Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vegið að starfsheiðri "Guðjón Arnar Kristjánsson hefur ekki áttað sig á því að árið 2003 breyttum við aðferðafræði við útreikning á hrygningarstofninum og hann er því að bera saman epli og appelsínur," segir Björn Ævarr Steinarsson, forstöðumaður veiðiráðgjafasviðs Hafrannsóknastofnunarinnar. 21.6.2005 00:01
Tólf sækja um Tólf sækja um stöðu talsmanns neytenda, sem viðskiptaráðherra skipar í. Meðal umsækjenda eru Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, sem og Drífa Sigfúsdóttir, fyrrverandi formaður samtakanna. 21.6.2005 00:01
Framsal auðveldað Dómsmálaráðherrar Norðurlandanna náðu samkomulagi um ný samningsdrög um framsal sakamanna. Gert er ráð fyrir að málsmeðferð um framsal sakamanna milli Norðurlandanna verði stytt og einfölduð 21.6.2005 00:01
Hafnfirðingar tvístígandi Hugmyndir kvikmyndafyrirtækis um upptökur í Krísuvík voru kynntar á fundi skipulags- og bygginganefndar Hafnarfjarðar í gær. Um er að ræða stríðsmynd, en einn af forsvarsmönnum fyrirtækisins er leikarinn og leikstjórinn frægi, Clint Eastwood. 21.6.2005 00:01
Töfðust í borginni Alþjóðlegar mótmælabúðir við Kárahnjúka risu ekki í gær eins og fyrirhugað var. Birgitta Jónsdóttir, einn talsmanna mótmælenda, segir að hópurinn hafi tafist í Reykjavík. 21.6.2005 00:01
Þrjú svæði rannsökuð Fulltrúar Fjárfestingarstofu, Alcoa, Skagafjarðar, Húsavíkurbæjar og Akureyrar, ásamt fulltrúum Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, hafa komist að samkomulagi um að ákvörðun um staðsetningu hugsanlegs álvers á Norðurlandi liggi fyrir eigi síðar en 1. mars á næsta ári. 21.6.2005 00:01
Stéttarfélög ráða ekki ferðinni "Stéttarfélög eins og Efling hafa aðeins umsagnarrétt en taka ekki ákvörðun um hvort við getum út atvinnuleyfi," segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. Efling-stéttarfélag sendi í gær frá sér tilkynningu um að það hefði margsinnis hafnað atvinnuleyfum félagsins, sem hefur ráðið Pólverjana til starfa, en Vinnumálastofnun ekki tekið tillit til þess. 21.6.2005 00:01
Deilt um námsmat Enn er komið upp ósætti milli Ólínu Þorvarðardóttur, skólameistara Menntaskólans á Ísafirði, og Ingibjargar Ingadóttur, enskukennara við skólann, vegna einkunnagjafa Ingibjargar, en dómssátt náðist milli þeirra um svipað mál í lok apríl. 21.6.2005 00:01
Grunuð um að hafa kveikt í bíl Lögreglan í Hafnarfirði er með þrjú ungmenni í haldi í tengslum við bílbruna í Heiðmörk í morgun. Lögreglan sá til fólks í fjarska þegar hún kom að brennandi bílnum og hafði hendur í hári þriggja. Þau hafa lítið viljað tjá sig við lögreglu enn sem komið er. Grunur leikur á að málið kunni að tengjast frekari skemmdarverkum á bílum. 20.6.2005 00:01
Gekkst undir lifrarskiptiaðgerð Huginn Heiðar Guðmundsson, sjö mánaða drengur, er á batavegi eftir lifrarskiptaaðgerð sem hann gekkst undir í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í <em>Víkurfréttum</em>. Huginn Heiðar hefur verið veikur frá fæðingu. Hentug gjafalifur fannst ekki og var því tekinn hluti af lifur móður hans og græddur í soninn. Aðgerðin gekk vel en eftir hana varð mikil vökvasöfnun í líkama drengsins, en síðustu daga hefur ástandið batnað. 20.6.2005 00:01
Slasaðist lítillega í bílveltu Farþegi slasaðist lítillega þegar bíll valt á Suðurlandsvegi austan við Selfoss í gærkvöldi. Tveir voru í bílnum og var sá sem meiddist farþegi. Báðir voru í bílbelti. Að sögn lögreglu virðist sem ökumaðurinn hafi verið kominn of langt út í hægri vegkantinn og því sveigt snögglega til vinstri með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af þeim megin og hafnaði á hliðinni í skurði. 20.6.2005 00:01
Kveikt í bátaskýli í Hafnarfirði Kveikt var í bátaskýli í Hafnarfirði í gærkvöldi og brann það til kaldra kola. Skýlið stóð við Hvaleyrarhæð og var tilkynnt um eldinn á áttunda tímanum. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en skýlið stóð í röð slíkra skýla og var gengið úr skugga um að eldur hefði ekki borist í þau. 20.6.2005 00:01
Verðbólga hér næstminnst innan EES Verðbólga á Íslandi er sú næstminnsta innan Evrópska efnahagssvæðisins. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands. Þar kemur fram að verðbólgan á Íslandi miðað við samræmda neyluverðsvísitölu EES-landanna var 0,5 prósent en lægst var hún í Svíþjóð, eða 0,2 prósent. Yfir tólf mánaða tímabil var verðbólgan mest í Lettlandi, 6,5 prósent og 3,7 prósent í Lúxemborg. 20.6.2005 00:01
Aldrei fleiri nýskráningar Aldrei áður hafa fleiri nýnemar úr einum og sama árgangi skráð sig til náms í framhaldsskólum landsins en nú en nýlega fór fram í fyrsta sinn rafræn innritun sem gekk vel í alla staði. 20.6.2005 00:01
Landaði fyrsta laxinum í Elliðaám Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri landaði fyrsta laxi sumarsins úr Elliðaánum í morgun. Borgarstjóri setti í laxinn, tveggja kílóa grálúsuga hrygnu, í fossinum og landaði henni eftir skemmtilega og snarpa viðureign. Talsvert af laxi er að ganga í árnar en í morgun höfðu tólf laxar farið í gengum teljarann. 20.6.2005 00:01
Starfandi fólki fjölgar Starfandi fólki á Íslandi fjölgaði um 1.2 prósent milli áranna 2003 og 2004 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Skiptist fjöldinn nokkuð jafnt milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. 20.6.2005 00:01
Leita enn að lögfræðingum Stjórnarandstaðan hefur ekki enn fengið lögfræðinga til að skoða hæfi forsætisráðherra til að fjalla um sölu Búnaðarbankans. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði í samtali við fréttastofu Bylgjunnar fyrir hádegið að verið væri að leita að lögfræðingum til að skoða málið og að búist væri við að þeir hæfu vinnu sína fljótlega. 20.6.2005 00:01
Gill sleppt á laugardag Hæstiréttur fjallar ekki um kæru Pauls Gills vegna gæsluvarðhalds sem hann var úrskurðaður í því að honum var sleppt á laugardag. 20.6.2005 00:01
Kominn úr öndunarvél eftir bílslys Ungi maðurinn sem fluttur var á gjörgæsludeild eftir bílslys í Öxnadal í síðustu viku, er kominn úr öndunarvél. Hann liggur þó enn á gjörgæsludeild. Fjórir ungir karlmenn voru í bílnum sem fór út af veginum, tveir létust en hinir tveir slösuðust alvarlega. 20.6.2005 00:01
Ferðamennska fremur en hvalveiðar Grænfriðungar halda áfram að hvetja Íslendinga að hefja ekki hvalveiðar að nýju og benda á að mun meiri tekjur fáist af ferðamennsku og hvalaskoðun en hvalveiðum. Þá vilja þeir að áhrif loftslagsbreytinga á jökla og fiskistofna verði könnuð. 20.6.2005 00:01
Máttu ekki flytja til skólahald Ákvörðun Skeiða- og Gnúpverjahrepps um að flytja allt skólahald Þjórsárskóla í Árnes hefur verið felld úr gildi vegna vanhæfis sveitarstjórnarmanna. 20.6.2005 00:01
Vörubíll valt á hliðina í Ölfusi Bílstjóri meiddist þegar vörubíll valt á hliðina við Nátthaga í Ölfusi í morgun. Verið var að sturta mold af bílnum þegar pallurinn seig á hliðina og bíllinni með. Ökumaðurinn kvartaði undan eymslum í hálsi og baki og eftir skoðun á heilsugæslustöðinni á Selfossi var hann fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi til nánari rannsóknar. 20.6.2005 00:01
Talin hafa skemmt fleiri bíla Þrennt er í haldi lögreglunnar í Hafnarfirði grunað um skemmdarverk á nokkrum bílum. Tilkynnt var um reyk í Heiðmörk í morgun. Þegar að var komið kom í ljós að þar var kviknað í bíl og sást til fólks í fjarska sem talið var tengjast málinu. Þrennt var handtekið í kjölfarið og er það nú í haldi lögreglunnar, en eftir því sem fréttastofa Bylgjunnar kemst næst hefur fólkið ekki verið mjög ræðið. 20.6.2005 00:01
Tæplega 50 ábendingar Alþýðusambandi Íslands hefur borist tæplega 50 ábendingar um erlenda starfsmenn sem hugsanlega eru starfandi hér á landi án tilskilinna atvinnu- og dvalarleyfa. 20.6.2005 00:01
Norrænir ríkisstarfsmenn funda Árleg ráðstefna Samtaka ríkisstarfsmanna á Norðurlöndum hefst á Akureyri í dag. Á ráðstefnunni verða 50 fulltrúar samtaka ríkisstarfsmanna frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og Íslandi. Helstu umfjöllunarefni verða annars vegar einkavæðing opinberrar þjónustu en hins vegar ríkið sem fyrirmyndaratvinnurekandi. 20.6.2005 00:01
Bensínverð ekki verið hærra Olíufélagið Esso hefur hækkað verð á 95 oktana bensíni um tvær krónur lítrann og hefur bensínverð ekki verið hærra hér á landi. Eftir hækkunina kostar lítrinn á 95 oktana bensíni 114,70 krónur á stöðvum með fulla þjónustu en algengt verð er 109,6 krónur í sjálfsafgreiðslu. Lítrinn af dísilolíu kostar 62,10 krónur með þjónustu en 57,10 krónur í sjálfsafgreiðslu. Hin olíufélögin hafa ekki enn fylgt á eftir. 20.6.2005 00:01
LHÍ og Bifröst vinna saman Félagsvísinda- og hagfræðideild Viðskiptaháskólans á Bifröst og leiklistardeild Listaháskóla Íslands gerðu á dögunum með sér samkomulag um að þróa með sér samstarf á sviði nemenda- og kennaraskipta, rannsókna og sameiginlegra verkefna. Markmiðið með samningnum er að nemendur beggja háskóla vinni saman að uppsetningu leiksýningar, allt frá listrænni útfærslu til fjárhagsáætlunar. 20.6.2005 00:01
Bjóði fram undir eigin nafni Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi hefur skorað á samfylkingarfélaga um allt land að beita sér fyrir því að Samfylkingin bjóði fram í sem flestum sveitarfélögum undir eigin nafni. Fundur kjrödæmisráðsins lýsir þungum áhyggum af þeim sívaxandi vanda sem stafar að atvinnulífinu vegna ruðningsáhrifa stóriðjustefnunnar. 20.6.2005 00:01
Hringferðin hafin Bjarki Birgisson og Guðbrandur Einarsson hófu í gærmorgun gönguferð sína, hringinn í kringum landið. 20.6.2005 00:01
Kirkjudagar haldnir í annað sinn "Meginmarkmið Kirkjudaga er að kynna kirkjuna," segir Stefán Már Gunnlaugsson, verkefnisstjóri Kirkjudaga. Kirkjudagar verða haldnir í annað sinn um helgina en stefnt er að því að gera dagana að föstum lið í kirkjustarfinu fjórða hvert ár. 20.6.2005 00:01
Dregur úr aðild að stéttarfélögum Aðild að stéttarfélögum fer minnkandi og reyndar er sífellt minna hlutfall af vinnumarkaði í stéttarfélögum. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir að á hinum norðurlöndunum dragi úr þátttöku í stéttarfélögum, þar sé komin samkeppni milli stéttarfélaga með lággjaldastéttarfélögum. 20.6.2005 00:01
Samkeppnisstaðan breytist ekki Fiskútflytjendur telja að samkeppnisstaðan breytist ekki mikið þó að FL Group, Bláfugl og Flugflutningar renni saman. Níels Guðmundsson, framkvæmdastjóri Tros í Sandgerði, telur að samruni fyrirtækjanna þriggja valdi ekki jafn miklum áhyggjum og þróun gengisins. 20.6.2005 00:01
Harður árekstur í Kópavogi Harður árekstur varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Beita þurfti klippum til að ná fólki úr annari eða báðum bifreiðunum. Ekki liggur fyrir hvort að slys urðu á fólki að svo stöddu en lögreglan er enn á vettvangi. 20.6.2005 00:01
Ungmenni frædd um alnæmi Þetta er fræðsla sem sífellt þarf að veita," segir Birna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Alnæmissamtakanna á Íslandi. Fulltrúar samtakanna hittu nú eftir áramótin flesta 9. og 10. bekkinga á landinu og fræddu um alnæmi. 20.6.2005 00:01
Mikil aukning á veltu dagvöru Velta dagvöruverslana var 13 prósentum meiri í maí en í sama mánuði árið 2004, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga, samkvæmt nýjustu mælingu Rannsóknaseturs verslunarinnar. Í tilkynningu frá Rannsóknarsetrinu segir að velta dagvöru hafi aldrei aukist jafn mikið á 12 mánaða tímabili síðan byrjað var að reikna smásöluvísitöluna árið 2001. 20.6.2005 00:01
Kortanúmer héðan voru í hættu Talið er að tölvuþrjótar í Bandaríkjunum hafi komist í kreditkortanúmer í allt að hálft ár áður en lokað var fyrir lekann. Á þriðja hundrað íslensk kortanúmer komust í hendur þjófanna og þurfa eigendur þeirra að fá ný kort. 20.6.2005 00:01
Völdu ráðstefnu vegna mikilvægis Þremenningarnir sem stóðu að mótmælunum á Nordica-hóteli og slettu grænleitu skyri yfir gesti og búnað á álráðstefnu hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir svara ýmsum spurningum varðandi mótmælin. Þar segja þeir meðal annars að álráðstefnan hafi orðið fyrir valinu vegna þess að þetta hafi verið ráðstefna leiðandi manna í áliðnaði og tengdri framleiðslu hvaðanæva að úr heiminum. 20.6.2005 00:01
Valt við að sturta mold Ökumaður vörubíls meiddist lítillega þegar bíll hans valt á hliðina þar sem hann var að sturta mold í pytt í grennd við Nátthaga í Ölfusi klukkan að ganga 10 í gærmorgun. 20.6.2005 00:01
Hass og hraðakstur Upp komu tvö fíkniefnamál um helgina á Sauðárkróki. Lögregla fann við reglubundið eftirlit með ökumönnum, annars vegar áhöld til neyslu efna og hins vegar lítilræði af tóbaksblönduðu hassi. 20.6.2005 00:01
Rafmagnsbilun í Ólafsfirði Rafmagnstruflanir stóðu í um klukkustund í Ólafsfirði frá klukkan fimmtán mínútur gengin í tólf á sunnudagskvöldið. Helgi Jónsson, verkstjóri hjá RARIK á Norðurlandi, segir háspennustreng fyrir hitaveitudælur hafa bilað og því hafi slegið út. 20.6.2005 00:01
Skemmdir eftir árekstur á brú Tveir bílar eru mikið skemmdir eftir að hafa rekist saman síðdegis á sunnudag á einbreiðri brú yfir Hoffellsá. Ökumenn og farþegar sluppu hins vegar við meiðsli, að sögn lögreglu á Höfn í Hornafirði. Í öðrum bílnum voru hjón með tvö börn á ferðalagi, en í hinum var ein kona. 20.6.2005 00:01
Sumarlöng leit að klámi í tölvum Lögreglan í Reykjavík vinnur enn að rannsókn tveggja mála tengdum misnotkun barna og barnaklámi sem upp komu um miðjan mánuðinn. Annar maðurinn er grunaður um að hafa misnotað og myndaðp fjögur stúlkubörn, en hinn var handtekinn og leitað hjá honum í alþjóðlegum aðgerðum Europol. 20.6.2005 00:01
Sektaður fyrir sterasmygl 32 ára gamall maður var síðasta fimmtudag dæmdur til greiðslu 300.000 króna sektar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tilraun til að smygla hingað til lands ólöglegum sterum frá Danmörku árið 2003. Þá var manninum gert að greiða sakarkostnað upp á rúmar 800.000 krónur. 20.6.2005 00:01
Borgin sýknuð af launakröfum Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Reykjavíkurborg af kröfum heimilisfræðikennara um vangoldin laun upp á tæpar 700 þúsund krónur. Konan vísaði til samþykktar borgarráðs frá því í júní árið 1981 um að greiða bæri heimilisfræðikennurum tvær klukkustundir á viku fyrir matarinnkaup. 20.6.2005 00:01
Úr öndunarvél eftir hermannaveiki Sjúklingur með hermannaveiki á Landspítalanum er kominn af gjörgæsludeild og úr öndunarvél. Maðurinn greindist með veikina seinni hluta maímánaðar og hefur verið á gjörgæsludeild síðan, mjög veikur. Hann er á hægum batavegi. Tveir Íslendingar hafa látist úr hermannaveiki hér á landi á þessu ári og fimm greinst með veikina. Síðustu ár hafa að jafnaði tveir til þrír greinst með hermannaveiki sem er í raun svæsin lungnabólga. 20.6.2005 00:01