Of seint að hætta við framboðið 15. september 2005 00:01 MYND/AP
Formaður Frjálslynda flokksins segir réttast að hætta við framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Formenn Samfylkingar og Vinstri - grænna telja hins vegar of seint að hætta við. Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna eru líkt og forystumenn stjórnarflokkanna ósammála um hvort halda eigi framboði Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna til streitu. Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í gær að réttast væri að hætta við framboðið. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur hins vegar lagt áherslu á að framboðið stendur þar til annað er ákveðið. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, tekur heils hugar undir orð utanríkisráðherra. Hann segir skynsamlegast að hætta við vegna mikils kostnaðar og vonar að Geir H. Haarde horfi til reynslu sinnar sem fjármálaráðherra þegar hann tekur ákvörðun um framhaldið eftir að hann tekur við embætti utanríkisráðherra. Formenn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs eru á öndverðri skoðun og segja misvísandi yfirlýsingar utanríkisráðherra og forsætisráðherra orðnar vandræðalegar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir hringlandaháttinn í málinu koma sér illa fyrir Ísland á alþjóðavettvangi. Steingrímur J. Sigfússon vill halda framboðinu til streitu og segir orð Davíðs um að hætta við framboðið vera kaldar kveðjur til Halldórs Ásgrímssonar og Geirs H. Haarde sem þurfa að taka ákvörðun eftir að Davíð hættir í stjórnmálum. Allir viti að þetta sé mikið og persónulegt metnaðarmal fyrir Halldór sem hann hafi unnið mikið að þau ár sem hann hafi verið utanríkisráðherrra. Og hann segir að þetta sé „heit kartafla í lúkurnar á Geir H. Haarde sem glænýjum utanríkisráðherra, og ekki skemmtilegt að hefja embættisferilinn á því að tilkynna starfsbræðrunum á hinum Norðurlöndunumm, ef það yrði niðurstaðan, að Ísland sé hætt við,“ segir Steingrímur.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Íslendingur handtekinn á EM Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Hljóp á sig Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira