Fleiri fréttir Þrjár beiðnir af ellefu samþykktar Þrjár undanþágubeiðnir af ellefu voru samþykktar á sjöunda fundi undanþágunefndar vegna verkfalls grunnskólakennara. Fimm beiðnum var hafnað og þremur frestað 19.10.2004 00:01 Fékk óskina áttfallt uppfylta Sjö einhverfir nemendur Hamraskóla í Grafarvogi snúa til kennslu í dag. Jákvætt svar fékkst í fjórðu tilraun þegar beiðninni var breytt úr undanþágu fyrir þrjá kennara í 23. Yngvi Hagalínsson skólastjóri segir að vel hefði verið hægt að leysa neyð nemendanna með kennurunum þremur. 19.10.2004 00:01 30. dagur verkfalls kennara Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari telur ekki að lög verði sett á verkfall kennara. Hann leggur ekki mat á hvort þokast hafi í samkomulagsátt á fundi samninganefnda kennara og sveitarfélaga í gær. 19.10.2004 00:01 Endurnýja samstarfið Héraðslistinn hefur ákveðið að ganga til viðræðna við sjálfstæðisflokkinn um myndun meirihlutastjórnar á Héraði. 19.10.2004 00:01 Ávinningurínn um hálfur milljarður Hvalfjarðargöngin hafa komið Vesturlandi í sömu stöðu og Suðurland hefur gagnvart höfuðborgarsvæðinu. Ávinningurinn er mestur hjá þeim sem næst göngunum búa. Væntingar Vestlendinga hafa stóraukist með tilkomu ganganna. </font /></b /> 19.10.2004 00:01 Rækjuveiðar bannaðar í Djúpinu Rækjuveiðar verða ekki leyfðar í Ísafjarðardjúpi í vetur ef farið verður að tillögum Hafrannsóknastofnunar. Leggur stofnunin ennfremur til að rækjuveiðar verði ekki leyfðar í Arnarfirði að svo stöddu. 19.10.2004 00:01 Mannabreytingar hjá Gæslunni Björn Brekkan Björnsson, þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni, hefur tekið að sér að vera flugrekstrarstjóri Landhelgisgæslunnar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Benóný Ásgrímsson sem sinnt hefur flugrekstrarstjórastarfinu síðastliðin fjögur ár verður áfram yfirflugstjóri. 19.10.2004 00:01 Beiðni Steingríms hafnað Stjórn Landssíma Íslands hefur hafnað kröfu Steingríms J. Sigfússonar, alþingismanns, um að boðað verði til hluthafafundar í fyrirtækinu vegna kaupa þess á hlut í Skjá einum. 19.10.2004 00:01 Banaslys í Skagafirði Banaslys varð í nótt þegar bíll valt út af þjóðveginum ofan við Varmahlíð í Skagafirði. Einn lést og voru þrír fluttir á Fjórðungssjukrahúsið á Akureyri. Fréttastofunni er ekki kunnugt um líðan þeirra né tildrög slyssins, nema hvað hálka var á vettvangi. 18.10.2004 00:01 Gripið verði til lagasetningar Gunnar Birgisson, formaður menntamálanefndar Alþingis, segir að ríkið verði að grípa til örþrifaráða með lagasetningu ef ekki gangi saman með deilendum í kennaradeilunni á næstunni. Gunnar sagði þetta í viðtali við Ríkisútvarpið í gærkvöldi en vildi ekki tímasetja nánar hvenær nóg væri komið svo að lög verði sett til að stöðva verkfallið. 18.10.2004 00:01 Mynda nýjan meirihluta Héraðslisti félagshyggjufólks og listi Sjálfstæðisflokksins munu reyna að mynda nýjan meirihluta í nýsameinuðu sveitarfélagi Fellahrepps, Austur- og Norðurhéraðs en flokkarnir störfuðu saman í stjórn Austurhéraðs, fjölmennasta svæðisins, fyrir sameininguna. 18.10.2004 00:01 Stormur á norðaustanverðu landinu Snjór og hálka er á fjallvegum um norðan- og austanvert landið og víða er hálka niður á láglendi og í þéttbýli, eins og á Akureyri og Húsavík. Stormur er á norðaustanverðu landinu og lentu nokkrir ökumenn í vandræðum í Oddsskarði í gærkvöldi. 18.10.2004 00:01 Standa við lokun sorpstöðvar Lausn á ágreiningi um Sorpstöð Suðurlands er ekki í sjónmáli. Aðeins vika er í að stöðinni verði lokað. Engar formlegar viðræður hafa átt sér stað til að leysa ágreininginn. 18.10.2004 00:01 Braust inn í Kjarvalsstaði Lögreglumenn handtóku innbrotsþjóf á vettvangi í gærkvöldi eftir að hann hafði brotist inn í Kjarvalsstaði. Ólíklegt er talið að hann hafi haft listaverkaþjófnað í huga heldur hafi hann frekar verið að leita að peningum eða smáhlutum til að koma í verð því hann hafði rótaði í hirslum á skrifstofunni þegar lögregumenn komu að honum. 18.10.2004 00:01 Dráttarbíll valt vegna vindhviðu Stór dráttarbíll með tengivagn valt í mikilli vindhviðu þegar bíllinn, sem var á austurleið, átti skammt ófarið að Kirkjubæjarklaustri um klukkan sex í morgun. Ökumanninn sakaði ekki en bíllinn liggur á hliðinni á þjóðveginum og er hann lokaður. Vagninn, sem var tómur, hafnaði utan vegar. 18.10.2004 00:01 Ók niður ljósastaura Sautján ára unglingur, sem er nýkominn með bílpróf, missti stjórn á jeppa sínum þegar hann ók yfir hraðahindrun á Selfossi seint í gærkvöldi með þeim afleiðingum að hann ók niður tvo ljósastaura áður en bíllinn nam staðar. 18.10.2004 00:01 Steinar féllu á veginn Tveir stórir steinar, allt að hálfu tonni hvor, féllu úr fjallshlíð fyrir ofan þjóðveginn austan við Höfn, á móts við bæinn Þorgeirsstaði, í gærkvöldi. Svo vel vildi til að engin var á ferð um veginn þegar þeir féllu og með lagni komust ökumenn fram hjá þeim. 18.10.2004 00:01 Olíulinda leitað við Ísland Búist er við auknum áhuga olíufélaga á að leita að olíulindum í grennd við Ísland og víðar á norðurslóðum vegna hækkandi olíuverðs og ótryggs ástands á mörgum helstu olíuvinnslusvæðunum. 18.10.2004 00:01 Björgunarsveitir kallaðar út Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út til að aðstoða fólk sem lent hefur í vandræðum í bílum sínum vegna ófærðar og illviðris sem gengur nú yfir norðaustanvert landið. Mjög hvasst er einnig í vindhviðum vestur eftir Suðurströndinni. 18.10.2004 00:01 Fleiri hross flutt út 18.10.2004 00:01 Fleiri hross flutt út Útflutningur á hrossum hefur aukist á milli ára, samkvæmt tölum frá Bændasamtökum Íslands. Nú hafa um eitt hundrað fleiri hross farið utan heldur en á sama tíma í fyrra, að sögn Hallveigar Fróðadóttur hjá BÍ. "Það hefur verið nóg að gera og ekkert lát ennþá," sagði hún. 18.10.2004 00:01 Jónas neitar allri sök Einn sakborninga í líkfundarmálinu neitar allri sök. Hinum sakborningunum tveimur ber að mestu leyti saman um að allir þrír hafi átt þátt í að koma líki Vaidasar Júsevicsíusar fyrir í höfninni í Neskaupstað. Aðalmeðferð málsins hófst í morgun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 18.10.2004 00:01 Hærri skattur á áfengi Heilbrigðis- og félagsmálaráðherrar Norðurlandanna samþykktu á fundi sínum um áfengismál í morgun að leggja til aukna skattlagningu á áfengi. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir þetta þó ekki þýða að skattar á áfengi hækki hér á landi, enda séu þeir ærnir fyrir. 18.10.2004 00:01 Óveður á Kjalarnesi Óveður er á Kjalarnesi og hafa hviður þar farið yfir 40 metra á sekúndu. Í morgun valt vörubíll frá fyrirtækinu Fönn á hliðina í vindhviðu á Vatnsnesvegi á Kjalarnesi. Ökumaður bílsins slapp ómeiddur. Á tólfta tímanum fauk svo byggingardót úr ókláruðum sumarbústað yfir Vesturlandsveg. Þá hnikaðist annar ókláraður bústaður á járngrindum við Kjalarnes úr stað í heilu lagi en endaði ferðina við skemmu í nágrenninu. 18.10.2004 00:01 Vilja hærri skatta á áfengi Hækka þarf skatta á áfengi í því markmiði að draga úr neyslu þess. Þetta er sameiginleg niðurstaða heilbrigðis- og félagsmálaráðherra á Norðurlöndum, eftir að hafa fjallað um áfengismál á sérstökum aukafundi í Kaupmannahöfn. Fundinum lauk í gær. 18.10.2004 00:01 Á meðal stærstu fyrirtækja Evrópu Tvö íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru meðal þriggja stærstu sjávarútvegsfyrirtækja Evrópu. Fyrirtækin sem um ræðir eru SH, sem er í öðru sæti, og SIF Group sem er í því þriðja. 18.10.2004 00:01 Varað við akstri hjá Hafnarfjalli Undir Hafnarfjalli er mikið hvassviðri og varar lögreglan í Borgarnesi fólk eindregið við að keyra þar um. Fjórir bílar hafa farið út af veginum undir Hafnarfjalli í dag og einn minniháttar árekstur varð vegna hvassviðrisins. 18.10.2004 00:01 Innanlandsflug liggur niðri Allt innanlandsflug Flugfélags Íslands liggur niðri og hefur ekkert verið flogið síðan fyrir hádegi. Klukkan hálf fimm verður athugað hvort hægt verði að fljúga á nýjan leik en á flestum stöðum er útlitið ekki bjart. 18.10.2004 00:01 Hálfgert neyðarástand í Eyjum Hluti af þekju úr þaki svonefnds IMEX-húss við Strandveg í Vestmannaeyjum fauk fyrir rúmum klukkutíma síðan. Þakhlutinn sem fór í einu lagi var mjög stór og skemmdi að minnsta kosti einn bíl mikið. 18.10.2004 00:01 Öxará iðar af fiski Metveiði var í mælingaferð Veiðimálastofnunar á Þingvelli fyrir helgi. Stofn Þingvallaurriðans er í vexti, en nær tæpast fyrri stærðum nema hrygningarstöðum verði fjölgað. Fiskurinn hrygnir í Öxará en var áður líka í útfalli Þingvallavatns í Efra-Sogi. 18.10.2004 00:01 Skarð hannað en ekki ákveðið Í Efra-Sogi milli Þingvallavatns og Úlfljótsvatns, þar sem áður eru taldar hafa verið aðalhrygningarstöðvar Þingvallaurriðans, var Steingrímsstöðvarvirkjun tekin í notkun árið 1959. 18.10.2004 00:01 Besti vefurinn tilnefndur Val á besta íslenska vefnum stendur þessa dagana yfir vegna Íslensku vefverðlaunanna sem veitt verða í fjórða sinn föstudaginn 29. október. Hægt er að tilnefna vefi til miðnættis annað kvöld á vef <strong><a href="http://www.vefsyn.is" target="_blank">Vefsýnar</a></strong>. 18.10.2004 00:01 Einn látinn og annar á gjörgæslu Pólskur karlmaður að nafni Lukas Zewicz Rafal Maciej lést þegar jeppabifreið fór út af þjóðvegi eitt við bæinn Brekku í Skagafirði skömmu fyrir klukkan hálf ellefu á sunnudagskvöldið. 18.10.2004 00:01 Vænlegar tegundir til fiskeldis Staða einstakra eldistegunda og þörf á rannsókna- og þróunarvinnu verður til umræðu á ráðstefnu sem haldin verður af Fiskeldishópi AVS og Landssambandi fiskeldisstöðva í Reykjavík á föstudaginn. 18.10.2004 00:01 Útlendingar látnir í bílslysum Það sem af er ári hafa fjórir útlendingar látist í umferðarslysum hér á landi, samkvæmt upplýsingum Umferðarstofu. Tveir í júlí og svo tveir í þessum mánuði. 18.10.2004 00:01 Borgin þrýsti á ríkið Listi Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurborg mun á borgarstjórnarfundi á morgun leggja fram tillögu um að Reykjavíkurborg beiti sér fyrir þrýstingi á ríkisvaldið um að það komi að verkfallli grunnskólakennara. 18.10.2004 00:01 Grafið undan samningum Alþýðusamband Íslands segir nýja verðbólguspá greiningadeildar Landsbanka Íslands staðfesta enn að grafið sé undan forsendum kjarasamninga. Gert var ráð fyrir 2.5% verðbólgu á næsta ári í kjarasamningum, 3.5% í forsendum fjárlagafrumvarpsins og Landsbankinn spáir nú stöðugt 3-3.5% verðbólgu til 2007. 18.10.2004 00:01 Vinna gengur vel í Eyjum Björgunaraðgerðir í Vestmannaeyjum ganga vel að sögn Adolfs Þórssonar, formanns Björgunarsveitarinnar í Vestmannaeyjum. Búið er að festa þakplötur á þremur húsum í bænum ásamt því að björgunarsveitarmenn eru að fergja þakhlutana og festa sem fuku af IMEX-húsinu á þriðja tímanum í dag. Adolf segir veðrið hins vegar enn mjög slæmt. 18.10.2004 00:01 Andvaraleysi gagnrýnt Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna gagnrýndi íslensk stjórnvöld fyrir andvaraleysi í umræðum um heræfingar rússneska flotans hér við land á Alþingi í gær. Taldi hann vítavert að hálfur mánuður hefði liðið frá því að rússneskra skipa varð vart hér við land þar til íslensk stjórnvöld hafi leitað skýringa hjá Rússum. 18.10.2004 00:01 Flug liggur enn niðri Allt innanlandsflug Flugfélags Íslands liggur enn niðri og hefur ekkert verið flogið síðan fyrir hádegi. Ekki verður flogið til Egilsstaða eða Ísafjarðar í bráð en verið er að athuga hvort unnt reynist að fljúga til Akureyrar þegar kvölda tekur. 18.10.2004 00:01 Einn lést og annar á gjörgæslu Pólskur karlmaður á fertugsaldri beið bana og landi hans slasaðist alvarlega þegar jeppi sem þeir voru í valt skammt frá Varmahlíð í Skagafirði í gærkvöldi. Bíllinn var á sumardekkjum en fljúgandi hálka var á svæðinu. Fjórir voru í bílnum en enginn í bílbeltum. 18.10.2004 00:01 Nefndarskipan gagnrýnd Til hvassra orðaskipta kom á Alþingi í gær á milli fjármálaráðherra og þingmanna Samfylkingarinnar. Tilefnið var athugasemd Katrínar Júlíusdóttur, þingmanns flokksins um störf þingsins. 18.10.2004 00:01 Þóttum ótraust og kröfuhörð þjóð Bandaríkjastjórn vildi taka til athugunar að segja upp varnarsamningnum við Ísland og draga herlið sitt frá landinu í þorskastríðinu 1975 til 1976. Var það mat embættismanna í Washington að Íslendingar væru svo ótraustir og kröfuharðir bandamenn að vera kynni að Bandaríkin sættu sig ekki við fórnarkostnaðinn sem því fylgdi að halda þeim góðum. 18.10.2004 00:01 Töluverðar skemmdir í óveðrinu Töluverðar skemmdir urðu á bílum og húsum í miklu norðanbáli í Vestmannaeyjum í dag þar sem um tíma ríkti neyðarástand. Foráttuveður var einnig á Austfjörðum og er þar rafmagnslaust á stóru svæði. Á sjötta tímanum fundu björgunarsveitir tvo menn sem setið höfðu fastir á bíl sínum á Fagradal frá því í morgun. 18.10.2004 00:01 10 þúsund minna í vasann Skattprósentan á að lækka niður í um 35% í lok kjörtímabilsins eða svipað og hún var 1988 þegar staðgreiðslukerfið var tekið upp. Hins vegar hefur maður sem hafði 50 þúsund krónur á mánuði 1988 10 þúsund krónum minna eftir í vasanum nú en hann hefði haft ef skattkerfið hefði haldist óbreytt. 18.10.2004 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Þrjár beiðnir af ellefu samþykktar Þrjár undanþágubeiðnir af ellefu voru samþykktar á sjöunda fundi undanþágunefndar vegna verkfalls grunnskólakennara. Fimm beiðnum var hafnað og þremur frestað 19.10.2004 00:01
Fékk óskina áttfallt uppfylta Sjö einhverfir nemendur Hamraskóla í Grafarvogi snúa til kennslu í dag. Jákvætt svar fékkst í fjórðu tilraun þegar beiðninni var breytt úr undanþágu fyrir þrjá kennara í 23. Yngvi Hagalínsson skólastjóri segir að vel hefði verið hægt að leysa neyð nemendanna með kennurunum þremur. 19.10.2004 00:01
30. dagur verkfalls kennara Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari telur ekki að lög verði sett á verkfall kennara. Hann leggur ekki mat á hvort þokast hafi í samkomulagsátt á fundi samninganefnda kennara og sveitarfélaga í gær. 19.10.2004 00:01
Endurnýja samstarfið Héraðslistinn hefur ákveðið að ganga til viðræðna við sjálfstæðisflokkinn um myndun meirihlutastjórnar á Héraði. 19.10.2004 00:01
Ávinningurínn um hálfur milljarður Hvalfjarðargöngin hafa komið Vesturlandi í sömu stöðu og Suðurland hefur gagnvart höfuðborgarsvæðinu. Ávinningurinn er mestur hjá þeim sem næst göngunum búa. Væntingar Vestlendinga hafa stóraukist með tilkomu ganganna. </font /></b /> 19.10.2004 00:01
Rækjuveiðar bannaðar í Djúpinu Rækjuveiðar verða ekki leyfðar í Ísafjarðardjúpi í vetur ef farið verður að tillögum Hafrannsóknastofnunar. Leggur stofnunin ennfremur til að rækjuveiðar verði ekki leyfðar í Arnarfirði að svo stöddu. 19.10.2004 00:01
Mannabreytingar hjá Gæslunni Björn Brekkan Björnsson, þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni, hefur tekið að sér að vera flugrekstrarstjóri Landhelgisgæslunnar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Benóný Ásgrímsson sem sinnt hefur flugrekstrarstjórastarfinu síðastliðin fjögur ár verður áfram yfirflugstjóri. 19.10.2004 00:01
Beiðni Steingríms hafnað Stjórn Landssíma Íslands hefur hafnað kröfu Steingríms J. Sigfússonar, alþingismanns, um að boðað verði til hluthafafundar í fyrirtækinu vegna kaupa þess á hlut í Skjá einum. 19.10.2004 00:01
Banaslys í Skagafirði Banaslys varð í nótt þegar bíll valt út af þjóðveginum ofan við Varmahlíð í Skagafirði. Einn lést og voru þrír fluttir á Fjórðungssjukrahúsið á Akureyri. Fréttastofunni er ekki kunnugt um líðan þeirra né tildrög slyssins, nema hvað hálka var á vettvangi. 18.10.2004 00:01
Gripið verði til lagasetningar Gunnar Birgisson, formaður menntamálanefndar Alþingis, segir að ríkið verði að grípa til örþrifaráða með lagasetningu ef ekki gangi saman með deilendum í kennaradeilunni á næstunni. Gunnar sagði þetta í viðtali við Ríkisútvarpið í gærkvöldi en vildi ekki tímasetja nánar hvenær nóg væri komið svo að lög verði sett til að stöðva verkfallið. 18.10.2004 00:01
Mynda nýjan meirihluta Héraðslisti félagshyggjufólks og listi Sjálfstæðisflokksins munu reyna að mynda nýjan meirihluta í nýsameinuðu sveitarfélagi Fellahrepps, Austur- og Norðurhéraðs en flokkarnir störfuðu saman í stjórn Austurhéraðs, fjölmennasta svæðisins, fyrir sameininguna. 18.10.2004 00:01
Stormur á norðaustanverðu landinu Snjór og hálka er á fjallvegum um norðan- og austanvert landið og víða er hálka niður á láglendi og í þéttbýli, eins og á Akureyri og Húsavík. Stormur er á norðaustanverðu landinu og lentu nokkrir ökumenn í vandræðum í Oddsskarði í gærkvöldi. 18.10.2004 00:01
Standa við lokun sorpstöðvar Lausn á ágreiningi um Sorpstöð Suðurlands er ekki í sjónmáli. Aðeins vika er í að stöðinni verði lokað. Engar formlegar viðræður hafa átt sér stað til að leysa ágreininginn. 18.10.2004 00:01
Braust inn í Kjarvalsstaði Lögreglumenn handtóku innbrotsþjóf á vettvangi í gærkvöldi eftir að hann hafði brotist inn í Kjarvalsstaði. Ólíklegt er talið að hann hafi haft listaverkaþjófnað í huga heldur hafi hann frekar verið að leita að peningum eða smáhlutum til að koma í verð því hann hafði rótaði í hirslum á skrifstofunni þegar lögregumenn komu að honum. 18.10.2004 00:01
Dráttarbíll valt vegna vindhviðu Stór dráttarbíll með tengivagn valt í mikilli vindhviðu þegar bíllinn, sem var á austurleið, átti skammt ófarið að Kirkjubæjarklaustri um klukkan sex í morgun. Ökumanninn sakaði ekki en bíllinn liggur á hliðinni á þjóðveginum og er hann lokaður. Vagninn, sem var tómur, hafnaði utan vegar. 18.10.2004 00:01
Ók niður ljósastaura Sautján ára unglingur, sem er nýkominn með bílpróf, missti stjórn á jeppa sínum þegar hann ók yfir hraðahindrun á Selfossi seint í gærkvöldi með þeim afleiðingum að hann ók niður tvo ljósastaura áður en bíllinn nam staðar. 18.10.2004 00:01
Steinar féllu á veginn Tveir stórir steinar, allt að hálfu tonni hvor, féllu úr fjallshlíð fyrir ofan þjóðveginn austan við Höfn, á móts við bæinn Þorgeirsstaði, í gærkvöldi. Svo vel vildi til að engin var á ferð um veginn þegar þeir féllu og með lagni komust ökumenn fram hjá þeim. 18.10.2004 00:01
Olíulinda leitað við Ísland Búist er við auknum áhuga olíufélaga á að leita að olíulindum í grennd við Ísland og víðar á norðurslóðum vegna hækkandi olíuverðs og ótryggs ástands á mörgum helstu olíuvinnslusvæðunum. 18.10.2004 00:01
Björgunarsveitir kallaðar út Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út til að aðstoða fólk sem lent hefur í vandræðum í bílum sínum vegna ófærðar og illviðris sem gengur nú yfir norðaustanvert landið. Mjög hvasst er einnig í vindhviðum vestur eftir Suðurströndinni. 18.10.2004 00:01
Fleiri hross flutt út Útflutningur á hrossum hefur aukist á milli ára, samkvæmt tölum frá Bændasamtökum Íslands. Nú hafa um eitt hundrað fleiri hross farið utan heldur en á sama tíma í fyrra, að sögn Hallveigar Fróðadóttur hjá BÍ. "Það hefur verið nóg að gera og ekkert lát ennþá," sagði hún. 18.10.2004 00:01
Jónas neitar allri sök Einn sakborninga í líkfundarmálinu neitar allri sök. Hinum sakborningunum tveimur ber að mestu leyti saman um að allir þrír hafi átt þátt í að koma líki Vaidasar Júsevicsíusar fyrir í höfninni í Neskaupstað. Aðalmeðferð málsins hófst í morgun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 18.10.2004 00:01
Hærri skattur á áfengi Heilbrigðis- og félagsmálaráðherrar Norðurlandanna samþykktu á fundi sínum um áfengismál í morgun að leggja til aukna skattlagningu á áfengi. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir þetta þó ekki þýða að skattar á áfengi hækki hér á landi, enda séu þeir ærnir fyrir. 18.10.2004 00:01
Óveður á Kjalarnesi Óveður er á Kjalarnesi og hafa hviður þar farið yfir 40 metra á sekúndu. Í morgun valt vörubíll frá fyrirtækinu Fönn á hliðina í vindhviðu á Vatnsnesvegi á Kjalarnesi. Ökumaður bílsins slapp ómeiddur. Á tólfta tímanum fauk svo byggingardót úr ókláruðum sumarbústað yfir Vesturlandsveg. Þá hnikaðist annar ókláraður bústaður á járngrindum við Kjalarnes úr stað í heilu lagi en endaði ferðina við skemmu í nágrenninu. 18.10.2004 00:01
Vilja hærri skatta á áfengi Hækka þarf skatta á áfengi í því markmiði að draga úr neyslu þess. Þetta er sameiginleg niðurstaða heilbrigðis- og félagsmálaráðherra á Norðurlöndum, eftir að hafa fjallað um áfengismál á sérstökum aukafundi í Kaupmannahöfn. Fundinum lauk í gær. 18.10.2004 00:01
Á meðal stærstu fyrirtækja Evrópu Tvö íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru meðal þriggja stærstu sjávarútvegsfyrirtækja Evrópu. Fyrirtækin sem um ræðir eru SH, sem er í öðru sæti, og SIF Group sem er í því þriðja. 18.10.2004 00:01
Varað við akstri hjá Hafnarfjalli Undir Hafnarfjalli er mikið hvassviðri og varar lögreglan í Borgarnesi fólk eindregið við að keyra þar um. Fjórir bílar hafa farið út af veginum undir Hafnarfjalli í dag og einn minniháttar árekstur varð vegna hvassviðrisins. 18.10.2004 00:01
Innanlandsflug liggur niðri Allt innanlandsflug Flugfélags Íslands liggur niðri og hefur ekkert verið flogið síðan fyrir hádegi. Klukkan hálf fimm verður athugað hvort hægt verði að fljúga á nýjan leik en á flestum stöðum er útlitið ekki bjart. 18.10.2004 00:01
Hálfgert neyðarástand í Eyjum Hluti af þekju úr þaki svonefnds IMEX-húss við Strandveg í Vestmannaeyjum fauk fyrir rúmum klukkutíma síðan. Þakhlutinn sem fór í einu lagi var mjög stór og skemmdi að minnsta kosti einn bíl mikið. 18.10.2004 00:01
Öxará iðar af fiski Metveiði var í mælingaferð Veiðimálastofnunar á Þingvelli fyrir helgi. Stofn Þingvallaurriðans er í vexti, en nær tæpast fyrri stærðum nema hrygningarstöðum verði fjölgað. Fiskurinn hrygnir í Öxará en var áður líka í útfalli Þingvallavatns í Efra-Sogi. 18.10.2004 00:01
Skarð hannað en ekki ákveðið Í Efra-Sogi milli Þingvallavatns og Úlfljótsvatns, þar sem áður eru taldar hafa verið aðalhrygningarstöðvar Þingvallaurriðans, var Steingrímsstöðvarvirkjun tekin í notkun árið 1959. 18.10.2004 00:01
Besti vefurinn tilnefndur Val á besta íslenska vefnum stendur þessa dagana yfir vegna Íslensku vefverðlaunanna sem veitt verða í fjórða sinn föstudaginn 29. október. Hægt er að tilnefna vefi til miðnættis annað kvöld á vef <strong><a href="http://www.vefsyn.is" target="_blank">Vefsýnar</a></strong>. 18.10.2004 00:01
Einn látinn og annar á gjörgæslu Pólskur karlmaður að nafni Lukas Zewicz Rafal Maciej lést þegar jeppabifreið fór út af þjóðvegi eitt við bæinn Brekku í Skagafirði skömmu fyrir klukkan hálf ellefu á sunnudagskvöldið. 18.10.2004 00:01
Vænlegar tegundir til fiskeldis Staða einstakra eldistegunda og þörf á rannsókna- og þróunarvinnu verður til umræðu á ráðstefnu sem haldin verður af Fiskeldishópi AVS og Landssambandi fiskeldisstöðva í Reykjavík á föstudaginn. 18.10.2004 00:01
Útlendingar látnir í bílslysum Það sem af er ári hafa fjórir útlendingar látist í umferðarslysum hér á landi, samkvæmt upplýsingum Umferðarstofu. Tveir í júlí og svo tveir í þessum mánuði. 18.10.2004 00:01
Borgin þrýsti á ríkið Listi Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurborg mun á borgarstjórnarfundi á morgun leggja fram tillögu um að Reykjavíkurborg beiti sér fyrir þrýstingi á ríkisvaldið um að það komi að verkfallli grunnskólakennara. 18.10.2004 00:01
Grafið undan samningum Alþýðusamband Íslands segir nýja verðbólguspá greiningadeildar Landsbanka Íslands staðfesta enn að grafið sé undan forsendum kjarasamninga. Gert var ráð fyrir 2.5% verðbólgu á næsta ári í kjarasamningum, 3.5% í forsendum fjárlagafrumvarpsins og Landsbankinn spáir nú stöðugt 3-3.5% verðbólgu til 2007. 18.10.2004 00:01
Vinna gengur vel í Eyjum Björgunaraðgerðir í Vestmannaeyjum ganga vel að sögn Adolfs Þórssonar, formanns Björgunarsveitarinnar í Vestmannaeyjum. Búið er að festa þakplötur á þremur húsum í bænum ásamt því að björgunarsveitarmenn eru að fergja þakhlutana og festa sem fuku af IMEX-húsinu á þriðja tímanum í dag. Adolf segir veðrið hins vegar enn mjög slæmt. 18.10.2004 00:01
Andvaraleysi gagnrýnt Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna gagnrýndi íslensk stjórnvöld fyrir andvaraleysi í umræðum um heræfingar rússneska flotans hér við land á Alþingi í gær. Taldi hann vítavert að hálfur mánuður hefði liðið frá því að rússneskra skipa varð vart hér við land þar til íslensk stjórnvöld hafi leitað skýringa hjá Rússum. 18.10.2004 00:01
Flug liggur enn niðri Allt innanlandsflug Flugfélags Íslands liggur enn niðri og hefur ekkert verið flogið síðan fyrir hádegi. Ekki verður flogið til Egilsstaða eða Ísafjarðar í bráð en verið er að athuga hvort unnt reynist að fljúga til Akureyrar þegar kvölda tekur. 18.10.2004 00:01
Einn lést og annar á gjörgæslu Pólskur karlmaður á fertugsaldri beið bana og landi hans slasaðist alvarlega þegar jeppi sem þeir voru í valt skammt frá Varmahlíð í Skagafirði í gærkvöldi. Bíllinn var á sumardekkjum en fljúgandi hálka var á svæðinu. Fjórir voru í bílnum en enginn í bílbeltum. 18.10.2004 00:01
Nefndarskipan gagnrýnd Til hvassra orðaskipta kom á Alþingi í gær á milli fjármálaráðherra og þingmanna Samfylkingarinnar. Tilefnið var athugasemd Katrínar Júlíusdóttur, þingmanns flokksins um störf þingsins. 18.10.2004 00:01
Þóttum ótraust og kröfuhörð þjóð Bandaríkjastjórn vildi taka til athugunar að segja upp varnarsamningnum við Ísland og draga herlið sitt frá landinu í þorskastríðinu 1975 til 1976. Var það mat embættismanna í Washington að Íslendingar væru svo ótraustir og kröfuharðir bandamenn að vera kynni að Bandaríkin sættu sig ekki við fórnarkostnaðinn sem því fylgdi að halda þeim góðum. 18.10.2004 00:01
Töluverðar skemmdir í óveðrinu Töluverðar skemmdir urðu á bílum og húsum í miklu norðanbáli í Vestmannaeyjum í dag þar sem um tíma ríkti neyðarástand. Foráttuveður var einnig á Austfjörðum og er þar rafmagnslaust á stóru svæði. Á sjötta tímanum fundu björgunarsveitir tvo menn sem setið höfðu fastir á bíl sínum á Fagradal frá því í morgun. 18.10.2004 00:01
10 þúsund minna í vasann Skattprósentan á að lækka niður í um 35% í lok kjörtímabilsins eða svipað og hún var 1988 þegar staðgreiðslukerfið var tekið upp. Hins vegar hefur maður sem hafði 50 þúsund krónur á mánuði 1988 10 þúsund krónum minna eftir í vasanum nú en hann hefði haft ef skattkerfið hefði haldist óbreytt. 18.10.2004 00:01