Fleiri fréttir

Öryggisráðið fundaði á Íslandi

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði í Odda, byggingu félagsvísindadeildar Háskóla Íslands, um málefni Ísraels og Palestínu í dag. Illa gekk að ná niðurstöðu sem leysir deiluna.

Samkomulag þarf um gerðardóm

Kennarar útiloka ekki gerðardóm en formaður launanefndar sveitarfélaganna telur þá leið ólíklega til árangurs. Forsætisráðherra hefur boðað deilendur til fundar og kennarar funda sjálfir. Lög á deiluna eru talin ólíkleg.

Nafni breytt með trega

Félag dagabátaeigenda hefur með trega verið knúið til að breyta nafni sínu í <em>Félag kvótabátaeigenda</em> að því er fram kemur í ályktunum félagsins á aðalfundi sem haldinn var í Borgarnesi á laugardag.

Hljóðkútur inn um framrúðu

Hljóðkútur kastaðist af vagni vörubifreiðar og inn um glugga fólksbíls skammt norður af Borgarnesi um miðjan dag í gær.

Erill hjá Keflavíkurlögreglu

Lögreglan í Keflavík handtók fyrir stundu karlmann í bíl í bænum með ætluð fíkniefni og eru yfirheyrslur að hefjast yfir honum. Talið er að hann hafi verið með eitt gramm af amfetamíni í fórum sínum og einhverja sveppi.

Rétt að innheimta skólagjöld

Ungir Sjálfstæðismenn segja rétt að veita ríkisháskólum rétt til innheimtu skólagjalda, enda verði þau lánshæf. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Sambands ungra sjálfstæðismanna.

Eldur í fjölbýlishúsi í Kópavogi

Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út laust fyrir klukkan 10 í morgun vegna elds í fjölbýlishúsi við Þverbrekku 4 í Kópavogi. Minni hætta reyndist þó á ferðum en virtist í fyrstu, því reyk lagði upp úr þaki hússins.

Eldri borgarar afskiptir?

Eru eldri borgarar afskiptir í tannlæknaþjónustu? spyr Tannlæknafélag Íslands en félagið stendur fyrir málþingi um það í dag. Í tilkynningu frá félaginu segir að fjárframlag ríkisins til tannlækninga taki ekki mið af þeirri þróun að eldri borgurum með eigin tennur fjölgi sífellt.

Fyrsti heiðursdoktorinn

Brautskráningar verða bæði hjá Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands í dag. Meðal annars útskrifast fyrsti meistaraneminn úr heilsuhagfræði og tilkynnt verður um kjör fyrsta heiðusdoktorsins í viðskipta- og hagfræðideild, sem og kjöri heiðursdoktors í heimspekideild.

Eldur í fjölbýlishúsi

Allt tiltækt lið slökkviliðs var kallað út vegna bruna í fjölbýlishúsi í Þverbrekku í Kópavogi skömmu fyrir klukkan tíu í morgun. Eldur kom upp í ruslageymslu hússins og reyndist auðvelt að ráða niðurlögum hans.

Tannlæknar vilja ábyrga stefnu

Tannlæknar kalla eftir ábyrgri stefnu stjórnvalda í tannheilsumálum. Á málþingi sem Tannlæknafélag Íslands gekkst fyrir í morgun var fjallað um eldri borgara og þeirri spurningu velt upp hvort að þeir væru afskiptir í tannlæknaþjónustu.

Íslendingar særðust í sprengjuárás

Tveir íslenskir friðargæsluliðar særðust í sprengjuárás í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í dag og einn hlaut minniháttar skrámur í árásinni. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að fjórum handsprengjum hafi verið kastað hópi sem mennirnir voru í og að þrjár þeirra hafi sprungið.

Innbrot í leikskóla á Ólafsfirði

Brotist var inn í leikskóla á Ólafsfirði aðfaranótt föstudags, innvolsið hreinsað úr tveimur tölvum og taka geisladrif, harðan disk og fleira úr þriðju tölvunni. Auk þess var stafræn myndavél tekin og fleira lauslegt.

Tónlistarnemum fjölgar mjög

Nemum við tónlistarskóla í Reykjavík fjölgaði eftir að borgin hætti að greiða með nemendum úr öðrum sveitarfélögum. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Stefáni Jóni Hafstein, formanni fræðsluráðs.

Rannsókn lokið í Hagamelsmálinu

Lögreglan í Reykjavík hefur lokið rannsókn á því þegar móðir varð dóttur sinni að bana á heimili þeirra við Hagamel í sumar. Dóttirin var á tólfta ári og var henni banað þar sem hún lá í rúmi sínu og eldri bróðir hennar særður.

Ræðumaraþon í Kringlunni

Kvenréttindafélag Íslands efndi til ræðumaraþons í Kringlunni í dag í tilefni af kvennafrídeginum, 24. október, en hann á þrjátíu ára afmæli á næsta ári. Fjöldi kvenna úr öllum starfsgreinum samfélagsins lét ljós sitt skína í ræðustól til að minnast framlags kvenna til samfélagsins og kvennafrídagsins.

Skilur ekki ummæli ráðherra

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Samtaka sveitarfélaga, segist ekki skilja ummæli menntamálaráðherra í gær en þá sagði hún að skoða mætti hvort ríkið ætti að taka aftur við rekstri grunnskólanna. 

Talíbanar hóta frekari árásum

Þrír íslenskir friðargæsluliðar slösuðust í sjálfsmorðsárás Talíbana í Kabúl í Afganistan í dag. Talíbanar hóta frekari árásum.

Hálfgert neyðarástand

"Ég tel að setja þurfi lög á verkfall kennara leysist deilan ekki fljótlega," segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði. "Þetta er að verða hálfgert neyðarástand."

Stoðir kjarasamninga eru að bresta

Formaður Starfsgreinasambands Íslands segir samningsforsendur bresta verði samningar til annarra á vinnumarkaði umtalsvert hærri en félagsmanna sambandsins. Tillaga ríkissáttasemjara að lausn kennaradeilunnar sem hafnað var hefði falið í sér tæpra 26 prósenta kostnaðarauka fyrir sveitarfélögin.

Óskiljanleg ummæli

"Ég tel þessi ummæli óskiljanleg með öllu," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra lét á föstudag þau orð falla að skoða mætti að flytja grunnskólana aftur til ríkisins.

Lýsa vanþekkingu eða misskilningi

"Ummæli menntamálaráðherra eru stórundarleg og lýsa annað hvort vanþekkingu ráðherrans eða misskilningi," segir Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra lét á föstudag þau orð falla að skoða mætti að flytja grunnskólana aftur til ríkisins.

Vill fá Steinar heim sem fyrst

"Það var hræðilegt að heyra þessar fréttir. Mér finnst ég svo lítils megnug að geta ekkert gert til að hjálpa honum," segir Soffía Hrönn Jakobsdóttir, eiginkona Steinars Arnar Magnússonar, annars íslensku friðargæsluliðanna sem særðust í sprengjuárás í Kabúl í Afganistan í gær.

Hefur séð áverka á líkama og sál

Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að þó hann hafi ekki séð för eftir bora í hnéskeljum á fólki hafi hann séð áverka á fólki sem kemur úr fíkniefnaheiminum, þar á meðal ör eftir eggvopn og nefbrot eftir barsmíðar. Hann segir ofbeldisverk og hörkuna í þessum heimi hafa aukist með aukinni neyslu örvandi vímuefna.

Nissan vinsælastur meðal bílaþjófa

Haukur Ásmundsson, aðalvarðstjóri í Reykjavík, segir mest vera stolið af Nissan- og Subaru-bílum. Frá því klukkan fimm á föstudag til klukkan tvö í gær var sex bílum stolið í Reykjavík, þar af þremur Nissan, tveimur Subaru og einum Saab.

Særðir eftir sprengjuárás

Tveir Íslendingar liggja á sjúkrahúsi eftir sprengjuárás í miðborg Kabúl í gær. "Við teljum að maður hafi hent til okkar fjórum handsprengjum og þar af hafi þrjár sprungið," segir Hallgrímur Sigurðsson, starfsmaður íslensku friðargæslunnar og yfirmaður flugvallarins í Kabúl.

Kennarar í verkfalli í námsferð

Kennarar Ingunnarskóla leggja næsta föstudag í sex daga námsferð til Bandaríkjanna þrátt fyrir kennaraverkfall. Þeir segjast hafa blessun Kennarasambandsins til fararinnar.

Skyr.is drykkurinn víða uppseldur

Baldur Jónsson, markaðsstjóri Mjólkursamsölunnar, segir sölu á skyr.is drykknum hafa farið af stað með miklum hvelli og dykkurinn hefur slegið út aðrar vörur fyrirtækisins hvað viðkemur góðum viðtökum. Ekki hefur tekist að anna eftirspurn sem er langt umfram áætlanir og er drykkurinn víða uppseldur í verslunum.

Markvisst fjársvelti háskólanna

Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri-grænna, og Margrét Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, segja að ríkisstjórnin hafi markvisst svelt ríkisháskólana til að undirbúa jarðveginn fyrir skólagjöld. Samfylkingin telur skólagjöld koma til greina í undantekningartilfellum.

Endurskoða þarf friðarstarfið

"Við látum nota okkur til að hreinsa upp eftir Bandaríkjamenn, þar sem þeir hafa farið sínu fram," segir Ögmundur Jónasson, þingmaður og þingflokksformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, og telur endurspeglast í árás á íslenska friðargæsluliða í Kabúl að þjóðin sé orðin beinn þátttakandi í styrjöldum sem Bandaríkjamenn heyja.

Halldór fordæmir árásina í Kabúl

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra fordæmir árásina á íslensku friðargæsluliðana í Kabúl. "Það er keppikefli Talíbana að koma í veg fyrir lýðræðislegar umbætur í Afganistan. Menn sjá hins vegar hve miklar framfarir hafa orðið þar og þann mikla mun sem er á ástandinu nú og þegar þeir voru við völd."

Eldur í fjölbýli

Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út laust fyrir klukkan 10 í gærmorgun vegna elds í fjölbýlishúsi við Þverbrekku 4 í Kópavogi. Minni hætta reyndist þó á ferðum en virtist í fyrstu, en reyk lagði upp úr þaki hússins.

Menntun vanmetin

"Kennaraverkfallið sem enn stendur yfir er ótvírætt merki um alvarlega og djúpstæða deilu í samfélagi okkar um það hver starfsskilyrði og kjör kennara í grunnskólum landsins skuli vera," sagði Páll Skúlason háskólarektor við brautskráningu stúdenta frá Háskóla Íslands í gær.

Bilun í sjálfvirkum símsvara

Bilun í gagnagrunni Þjónustuvers Símans gerði það að verkum að frá því á föstudag áttu viðskiptavinir í miklum erfiðleikum með að ná í þjónustunúmerið 800 7000 og lá símsvörun niðri um tíma á föstudagskvöldið. Aðfaranótt laugardags var gert við til bráðabirgða þannig að hægt væri að sinna lágmarksþjónustu.

Íslendingar þurfa að gefa meira

Um helgina var haldin á Þingvöllum ráðstefna Norræna samvinnuráðsins í málefnum fólks með þroskahömlun. Halldór Gunnarsson, formaður Þroskahjálpar, segir hinar Norðurlandaþjóðirnar vera framarlega í þróunaraðstoð en nú sé komið að Íslendingum að sýna samstöðu í verki.

Verslun truflaði umferð

Það jaðraði við umferðaröngþveiti í Stykkishólmi þegar Bónus opnaði sína 22. verslun og þá þrettándu á landsbyggðinni á slaginu tíu á laugardagsmorguninn. Að sögn lögreglu fylltist bærinn af kaupglöðum gestum.

Annir hjá Kópavogslöggunni

Þrjú fíkniefnamál komu upp í Kópavogi aðfaranótt laugardags. Lögregla stöðvaði annars vegar ökumann og hins vegar tvo gangandi vegfarendur í annarlegu ástandi. Fundust bæði hass og amfetamín við leit á viðkomandi einstaklingum.

Telja systurina hafa verið drepna

Systkini Birgittu Írisar Harðardóttur segja að hún hafi ekki sprautað sig sjálf með banvænum skammti eiturlyfja. Einhver annar hafi sprautaði efninu í Birgittu og drepið hana. Hún hafi aldrei sprautaði sig sjálf. Eiður Örn Ingvason, þrítugur Reykvíkingur, er ákærður fyrir að koma ekki til hjálpar þegar Birgitta lést 22 ára gömul. Nánar í DV í dag.

Ókeypis leikskólavist frá áramótum

Leikskólavist fyrir fimm ára börn verður ókeypis í Fjarðabyggð frá og með áramótum samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar í gær. Þetta nær til fjögurra stunda leikskólavistar fyrri hluta dags.

Félagi segir Annþór ganga of langt

Máni Andersen, félagi handrukkarans Annþórs Kristjáns Karlssonar, segir Annþór hafa gengið of langt. Máni er vitni í máli þar sem Annþór er ákærður fyrir hrottalegar barsmíðar. <b><font face="Helv" color="#008080"></font></b>

Rafmagnslaust í Hlíðahverfi í gær

Rafmagnslaust varð í um það bil klukkustund í Hlíðahverfinu í Reykjavík í gærkvöldi vegna bilunar í háspennustrengs. Meðal annars varð rafmagnslaust í Perlunni og rafmagn fór af umferðarljósunum á mótum Miklubrautar og Lönguhlíðar og þurftu lögreglumenn að handstýra umferð um gatnamótin þar til rafmagn komst aftur á.

Fjórir stútar teknir í nótt

Fjórir ölvaðir ökumenn voru teknir úr umferð í Reykjavík í gærkvöldi og í nótt og einn fyrir að aka réttindalaus eftir að hafa verið sviptur þeim. Þá voru þrír sektaðir fyrir að vera með útrunnin ökuskírteini og nokkrir fyrir að hafa gleymt þeim heima.

Deilendur kallaðir á fund Halldórs

Ákveðið var á ríkisstjórnarfundi í morgun að kalla fulltrúa deilenda í kennaradeilunni á fund með Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra á mánudag.

Ekið á tvö lömb

Bíl var ekið á tvö lömb skammt frá Borgarnesi í gærkvöldi og drapst annað þeirra strax en aflífa þurfti hitt. Bíllinn skemmdist eitthvað en var ökufær eftir.

Jón Ólafsson greiði 300m í skatt

Ríkisskattstjóri hefur úrskurðað að Jón Ólafsson þurfi að greiða rúmar 300 milljónir í viðbótarskatt vegna skattrannsóknar auk þeirra 97 milljóna sem hann hefur þegar greitt. </font /></b />

Sjá næstu 50 fréttir