytingum og áhrif trúar í stjórnmálum svo nokkur mál séu nefnd.

Kvenfélag nefnt eftir Maggnúsi

Maggnús Víkingur Grímsson skrifar Magnúsarnafnið sitt með tveimur G-um. Hann hóf starfsævina í vélsmiðju í Þorlákshöfn en áformar nú að reisa millahverfi á Flúðum. </font /></b />

Lofar góðri stemningu

Það heyrir til tíðinda þegar þekktar hljómsveitir koma saman á ný eftir hlé og því má það teljast stórfrétt að Skriðjöklar frá Akureyri ætli að leika á Players í Kópavogi annað kvöld.

Leikskólakennarar áhyggjufullir

Stjórn félags leikskólakennara lýsir miklum áhyggjum af stöðu mála í leikskólanum Rjúpnahæð í Kópavogi. Útlit er fyrir að senda þurfi á fimmta tug leikskólabarna heim  á hverjum degi frá og með næstu mánaðamótum því ekkert hefur gengið að ráða starfsmenn í lausar stöður.

Sjá næstu 50 fréttir