Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enginn spámaður í eigin föðurlandi Ástþór Magnússon segist hafa fengið fleiri atkvæði upp úr kjörkössunum í gærkvöldi en Kristur átti sér fylgismenn. Hann segir engann vera spámann í eigin föðurlandi. Alls hlaut Ástþór Magnússon 1,89 prósent gildra atkvæða. Hann hefði viljað sjá fleiri koma með mannúð í hjarta á kjörstað til að styðja friðarmálin. Hann sagðist þó alls ekki vera hættur og héldi baráttunni áfram. 27.6.2004 00:01
Hefur ótvírætt umboð frá þjóðinni Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að Ólafur Ragnar Grímsson hafi fengið ótvírætt umboð frá þjóðinni til að gegna áfram forsetaembættinu. Hann bendir á að meirihluti þjóðarinnar hafi hafnað þeim málflutningi að forsetinn hefði ekki rétt til að skjóta málum til þjóðarinnar. 27.6.2004 00:01
Ekki lengur sameiningartákn Ólafi Ragnari Grímssyni hefur mistekist að verða sameiningartákn þjóðarinnar. Þetta segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stjórnmálafræðiprófessor. Hannes Hólmsteinn verður seint talinn til aðdáenda Ólafs Ragnars Grímssonar, og túlkun hans á niðurstöðun kosninganna er ljós. 27.6.2004 00:01
Skipstrand nálægt Straumsvíkurhöfn Tyrkneska súrálflutningaskipið Kiran Pacific strandaði á skeri 3.3 sjómílur norðvestur af Straumsvíkurhöfn í gærkvöldi. Alls er 21 maður um borð í skipinu, allir frá Tyrklandi. Skipið er talið nokkuð stöðugt á skerinu og því ekki óttast um að áhöfnin sé í hættu. Varðskip kom á vettvang í morgun og er áhöfn þess að kanna aðstæður og ástand skipsins. 27.6.2004 00:01
Sif opnar opinn skóg Sif Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra opnaði "Opinn skóg", á Snæfoksstöðum í Grímsnesi á laugardaginn, með því að saga í sundur veglega ösp sem lögð hafði verið þvert á stíginn inn í skóginn. Þetta gerði Siv með öflugri mótorsög, íklædd hjálmi og öðrum nauðsynlegum öryggisbúnaði. 27.6.2004 00:01
SUF vill kanna umsókn að aðild Þing Sambands ungra framsóknarmanna hvetur til þess að undirbúningur verði hafinn að umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Í ályktun er það sagt þjóna hagsmunum Íslands að hefja nú þegar vinnu við samningsmarkmið með aðild í huga og skuli sú vinna hefjast að frumkvæði forsætisráðuneytisins. 27.6.2004 00:01
Fyrsta sjóferðin í 16 ár Vestfirðingar minntust sögu sinnar um helgina. Gamlir Sléttuhreppingar og afkomendur þeirra gerðu gott betur en að fylla hina hundrað ára gömlu Staðarkirkju í Aðalvík á Ströndum og elsti varðveitti vélbátur landsins, Gestur frá Vigur sem er aldargamall, fór í sína fyrstu sjóferð í sextán ár. 27.6.2004 00:01
Hefði viljað vinna Baldur Ágústsson, forsetaframbjóðandi, segir niðurstöðuna í forsetakosningunum aðra en hann vonaðist eftir, en kjósendur ráði. Hann segir vaktaskipti á Bessastöðum tímabær og því hafi hann viljað vinna kosningarnar. 27.6.2004 00:01
Andstaðan segir sína skoðun Ólafur Ragnar Grímsson var endurkjörinn með traustum meirihluta, þrátt fyrir árásir Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins. Þetta er mat nokkurra stjórnarandstöðuþingmanna. 27.6.2004 00:01
Gömul kaldastríðsblaðamennska Ólafur Ragnar Grímsson segir Morgunblaðið hafa rekið markvissan og hatramman áróður gegn sér og segir blaðið komið í gamla kaldastríðsblaðamennsku. 27.6.2004 00:01
Ástþór gerði ógilt Ástþór Magnússon braut kosningalögin með því að flagga kjörseðlinum sínum og setja hann ekki samanbrotinn í kjörkassann í forsetakosningunum í gær. Þórunn Guðmundsson, oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður segir að með þessu hafi Ástþór ógilt atkvæðið sitt. 27.6.2004 00:01
Heimsókn Hákons og Mette Hákon krónprins Noregs, Mette-Marit krónprinsessa og dóttir þeirra komu nú síðdegis til Íslands í þriggja daga opinbera heimsókn. Krónprinsinn sagði þau hjónin mjög spennt fyrir heimsókninni til sögueyjarinnar. 27.6.2004 00:01
Traustsyfirlýsing eða áfall Ólafur Ragnar Grímsson, nýkjörinn forseti Íslands, segir kosningaúrslitin afgerandi traustsyfirlýsingu og mjög sterkt umboð. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir úrslitin hins vegar áfall fyrir Ólaf og að hyldýpisgjá hafi myndast á milli hans og þjóðarinnar. 27.6.2004 00:01
Yfirlit yfir úrslit kosninga Ólafur Ragnar Grímsson var endurkjörinn forseti Íslands í gær með tæplega 85 prósent gildra atkvæða. Fimmtungur kjósenda skilaði hins vegar auðu og kjörsókn hefur aldrei verið minni í sextíu ára sögu lýðveldisins. 27.6.2004 00:01
Myrti og riðlaðist á líkinu Geðklofa Litháinn, Kestutis Baginskas, sem myrti konu og svívirti á hrottalegan hátt í heimalandi sínu má dveljast á Íslandi samkvæmt dómi Hæstaréttar. Frásögn lithísks dagblaðs af hinum hrottlega glæp Kestutis er rakin í DV í dag. 27.6.2004 00:01
Danir dæma íslenskan dópsmyglara Íslendingurinn Þórir Jónsson hefur verið dæmdur í þrettán mánaða fangelsi í Kaupmannahöfn fyrir kókaínsmygl. Þórir Jökull Þorsteinsson sendiráðsprestur hefur heimsótt Þóri í fangelsi, meðal annars til að "láta hann vita að hann væri ekki einn í heiminum," eins og séra Þórir segir. 27.6.2004 00:01
Átak í búsetumálum geðfatlaðra "Við erum búnir að eiga fyrstu umræðu um búsetumálefni fatlaðar með heilbrigðisráðuneytinu og erum búin að setja okkur ákveðin markmið og aðgerðaáætlun," sagði Þór Þórarinsson skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu um stöðu í aðgerðum ráðuneytisins vegna búsetuþarfar geðfatlaðra. 27.6.2004 00:01
Flestir telja að Siv ætti að víkja Um þriðjungur þeirra sem afstöðu tóku í könnun Fréttablaðsins taldi að Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra ætti að víkja úr embætti þegar Framsóknarflokkurinn missir einn ráðherrastól 15. september næstkomandi. Um fimmtungur var á þeirri skoðun að Halldór Ásgrímsson, verðandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, ætti að víkja. 27.6.2004 00:01
Kæran sú fyrsta sinnar tegundar "Maðurinn telur að hann hafi verið blekktur til að láta af hendi peninga," segir Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, en Sigvaldi Gunnlaugsson kærði nokkra menn til ríkislögreglustjóra fyrir svik sem upphófust með tölvupósti frá Nígeríumanni að nafni Abiola Williams. 26.6.2004 00:01
Félagsmálaráðherra í Malaví Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, hélt í dag til Malaví þar sem hann mun m.a. eiga viðræður við félagsmálaráðherra Malaví um nánara samstarf á sviði félagsmála, einkum er varðar velferð barna og fjölskyldna. Þá mun ráðherra eiga fund með nýkjörnum forseta Malaví, Dr. Bingu wa Mutharika og opna nýja sendiskrifstofu Íslands í höfuðborg landsins, Lilongwe. 26.6.2004 00:01
Enski boltinn til Skjás eins Útsendingar á enska boltanum hefjast 14. ágúst á Skjá einum. Gengið hefur verið frá öllum samningum um útsendingarétt, að sögn Magnúsar Ragnarssonar, sjónvarpsstjóra, og verða þeir formlega undirritaðir í Englandi á þriðjudag. 26.6.2004 00:01
Fá lyf sem ekki eru ætluð börnum Hugsanleganlegt er að rúmlega fimm hundruð íslensk börn og unglingar fái þunglyndislyf sem alls ekki eru ætluð börnum. Notkun þunglyndislyfja á Íslandi heldur áfram að aukast og í samanburði við aðrar Norðurlandaþjóðir er notkunin áfram mest hér á landi. 26.6.2004 00:01
Rannsókn felld niður Rannsókn sænsku ríkislögreglunnar á meintum innherjasvikum sex einstaklinga, í tengslum við kaup Kaupþings á hlutabréfum í JP Nordiska bankanum í Svíþjóð fyrir tveimur árum, hefur verið felld niður. Fimm Íslendingar og einn Svíi voru grunaðir um að hafa keypt bréf í sænska bankanum með ólögmætar upplýsingar um fyrirætlanir Kaupþings í farteskinu. 26.6.2004 00:01
Kosningar í dag Íslendingar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér forseta. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan níu í morgun og loka víðast hvar klukkan tíu í kvöld. 213.553 eru á kjörskrá, og er það hátt í 19 þúsund fleiri en voru á kjörskrá í síðustu forsetakosningum fyrir átta árum. 26.6.2004 00:01
Mun dræmari kjörsókn Kjörsókn í forsetakosningunum virðist almennt dræmari nú en áður. Klukkan 13 höfðu 12,17% kjósenda í Reykjavíkurkjördæmi norður komið á kjörstað. Í forsetakosningunum 1996, þegar Reykjavík var eitt kjördæmi, var kjörsókn á sama tíma 18,53%. 26.6.2004 00:01
Flugmenn semja Flugmenn, Félags íslenskra atvinnuflugmanna, hjá Icelandair, Flugfélagi Íslands, Íslandsflugi og Bláfugli, hafa allir samþykkt nýgerðan kjarasamning við þessi félög. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu FÍA. 26.6.2004 00:01
Grípa ekki til neikvæðra aðgerða Greenpeace-samtökin munu ekki grípa til neikvæðra aðgerða þó Íslendingar hætti ekki hvalveiðum. Þetta kom fram í samtali talmanna samtakanna við formann Verkalýðsfélags Húsavíkur í gær, en sá óskaði eftir fundinum. 26.6.2004 00:01
Oriana varð frá að hverfa Eitt stærsta skemmtiferðaskip heims, Oriana, varð að hverfa frá ytri höfninni í Reykjavík vegna hvassviðris nú upp úr hádegi. Vindhviður fóru yfir 20 metra á sekúndu og var af öryggisástæðum ákveðið að skipið létti akkerum og sigldi út á Faxflóa og bíður skipið þar þess nú að veður lægi. 26.6.2004 00:01
Mesta kjörsókn á Akureyri Kjörsókn fer hægt af stað í dag þegar Íslendingar kjósa sér forseta. Í Reykjavíkurkjördæmunum voru tæplega 19 prósent atkvæðisbærra manna búnir að kjósa klukkan tvö en í síðustu forsetakosningum fyrir átta árum höfðu rúmlega fjórðungur kjósenda greitt atkvæði. 26.6.2004 00:01
Flughátíð á Akureyri Flughátíð er haldin á Akureyri um þessa helgi, vegna 50 ára flugafmælis Arnsgríms Jóhannssonar flugstjóra, sem jafnframt er einn af stofnendum flugfélagsins Atlanta. Það eru sjálfsagt ekki margir einstaklingar sem standa undir heilli flugsýningu, en Arngrímur Jóhannsson, er einn þeirra. 26.6.2004 00:01
Vopnuð lögregla á Reykjavíkurvelli Lögregluþjónar, vopnaðir skammbyssum, eru við öryggisgæslu á Reykjavíkurflugvelli og hafa afskipti af öllum þeim sem fara þar um í millilandaflugi. Það eru mörg ár síðan vopnaðir lögregluþjónar hófu störf í flugstöð Leifs Eiríkssonar, í Keflavík. Litla innanlandsflugstöðin, í Reykjavík, hefur hinsvegar verið laus við slíkt. 26.6.2004 00:01
Oriana kemst í höfn Eitt stærsta skemmtiferðaskip heims, Oriana, neyddist til að sigla út úr ytri höfninni í Reykjavík í dag vegna hvassviðris. Síðdegis var ákveðið að það legðist að bryggju í Sundahöfn til að unnt yrði að koma farþegunum aftur um borð. 26.6.2004 00:01
Eiginkonur kjósa ekki Forsetaframbjóðendurnir þrír hafa auðvitað ekki hugmynd um hverjir kjósa þá og hverjir ekki. Eitt geta þeir þó allir verið vissir um, og það er að eiginkonur þeirra greiða þeim ekki atkvæði. Það er forvitinlegt að allar eiginkonur frambjóðendanna eru útlendingar og enginn þeirra hefur kosningarétt á Íslandi. 26.6.2004 00:01
Auðir seðlar taldir sér Forsíðufyrirsögn Morgunblaðsins í dag um að auð atkvæði verði birt sérstaklega túlkar Mörður Árnason alþingismaður sem skilaboð blaðsins til lesenda um að skila auðu í forsetakosningunum 26.6.2004 00:01
Kjörsókn mun minni en 1996 Kjörsókn nú er mun minni en í forsetakosningunum árið 1996 og í alþingiskosningunum í fyrra. Framkvæmd kosninganna hefur víðast hvar gengið mjög vel. Slæmt veður gæti þó sett strik í reikninginn í Suðurkjördæmi, því ekki hefur verið hægt að fljúga með atkvæði frá Vestmannaeyjum og útlitið fyrir kvöldið er slæmt. 26.6.2004 00:01
Frambjóðendur á kjörstað Forsetakosningar fara fram á Íslandi í dag, í sjötta sinn í sögu lýðveldisins. Þótt allar líkur séu á því að Ólafur Ragnar Grímsson verði endurkjörinn með meirihluta atkvæða verður horft til þess hversu margir kjósendur munu nota tækifærið til að lýsa andstöðu sinni við hann. 26.6.2004 00:01
Ólafur Ragnar með 85,6 % atkvæða Samkvæmt fyrstu tölum úr Reykjavíkurkjördæmi norður, Suðvesturkjördæmi og Norðausturkjördæmi er Ólafur Ragnar Grímsson með ríflega 85% fylgi. Auðir seðlar eru tæpur fjórðungur. 26.6.2004 00:01
Fylgi Ólafs 70% í Suðurkjördæmi Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar er rúm 70% samkvæmt fyrstu tölum, úr Suðurkjördæmi. Það breytir þó litlu um fylgi hans á landsvísu, það er rúm 85%. 26.6.2004 00:01
Kenni ómálaefnalegri umfjöllun um "Ég er með meira fylgi en Kristur hafði á sínum tíma og læt þessa krossfestingu ekki stöðva mig," sagði Ástþór Magnússon þegar fyrstu tölur úr forsetakosningunum lágu fyrir. 26.6.2004 00:01
Hríseyingar samþykktu sameiningu Hríseyingar samþykktu með afgerandi meirihluta sameiningu við Akureyrarbæ. 26.6.2004 00:01
Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi Í Norðvesturkjördæmi hafa nú verið talin 500 atkvæði en talning þar fór seint af stað. Litlar breytingar eru á fylgi frambjóðendanna miðað við fyrstu tölur úr öðrum kjördæmum. 26.6.2004 00:01
Meirihluti andvígur ESB-aðild Rúmur helmingur þeirra sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins kvaðst andvígur umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Hlutfall óákveðinna er hærra en andvígra og fylgjandi. Niðurstaðan undirstrikar sterkt fylgi við umsókn segir formaður Samfylkingarinnar. 25.6.2004 00:01
Rúmlega 5.000 búnir að kjósa Alls voru 5336 manns búnir að skila inn utankjörstaðaratkvæði til sýslumannsins í Reykjavík í gær en kosningar um forseta Íslands fara fram á morgun. 25.6.2004 00:01
Loðnan fundin "Það er langur vegur frá því að hægt sé að fullyrða nokkuð þrátt fyrir að þetta gefi okkur vissulega von," segir Hjálmar Vilhjálmsson, loðnusérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun, en nokkur loðna hefur fundist fyrir norðan Hornbjarg og djúpt norður af Húnaflóa. 25.6.2004 00:01
Fréttablaðið eykur forskot sitt Fréttablaðið er sá fjölmiðill á Íslandi sem flestir nota á hverjum degi og er forskot þess sem mesta lesna dagblaðs landsins er enn að aukast, samkvæmt nýrri fjölmiðlakönnun Gallup. Að meðaltali lesa 69 prósent Fréttablaðið á hverjum degi en 51 prósent Morgunblaðið. 25.6.2004 00:01