Fleiri fréttir

Engar hæfniskröfur gerðar

"Ástæðan er einfaldlega sú að lög kveða á um að stöðuna skuli auglýsa með þessum hætti," segir Jón Vilberg Guðjónsson, lögfræðingur hjá Menntamálaráðuneytin um auglýsingu um embætti útvarpsstjóra.

Mótmæla stækkun Fríhafnarverslunar

Samtök verslunar og þjónustu mótmæla stækkun Fríhafnarkomuverslunar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ástæðan er sú að ríkið á og rekur verslunina þótt sérstök stjórn og framkvæmdastjóri stýri rekstrinum í umboði utanríkisráðuneytisins. „Stjórnskipulega er utanríkisráðuneytið eigandi og rekstraraðili stærstu snyrtivöruverslunar landins,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Netnotkun óvíða meiri

Rúm 80 prósent allra íslenskra heimila eru tengd internetinu og er það hlutfall það hæsta í gervallri Evrópu samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Hagstofa Íslands hefur gert.

Heilsugæslan skilaði afgangi

Rekstur Heilsugæslunnar í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi og Mosfellsumdæmi skilaði 40,7 milljóna króna afgangi miðað við fjárheimildir á árinu 2004. Svarar það til 1,4 prósenta af heildarútgjöldum stofnananna á árinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilsugæslunni. Þar segir enn fremur að afgangurinn lækki uppsafnaðan halla frá liðnum árum um 13 prósent.

Flóttamenn kröfðust aðgerða

Flóttamenn sem dvalið hafa á gistiheimilinu Fit í Reykjanesbæ undanfarna mánuði fóru í dag í kröfugöngu um Keflavík. Þeir dreifðu bréfi þar sem kemur fram að þeir séu orðnir langþreyttir á seinagangi íslenska kerfisins og að þeim finnist undarlegt að hægt sé að fljúga Bobby Fischer til landsins með íslenskt vegabréf eins og ekkert sé, á meðan umsækjendur um pólitískt hæli húki mánuðum saman algerlega aðgerðalausir án þess að fá nokkra lausn sinna mála.

Greiði bætur vegna graðhests

Steypustöðin Dalvík ehf. og Sjóvá-Almennar voru í dag dæmd til að greiða eiganda graðhestsins Ísaks frá Ketilsstöðum 550.000 krónur í bætur ásamt vöxtum. Hesturinn drapst þegar steypubíll frá Steypustöðinni ók á hann skammt frá Dalvík í október árið 2002. Ísak var undan kynbótahestinum Hrafni frá Holtsmúla og ágætlega ættaðri hryssu, Litlu-Löpp frá Möðruvöllum. Ísak frá Ketilsstöðum var því metinn á 1,1 milljón króna.

Aðgerðir til hagræðingar í Háskólanum á Akureyri

Háskólaráð Háskólans á Akureyri hefur samþykkt að ráðast í aðgerðir til að draga úr rekstrarkostnaði þar sem fyrir liggur að fjárveitingar nægja ekki til að greiða þann kennslukostnað sem núverandi námsframboð leiðir af sér. A.m.k. 40 milljónir króna á ári að jafnaði skortir til að endar nái saman og hefur verið skipaður sérstakur starfshópur sem fara á yfir rekstrarkostnað og endurskipulagningu deilda.

Birgðastaða lambakjöts eðlileg

"Útflutningur lambakjöts mun verða með svipuðu móti og verið hefur og mögulegur skortur hefur lítil áhrif á það," segir Baldvin Jónsson, verkefnisstjóri hjá Bændasamtökunum.

Samið um vernd fjárfestinga

Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra undirritaði í dag gagnkvæman samning Íslands og Mexíkós um vernd fjárfestinga. Fjárfestingarsamningurinn tryggir jafnréttis- og bestu kjör fyrir íslenska fjárfesta í Mexíkó og öfugt. Ráðherrann hefur undanfarna daga farið fyrir sendinefnd íslenskra athafnakvenna í Mexíkó. Fyrir hönd Mexíkó undirritaði samninginn Fernando Canales efnahagsmálaráðherra.

Aukin verðmæti sjávaraflans

Aflaverðmæti íslenskra skipa fyrstu þrjá mánuði ársins er rúmum 500 milljónum króna meiri en á sama tíma í fyrra eða um 20,2 milljarðar króna samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.

Varnarviðræður innan nokkurra daga

Innan fárra daga hefjast viðræður um framtíð varnarsamstarfs Íslendinga og Bandaríkjamanna í Washington eftir langa bið. Ekki er þó ljóst hvað á að ræða þar sem Bandaríkjamenn hafa ekki ákveðið hver framtíð stöðvarinnar á að verða.

Alvarlegt samkeppnisbrot Símans

Samkeppnisráð hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landssíminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að tvinna saman ólíka þjónustuhætti og veita tryggðarafslætti í svonefndu "Allt saman" tilboði. Samkvæmt úrskurði Samkeppnisráðs skekkti Landssíminn á alvarlegan hátt samkeppni á markaði og misnotaði markaðsráðandi stöðu sína.

Seltirningar kjósa í dag

Í dag gefst Seltirningum kostur á að kjósa um tvær skipulagstillögur sem settar hafa verið fram um framkvæmdir á svæðinu við Suðurströnd og Hrólfsskálamel við miðbæinn. Kosningin fer fram í Valhúsaskóla og opnar kjörstaður klukkan níu í morgunsárið en lokar klukkan tíu í kvöld.</font />

Prestar vilja gifta samkynhneigða

"Við fögnum því að þjóðkirkjan sé að svara kalli tímans," segir Sigursteinn Másson varaformaður Samtakana 78 vegna þeirrar óskar sem biskupi Íslands barst í gær á prestastefnunni sem nú er haldin um að þjóðkirkjan komi að hjúskaparstofnun samkynhneigðra para með hliðstæðum hætti og hjá gagnkynhneigðum.

Lögregla lýsir eftir manni

Lögreglan lýsir eftir Hafsteini Eðvarðssyni. Síðast er vitað um ferðir Hafsteins við Djúpavog um klukkan fjögur í gær. Talið var að hann væri á leið til Egilsstaða. Hafsteinn, sem er fertugur, var á jeppabifreið af gerðinni Kia Sportage, ljósgrárri að lit. Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Hafsteins eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Fáskrúðsfirði.

Dæmd fyrir kókaínsmygl í hárkollu

Erlend kona á sjötugsaldri var í dag dæmd í eins og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa flutt inn kókaín sem falið var í hárkollu sem hún bar.

Aðgerðir gegn hallarekstri

Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti í gær tillögur til þess að draga úr rekstrarkostnaði skólans. Ráðið skipaði jafnframt starfshóp sem fara á yfir rekstrarkostnað og skipulag Auðlindadeildar, Upplýsingatæknideildar og og Félagsvísinda- og langadeildar skólans.

Framtíðin ekki endilega á Hlemmi

Sólmundur Már Jónsson, framkvæmdastjóri rekstar- og þjónustusviðs lögreglunnar í Reykjavík, varpaði fram þeirri hugmynd á fundi um skipulagsmál við Hlemm í vikunni að lögreglustöðin gæti vel flutt sig um set ef þurfa þætti.

Mótmæltu seinagangi kerfisins

Átta flóttamenn frá fjölmörgum löndum mótmæltu á götum Reykjanesbæjar í dag. Þeir hafa dvalið á gistiheimili í bænum undanfarna mánuði og mótmæla seinagangi kerfisins; segja íslensk stjórnvöld ekki líta á sig sem mannverur.

Lögmaður borgi sex milljónir

Hæstaréttarlögmaður í Reykjavík þarf að greiða verðbréfafyrirtæki 6 milljónir króna, auk dráttarvaxta og 400 þúsund króna í málskostnað, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær.

Fimm hlutu dóm í Dettifossmáli

Fjórir voru fengu fangelsisdóma í seinni hluta svonefnds Dettifossmáls í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þyngstu dómarnir námu sex og hálfu og sex árum. Þá fékk maður hálfsársdóm, kona fjóra mánuði skilorðsbundna og einn fékk 40 þúsund króna sekt. Smyglararnir þurfa að borga fyrir efnarannsókn á eiturlyfjunum sem þeir voru gripnir með.

Borgin bætir stuld af fötluðum

Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að vísa til lögreglu meintum fjárdrætti starfsmanns borgarinnar úr heimilissjóði íbúa á heimili ætluðu fötluðum.

Söngur dans og leikur

Kirkjudagar þjóðkirkjunnar hófust í gær á Skólavörðuholti í Reykjavík og standa áfram með fjölbreyttri dagskrá í dag, frá hádegi fram til klukkan sex. Í boði er margvísleg skemmtan fyrir börn og unglinga, auk þess sem fjöldi hópa kynnir kirkjustarf sitt.

Grænar baunir og torfæra

Um þessar mundir standa nokkur bæjar- og sveitarfélög fyrir uppákomum um helgina sem laðað geta að ferðamenn. Til dæmis eru hátíðarhöld á Bíldudal og á Flúðum.

Bílstjórar sjá ekki merkin

Lögreglan í Ólafsvík tók tíu ökumenn fyrir of hraðan akstur, á vegaköflum þar sem vegaframkvæmdir stóðu yfir og búið að lækka hámarkshraða í 50 kílómetra á klukkustund, eftir kvöldmat á fimmtudag. Nokkuð var um að rúður brotnuðu í bílum vegna grjótkasts.

Fékk refsilækkun fyrir aðstoðina

64 ára gömul hollensk kona sem gripin var í Leifsstöð með 759 grömm af kókíni falin í sérsaumaðri hárkollu fékk refsingu mildaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, vegna þess hve hún var samvinnuþýð við lögreglu. Konan var dæmd í eins og hálfs árs fangelsi.

Kona lá í skurði fram á morgun

Um klukkan átta í gærmorgun fannst kona um fimmtugt sem horfið hafi heiman frá sér á bæ í nágrenni Blönduóss eftir miðnætti kvöldið áður. Konan, sem átt hefur við vanheilsu að stríða, gerði sjálf vart við sig þar sem hún lá í skurði um 150 metra frá heimili sínu.

Fylgi Framsóknar fimm prósent

Fylgi Framsóknarflokksins í Reykjavík er minna en fimm prósent samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup frá því í byrjun mánaðarins. Í könnuninni mældist fylgi flokksins í sögulegu lágmarki eða átta og hálfu prósenti á landsvísu sem er minna en helmingur af kjörfylgi flokksins í síðustu alþingiskosningum.

Vill kosningar um stækkun álvers

Alcan á að leggja til hliðar áform sín um að stækka álverið í Straumsvík. Þetta segir umhverfisnefnd Hafnarfjarðar. Stækkunin gæti orðið að pólitísku hitamáli, en fulltrúi í umhverfisnefnd vill að bæjarbúar kjósi um hana í haust.

Neyðast til að kveðja í kyrrþey

Kostnaður vegna jarðarfara og erfidrykkju er orðinn svo mikill að margir neyðast til að kveðja látna ástvini í kyrrþey. Kirkjan segir það óheillaþróun að jarðarfarir reynist mörgum fjárhagslegur baggi.

Hugsanlegt að áminna forstöðumenn

Fjármálaráðherra segir að til greina komi að áminna forstöðumenn stofnana, sem fara fram úr á fjárlögum, en ekki að frysta launagreiðslur til þeirra, eins og lagt er til í skýrslu Ríkisendurskoðanda.

Umferðaröryggi eykst með göngum

Umferðaröryggi á Suðausturlandi jókst til muna í dag þegar göng undir Almannaskarð voru opnuð. Verkið kostaði minna en gert var ráð fyrir og lauk rúmum þremur mánuðum á undan áætlun.

Flóttamenn mótmæla

Níu flóttamenn sem dvelja á tveimur gistiheimilum í Reykjanesbæ mótmæltu í gær meðferð íslenskra stjórnvalda á þeim. Flóttamennirnir, sem allir hafa sótt um atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi, segja aðbúnað sinn lélegan og undrast hversu hægt gangi að vinna úr þeirra málum.

Refaferðir á Vestfjörðum eftir ár

Skipulagðar refaferðir verða boðnar í fyrsta skipti á Íslandi næsta sumar. Áfangastaðurinn er Vestfirðir, þar sem þá flesta er að finna, um eitt hundrað talsins. Þessi spöku dýr sem kunna vel að meta þegar að þeim er réttur harðfiskur eða pylsur.

Eldur í húsi við Grettisgötu

Lið frá öllum slökkviliðsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu var kallað á vettvang eftir að mikill eldur gaus upp í tvílyftu bakhúsi við Grettisgötu laust fyrir klukkan eitt í nótt. Þegar slökkvilið kom á vettvang var húsið, sem er járnklætt timburhús, nær alelda.

Sama konan í tveimur ránum?

Flest bendir til að ein og sama unga og ljóshærða konan hafi staðið að tveimur ránum á höfuðborgarsvæinu seint í gærkvöldi. Fyrst ógnaði hún starfsstúlku á American Style í Kópavogi með steikarhnífi á tólfta tímanum í gærkvöldi og heimtaði peninga.

Gagnrýnir útboð Herjólfs

Grímur Gíslason, fyrrverandi formaður Herjólfs, gagnrýnir vinnubrögð Vegagerðarinnar vegna útboðs Herjólfs árið 2000. Vegagerðin neitaði honum sífellt um gögn um tilboð Samskipa og Herjólfs í reksturinn þar til úrskurðarnefnd um upplýsingamál skipaði henni að afhenda þau.

Meira en 10% af landsframleiðslu

Ísland er eitt sex ríkja innan OECD þar sem útgjöld til heilbrigðismála nema meira en tíu prósentum af landsframleiðslu. Meðalútgjöld til heilbrigðismála á hvern einstakling hér á landi eru um 200 þúsund krónur á ári og alls nema útgjöld til málaflokksins 10,5 prósentum af landsframleiðslu.

Aron Pálmi: Nefndinni sent erindi

Stuðningsnefnd Arons Pálma Ágústssonar hefur sent náðunar- og reynslulausnarnefnd Texasfylkis sérstakt erindi þar sem þess er farið á leit að fyrirtaka á máli Arons Pálma verði flýtt, honum veitt ferðafrelsi og leyft að fara til Íslands sem fyrst.

59% samþykktu kjarasamninginn

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur samþykkt kjarasamning félagsins við Hafnarfjarðarbæ með tæplega 60% greiddra atkvæða. Um 20 % félagsmanna, eða 113 manns, tóku þátt í atkvæðagreiðslu um samninginn. Atkvæði fóru þannig: Já sögðu 67 eða 59%, nei sögðu 45 eða 40%, einn seðill var auður eða 1%.

Friðarumleitanir efst á baugi

Friðarumleitanir í Miðausturlöndum verða efst á baugi á fundi utanríkisráðherra átta stærstu iðnríkja heims sem hófst í Lundúnum í morgun. Fundurinn fylgir í kjölfar heimsóknar Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Miðausturlanda en líklegt þykir að áform Ísraela um brottflutning frá Gaza-svæðinu verði aðallega rædd.

Enn óvíst um eldsupptök

Enn er allt á huldu um eldsupptök í bakhúsi við Grettisgötu sem stórskemmdist í eldi í nótt en rannsókn er haldið áfram.

Eitt tjald risið við Kárahnjúka

Aðeins eitt tjald virðist risið við Kárahnjúka þar sem mótælendur sögðust ætla að reisa tjaldbúðir. Kalt hefur verið á Kárahnjúkum undanfarna daga og hitinn þar var aðeins um tvær gráður í nótt.

Ágúst fagnar niðurstöðunni

Nýkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar fagnar niðurstöðu framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar um að ekkert hafi verið málum blandið varðandi kosningar á landsfundi flokksins. Hörð gagnrýni kom fram á varaformannskosningarnar á landsfundinum. 

Sjá næstu 50 fréttir