Fleiri fréttir

Eldur í Kassagerðinni

Eldur kviknaði þegar glussarör sprakk í stórri umbúðapressu í Kassagerðinni við Héðinsgötu um klukkan þrjú í nótt. Slökkviliðið sendi mikið lið á vettvang þar sem verksmiðjuhúsið er stórt og mikill eldsmatur er í því.

Noregsvefur opnaður

Noregsvefurinn á Íslandi verður opnaður í dag í norska sendiráðinu í Reykjavík. Noregsvefurinn er sniðinn að staðháttum allra landa sem hýsa opinber norsk sendiráð og/eða sendiskrifstofur og íslenska útgáfan hefur veffangið <a href="http://www.noregur.is/">www.noregur.is</a>.

86% eiga tölvu

Í febrúarmánuði árið 2004 voru 86% heimila á Íslandi með tölvu og fjögur af hverjum fimm heimilum gátu tengst interneti. Heimilum sem nota ADSL, SDSL eða annars konar xDSL tengingu fjölgar úr 40% árið 2003 í 54% árið 2004. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Hagstofunnar á notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og interneti.

Flugriti og hljóðriti sendir út

Flugriti og hljóðriti Dornier-flugvélarinnar, sem magalenti á Siglufjarðarflugvelli í fyrrakvöld, verða sendir út til rannsóknar í Bretlandi í dag og niðurstöðu er að vænta á þriðjudag. Vélin er hugsanlega ónýt. Rannsóknarnefnd flugslysa hefur ekki enn tekið fullnaðarskýrslu af flugmönnunum tveimur, sem voru um borð, en það verður væntanlega gert á mánudag.

Baugur kaupir Karen Millen

Baugur keypti í dag meirihluta í bresku verslunarkeðjunni Karen Millen á tæplega sextán milljarða króna. Kaupin hafa vakið mikla athygli á Bretlandi og er greint frá þeim á forsíðu viðskiptavefs BBC í dag. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segist ánægður með kaupin þar sem þau styrki enn frekar stöðu félagsins.

Loðnan mætt á svæðið

Fyrsta loðnan á þessari sumarvertíð er komin að bryggju í Bolungarvík um borð í loðnuskipinu Gullbergi VE, og er löndun að hefjast. Skipið fékk fullfermi, eða rúm 1200 tonn norður af Horni. Flugmaður tók eftir því í fyrrakvöld að háhyrningar voru þar í æti, sem reyndist vera loðna.

Öflugri margmiðlun í Þjóðminjasafn

Þjóðminjasafn Íslands og Bakkavör Group hafa undirritað samstarfssamning til þriggja ára. Samningurinn styrkir safnið í þeirri viðleitni að gera Þjóðminjasafn Íslands nútímalegt með öflugri margmiðlun og tölvuveri auk annara þátta sem snúa að nýjustu straumum í sýningartækni.

Steypireyður á Skjálfandaflóa

Steypireyður, sem er stærsta skepna veraldar, hefur haldið sig á Skjálfandaflóa að undanförnu, sem er afar fátítt. Hefur skepnan sést vel frá hvalaskoðunarbátum Húsvíkingi. Þykir þetta tíðindum sæta á þessum slóðum, og láta menn sér helst detta í hug sú skýring að nú er að hefjast á Húsavík ráðstefna um málefni hvala, frá ýmsum sjónarhornum.

Fyrirtækin losa um budduna

Reikna má með því að fyrirtæki losi aðeins um budduna á þessu ári og verji meira fé en undanfarin ár til endurnýjunar á tölvubúnaði og öðru sem lýtur að upplýsingatækni, að því er fram kemur á <a href="http://www.taeknival.is/" target="_blank"><strong>vef Tæknivals.</strong></a>

World Press Photo í Kringlunni

Ljósmyndasýningin World Press Photo var opnuð í Kringlunni í dag og stendur til 18. júlí. World Press Photo samkeppnin hefur verið haldin árlega síðan árið 1955 og er stærsta keppni sinnar tegundar. 4176 atvinnuljósmyndarar frá 124 löndum tóku þátt í ár. Rúmlega 63 þúsund myndir voru sendar inn sem er þátttökumet.

Ástþór á Gauknum annað kvöld

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi mun halda móttöku fyrir stuðningmenn sýna annað kvöld á Gauk á stöng í miðbæ Reykjavíkur. Ástþór kynntist konu sinni Natalíu Wium á Gauk á Stöng á á styrktartónleikum mæðrastyrksnefndar fyrir um þremur árum og þótti þeim við hæfi að bjóða stuðningsfólki sínu þangað. Móttakan verður 26. júní milli 22 og 00.

Fallið frá kæru

Fallið hefur verið frá kæru til Hæstaréttar vegna gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þremur Palestínumönnum sem komu til Íslands í maí með fölsuð eða stolin vegabréf. Mönnunum var vísað úr landi á þriðjudag og miðvikudag, samkvæmt úrskurði Útlendingastofnunar, og eru þeir nú í Noregi, þar sem samþykkt var að taka við þeim.

Opinn skógur á Snæfoksstöðum

Opnunarhátíð, Opins skógar á Snæfoksstöðum, verður haldin á morgun klukkan tvö. Opinn skógur er samstarfsverkefni skógræktarfélaganna, Olís og Alcan á Íslandi, er miðar að því að opna skóga og gera þá aðgengilega. Lögð er áhersla á upplýsingar um lífríki, náttúru og sögu viðkomandi svæðis.

Alfreð áfram formaður borgarráðs

Alfreð Þorsteinsson var endurkjörinn formaður borgarráðs í morgun. Stefán Jón Hafstein var kjörinn varaformaður í stað Árna Þórs Sigurðssonar. Borgarráð var kjörið til eins árs á fundi borgarstjórnar í gær, fimmtudaginn 24. júní.

Gunnar Örn ákærður

Gunnar Örn Kristjánsson, fyrrverandi endurskoðandi Tryggingarsjóðs lækna, hefur verið ákærður fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, með því að hafa á árunum 1993-2001 vanrækt skyldur sínar sem löggiltur endurskoðandi ársreikninga Tryggingarsjóðsins.

ÚA dæmt til að greiða bætur

Útgerðarfélag Akureyringa var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til að greiða manni tæplega 16 milljónir króna í skaðabætur vegna slyss sem hann varð fyrir um borð í frystitogaranum Hólmadrangi ST-70 í nóvember árið 1999.

Viðvörun frá Veðurstofu

Veðurstofan varar við hvassviðri á sunnanverðu landinu í nótt og á morgun. Gert er ráð fyrir að vindur verði allt að 25 m/s til fjalla með slagveðursrigningu.

Gallup gæðavottað

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhenti í dag IMG Gallup viðurkenningu til staðfestingar á því að fyrirtækið hefur fengið gæðavottun samkvæmt alþjóðlega gæðastaðlinum ISO 9001. Gæðavottunin tekur til allrar starfsemi IMG Gallup en unnið hefur verið að henni síðastliðin þrjú ár.

Bleklaus fingraför fyrir áritun

Bandaríska sendiráðið í Reykjavík mun frá og með mánudeginum 28. júní taka bleklaus fingraför, með fingraskanna, af þeim sem sækja um vegabréfsáritanir vegna heimsókna til Bandaríkjanna. Fingraför verða einungis tekin af þeim er sækja um vegabréfsáritun en ekki af þeim sem heimsækja Bandaríkin í 90 daga án áritunar.

Vefur Vísis í lag

Vegna tæknilegra vandamála var vefur Vísis óvirkur í um þrjár klukkustundir í dag. Komist hefur verið fyrir vandamálið og eru notendur Vísis beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að hafa valdið. Ritstjórn Vísis

Hreindýr við Kárahnjúka

Þeir sem hyggjast skoða framkvæmdirnar við Kárahnjúka hafa góða von um að sjá hreindýr í leiðinni. Þegar fréttastofa var á ferð við Kárahnjúka rákumst við á hreindýr á Fljótsdalsheiði og voru nokkur í aðeins um 200 metra frá þjóðveginum.

Hverfamiðstöðvar taka til starfa

Sérstakar hverfamiðstöðvar taka til starfa í öllum hverfum borgarinnar. Breytingin sem var samþykkt á fundi borgarstjórnar í gær gegn atkvæðum sjálfstæðismanna hefur áhrif á störf 500 borgarstarfsmanna.

Opna 50 verslanir á ári

Baugur Group hefur keypt bresku tískuverslanakeðjuna Karen Millen og verður hún hluti af Oasis Group. Stefnt er að því að opna fimmtíu nýjar verslanir á ári. Kaupin á Karen Millen hafa vakið þó nokkra athygli.

Samstarf við gagnabanka

Barnaheill og fleiri samtök eru komin í samstarf við evrópskan gagnabanka sem auðveldar aðstandendum barna sem týnast, strjúka eða verða fórnarlömb kynferðisofbeldis, að bregðast við. Faðir eins fórnarlambs belgíska barnaníðingsins Marc Dutroux stofnaði samtökin sem heita Child Focus.

Fyrsta loðnan í land

Fyrsti loðnufarmur vertíðarinnar barst á land í Bolungarvík í dag með Gullbergi. Skipstjórinn segir nóg af loðnu og óhætt sé að veiða meira. Honum finnst út í hött að geyma loðnuna fyrir þorskinn og segir að taka þurfi á loðnuáti hvala.

Lokasprettur frambjóðenda

Kjörstaðir verða opnaðir klukkan níu í fyrramálið en kosningu lýkur klukkan 22 annað kvöld. Þótt áhugi fyrir þessum kosningum hafi ekki verið talinn mikill var annað að sjá hjá sýslumanninum í Reykjavík í dag þar sem streymdi fólk að til að greiða atkvæði utan kjörfundar.

Foreldrar æfir

Faðir tveggja drengja sem fá ekki inni í framhaldsskóla segir óvissuna óþolandi. Menntamálaráðherra hefur sagt að öllum verði tryggð skólavist með sérstakri aukafjárveitingu. Formaður fjárlaganefndar kannast ekki við að slík fjárveiting hafi verið til umræðu.

Vísir menn ljúka störfum

Nefnd hinna vísu manna hefur lokið störfum. Fréttastofan hefur fengið staðfest að nefndin hafi afhent stjórnvöldum skýrslu og að til standi að gera efni hennar heyrinkunnugt eftir helgi. Skýrslan á að vera stjórnvöldum til leiðbeiningar við samningu frumvarps til laga um þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin.

Greinagerð trúnaðarmál

Greinargerð Ríkisendurskoðunar um hvernig endurskoðendum stofnunarinnar gat sést yfir 260 milljóna króna fjárdrátt í Landssímanum við endurskoðun reikninga, er trúnaðarmál. Landssíminn bað Ríkisendurskoðun um formlegar skýringar en heldur þeim fyrir sig.

Styrkleikamæling á fylgi Ólafs

"Ef við gefur okkur að auðir seðlar verði tíu prósent, er ljóst að forsetinn er ekki lengur óumdeilanlegt sameiningartákn," segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands um forsetakosningarnar í dag.

Fyrstu tölur klukkan 22

Atkvæðatalning í forsetakosningunum hefst klukkan 19:00 í kvöld í öllum kjördæmum landsins  og er búist við fyrstu tölum klukkan 22:00

Krefst refsingar og réttindamissis

Ákæra á hendur Gunnari Erni Kristjánssyni, fyrrverandi forstjóra SÍF og fyrrum endurskoðanda Tryggingasjóðs lækna, var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Gunnar Örn er sakaður um brot á almennum hegningarlögum, lögum um ársreikninga, lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og lögum um endurskoðendur.

Fjárnám hjá ungu fólki tvöfaldast

Ungu fólki á aldrinum 21-30 ára, sem er á vanskilaskrá, hefur fjölgað talsvert á milli ára 2003 og 2004. Fyrstu fimm mánuði ársins 2003 var samtals 2.331 á vanskilaskrá, en eru 2639 fyrstu fimm mánuði þessa árs. Í þessum aldurshópi hefur árangurslausum fjárnámum fjölgað um 100 prósent, samkvæmt upplýsingum frá Lánstrausti hf.

Hægt að fækka um 100 rúm á LSH

"Við höfum sagt það, að ef við losnum við allar þessar stíflur sem hindra að við getum látið starfsemina á spítalanum fljóta eðlilega á milli þjónustustiga, þá væri hægt að fækka plássum spítalans um 12 - 13%, eða allt að hundrað," sagði Jóhannes M. Gunnarsson framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala háskólasjúkarhúsi.

Sjálfstæðisflokkur stærstur á ný

Stjórnarflokkarnir bæta við sig fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Samkvæmt könnuninni næðu þeir þó ekki meirihluta á þingi ef kosið yrði í dag. Þeir fengju samanlagt 29 þingmenn en hafa nú 34.

60% andvíg ríkisstjórninni

"Þetta er lítil breyting frá því sem verið hefur," segir Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur um skoðanakönnun Fréttablaðsins á fylgi ríkisstjórnarinnar en tæp 40 prósent þeirra sem tóku afstöðu voru fylgjandi stjórninni.

Villtir fasanar færa út kvíarnar

Svo virðist sem villtir fasanar hafi verið að færa út kvíarnar hér á landi en fasönum var sleppt í Hallormsstaðarskóg með leyfi landbúnaðarráðuneytisins fyrir nokkrum árum.

Brotlendingin í rannsókn

Rannsóknarnefnd flugslysa rannsakar nú tildrög þess að nítján sæta Dornier flugvél frá Íslandsflugi, með tvo flugmenn um borð, magalenti á Siglufjarðarflugvelli laust fyrir klukkan átta í gærkvöld, án þess að nokkurn sakaði.

Snjókoma á hálendinu

Slydda og jafnvel snjókoma var sumstaðar á miðhálendinu í nótt og varð víða alhvítt um tíma. Dæmi eru um að nokkurra sentímetra djúpur snjór hafi fallið á hálendinu, þar sem úrkoma var á annað borð, en ekki er vitað til þess að ferðamenn hafi lent í hrakningum.</font />

Tekin af lista ráðuneytisins

Hafnarstjórn í Grundarfirði hefur óskað eftir því við sjávarútvegsráðuneytið að Grundarfjarðarhöfn verði tekin út af lista þrettán hafna þar sem hrefnuveiðibátar geta landað.

Síminn höfðar einkamál

Síminn mun höfða einkamál á hendur fjórmenningunum sem hlutu dóm í Landssímamálinu. Fyrirtækið telur dóm héraðsdóms leggja grunn að bótaskyldu þeirra. 

Mættu ekki í Héraðsdóm

Fresta varð aðalmeðferð í máli tvíburanna Davíðs Bens og Rúnars Bens Maitslands sem fara átti fram í Héraðdómi Reykjavíkur í dag. Menn, sem kallaðir voru til frá Þýskalandi til að bera vitni í málinu, létu ekki sjá sig.

Skotfæri úr El Grillo

Síðastliðna tvo daga hafa kafarar og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar, ásamt áhöfn varðskips, unnið að því að hreinsa skotfæri og önnur hættuleg sprengiefni úr flaki El Grillo á botni Seyðisfjarðar.

Loðnan fundin

Með samstilltu átaki hnúfubaka, flugmanns og grálúðusjómanna fannst loðnan loksins í gærkvöld, norðaustur af Hornbjargi, og hefur eitt skip þegar fengið góðan afla. Sjómenn og útvegsmenn, og reyndar fleiri sem láta þjóðarhag sig varða, voru orðnir áhygjufullir af því að engin loðna hafði fundist í nokkra mánuði, þrátt fyrir leit.

Engar undanþágur vegna fiskimiða

Íslendingar munu ekki fá undanþágu vegna fiskveiðiauðlinda sinna, komi til þess að þeir gangi í Evrópusambandið. Þetta hefur Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður eftir æðsta manni sjávarútvegsmála hjá sambandinu.  

Sjá næstu 50 fréttir