Fleiri fréttir

Frímerki seld fyrir 120 milljónir

Erlendir frímerkjasafnarar kaupa íslensk frímerki fyrir um 120 milljónir króna á ári. Níu starfsmenn vinna í sérstakri deild Íslandspóst sem þjónustar safnara. </font /></b />

Uppselt í lúxusferð Ingólfs

Þau þrjátíu sæti sem voru í boði í mánaðarlanga hnattreisu með Ingólfi Guðbrandssyni í haust, seldust upp á kynningarfundi á fimmtudagskvöld.

Ríkið sé ekki í fjölmiðlarekstri

Ungir sjálfstæðismenn hvetja til þess í ályktun sem þeir hafa sent frá sér að ríkið hætti afskiptum af fjölmiðlum. Þeir mótmæla því að á sama tíma og settar séu fram hugmyndir um að skerða möguleika á fjármögnun einkarekinna fjölmiðla með óviðunandi skilyrðum um eignaraðild að þeim liggi fyrir frumvarp sem tryggi Ríkisútvarpinu rétt til aukinna umsvifa á markaðnum og tryggi því meira fjármagn til reksturs úr vösum skattgreiðenda.

Um sjö þúsund nýir félagar

Ætla má að um sjö þúsund manns hafi skráð sig í Samfylkinguna áður en kjörskrá fyrir formannskosningarnar var lokað. Það þýðir að Samfylkingarmönnum hafi fjölgað um helming frá áramótum. Eftir því sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði í <em>Silfri Egils</em> skráðu 3.154 sig í flokkinn á kosningaskrifstofu hennar, um tvö þúsund á starfsstöð Össurar Skarphéðinssonar og svipaður fjöldi á skrifstofu flokksins.

Fríar hringingar í heimasíma

Fjarskiptafyrirtækið Og Vodafone hefur hrundið af stað nýrri þjónustu sem nefnist Og1, sem stuðlar að lækkun á símakostnaði heimila.

Ræða um viðbrögð við dólgslátum

Forráðamenn Iceland Express ætla að ræða við yfirmenn Leifsstöðvar og Icelandair um hvernig koma megi í veg fyrir dólgslæti eins og urðu í vél félagsins á leið til Kaupmannahafnar í gær. Þrír voru handteknir við komuna þangað og verður málið væntanlega fært lögreglunni á Íslandi.

Sakar Biblíufélagið um falsanir

Guð er orðinn gamall og hallærislegur í augum þjóðkirkjunnar, segir Gunnar Þorsteinsson í Krossinum. Hann gagnrýnir harðlega Hið íslenska Biblíufélag fyrir að falsa ritningarnar í nýrri þýðingu og segir ýmsa vilja koma að nýrri útgáfu þar sem Guðs orð fái að njóta sannmælis.

Stefnir borginni vegna málverka

Barnabarn Jóhannesar Kjarvals hefur stefnt Reykjavíkurborg fyrir að hafa tekið yfir fimm þúsund verk meistarans ófrjálsri hendi. Málið verður þingfest eftir helgi.

Ótrúlegur bati eftir aðgerð

Bati fertugrar einstæðrar, þriggja barna móður sem greindist með illkynja æxli í spjaldhryggnum á síðasta ári þykir ótrúlegur. Spjaldhryggurinn var tekinn úr Borghildi Svavarsdóttur og er hún fyrsti Íslendingurinn sem gengst undir slíka aðgerð.

Á höttunum eftir spurningaliði

Framhaldsskólarnir keppa um hylli greindustu grunnskólanemendanna. Á heimasíðu pilts úr sigurliði Hagaskóla í spurningakeppni grunnskólanna segir að piltar tengdir spurningaliði Verzlunarskóla Íslands hafi boðið þeim í heimsókn.

Bitist um Kjarvalsverkin

Mál Ingimundar Kjarval gegn Reykjavíkurborg verður þingfest í héraðsdómi á morgun. Borginni er gefið að sök að hafa sölsað undir sig yfir 5.000 verk Jóhannesar Kjarval í trássi við erfingja hans.

Hreyfilistaverk frumsýnt í húsi OR

Þvottavélatromlur, keilur, GSM-símar, steinull, svampur, klósettpappír og reiðhjólagjarðir voru meðal þess sem gekk í endurnýjun lífdaga í hreyfilistaverki sem frumsýnt var í Orkuveitu Reykjavíkur í dag. Bandaríski myndlistarmaðurinn Arthur Ganson vann verkið með hópi íslenskra barna. Hann heillaðist af hugmyndaauðgi barnanna.

Bæði hvatt til sparnaðar og eyðslu

Á sama tíma og Landsbankinn ýtir undir aukinn sparnað landsmanna hvetur hann þá til að eyða meiru og jafnvel taka lán til að fara í ferðalög og kaupa sumarhús. Framkvæmdastjóri markaðssviðs bankans viðurkennir að ef til vill sé of langt gengið að hvetja menn til að taka ferðalán.

Almenningur ehf. stofnsett í dag

Í dag hyggst fjárfestahópurinn sem áformar að taka þátt í kaupum á Símanum stofna einkahlutafélag utan um verkefnið.

Virkjað í Albaníu

Landsvirkjun áformar að reisa 70 megavatta vatnsaflsvirkjun í Albaníu. Samningsdrög við þarlend stjórnvöld liggja fyrir en albanska þingið á eftir að leggja blessun sína yfir framkvæmdina.

Vaxtabætur skornar niður

Vaxtabætur hluta framteljenda skerðast umtalsvert milli ára. Áhrifin eru þó talin minnst á fólkið sem skuldar mest. Samdrátturinn er til kominn bæði vegna breytinga á skattalögum og eins breytts fasteignamats. </font /></b />

Íbúarnir komast ekki leiðar sinnar

Enn syrtir í álinn hjá íbúum svonefnds Gestshúss í vesturbæ Hafnarfjarðar en það hefur stórskemmst vegna holræsaframkvæmda sem bærinn hefur staðið fyrir í götunni að undanförnu.

Algjör viðsnúningur ráðuneytisins

Bæjarstjórar spyrna við fótum vegna fyrirætlana um sameiningu heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu. Ráðherra segir málið í kynningu og telur að þjónusta heilsugæslunnar ætti að batna í kjölfarið. </font /></b />

Huga þarf að heimildum í lögum

Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir vissara að hafa vaðið fyrir neðan sig í fyrirætlunum um að koma upp "svörtum lista" yfir flugdólga. Hún segir þó ekkert koma í veg fyrir að flugfélög komi sér upp slíkum lista.<b> </font /> </b>

Á ekki heima með föndrinu

Í burðarliðnum er sýning á málverkum Halldórs G. Dungals, sem verið hefur blindur í fimm ár. Verkin eru ný, máluð eftir að hann missti sjónina.

Efla uppbyggingu háhraðanets

Heimili, fyrirtæki og stofnanir verða öll komin með möguleika á háhraðatengingum fyrir lok næsta árs samkvæmt fjarskiptaáætlun samgönguráðherra. Efla á háhraðatengingarnar á næstu árum þannig að árið 2010 verði hraðinn í fastneti að lágmarki 100 megabæt á sekúndu og eitt megabæt til notanda í farnetum.

Styttist í nýtt blað

Undirbúningur að stofnun nýs blaðs er langt kominn og viðbúið að áform væntanlegra útgefenda verði kynnt innan skamms.

40 kvenráðherrar til Íslands

Kvenkyns menntamálaráðherrar hvaðanæva að úr heiminum hittast í Reykjavík í lok ágúst til að ræða þau margvíslegu vandamál sem kvenráðherrar um heim allan standa frammi fyrir. Gera má ráð fyrir að um 40 ráðherrar komi til landsins af þessu tilefni.

Landsvirkjun virkjar í Albaníu

Landsvirkjun áformar að reisa 70 megavatta vatnsaflsvirkjun í Albaníu. Samningsdrög við þarlend stjórnvöld liggja fyrir en albanska þingið á eftir að leggja blessun sína yfir framkvæmdina. Framkvæmdirnar munu taka um þrjú ár og er kostnaður við þær áætlaður 8-9 milljarðar króna.

Óskað eftir skýringum

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur farið þess á leit við íslenska ríkið að það skili greinargerð um mál karlmanns sem var dæmdur fyrir að verða barni að bana með því að hrista það. Maðurinn var dæmdur til fangelsisvistar eftir að barn sem hann og kona hans höfðu í umsjá sinni lést.

Yfir fimmtíu óku of hratt

Mikil umferð var um Blönduós um helgina og hafði lögreglan á svæðinu varla undan við að stoppa ökumenn fyrir hraðakstur. "Fólk verður að fara að gera sér grein fyrir því á hvaða svæði það er að keyra," segir Vilhjálmur Stefánsson, lögreglumaður á Blönduósi. "Það er að keyra á besta hraðahindrunarsvæði landsins."

Braut rúðu í lögreglubíl

Maður braut afturrúðu í lögreglubíl í miðbæ Reykjavíkur á fimmta tímanum í nótt eftir að hafa kastað flösku í bílinn. Tveir lögreglumenn voru í bílnum en sakaði hvorugan þeirra. Maðurinn hljóp á brott og náðist hann ekki. Biður lögreglan þá sem urðu vitni að atburðinum að hafa samband við lögregluna í Reykjavík.

Auka kvóta úr sameiginlegum stofni

Sjávarútvegsráðherra ákvað í gær einhliða að auka kvóta íslenskra skipa til veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum. Fá íslensku skipin á þessu ári að veiða 157.700 lestir af norsk-íslenskri síld. Ekki náðist samkomulag við Norðmenn um veiðarnar og hafa báðar þjóðir því í reynd tekið einhliða ákvörðun í málinu.

Össur og Ingibjörg á Akureyri

Össur Skarphéðinsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eru á meðal ræðumanna á opnum fundi um stjórnmál unga fólksins á Akureyri í hádeginu. Fundurinn ber yfirskriftina <em>Ekki gera eins og mamma þín segir þér!</em> - klár tilvísun í þá félaga Karíus og Baktus. Þetta er í fyrsta sinn sem þau Ingibjörg og Össur mæta á sameiginlegan fund frá því að baráttan um formannsembættið í Samfylkingunni tók að harðna.

Rafmagnstruflanir á Vesturlandi

Rafmagnstruflanir hafa verið á Vesturlandi í morgun og fór rafmagn af í Kjósinni klukkan 10 í morgun. Vinnuflokkur RARIK frá Borgarnesi hefur hafið vinnu við bilanaleit.

Hvalfjarðargöng lokuð til þrjú

Hvalfjarðargöngin verða lokuð í dag til klukkan þrjú vegna almannavarnaæfingar. Hægt verður að aka fyrir Hvalfjörðinn eins og aðra daga.

Innanlandsflug liggur niðri

Allt innanlandsflug liggur niðri frá Reykjavíkurflugvelli vegna veðurs og á næst að athuga með flug klukkan hálftvö.

Æfa viðbrögð við hópslysi

Fjölmenn almannavarnaæfing hefur staðið yfir í Hvalfjarðargöngunum frá því snemma í morgun og er göngunum lokað af þeim sökum. Marinó Tryggvason öryggisfulltrúi Spalar segir afar mikilvægt að fá tækifæri til að æfa viðbrögð yrði hópslys í göngunum.

Björn fagnar áræði Agnesar

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra vonar að Agnes Bragadóttir blaðamaður og félagar hennar hafi erindi sem erfiði í baráttu sinni fyrir því að almenningur eignist sem stærstan hlut í Símanum. Þetta segir Björn á heimasíðu sinni í dag og fagnar áræði Agnesar sem og dugnaði.

Háhraðavæðing fyrir árið 2007

Fjarskiptaáætlun fyrir tímabilið 2005-2010 gerir ráð fyrir að öll heimili, stofnanir og fyrirtæki landsins verði orðin háhraðavædd fyrir árið 2007 sem muni skipa Íslandi í fremstu röð þjóða í upplýsingatækni. Áætlunin gerir ráð fyrir að ein sjónvarpsstöð hið minnsta verði send stafrænt út um gervihnött fyrir landið allt og næstu mið strax á þessu ári og að í boði verði stafrænt sjónvarp um háhraðanet.

Gagnrýna lóðaútdrátt í Lamabaseli

Niðurstöður happadrættisins um lóðirnar 30 í Lambaselinu í Reykjavík sem fram fór á fimmtudag eru stórlega dregnar í efa í grein sem birtist á <em>Vefþjóðviljanum</em> í dag. Greinarhöfundar benda á að umsókn númer 545 var dregin út í 14. drætti og umsókn númer 546 í 15. drætti. Þykir þeim ólíklegt að tvær samliggjandi umsóknir úr svo stórum bunka séu dregnar út í röð.

Tími Ingibjargar ekki kominn

Það er ekkert sem bendir til þess að tími Ingibjargar Sólrúnar muni ekki koma einhvern tíma en það verður þó að bíða betri tíma. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson á opnum fundi um stjórnmál unga fólksins sem haldinn var fyrir norðan í dag undir yfirskriftinni <em>Ekki gera eins og mamma þín segir þér</em>. Þá sagðist Össur sjálfur vera best til þess fallinn að leiða flokkinn í næstu kosningum.

Hafi erindi sem erfiði

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist vona að Agnes Bragadóttir og félagar hennar í átaki til að koma saman hópi lítilla fjárfesta til að kaupa hlut í Símanum hafi erindi sem erfiði. Hann furðar sig hins vegar á því að hún geri Alþingi að blóraböggli.

Skaut konu sína og börn

Karlmaður skaut konu sína og þrjú ung börn til bana á heimili þeirra í hollenska bænum Hilversum. Að því búnu skaut hann sjálfan sig. Börnin eru öll innan við tíu ára gömul.

Ungbarnadauði alvarlegasti vandinn

Mary Robinson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, hvetur til alþjóðlegs átaks gegn ungbarnadauða. Hann samsvarar í viku hverri öllum þeim sem fórust í flóðunum í Asíu um áramótin.

Ákvæði stangast á við skýringar

Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri telur að ákvæði í frumvarpi að nýju lögum um RÚV stangist á við skýringar með frumvarpinu.

Segir alla sitja við sama borð

Yfir 30 áhugasamir kaupendur hafa þegar fengið eða fá á næstu dögum tilboðsgögn í tengslum við sölu Símans. Formaður einkavæðingarnefndar segir alla sitja við sama borð.

Óprýði af rusli af Norðlingaholti

Heldur ófögur sjón blasti við vegfarendum á Breiðholtsbrautinni á milli Selásbrautar og Suðurlandsvegar í dag. Verktakar sem byggja hús í nýja hverfinu við Norðlingaholt virðast ekki hafa gengið nægilega vel frá plastumbúðum sem fuku í rokinu í morgun og liggja nú eins og hráviði í gróðrinum í nágrenninu.

Sjá næstu 50 fréttir