Fleiri fréttir

Sex mánuði fyrir rassskellinguna

Sævar Óli Helgason var í gær dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að rjúfa skilorð með því að rassskella leikskólakennara sem lagði fyrir innkeyrslu hans í fyrrahaust.

Tólf mánaða fangelsi fyrir smygl

Tuttugu og níu ára gamall maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í eins ár fangelsi fyrir smygl á rúmlega 200 grömum af kókaíni frá Þýskalandi til Íslands.

Ástþóri dæmdar 400 þúsund krónur

Sjóvá-Almennum var í gær gert að greiða Ástþóri Magnússyni 400 þúsund krónur í bætur, fyrir skemmdir á bíl hans sem tekin var ófrjálsri hendi í mars síðast liðnum.

Verða að gera nýtt umhverfismat

Alcoa verður að kosta nýtt umhverfismat á álverksmiðju sinni í Fjarðabyggð eftir að Hæstiréttur ógilti úrskuð umhverfisráðherra í dag. Náttúruverndarsinnar fagna en Alcoa-menn segja þetta engin áhrif hafa á framkvæmdir. Umhverfisráðherra tekur í sama streng.

Þröngt mega flugfarþegar sitja

Icelandair og Iceland Express eru í hópi þeirra flugfélaga heims sem þéttast raða fólki í vélarnar sínar samkvæmt úttekt bresks fyrirtækis. Sterling, sem einnig er í eigu Íslendinga, er það flugfélag sem býður farþegum upp á minnsta sætarýmið.

Höfuðstöðvar Eimskips að hóteli

Þar sem áður var leikið með fjöregg þjóðarinnar, þar sem auðmenn landsins réðu ríkjum, býðst nú þreyttum ferðalöngum að hvíla lúin bein. Höfuðstöðvar Eimskips eru orðnar að hóteli.

Framtíð Landakotsskóla í óvissu

Ástandið í Landakotsskóla er ekki að skýrast þrátt fyrir fund stjórnar og foreldra í gær. Formaður stjórnar Landakotsskóla sagði á fundinum að spurningin væri hvort skólastarf myndi halda áfram eða bundinn verði endir á það

30 milljóna byggingastyrkur

Landakotsskóli fékk vilyrði fyrir sextíu milljón króna fjárstyrk frá Reykjavíkurborg til að byggja nýtt íþróttahús. Þrjátíu milljónir hafa þegar fengist til verksins, en af byggingu hefur ekki orðið.

Vilja fleiri tillögur

Hópur íbúa á Álftanesi hafa safna undirskriftum gegn deiliskipulagi skipulagsyfirvalda í bænum. Á fimmtudag afhentu þeir bæjaryfirvöldum undirskriftirnar.

Ólöglegar aðferðir

Hópur kennara við Landakotsskóla hefur leitað til lögfræðings vegna bréfs sem stjórn Landakotsskóla sendi þeim á miðvikudag. Í bréfinu var sagt að þeir kennarar sem vilji starfa áfram við skólann þurfi að lýsa yfir stuðningi við nýkjörna stjórn Landakotsskóla til að halda starfi sínu.

Á að flytja Bílddælinga til Kína?

Kristinn H. Gunnarsson segir að Framsóknarflokkurinn hafi fylgt þeirri stefnu að nýta náttúruauðlindir heima í héraði. Hann er því algerlega ósammála formanni flokksins um að ekki megi flytja kvóta til sjávarbyggða þegar aðrar byggðir njóti annarra auðlinda.

80% heimila á móti skipulaginu

Hópur íbúa á Álftanesi tók höndum saman nú í vikunni og gekk í hús í bæjarfélaginu til að safna undirskriftum undir áskorun gegn fyrirhuguðu deiliskipulagi sem kynnt hefur verið um miðbæjarsvæðið á Álftanesi.

Landbúnaðarráðherra ekki vanhæfur

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra var ekki vanhæfur þegar hann skipaði í embætti rektors Landbúnaðarháskóla Íslands, að mati umboðsmanns Alþingis. Umsækjandi sem ekki fékk stöðuna kvartaði til umboðsmanns og taldi að ráðherra hafi verið vanhæfur vegna vinskapar við þann sem fékk stöðuna.

Saurmengun langt yfir mörkum

Saurmengun í Arnarneslæk í Garðabæ er langt yfir þeim mörkum sem teljast fullnægjandi, samkvæmt nýlegri mælingu Heilbrigðiseftirlitsins. Talið er að annað hvort sé klóakið vitlaust tengt í einhverju húsi eða þá að stífla hafi myndast í holræsakerfinu svo að klóakið fari í lækinn um yfirfallið þar sem yfirleitt á aðeins að fara regnvatn.

Þrjú fíkniefnamál í nótt

Þrjú fíkniefnamál komu upp í Reykjavík í nótt. Að sögn lögreglu eru þau þó ekki stór. Málin voru ýmist í heimahúsum eða á götu úti og eru í frekari rannsókn.

EFTA úrskurði um ÁTVR

Hæstiréttur vill fá úrskurð EFTA-dómstólsins um það hvort ÁTVR sé heimilt að krefjast þess að víninnflytjendur afhendi vöruna á tilteknum vörubrettum og hvort að ÁTVR sé með því að beita mismunun. Auk þess skuli verðmæti vörubrettanna vera innifalið í vöruverði..

Skjálftavirkni eykst aftur

Skjálftavirkni hefur aukist aftur suður af landinu. Frá því á miðnætti hefur orðið tæpur tugur skjálfta suður af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg, sá öflugasti 3,7 á Richter. Fyrir nokkrum vikum var gríðarmikil skjálftavirkni á þessum slóðum. Sérfræðingar töldu virknina þá ekki fyrirboða eldgoss eða annarra hamfara.

Trygging ekki skilyrði fyrir láni

Tryggingamiðstöðin hefur afnumið þau skilyrði lánveitinga félagsins til ökutækjakaupa að þau skuli tryggð hjá félaginu. TM er þannig eina tryggingafélagið sem veitir lán til kaupa á ökutækjum og ekki gerir kröfu um að ökutækið sé tryggt hjá sama félagi.

Lyfjakostnaður aukist um þriðjung

Íslendingar eyða um 200 þúsund krónum á mann í heilbrigðismál á ári hverju. Aðeins fjögur lönd í heiminum eyða meiru en útgjöld til heilbrigðismála hafa aukist í öllum OECD-löndunum. Lyfjakostnaður hefur að meðaltali aukist um rúman þriðjung á fimm árum.

Setur ofan í við umboðsmann

Landbúnaðarráðherra setur ofan í við umboðsmann Alþingis og segir ákveðna hluti í nýju áliti hans ekki vera í verkahring umboðsmanns eða á hans valdi.

Kjalvegur opnaður á morgun

Kjalvegur verður opnaður fyrir umferð á morgun samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Leiðin inn í Kverkfjöll var opnuð í dag en helstu hálendisvegir landsins eru óðum að verða færir þessar vikurnar.

10-15 læknar fá áminningu árlega

Tíu til fimmtán læknar fá tiltal eða áminningu á hverju ári vegna þess að þeir ávísa of miklu af ávanabindandi lyfjum. Landlæknir segir upplýsingar úr lyfjagagnagrunninum hafa gagnast eftirliti með þessum málum vel en hann hefur einnig nýst á hinn veginn - til að eyða gróusögum um lækna sem sagðir voru of ávísanaglaðir.

Ökumönnum umbunað út frá ökuritum

Vátryggingafélag Íslands ætlar að bjóða ungum ökumönnum að hafa ökurita í bílum sínum í sumar. Besti ökumaðurinn verður svo valinn í sumarlok út frá þeim upplýsingum sem ökuritinn hefur skráð um aksturslagið.

Unnið gegn heimilisofbeldi

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur falið verkefnisstjórn um heilsufar kvenna að skoða ákveðna þætti í heilbrigðisþjónustunni til að vinna gegn heimilisofbeldi og bæta þjónustu og stuðning við þolendur heimilisofbeldis.

Leikskólinn á Súðavík gjaldfrjáls?

Hreppstjórn Súðavíkur veltir nú fyrir sér að gera leikskólann á staðnum gjaldfrjálsan. Gjald fyrir átta tíma dvöl á dag er nú tæpar tuttugu og fimm þúsund krónur á mánuði með fæði. Einnig er möguleiki að byggingarlóðir verði ókeypis og húsbyggjendum verði gefinn kostur á byggingarframlagi frá sveitarfélaginu.

Nær 50 nýir morfínfíklar í fyrra

Á síðasta ári greindust 47 nýir morfínfíklar á Vogi, að sögn yfirlæknisins þar. Að meðaltali hefur þeim fjölgað um rúmlega fjörutíu á ári undanfarin ár. Síðastliðin tíu ár hafa verið skráðir á Vogi samtals 272 morfínfíklar sem sprauta sig í æð. Af þeim eru fjórtán látnir. </font /></b />

Brýr og krónur greiddar niður

Aldraðir og öryrkjar með 75 prósent örorkumat geta nú fengið greiddan niður kostnað við föst tanngervi, það er brýr og krónur, um 40 - 80 þúsund krónur á hverju almanaksári

Innra eftirlit verði hert

Heilbrigðisráðuneytið hefur beint þeim tilmælum til heilbrigðisstofnana að herða innra eftirlit til varnar fjölómæmu bakteríunnni, MÓSA, að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra.

Óvissa um staðarval loðnubræðslu

Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjórinn í Grindavík, bindur vonir við að Síldarvinnslan ákveði að byggja upp starfsemi sína í bænum.

Vonbrigði með lítinn árangur

Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri í Raufarhafnarhreppi, segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með lítinn stuðning stjórnvalda, en þau gáfu vilyrði fyrir aðstoð þegar staðurinn gekk í gegnum mikla erfiðleika.

Leiðtogaþing í Reykholti

Leiðtogaþing lútherskra kirkna í Evrópu hófst í gær í Reykholti í Borgarfirði, en evrópudeild Lútherska heimssambandsins stendur fyrir þinginu.

Starfsmenn Landlæknisembættisins hafa ávísað ávanabindandi lyfjum þegar fíklar hafa haft samband, borið sig illa og kvartað undan því að ná ekki í lækni til að fá lyf til að lina kvalirnar. Þetta sagði Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir í Hádegisútvarpinu á Talstöðinni í gær.

Kveikt á nýja gosbrunninum

Kveikt verður formlega á nýjum gosbrunni í Tjörninni í Hljómskálagarðinum á morgun. Ákveðið var að kaupa nýjan gosbrunn í Tjörnina til að lífga upp á borgarmyndina en gamli gosbrunnurinn, sem gefinn var af þáverandi sendiherra Bandaríkjanna skömmu fyrir 1980, var búinn að skila sínu og gott betur að sögn Þórólfs Jónssonar, garðyrkjustjóra.

Fer hægt en örugglega af stað

"Sumarið fer hægt en örugglega af stað," segir Páll Þór Ármann, framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Páll segir að það hafi samtals veiðst tólf laxar í Norðurá sem opnaði nú 1. júní og Blanda sem opnaði 5. júní hafi líka farið ágætlega af stað og þar hafi sextán laxar veiðst hingað til.

Rafrænt vegabréf skilyrði

Heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna sendi í dag út tilkynningu þar sem minnt er á að enginn ferðamaður komist inn í landið án vegabréfsáritunar nema hann framvísi rafrænu vegabréfi frá og með 26. júní nk. Flugfélög sem flytja farþega án tilskilinna ferðapappíra mega eiga von á sekt upp á rúmar 200 þúsund krónur.

Samningum lokið í næsta mánuði?

Þriðju samningalotu fríverslunarviðræðna EFTA-ríkjanna og Suður-Kóreu er lokið. Í vefriti viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins segir að gerlegt eigi að vera að ljúka samningum í næstu lotu sem verður í Seúl í byrjun júlí.

Skólp var leitt í drenlögn

Mælingar heilbrigðiseftirlits í Arnarneslæk í Garðabæ í maí sýndu saurgerla langt yfir öllum mörkum. Fyrir neðan Ljósamýri í Garðabæ mældust 17.000 saurkólígerlar í hverjum 100 millilítrum vatns og 73 þúsund saurkokkar.

Erum með í 14 af 20 verkefnum

Ísland er þátttakandi í 14 af 20 verkefnum sem NORA, Norður Atlantsnefndin, hefur ákveðið að styrkja með fjárveitingu upp á 39,4 milljónir króna. Fjallað var um 40 styrkumsóknir á árfundi nefndarinnar dagana 4. og 5. júní í Nuuk á Grænlandi. Um er að ræða margvísleg samstarfsverkefni á milli Færeyja, Grænlands, Íslands og Noregs.

Fagnaðarefni að mati Læknafélags

"Þetta sýnir og sannar hversu lítill hluti læknastéttarinnar er þarna um að ræða og það er fagnaðarefni að Landlæknir geti tekið á málum tengdum þeim er ávísa ávanabindandi efnum í meira mæli en eðlilegt er," segir Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélagsins.

Kennurum settir afarkostir

Deilurnar í Landakotsskóla halda áfram að magnast. Stjórn skólans sendi sumum kennurum skólans bréf í gær þar sem sagt er að skriflegur stuðningur við stjórnina sé nauðsynlegt skilyrði fyrir því að þeir haldi starfi sínu við skólann. Foreldrar funda með stjórninni í kvöld þar sem afsagnar hennar verður krafist haldist staðan óbreytt.

Kjartan stopp í Reykjafirði í gær

Kjartan Jakob Hauksson ákvað að halda kyrru fyrir í Reykjafirði í fyrrinótt og í gær vegna hvassviðris. Í mestu hviðunum fór vindurinn upp í 20 m/s. "Veðrið er að detta niður," sagði Kjartan þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gærkvöldi. Hann gerði ráð fyrir því að komast aftur af stað í nótt eða nú í morgunsárið. "Það spáir hæglætisveðri næstu daga."

Efla þarf menntun verslunarfólks

Aðeins um 40% starfsmanna í smásöluverslunum hér á landi hafa lokið framhaldsskólanámi og í sumum verslunum er hlutfallið mun lægra. Samtök verslunar og þjónustu spurðust fyrir í stærstu verslunarfyrirtækjunum og skoðuðu síðustu launakönnun VR og komust að þessari niðurstöðu.

Telur Skerjafjarðarveg óraunhæfan

Samgönguráðherra líst illa á hugmyndir Reykjavíkurlistans um hraðbraut yfir Skerjafjörðinn. Álftnesingar segja að borgaryfirvöld hafi ekkert rætt við þau um málið. Ekki er langt síðan hugað var að framkvæmdinni en þá þótti hún óhagkvæm.

Ólafur sakaður um málþóf

Ólafur F. Magnússon lagði í fyrradag til á borgarstjórnarfundi að heimildir til niðurrifs sjö gamalla húsa yrðu dregnar til baka. Húsin eru milli Smiðjustígs og Vatnsstígs og fimm þeirra eru frá 19. öld.

Dagný bendi á dæmi

Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, telur að Kristinn H. Gunnarsson flokksbróðir hennar á Alþingi, sé vandamál í Framsóknarflokknum og þingmaðurinn tæti niður mál sem séu flokknum góð og þörf. Þessu hélt Dagný fram í RÚVAK í gær í umræðum um fylgi flokksins og skoðanakannanir. Kristinn H. Gunnarsson segir að orð Dagnýjar þarfnist rökstuðnings.

Sjá næstu 50 fréttir