Fleiri fréttir Lán upp á 13,2 milljarða uppgreidd Landsmenn hafa greitt upp lán hjá Íbúðalánasjóði fyrir 13,2 milljarða síðan bankarnir kynntu ný húsnæðislán sín. Þetta samsvarar þriggja mánaða útlánum sjóðsins. 22.10.2004 00:01 Þjóðarblómið tilkynnt í dag Það verður holtasóley, blóðberg eða gleym-mér-ei sem verður þjóðarblóm Íslendinga. Úrslitin verða tilkynnt í dag klukkan hálf fjögur. Málið var rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun. 22.10.2004 00:01 Áhyggjur vegna skattalækkana Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna áforma ríkisstjórnarinnar um skattabreytingar að því er fram kemur í ályktun fundar stjórnar félagsins í gær. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar dregur í efa þá fyllyrðingu að nú sé svigrúm til skattalækkana. 22.10.2004 00:01 Stefán dæmdur í 3 ára fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Stefán Loga Sívarsson, annan „Skeljagrandabróðurinn“, í þriggja ára fangelsi fyrir mjög alvarlega líkamsárás sem hefði getað leitt til dauða. Milta mannsins rifnaði svo hann hlaut innvortis blæðingu. 22.10.2004 00:01 Holtasóley þjóðarblóm Íslendinga Holtasóley er þjóðarblóm Íslendinga. Frá þessu var greint við athöfn í Salnum í Kópavogi í dag að viðstöddum forseta Íslands og landbúnaðarráðherra. 22.10.2004 00:01 Skemmdarvarganna enn leitað Lögreglunni í Keflavík hafa borist vísbendingar vegna spellvirkja sem unnin voru á kirkjugarðinum í Keflavík í gær. Um tuttugu legsteinum var velt um koll og krossar rifnir upp, auk þess sem grafskrift, lugtir og fleira var eyðilagt. 22.10.2004 00:01 Ódýrara að fara til tannlæknis Það ætti að verða ódýrara að fara til tannlæknis frá og með 1. nóvember því heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að hækka upphæðir í gjaldskrá fyrir tannlækningar um 4%. 22.10.2004 00:01 Vel að sér um alþjóðastofnanir Íslendingar virðast ágætlega að sér um alþjóðastofnanir samkvæmt könnun sem fram fór í rúmlega 60 löndum í sumar. Í könnuninni var meðal annars spurt hvort fólk hafi heyrt um ýmsar alþjóðastofnanir. 22.10.2004 00:01 Uppsagnir flugfreyja afturkallaðar Iceland Express hefur dregið uppsagnir allra flugfreyja hjá félaginu til baka eftir að samningar tókust. Samningar áttu að renna út við lok mánaðarins. Um fjörutíu flugfreyjur vinna hjá félaginu. 22.10.2004 00:01 Ingibjörg Sólrún tekur frumkvæðið Varaformaður Samfylkingarinnar hefur í þessari viku tekið pólitískt frumkvæði og snúið aftur í stjórnmálinn við stjórnvöl framtíðarhópsins. Sá hópur hannar nú stefnuna sem samþykkt verður á sama landsfundi og kýs á milli Ingibjargar og Össurar 22.10.2004 00:01 Stjórnleysi í útgáfu leyfa Einungis 40 prósent starfandi fiskeldisstöðva eru með rekstrarleyfi og af 83 starfandi stöðvum virðast aðeins 70 vera með starfsleyfi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Valdimars Inga Gunnarssonar um stöðu og framtíðaráform í íslensku fiskeldi. 22.10.2004 00:01 Sex milljarða tekjur árið 2007 Óraunhæft er að spá stýrihóps um aukið verðmæti sjávarfangs nái fram að ganga Samkvæmt spánni var gert ráð fyrir að útflutningsverðmæti fiskeldis yrðu komin upp í 36 milljarða króna árið 2012. Í fyrra nam útflutningsverðmætið 1,5 milljarði króna. 22.10.2004 00:01 Ekkert vandamál Það er ekki stefnt að því að eitt fagráðuneyti hafi yfirumsjón með útgáfu leyfa til fiskeldis, að sögn Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. 22.10.2004 00:01 Kópavogur braut eigin reglur Kópavogsbær úthlutaði tveggja mánaða gömlu fyrirtæki byggingarétti fyrir fjölbýlishús. Fyrirtækið var selt hæstbjóðanda. Eigendur högnuðust um tugmilljónir og eru verktakar ósáttir með vinnubrögð bæjarins. 22.10.2004 00:01 Harður árekstur á Vesturlandsvegi Harður árekstur varð á Vesturlandsvegi rétt fyrir klukkan fimm. Lögregla og sjúkralið eru nýkomin á vettvang og ekki nánari fregnir að hafa. 22.10.2004 00:01 Ákærður fyrir manndrápstilraun Tuttugu og fimm ára gamall karlmaður, sem hjó til annars með öxi á veitingastað í Hafnarfirði fyrir skömmu, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Maðurinn, sem mun sitja í gæsluvarðhaldi þar til dómur verður kveðinn upp, hefur áður verið dæmdur fyrir ofbeldi og fíkniefnabrot. 22.10.2004 00:01 Húsleit og handtökur Þrír menn voru handteknir eftir húsleit á Ólafsfirði í gær. Tveir mannanna eru grunaðir um innbrot í leikskóla bæjarins en þeim þriðja var sleppt fljótlega eftir handtökuna. 22.10.2004 00:01 Bandaríkjamenn eiga samúð mína "Bandaríkjamenn eiga alla mína samúð að hafa kosið yfir sig þennan Bush," segir Signý Jóhannesdóttir, formaður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, er hún er spurð um afstöðu sína til bandaríkjaforseta og forsetakosninganna sem framundan eru í Bandaríkjunum. 22.10.2004 00:01 Dæmdur í þriggja ára fangelsi Stefán Logi Sívarsson var, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem hann framdi í apríl. Ríkissaksóknari fór fram á að Stefán yrði dæmdur í fjögurra ára fangelsi. 22.10.2004 00:01 Samkeppnisstofnun gagnrýnd Hagfræðistofnun Háskóla Íslands segir að útreikningar Samkeppnisstofnunar á hagnaði olíufélaganna þriggja vegna meins samráðs hafi ekki við rök að styðjast. Forstöðumaður segist undrandi á skorti á rökstuðningi Samkeppnisstofnunar. Útreikningar hafa áhrif á hugsanlegar sektir. </font /></b /> 22.10.2004 00:01 Verð sjávarafurða hækkar Verð sjávarafurða var hærra í september en í ágúst síðastliðnum samkvæmt verðvísitölu sjávarafurða sem Hagstofan birti í morgun. Verð sjávarfurða reiknað í íslenskum krónum hækkaði um tæpt eitt prósent á tímabilinu, þrátt fyrir sterkari krónu í september í ár en á sama tíma í fyrra. Frá þessu greinir í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans. 22.10.2004 00:01 Byssumaður sagður hættulaus Nítján ára piltur sem strauk úr fangelsi í vikunni og sagður var hættulaus hefur verið ákærður fyrir rán í Hringbrautarapótek sem hann framdi vopnaður skammbyssu. Hann er líka ákærður fyrir að hafa lagt haglabyssu að andliti manns í heimahúsi. Pilturinn er í gæsluvarðhaldi og kom hann í héraðsdóm í óvenju mikilli gæslu. 22.10.2004 00:01 Holtasóleyin hafði það 22.10.2004 00:01 Næg bílastæði Nýtt kirkjuhús Íslensku Kristskirkjunnar að Fossaleyni í Grafarvogi verður vígt á morgun, sunnudag. 22.10.2004 00:01 Fréttamenn til hliðar Bogi Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs Ríkisútvarpsins, hefur ákveðið að stjórnarmenn í Félagi fréttamanna skuli ekki fjalla um kennaradeiluna í fréttum. Þessi ákvörðun er tekin eftir að stjórn Félags fréttamanna ákvað að veita verkfallssjóði Kennarasambands Íslands 220 þúsund króna styrk. 22.10.2004 00:01 Ofbeldi handrukkara orðum aukið Lögreglan og bráðamóttakan segja að meint ofbeldi handrukkara í íslenskum samtíma sé orðum aukið. Dæmi séu um hótanir og ógnanir en sem betur fer lítið um efndir. Sögusögnum sé komið á kreik og viðhaldið til að skapa ótta. </font /></b /> 22.10.2004 00:01 Jarðhitafræði um allan heim 22.10.2004 00:01 15 prósenta launahækkun hafnað Sáttatillaga ríkissáttasemjara í kennaradeilunni hefði falið í sér um 25 prósenta útgjaldaauka fyrir sveitarfélögin eða ríflega 15 prósenta launahækkun fyrir velflesta kennara. Samninganefnd sveitarfélaganna samþykkti fyrir sitt leyti þessa sáttatillögu en kennarar höfnuðu henni. 22.10.2004 00:01 Rannsókn á húsbroti lokið Rannsókn á húsbroti þriggja manna á ritstjórn DV er lokið. Í dag voru teknar skýrslur af vitnum sem voru hátt í tuttugu talsins. Fréttastjóri blaðsins hefur lagt fram kæru um líkamsárás en hann var tekinn kverkataki þegar þremeningarnir ruddust inn á blaðið og vildu ræða við ritstjóra. Málið verður sent ríkissaksóknara á mánudag. 22.10.2004 00:01 Kom henni ekki undir læknishendur Ríkissaksóknari hefur ákært þrítugan karlmann fyrir brot gegn lífi og líkama þegar hann lét fyrir farast að koma liðlega tvítugri konu undir læknishendur þegar hún veiktist lífshættulega vegna fíkniefnaneyslu. Þetta gerðist í ágúst á síðasta ári í húsi við Lindargötu í Reykjavík og lést konan af völdum banvænnar kókaín- og e-töflueitrunar. 22.10.2004 00:01 78 ára í framboði Skúli Einarsson verður að líkindum næsti formaður Matsveinafélags Íslands. Hann er kominn fast að áttræðu og lofar að láta ferska vinda blása um félagið verði hann kjörinn. Skúli var matsveinn á skipum í rúm fimmtíu ár og hefur komið í flestar hafnir. Hann var þó alltaf einnar konu maður. </font /></b /> 22.10.2004 00:01 Skólagjöld leyfð í ríkisháskólum? Ríkisstjórnin skoðar að leggja fram frumvarp sem heimilar skólagjöld í framhaldsnámi í íslenskum ríkisháskólum. Endanleg ákvörðun liggur þó ekki fyrir. Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands, segir aðeins tímaspursmál hvenær skólagjöld haldi innreið sína í ríkisháskólana. Þeir geti ekki keppt við einkaskóla að óbreyttu. 22.10.2004 00:01 Naglarnir óþarfir Margir ökumenn brugðust skjótt við í kuldakastinu sem gerði í vikunni og létu setja vetrardekk undir bíla sína. Lögum samkvæmt má ekki aka á negldum dekkjum fyrr en eftir 1. nóvember en lögreglan segist ekki munu bregðast við naglaglamri þótt hálka í höfuðborginni sé á bak og burt. 22.10.2004 00:01 EasyJet flýgur ekki til Íslands Flugleiðir keyptu síðdegis 8,4 prósenta hlut í breska lággjaldaflugfélaginu easyJet. Flugleiðamenn eiga ekki von á að easyJet hefji flug hingað til lands þrátt fyrir þetta. 22.10.2004 00:01 Grípa hefði átt inn í strax Félagsmálastjórinn í Reykjavík segir að grípa hefði átt inn í kennaraverkfallið strax og að það sé á sameiginlegri ábyrgð ríkisstjórnar, sveitarfélaga og samfélagsins alls. Það yrði ekki látið viðgangast í siðmenntuðum löndum að börn væru án kennslu svo vikum skipti. 22.10.2004 00:01 Ótrúlegar aðferðir handrukkara Móðir Thelmu Gígju Kristjánsdóttur, sem fyrirfór sér 20. ágúst síðastliðinn, lýsir því í helgarviðtali DV hvernig handrukkarar hröktu hana í opinn dauðann vegna fíkniefnarskuldar sambýlismanns Thelmu. 22.10.2004 00:01 Deilendur á fund forsætisráðherra Forsætisráðherra hefur kallað til sín deilendur í kennaradeilunni á mánudag. Hann segir að viðræðuslitin í gær séu mikil vonbrigði. Ekki hafi þó verið rætt um að setja lög á verkfallið. Kennarar sóttu hart að menntamálaráðherra á Akureyri í dag. 22.10.2004 00:01 Ný stjórn Skjás eins Orri Hauksson, framkvæmdarstjóri þróunarsviðs Símans, var kjörinn formaður stjórnar Skjás eins á hluthafafundi félagsins í gær. Orri hefur MBA-gráðu frá Harvard - háskóla og starfaði sem aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, á árunum 1997 til 2000. Aðrir sem kosnir voru í stjórn Skjás eins eru Gunnar J. Birgisson, Páll Ásgrímsson, Örn Guðmundsson og Sigfús Ingimundarson. 22.10.2004 00:01 Uppsögn dregin til baka Iceland Express hefur dregið til baka uppsagnir 34 flugliða félagsins. Uppsagnirnar áttu að taka gildi um næstu mánaðamót. Flugfreyjufélag Íslands og Iceland Express eiga nú í viðræðum um nýjan kjarasamning fyrir flugfreyjur og flugþjóna félagsins. Í tilkynningu frá flugfélaginu segir að viðræðunum hafi miðað vel og því hafi uppsagnirnar verið dregnar til baka. 22.10.2004 00:01 Nýtt rannsóknar- og nýsköpunarhús Nýtt rannsóknar- og nýsköpunarhús var tekið í notkun á Akureyri í gær. Húsið er 5.500 fermetrar að stærð og á sjö hæðum. Margar stofnanir koma til með að hafa aðstöðu í húsinu. Þar á meðal Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Hafrannsóknastofnunin, Veðurstofa Íslands og Rannsóknarstofnun og aðalskrifstofa Háskólans á Akureyri. 22.10.2004 00:01 Fyrirtæki hugsa sér til hreyfings Það er að skapast mikil hætta á því að íslensk iðnaðar- og hátæknifyrirtæki flytji starfsemi sína til útlanda. Þetta er mat Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka iðnaðarins. "Ég er bara að benda á hættuna því þetta getur haft mjög slæmar afleiðingar," segir Vilmundur. "Dönsk og bresk hátæknifyrirtæki flytjast í nokkrum mæli til Indlans þar sem þau fá vel menntað en ódýrt starfsfólk. Íslensk fyrirtæki kunna að fara sömu leið." 22.10.2004 00:01 Skipin bundin við bryggju Öll fjögur rækjuveiðiskip Íshafs á Húsavík liggja bundin við bryggju. Því veldur aflaleysi og hátt verð á olíu. Bergsteinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir skipin hafa veitt minna af rækju en gert hafi verið ráð fyrir þegar þau hófu veiðar á síðasta ári. Hann vonast til þess að veiðar verði hafnar að nýju eftir áramót. Á meðan sé rækjuvinnslu Íshafs haldið gangandi með aðkeyptri rækju sem veiðist á Flæmska hattinum. 22.10.2004 00:01 Tvíbreið brú í stað einbreiðrar Verið er að leggja lokahönd á gerð nýrrar brúar yfir Vatnsholtsá í Staðarsveit á Snæfellsnesi, en þar var fyrir einbreið brú. 22.10.2004 00:01 Móttaka í Bjarkahlíð Í tilefni af því að í mánuðinum er heil öld liðin frá fæðingu Hákonar Guðmundssonar, fyrsta formanns Landverndar, bjóða dætur hans, Skógræktarfélag Íslands og Landvernd til samkomu í Bjarkahlíð við Bústaðaveg á morgun klukkan tvö, að því er fram kemur á Vef Landverndar. 22.10.2004 00:01 Án búðar í hálfan mánuð Í dag opnar Bónus nýja verslun í Stykkishólmi, en það er fyrsta Bónusverslunin sem opnar á Snæfellsnesi. 22.10.2004 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Lán upp á 13,2 milljarða uppgreidd Landsmenn hafa greitt upp lán hjá Íbúðalánasjóði fyrir 13,2 milljarða síðan bankarnir kynntu ný húsnæðislán sín. Þetta samsvarar þriggja mánaða útlánum sjóðsins. 22.10.2004 00:01
Þjóðarblómið tilkynnt í dag Það verður holtasóley, blóðberg eða gleym-mér-ei sem verður þjóðarblóm Íslendinga. Úrslitin verða tilkynnt í dag klukkan hálf fjögur. Málið var rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun. 22.10.2004 00:01
Áhyggjur vegna skattalækkana Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna áforma ríkisstjórnarinnar um skattabreytingar að því er fram kemur í ályktun fundar stjórnar félagsins í gær. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar dregur í efa þá fyllyrðingu að nú sé svigrúm til skattalækkana. 22.10.2004 00:01
Stefán dæmdur í 3 ára fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Stefán Loga Sívarsson, annan „Skeljagrandabróðurinn“, í þriggja ára fangelsi fyrir mjög alvarlega líkamsárás sem hefði getað leitt til dauða. Milta mannsins rifnaði svo hann hlaut innvortis blæðingu. 22.10.2004 00:01
Holtasóley þjóðarblóm Íslendinga Holtasóley er þjóðarblóm Íslendinga. Frá þessu var greint við athöfn í Salnum í Kópavogi í dag að viðstöddum forseta Íslands og landbúnaðarráðherra. 22.10.2004 00:01
Skemmdarvarganna enn leitað Lögreglunni í Keflavík hafa borist vísbendingar vegna spellvirkja sem unnin voru á kirkjugarðinum í Keflavík í gær. Um tuttugu legsteinum var velt um koll og krossar rifnir upp, auk þess sem grafskrift, lugtir og fleira var eyðilagt. 22.10.2004 00:01
Ódýrara að fara til tannlæknis Það ætti að verða ódýrara að fara til tannlæknis frá og með 1. nóvember því heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að hækka upphæðir í gjaldskrá fyrir tannlækningar um 4%. 22.10.2004 00:01
Vel að sér um alþjóðastofnanir Íslendingar virðast ágætlega að sér um alþjóðastofnanir samkvæmt könnun sem fram fór í rúmlega 60 löndum í sumar. Í könnuninni var meðal annars spurt hvort fólk hafi heyrt um ýmsar alþjóðastofnanir. 22.10.2004 00:01
Uppsagnir flugfreyja afturkallaðar Iceland Express hefur dregið uppsagnir allra flugfreyja hjá félaginu til baka eftir að samningar tókust. Samningar áttu að renna út við lok mánaðarins. Um fjörutíu flugfreyjur vinna hjá félaginu. 22.10.2004 00:01
Ingibjörg Sólrún tekur frumkvæðið Varaformaður Samfylkingarinnar hefur í þessari viku tekið pólitískt frumkvæði og snúið aftur í stjórnmálinn við stjórnvöl framtíðarhópsins. Sá hópur hannar nú stefnuna sem samþykkt verður á sama landsfundi og kýs á milli Ingibjargar og Össurar 22.10.2004 00:01
Stjórnleysi í útgáfu leyfa Einungis 40 prósent starfandi fiskeldisstöðva eru með rekstrarleyfi og af 83 starfandi stöðvum virðast aðeins 70 vera með starfsleyfi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Valdimars Inga Gunnarssonar um stöðu og framtíðaráform í íslensku fiskeldi. 22.10.2004 00:01
Sex milljarða tekjur árið 2007 Óraunhæft er að spá stýrihóps um aukið verðmæti sjávarfangs nái fram að ganga Samkvæmt spánni var gert ráð fyrir að útflutningsverðmæti fiskeldis yrðu komin upp í 36 milljarða króna árið 2012. Í fyrra nam útflutningsverðmætið 1,5 milljarði króna. 22.10.2004 00:01
Ekkert vandamál Það er ekki stefnt að því að eitt fagráðuneyti hafi yfirumsjón með útgáfu leyfa til fiskeldis, að sögn Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. 22.10.2004 00:01
Kópavogur braut eigin reglur Kópavogsbær úthlutaði tveggja mánaða gömlu fyrirtæki byggingarétti fyrir fjölbýlishús. Fyrirtækið var selt hæstbjóðanda. Eigendur högnuðust um tugmilljónir og eru verktakar ósáttir með vinnubrögð bæjarins. 22.10.2004 00:01
Harður árekstur á Vesturlandsvegi Harður árekstur varð á Vesturlandsvegi rétt fyrir klukkan fimm. Lögregla og sjúkralið eru nýkomin á vettvang og ekki nánari fregnir að hafa. 22.10.2004 00:01
Ákærður fyrir manndrápstilraun Tuttugu og fimm ára gamall karlmaður, sem hjó til annars með öxi á veitingastað í Hafnarfirði fyrir skömmu, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Maðurinn, sem mun sitja í gæsluvarðhaldi þar til dómur verður kveðinn upp, hefur áður verið dæmdur fyrir ofbeldi og fíkniefnabrot. 22.10.2004 00:01
Húsleit og handtökur Þrír menn voru handteknir eftir húsleit á Ólafsfirði í gær. Tveir mannanna eru grunaðir um innbrot í leikskóla bæjarins en þeim þriðja var sleppt fljótlega eftir handtökuna. 22.10.2004 00:01
Bandaríkjamenn eiga samúð mína "Bandaríkjamenn eiga alla mína samúð að hafa kosið yfir sig þennan Bush," segir Signý Jóhannesdóttir, formaður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, er hún er spurð um afstöðu sína til bandaríkjaforseta og forsetakosninganna sem framundan eru í Bandaríkjunum. 22.10.2004 00:01
Dæmdur í þriggja ára fangelsi Stefán Logi Sívarsson var, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem hann framdi í apríl. Ríkissaksóknari fór fram á að Stefán yrði dæmdur í fjögurra ára fangelsi. 22.10.2004 00:01
Samkeppnisstofnun gagnrýnd Hagfræðistofnun Háskóla Íslands segir að útreikningar Samkeppnisstofnunar á hagnaði olíufélaganna þriggja vegna meins samráðs hafi ekki við rök að styðjast. Forstöðumaður segist undrandi á skorti á rökstuðningi Samkeppnisstofnunar. Útreikningar hafa áhrif á hugsanlegar sektir. </font /></b /> 22.10.2004 00:01
Verð sjávarafurða hækkar Verð sjávarafurða var hærra í september en í ágúst síðastliðnum samkvæmt verðvísitölu sjávarafurða sem Hagstofan birti í morgun. Verð sjávarfurða reiknað í íslenskum krónum hækkaði um tæpt eitt prósent á tímabilinu, þrátt fyrir sterkari krónu í september í ár en á sama tíma í fyrra. Frá þessu greinir í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans. 22.10.2004 00:01
Byssumaður sagður hættulaus Nítján ára piltur sem strauk úr fangelsi í vikunni og sagður var hættulaus hefur verið ákærður fyrir rán í Hringbrautarapótek sem hann framdi vopnaður skammbyssu. Hann er líka ákærður fyrir að hafa lagt haglabyssu að andliti manns í heimahúsi. Pilturinn er í gæsluvarðhaldi og kom hann í héraðsdóm í óvenju mikilli gæslu. 22.10.2004 00:01
Næg bílastæði Nýtt kirkjuhús Íslensku Kristskirkjunnar að Fossaleyni í Grafarvogi verður vígt á morgun, sunnudag. 22.10.2004 00:01
Fréttamenn til hliðar Bogi Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs Ríkisútvarpsins, hefur ákveðið að stjórnarmenn í Félagi fréttamanna skuli ekki fjalla um kennaradeiluna í fréttum. Þessi ákvörðun er tekin eftir að stjórn Félags fréttamanna ákvað að veita verkfallssjóði Kennarasambands Íslands 220 þúsund króna styrk. 22.10.2004 00:01
Ofbeldi handrukkara orðum aukið Lögreglan og bráðamóttakan segja að meint ofbeldi handrukkara í íslenskum samtíma sé orðum aukið. Dæmi séu um hótanir og ógnanir en sem betur fer lítið um efndir. Sögusögnum sé komið á kreik og viðhaldið til að skapa ótta. </font /></b /> 22.10.2004 00:01
15 prósenta launahækkun hafnað Sáttatillaga ríkissáttasemjara í kennaradeilunni hefði falið í sér um 25 prósenta útgjaldaauka fyrir sveitarfélögin eða ríflega 15 prósenta launahækkun fyrir velflesta kennara. Samninganefnd sveitarfélaganna samþykkti fyrir sitt leyti þessa sáttatillögu en kennarar höfnuðu henni. 22.10.2004 00:01
Rannsókn á húsbroti lokið Rannsókn á húsbroti þriggja manna á ritstjórn DV er lokið. Í dag voru teknar skýrslur af vitnum sem voru hátt í tuttugu talsins. Fréttastjóri blaðsins hefur lagt fram kæru um líkamsárás en hann var tekinn kverkataki þegar þremeningarnir ruddust inn á blaðið og vildu ræða við ritstjóra. Málið verður sent ríkissaksóknara á mánudag. 22.10.2004 00:01
Kom henni ekki undir læknishendur Ríkissaksóknari hefur ákært þrítugan karlmann fyrir brot gegn lífi og líkama þegar hann lét fyrir farast að koma liðlega tvítugri konu undir læknishendur þegar hún veiktist lífshættulega vegna fíkniefnaneyslu. Þetta gerðist í ágúst á síðasta ári í húsi við Lindargötu í Reykjavík og lést konan af völdum banvænnar kókaín- og e-töflueitrunar. 22.10.2004 00:01
78 ára í framboði Skúli Einarsson verður að líkindum næsti formaður Matsveinafélags Íslands. Hann er kominn fast að áttræðu og lofar að láta ferska vinda blása um félagið verði hann kjörinn. Skúli var matsveinn á skipum í rúm fimmtíu ár og hefur komið í flestar hafnir. Hann var þó alltaf einnar konu maður. </font /></b /> 22.10.2004 00:01
Skólagjöld leyfð í ríkisháskólum? Ríkisstjórnin skoðar að leggja fram frumvarp sem heimilar skólagjöld í framhaldsnámi í íslenskum ríkisháskólum. Endanleg ákvörðun liggur þó ekki fyrir. Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands, segir aðeins tímaspursmál hvenær skólagjöld haldi innreið sína í ríkisháskólana. Þeir geti ekki keppt við einkaskóla að óbreyttu. 22.10.2004 00:01
Naglarnir óþarfir Margir ökumenn brugðust skjótt við í kuldakastinu sem gerði í vikunni og létu setja vetrardekk undir bíla sína. Lögum samkvæmt má ekki aka á negldum dekkjum fyrr en eftir 1. nóvember en lögreglan segist ekki munu bregðast við naglaglamri þótt hálka í höfuðborginni sé á bak og burt. 22.10.2004 00:01
EasyJet flýgur ekki til Íslands Flugleiðir keyptu síðdegis 8,4 prósenta hlut í breska lággjaldaflugfélaginu easyJet. Flugleiðamenn eiga ekki von á að easyJet hefji flug hingað til lands þrátt fyrir þetta. 22.10.2004 00:01
Grípa hefði átt inn í strax Félagsmálastjórinn í Reykjavík segir að grípa hefði átt inn í kennaraverkfallið strax og að það sé á sameiginlegri ábyrgð ríkisstjórnar, sveitarfélaga og samfélagsins alls. Það yrði ekki látið viðgangast í siðmenntuðum löndum að börn væru án kennslu svo vikum skipti. 22.10.2004 00:01
Ótrúlegar aðferðir handrukkara Móðir Thelmu Gígju Kristjánsdóttur, sem fyrirfór sér 20. ágúst síðastliðinn, lýsir því í helgarviðtali DV hvernig handrukkarar hröktu hana í opinn dauðann vegna fíkniefnarskuldar sambýlismanns Thelmu. 22.10.2004 00:01
Deilendur á fund forsætisráðherra Forsætisráðherra hefur kallað til sín deilendur í kennaradeilunni á mánudag. Hann segir að viðræðuslitin í gær séu mikil vonbrigði. Ekki hafi þó verið rætt um að setja lög á verkfallið. Kennarar sóttu hart að menntamálaráðherra á Akureyri í dag. 22.10.2004 00:01
Ný stjórn Skjás eins Orri Hauksson, framkvæmdarstjóri þróunarsviðs Símans, var kjörinn formaður stjórnar Skjás eins á hluthafafundi félagsins í gær. Orri hefur MBA-gráðu frá Harvard - háskóla og starfaði sem aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, á árunum 1997 til 2000. Aðrir sem kosnir voru í stjórn Skjás eins eru Gunnar J. Birgisson, Páll Ásgrímsson, Örn Guðmundsson og Sigfús Ingimundarson. 22.10.2004 00:01
Uppsögn dregin til baka Iceland Express hefur dregið til baka uppsagnir 34 flugliða félagsins. Uppsagnirnar áttu að taka gildi um næstu mánaðamót. Flugfreyjufélag Íslands og Iceland Express eiga nú í viðræðum um nýjan kjarasamning fyrir flugfreyjur og flugþjóna félagsins. Í tilkynningu frá flugfélaginu segir að viðræðunum hafi miðað vel og því hafi uppsagnirnar verið dregnar til baka. 22.10.2004 00:01
Nýtt rannsóknar- og nýsköpunarhús Nýtt rannsóknar- og nýsköpunarhús var tekið í notkun á Akureyri í gær. Húsið er 5.500 fermetrar að stærð og á sjö hæðum. Margar stofnanir koma til með að hafa aðstöðu í húsinu. Þar á meðal Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Hafrannsóknastofnunin, Veðurstofa Íslands og Rannsóknarstofnun og aðalskrifstofa Háskólans á Akureyri. 22.10.2004 00:01
Fyrirtæki hugsa sér til hreyfings Það er að skapast mikil hætta á því að íslensk iðnaðar- og hátæknifyrirtæki flytji starfsemi sína til útlanda. Þetta er mat Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka iðnaðarins. "Ég er bara að benda á hættuna því þetta getur haft mjög slæmar afleiðingar," segir Vilmundur. "Dönsk og bresk hátæknifyrirtæki flytjast í nokkrum mæli til Indlans þar sem þau fá vel menntað en ódýrt starfsfólk. Íslensk fyrirtæki kunna að fara sömu leið." 22.10.2004 00:01
Skipin bundin við bryggju Öll fjögur rækjuveiðiskip Íshafs á Húsavík liggja bundin við bryggju. Því veldur aflaleysi og hátt verð á olíu. Bergsteinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir skipin hafa veitt minna af rækju en gert hafi verið ráð fyrir þegar þau hófu veiðar á síðasta ári. Hann vonast til þess að veiðar verði hafnar að nýju eftir áramót. Á meðan sé rækjuvinnslu Íshafs haldið gangandi með aðkeyptri rækju sem veiðist á Flæmska hattinum. 22.10.2004 00:01
Tvíbreið brú í stað einbreiðrar Verið er að leggja lokahönd á gerð nýrrar brúar yfir Vatnsholtsá í Staðarsveit á Snæfellsnesi, en þar var fyrir einbreið brú. 22.10.2004 00:01
Móttaka í Bjarkahlíð Í tilefni af því að í mánuðinum er heil öld liðin frá fæðingu Hákonar Guðmundssonar, fyrsta formanns Landverndar, bjóða dætur hans, Skógræktarfélag Íslands og Landvernd til samkomu í Bjarkahlíð við Bústaðaveg á morgun klukkan tvö, að því er fram kemur á Vef Landverndar. 22.10.2004 00:01
Án búðar í hálfan mánuð Í dag opnar Bónus nýja verslun í Stykkishólmi, en það er fyrsta Bónusverslunin sem opnar á Snæfellsnesi. 22.10.2004 00:01