Fleiri fréttir

Bílar verði skoðaðir

Eigendur óskoðaðra bíla þurfa að kippa sínum málum í lag ef þeir vilja halda númeraplötunum. Lögreglan í Reykjavík og víðar er nú að veita þeim sem ekki hafa þessi mál á hreinu viðvörun auk þess sem klippt er af bílum þeirra sem augljóslega láta sér ekki segjast. Lögreglan leggur áherslu á að þessir hlutir komist í lag nú þegar sumarferðalögin á vegum landsins eru að hefjast.

Ásta Möller nýr formaður LSK

Ásta Möller, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, var kjörin formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna á landsþinig sambandsins á dögunum. Ásta tekur við að Helgu Gurðúnu Jónasdóttur en með henni í stjórn voru kjörnar 11 konur.

Ekki hreyft við hvalveiðibanni

Ekki verður hreyft við hvalveiðibanninu á fundi Alþjóðahvalveiðráðsins sem fram fer í Ulsan í Suður-Kóreu. Tillaga Japana þess efnis að takmarkaðar veiðar í atvinnuskyni yrðu leyfðar eftir nær tveggja áratuga bann var felld. 29 þjóðir greiddu atkvæði gegn tillögunni en 23 voru henni hlynnt.

Tíðindalítill ríkisstjórnarfundur

Ríkisstjórnarfundur var haldinn formsins vegna í morgun og var mjög stuttur þar sem engin mál lágu fyrir. Aðeins mættu sex ráðherrar. Að loknum almennum umræðum var honum slitið.

Veiðar í atvinnuskyni ekki leyfðar

Ekki verður hreyft við hvalveiðibanninu á fundi Alþjóða hvalveiðráðsins sem fram fer í Ulsan í Suður-Kóreu. Ráðið felldi tillögu Japana um að takmarkaðar veiðar í atvinnuskyni yrðu leyfðar eftir nær tveggja áratuga bann.

Auðvelda framsal sakamanna

Framsal sakamanna milli norrænu ríkjanna verður auðveldað með samkomulagi dómsmálaráðherra landanna í dag. Þeir ætla að knýja á um skilvirkari lög sem leiði til þess að framsal dæmdra manna eða grunaðra taki skemmri tíma en hingað til. Framsalsreglur milli Norðurlandanna eru í dag einfaldari en á milli annarra landa og verður það nú gert enn einfaldara.

Sunny Jane enn í Hollandi

Flutningaskipið Sunny Jane er ennþá í Hollandi með fullar lestir af fiski af Reykjaneshrygg. Skipið tók við afla af svokölluðum sjóræningjaskipum en var neitað um löndun í Hollandi, samkvæmt fjölþjóðlegum samningum. Landhelgisgæslan taldi sig hafa upplýsingar um að skipið væri farið frá Hollandi til Kaliningrad.

Sumarsólstöður í kaldara lagi

Í dag eru sumarsólstöður og því lengsti dagur ársins. Ekki virðist sem sólin og hitastigið láti það hafa áhrif á sig því samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er í kaldara lagi miðað við seinni hluta júní.

Reynt að koma Pólverjum úr landi

Alþýðusamband Íslands vinnur nú í því að tryggja stöðu tólf Pólverja sem búið hafa við slæmar aðstæður og unnið hér á landi á ósæmandi kjörum. ASÍ telur að fyrirtækið sem flutti Pólverjana hingað til lands hafi reynt að koma þeim úr landi svo þeir gætu ekki borið vitni.

Gott að ránum hafi ekki fjölgað

Afbrotafræðingur hjá Ríkislögreglustjóranum segir ánægjulegt að úttekt sýni að ránum hafi ekki fjölgað þrátt fyrir breytta samfélagsmynd. 36 rán eru framin á Íslandi á ári samkvæmt athugun félagsfræðinema við Háskóla Íslands.

Gagnrýna samtryggingu stjórnmála

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, harma hvernig staðið er að skipun sendiherra fyrir Íslands hönd og segja ljóst að samtrygging íslenskra stjórnmálamanna liggi í sumum tilvikum þvert á flokkslínur.

Vilja nágrannavörslu í Reykjavík

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og frjálslyndra og óháðra lögðu til við borgarstjórn Reykjavíkur á fundi fyrir stundu að að óskað yrði eftir samstarfi við lögregluna í Reykjavík. Vilja þeir að það verði gert til að efla innbrotsvarnir í þágu almennings og koma á fót skipulagðri nágrannavörslu í öllum hverfum Reykjavíkur, en árlega verða þúsundir Reykvíkinga fyrir fjárhagslegu og tilfinningalegu tjóni af völdum innbrota í hús og bifreiðar.

Alþjóðadagur MND-félaga í dag

Lækning hefur ekki enn fundist við MND-sjúkdómnum sem þrír til fimm einstaklingar greinast með á Íslandi á hverju ári. Formaður MND-félagsins vill að rannsóknir á sjúkdómnum verði hafnar af fullum krafti hér á landi. Í dag er alþjóðadagur MND-félaga um allan heim.

Kosið um sameiningu Ölfuss og Flóa

Hafin er vinna að undirbúningi um sameiningu Ölfuss og Flóa en kosið verður um sameiningu í byrjun október. Farið verður í kosningarnar í framhaldi af samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og félagsmálaráðuneytisins um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Kosið verður um sameiningu Árborgar, Hraungerðishrepps, Hveragerði, Gaulverjabæjarhrepps, Villingaholtshrepps og Ölfuss.

SMÁÍS fær verðlaun fyrir baráttu

Alheimssamtök Kvikmyndaframleiðenda veitti Samtökum myndrétthafa á Íslandi verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í baráttunni gegn ólöglegri dreifingu á síðasta ári. Verðlaunin voru veitt framkvæmdastjóra SMÁÍS við formlega athöfn á í Flórens á Ítalíu í síðustu viku. Verðlaun sem þessi eru veitt þeim löndum sem sýna framúrskarandi árangur gegn ólöglegri dreifingu myndefnis og er þetta í fyrsta sinn sem eitt af norrænu ríkjunum hlýtur þessi verðlaun.

Íslenskt félag flutti inn Pólverja

Í ljós hefur komið að íslenskt fyrirtæki hefur flutt tólf Pólverja hingað til lands á fölskum forsendum, einungis í þeim tilgangi að leigja þá út. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Laun og kjör mannanna voru langt undir lámarkskjörum sem kjarasamningar og íslensk lög kveða á um. Í samningi sem fyrirtækið gerði við Pólverjana sagði að þeir hefðu 480 krónur á tíma í jafnaðarkaup og að þeir þyrftu að vinna 250 vinnustundir á mánuði.

10 milljarða tjón í Reykjavík

Samkvæmt útreikningum Sjóvár var heildarkostnaður vegna slysa í umferðinni í Reykjavík ekki undir 10 milljörðum króna á síðasta ári. Gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar eru orðin tjónahæstu gatnamótin og taka við þeim vafasama titli af gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar sem hafa verið tjónahæst í mörg ár.

Falsaði undirskrift á skuldabréfi

Fertugur maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir skjalafals. Þrír mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Maðurinn hefur játað að hafa greitt starfsmönnum bílaumboðs með skuldabréfi með falsaðri undirskrift. Skuldabréfið hljóðaði upp á rúma 1,3 milljónir króna.

Sigrún eini umsækjandinn

Sigrún Stefánsdóttir sótti ein um laust starf dagskrárstjóra Rásar 2 og landshlutastöðva Ríkisútvarpsins, en umsóknarfrestur rann út á sunnudag.

Ekki viðrað til róðurs

Kjartan Hauksson ræðari er nú úti fyrir miðju Norðurlandi. Hann tók land á Höfðaströnd á Tröllaskaga á laugardag og hefur þurft að halda þar kyrru fyrir vegna veðurs.

Athuga staðarval vegna álvers

Fulltrúar Fjárfestingarstofu, Alcoa, sveitarfélaga Skagafjarðar, Húsavíkurbæjar og Akureyrarkaupstaðar ásamt fulltrúum Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga undirrituðu í gær samkomulag um áætlun um staðarvalsathuganir vegna hugsanlegs álvers á Norðurlandi.

Alfreð forseti borgarstjórnar

Alfreð Þorsteinsson var kjörinn forseti borgarstjórnar á fundi borgarstjórnar í dag. Hann mun gegna starfinu til loka kjörtímabilsins. Alfreð tekur við af Árna Þór Sigurðssyni, sem gengt hefur forsetastarfi frá 2002, en í leyfi hans hefur Stefán Jón Hafstein gegnt forsetastörfum undanfarna mánuði. Þeir Árni Þór og Stefán Jón voru kjörnir varaforsetar.

RKÍ og Sjóvá semja um vátryggingar

Rauði kross Íslands og Sjóvá-Almennar hafa skrifað undir samstarfssamning um vátryggingaviðskipti. Samningurinn felur meðal annars í sér að Sjóvá tryggir sjúkrabíla Rauða krossins og sendifulltrúa við hjálparstörf erlendis á vegum félagsins. Jafnframt mun Sjóvá styrkja starfsemi Rauða krossins á næstu árum.

Úthlutað úr minningarsjóði

61 milljón króna hefur verið úthlutað úr Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur til 178 verkefna. Féð fór til menningarmála, forvarna, heilbrigðismála, íþrótta, menntamála og námsstyrkja. Sjóðnum bárust samtals umsóknir. Björgólfur Guðmundsson er formaður sjóðsstjórnar. Markmið sjóðsins er að auka almannaheill og bæta mannlíf á Íslandi.

Þjónustusamningur í endurskoðun

Þjónustusamningur heilbrigðisráðuneytis og Reykjalundar er nú til endurskoðunar, að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra.

Heilsugæslan neydd á brott

Hafinn er undirbúningur að flutningi Heilsugæslunnar úr gömlu Heilsuverndarstöðinnni við Barónsstíg. Þá þarf að flytja miðstöð heimahjúkrunar við Grensásveg. Það er leiguhúsnæði sem nú hefur verið selt og verður tekið til annarra nota

Segir félag ekki hafa greitt gjöld

Efling - stéttarfélag segir sautján atvinnuleyfi frá fyrirtækinu Geymi ehf. hafa komið til umsagnar félagsins en þeim hafi verið hafnað. Lögreglan og ASÍ vinna nú að málum Geymis ehf. vegna tólf Pólverja sem höfðu laun langt undir lágmarkssamningum og bjuggu við óviðunandi aðstæður. Ástæður þess voru þær að Geymir hefur ekki greitt lögbundin gjöld af starfsmönnum sínum, svo sem í lífeyrissjóð og önnur gjöld.

Forsætisráðuneytið mest

Tuttugu prósent fjárheimilda forsætisráðuneytisins koma af aukafjárlögum að meðaltali og er það hlutfallslega mest allra ráðuneyta. Iðnaðarráðuneyti og Hagstofa Íslands fara mest fram úr fjárheimildum að meðaltali. </font /></b />

Samið um álversrannsóknir nyrðra

Samkomulag hefur tekist milli Alcoa, þriggja sveitarfélaga á Norðurlandi og iðnaðarráðuneytis um undirbúningsrannsóknir vegna álvers norðan heiða. Stefnt er að því að eftir átta mánuði verði unnt að ákveða staðsetningu verksmiðjunnar.

Segja málflutning ASÍ rangan

Dularfullt, íslenskt fyrirtæki fékk erlenda verkamenn hingað til lands á fölskum forsendum og braut á þeim lög og kjarasamninga, að mati ASÍ. Þeir nutu engra réttinda og voru látnir búa við aðstæður sem uppfylla engan veginn íslenskar kröfur. Rangur og villandi málflutningur, segja talsmenn fyrirtækisins.

Segjast vera á slóð kortasvikara

Sérfræðingar í tölvuglæpum telja sig komna á slóð tölvusvikaranna sem náðu upplýsingum af um fjörutíu milljónum krítarkorta nýverið, þar á meðal af um 140 íslenskum kortum að því talið er.

Niðurstaða í Suður-Kóreu vonbrigði

"Þessi niðurstaða er auðvitað vonbrigði. Við vorum að vonast til þess að niðurstaðan myndi miða eitthvað í áttina," sagði Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra eftir að ljóst var að tillaga Japana á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins um að hafnar yrðu hvalveiðar í atvinnuskyni, var felld.

Fylgst náið með barnaníðingum

Dómsmálaráðherrar iðnveldanna skera á alþjóðlegt tengslanet barnaníðinga með því að setja á laggirnar sameiginlegan gagnagrunn með upplýsingum um þá og framleiðendur barnakláms. Lögreglan á Íslandi fagnar þessu framtaki og telur að það muni auðvelda rannsókn slíkra mála hér á landi.

Furðulegar ásakanir og ósannindi

"Það er alveg sjálfsagt og eðlilegt að taka undir ýmislegt sem kemur fram í máli ASÍ en mér finnst málatilbúnaður sambandsins í heild sinni mjög furðulegur og því til skammar," segir Eiríkur Elís Þorláksson, lögmaður fyrirtækisins Geymis ehf.

Tjalda í lónstæði Hálslóns

Hópur mótmælenda er nú á leið upp á Kárahnjúka og stefnir að því að slá upp tjöldum í lónstæði fyrirhugaðs Hálslóns í kvöld. Þar var í dag slydda og eins stigs hiti. Landsvirkjunarmenn segja tjaldbúðirnar sér að meinalausu svo fremi sem fólkið fari ekki inn á vinnusvæðið.

MIsjafnar skoðanir um Pólverjana

Tólf pólskir verkamenn hafa leitað á náðir Alþýðusambands Íslands þar sem þeir telja að kjör og aðbúnaður í húsnæði sem þeim hefur verið úthlutað til að búa í hér á landi séu með öllu óviðunandi. Verkamennirnir komu hingað til lands í apríl síðastliðnum til starfa í byggingageiranum.

Gæsluvarðhald yfir Breta staðfest

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir breskri konu sem grunuð er um ávísanamisferli hér á landi í maí síðastliðnum. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði konuna um miðjan júní í gæsluvarðhald sem renna á út á morgun, 23. júní.

Segir Samkeppnisstofnun vanhæfa

Birgir Jónsson, framkvæmdastjóri Iceland Express, segir Samkeppnisstofnun vanhæfa til að taka á deilum fyrirtækis hans og Flugleiða því Gylfi Magnússon, formaður Samkeppniseftirlitsins, hafi unnið launuð störf fyrir Flugleiðir tengd deilum við Iceland Express. Um næstu mánaðamót tekur Samkeppniseftirlitið við af Samkeppnisstofnun.

Jón Gerald mætti í yfirheyrslu

Jón Gerald Sullenberger mætti til yfirheyrslu hjá Ríkislögreglustjóra klukkan níu í gærmorgun í tengslum við rannsókn á hugsanlegum fjárdrætti núverandi og fyrrverandi forstjóra Baugs og öðrum mögulegum brotum þeirra gegn fyrirtækinu. Rannsókn lögreglu hefur staðið í tæp þrjú ár, frá ágústlokum 2002.

Ók dópaður um borgina

Tvítugur maður hefur verið dæmdur til greiðslu 200.000 króna fyrir margvísleg fíkniefnabrot og fyrir að aka bifreið víða um Reykjavíkurborg um miðjan október í fyrra undir áhrifum slævandi lyfs og fíkniefna. Hann var sviptur ökurétti í þrjá mánuði og þarf að greiða málskostnað upp á rúmar 310.000 krónur.

Maður dæmdur fyrir skjalafals

Fertugur maður hlaut í gær sex mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að falsa áritun þrítugrar konu á skuldabréf sem hann notaði til að kaupa bíl á bílasölu í Reykjavík. Bréfið var gefið út í júní 2001 og konan óafvitandi komin í ábyrgð fyrir rúmar 1,3 milljónir króna.

Upplýsingar um rán í gagnabanka

Upplýsingar um rán framin á Íslandi síðustu 5 ár verða settar í sérstakan gagnabanka hjá Ríkislögreglustjóra sem mun nýtast við rannsókn ránsmála.

Ný gatnamót verst

Áætlaður heildarkostnaður vegna slysa í umferðinni í Reykjavík á síðasta ári er ekki undir tíu milljörðum króna, að því er fram kemur í tilkynningu Sjóvár-Almennra trygginga í gær. Fyrirtækið tók saman helstu tölur úr umferðinni í fyrra og framreiknaði miðað við markaðshlutdeild.

Fái að kvikmynda við Krýsuvík

Flest bendir til að Clint Eastwood og Steven Spielberg verði leyft að kvikmynda í Arnarfelli við Krýsuvík þrátt fyrir að umhverfisnefnd Hafnarfjarðar leggist gegn því. Byggingar- og skipulagsráð Hafnarfjarðar leggst ekki gegn kvikmyndagerðinni og það ræður.

Helmingur starfsmanna verði konur

Álverið í Reyðarfirði er hannað með það í huga að það henti konum sem vinnustaður. Alcoa-Fjarðaál hefur sett sér það markmið að helmingur starfsmanna verði konur, en einnig að frá upphafi verði starfsmenn á öllum aldri.

Sjá næstu 50 fréttir