Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tveir ernir drepist úr fuglaflensu Tveir ungir ernir hafa drepist úr fuglaflensu hér á landi. Annar þeirra drapst síðasta haust en hinn á þessu ári. 11.11.2022 15:34
Gunnlaugur lagði Borgarbyggð í seinni glímunni fyrir Landsrétti Sveitarfélagið Borgarbyggð var í Landsrétti í dag dæmt til þess að greiða fyrrverandi sveitarstjóra sínum tæpar 3,7 milljónir króna. Sveitarfélagið hafði áður verið sýknað fyrir héraðsdómi. 11.11.2022 15:25
Kennarar leigja íbúð fyrir fjölskylduna og halda námi systranna gangandi Hópur kennara við Fjölbrautarskólann við Ármúla hefur tekið á leigu Airbnb íbúð í Aþenu fyrir Hussein fjölskylduna sem var vísað til Grikklands í síðustu viku. Kennararnir vona að systur í fjölskyldunni sem stunduðu nám við skólann mæti aftur á vorönn og leita því leiða til þess að aðstoða þær við að klára önnina í fjarnámi. 11.11.2022 14:41
Dómurinn yfir Elínborgu Hörpu stendur Tveggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdómur yfir Elínborgu Hörpu- og Önundarbur aðgerðarsinna og baráttukvár fyrir réttindum flóttafólks skal standa. Þetta er niðurstaða Landsréttar sem kvað upp dóm sinn í dag. Elínborg var ákært fyrir brot gegn valdstjórninni og fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu. 11.11.2022 14:22
Fundu brak úr Challenger fyrir tilviljun Bandaríska geimvísindastofnunin NASA hefur staðfest að brak sem heimildarmyndargerðarmenn fundu fyrir tilviljun í sjónum undan ströndum Flórída sé úr Challenger-geimskutlunni sem fórst fyrir rúmum 36 árum. Ekki hefur verið ákveðið hvort hróflað verður við því. 11.11.2022 14:02
Eftirlýstur flóttamaður þóttist vera írskur munaðarleysingi Sannað hefur verið fyrir skoskum dómstólum að karlmaður sem kvaðst vera írskur munaðarleysingi er í raun Bandaríkjamaður á flótta undan réttvísinni. Dómstóll í Edinborg komst að þessari niðurstöðu í vikunni. 11.11.2022 13:39
Awaryjne lądowanie na lotnisku w Keflaviku Woda, która zgromadziła się w układzie paliwowym samolotu C-GWRJ, spowodowała jego awarię wkrótce po starcie z lotniska Keflavík. Woda została znaleziona w filtrze paliwa silnika podczas kontroli po lądowaniu awaryjnym. 11.11.2022 13:28
Sunnlendingar einoka keppni um sveitarfélag ársins Fjögur sveitarfélög voru útnefnd sveitarfélag ársins 2022. Öll fjögur eru staðsett á Suðurlandi en þetta er í fyrsta sinn sem sveitarfélag ársins er valið. 11.11.2022 12:11
Borgarfulltrúar spyrja: Hefur lögregla heimild til að fara á svig við lög? Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar í umhverfis- og skipulagsráði segja óheppilegt að lögregla lýsi því yfir hvað eftir annað að ekki verði sektað fyrir notkun nagladekkja áður en nagladekkjatímbilið hefst. 11.11.2022 11:58
Flóðbylgjuviðvörun á Tonga eftir öflugan skjálfta Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út í Tonga eyjaklasanum í Kyrrahafi eftir að 7,3 stiga jarðskjálfti greindist á svæðinu. Upptök skjálftans mældust rúmlega tvö hundruð kílómetra frá eyjaklasanum en flóðbylgjuviðvörun hefur einnig verið gefin út í Amerísku Samóa. 11.11.2022 11:49
Hádegisfréttir Bylgjunnar Þjóðhagsspá, nagladekk og kaupæði Íslendinga á netinu verður til umfjöllunar í hádegisfréttum Bylgjunnar þennan föstudaginn. 11.11.2022 11:36
Ætla að hafa upp á metanstórlosendum með gervihnöttum Net gervihnatta á braut um jörðu verður notað til að finna uppsprettur metanlosunar með nýju kerfi sem Sameinuðu þjóðirnar ætla að taka í notkun á næsta ári. Rannsóknir benda til þess að metanlosun í heiminum sé mun meiri en ríki gefa upp í losunarbókhaldi sínu. 11.11.2022 11:35
Vatnsþétting olli brotlendingu á Keflavíkurflugvelli Vatn sem hafði safnast saman í eldsneytiskerfi flugvélar C-GWRJ olli því að hún brotlenti stuttu eftir flugtak á Keflavíkurflugvelli. Vatn fannst í eldsneytissíu vélarinnar þegar hún var skoðuð eftir brotlendingu. 11.11.2022 11:29
Pútín firrir sig ábyrgð á undanhaldinu Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir allar hersveitir Rússa hafa hörfað frá vesturbakka Dniproár í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu. Á undanhaldinu felldu Rússar brúnna yfir Dnipro. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, firrir sig allri ábyrgð á undanhaldinu. 11.11.2022 10:48
Tekur stéttaskiptingunni svolítið persónulega Stéttaskipting er að aukast í tónlistarnámi að sögn Önnu Hugadóttur tónlistarkennara, þar sem eina leið margra fram hjá miklum biðlistum í tónlistarskólum er að kaupa einkatíma úti í bæ. Það er í mörgum tilfellum rándýrt og ekki á allra færi. 11.11.2022 08:51
Demókratar bæta við forskotið í keppni um lykilþingsæti í Arizona Geimfarinn Mark Kelly er nú með ríflega fimm prósentustiga forskot á keppinaut sinn Blake Masters í keppninni um eitt af þremur öldungadeildarþingsætum sem gæti ráðið því hvort demókratar eða repúblikanar fara með völd í deildinni. Enn eru þó of mörg atkvæði ótalin til að hægt sé að lýsa annan þeirra sigurvegara. 11.11.2022 07:45
Gul viðvörun enn í gildi á Vestfjörðum Veðurstofan segir að það verði áfram hvöss norðaustanátt norðvestantil á landinu og fer ekki að lægja fyrr en seinnipartinn, en annars staðar er mun hægari vindur í dag. 11.11.2022 07:23
Trump liggur undir feldi og íhugar næstu skref Innsti hringur stuðningsmanna Donald Trump er sagður klofinn þegar kemur að því hvort forsetinn fyrrverandi ætti að tilkynna um forsetaframboð 2024 í næstu viku, eins og hann hefur gefið í skyn að hann hyggist gera. 11.11.2022 07:11
Fékk sársaukafyllsta sjúkdóm í heimi eftir efnabruna Lífið tók U-beygju hjá ungri konu fyrr á þessu ári þegar hún greindist með sjaldgæfan taugasjúkdóm sem kallaður hefur verið sársaukafyllsti sjúkdómur í heimi. Þrátt fyrir gríðarlega mikil veikindi og miklar breytingar í lífinu lætur hún ekki deigan síga. Framtíðarplönin eru fleiri en áður eða líf með sjúkdómi og líf án hans. Allt geti gerst. 11.11.2022 07:00
Óþolandi að stór hrunmál eyðileggist vegna klúðurs Vararíkissaksóknari segir það óþolandi að stór hrunmál sem sakfellt var í skuli nú eyðileggjast vegna klúðurs í kringum ólíka túlkun Hæstaréttar og endurupptökudóms á lögum. Embættið hafi þó ekki um að annað að velja en að fylgja fordæmi Hæstaréttar sem hefur nú vísað frá tveimur slíkum málum. 11.11.2022 07:00
Flestir bíða lengur en þrjá mánuði eftir völdum skurðaðgerðum Enn bíða of margir eftir völdum skurðaðgerðum í flestum aðgerðarflokkkum, umfram viðmið embættisins um ásættanlegan biðtíma. Þá hefur þeim fjölgað hlutfallslega sem hafa beðið lengur en þrjá mánuði. 11.11.2022 06:37
Vona að þögnin þýði að Rússarnir séu farnir Úkraínskir embættismenn telja að það muni taka rússneskt herlið minnst eina viku að hörfa frá vesturbakka Dnipro-ár og Kherson-borg í suðurhluta landsins. Úkraínski herinn hefur frelsað 41 byggð á svæðinu að sögn forseta Úkraínu. Íbúar á svæðinu fögnuðu fyrstu nótt þagnar frá því að stríðið hófst og vona að það þýði að Rússarnir séu farnir fyrir fullt og allt. 10.11.2022 23:31
Notar mest kollótta hrúta á fengitímanum Mikil spenna er í fjárhúsum landsins þessa dagana en ástæðan fyrir því er einföld, fengitíminn er að hefjast. 10.11.2022 23:04
Bíllinn valt þrjár veltur á Reykjanesbraut Bíllinn sem valt á Reykjanesbraut við Sprengisand á níunda tímanum í kvöld valt minnst þrjár veltur. Fjórir voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar en ekki er talið að þeir hafi slasast alvarlega. 10.11.2022 23:00
Þeysa um Þorlákshöfn á þríhjóli með gamla fólkið Eldri borgarar í Þorlákshöfn sjást þessa dagana þeysa um götur bæjarins á þríhjóli. Þannig rúnta þeir um bæinn, hitta annað fólk og hafa gaman af. 10.11.2022 22:11
Vill bjóða Jóni í skoðunarferð til Grikklands Haraldur Þorleifsson hefur boðist til þess að borga flugmiða og gistingu fyrir dómsmálaráðherra ef hann fylgir honum til Grikklands að skoða aðstöðu flóttafólks þar í landi. 10.11.2022 21:41
Enn bætist í skuldasúpu Jones vegna samsæriskenninga Það syrtir enn í álinn fyrir bandaríska samsæriskenningasmiðinn Alex Jones. Dómari í Connecticut-ríki hefur dæmt hann til að 473 milljónir dollara til viðbótar við þann tæpa eina milljarð sem hann hafði áður verið dæmdur til að greiða. 10.11.2022 21:40
Bíll valt við Sprengisand Tilkynnt var um bílveltu við Sprengisand í Reykjavík á níunda tímanum í kvöld. Þegar sjúkraliðar komu á vettvang voru allir komnir út úr bílnum og voru á fótum. 10.11.2022 21:03
„Þurfum að fylgja vísindunum í notkun hugvíkkandi efna“ Formaður læknaráðs Landspítalans er ánægður yfir auknum áhuga á geðheilbrigðismálum sem lýsi sér m.a. í nýrri þingsályktunartillögu um sílósíbín sem finnst í ofskynjunarsveppum. Það sé hins vegar mikilvægt að bíða eftir frekari rannsóknum um efnið. Íslendingar hafi þegar fengið tilboð um að taka þátt í síðasta fasa stórrar rannsóknar á gagnsemi efnisins. 10.11.2022 21:01
Áminning læknis skal standa Heilbrigðisráðuneytið hefur úrskurðað að ákvörðun embættis landlæknis um að áminna lækni vegna tveggja mála sem tengjast vanrækslu í starfi skuli standa. 10.11.2022 20:03
Héraðsdómur hafi ekki tekið mið af mati geðlæknis Tveir karlmenn sem lögregla grunar um að hafa skipulagt hryðjuverk hafa verið úrskurðaðir í tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald. Lögmaður annars þeirra segir úrskurðinn óskiljanlegan, þar sem geðlæknir hafi metið þá hvorki hættulega sjálfum sér né öðrum. 10.11.2022 19:33
Býður fundarlaun þeim sem getur bent á brennuvarg við Elliðavatn Guðmundur Unnsteinsson, sem varð fyrir því um síðustu áramót að kveikt var í bústaðnum hans á Þingnesi við Elliðavatn, býður hverjum þeim fundarlaun sem veitt getur upplýsingar um brennuvarginn. Tveir bústaðir við vatnið brunnu til grunna í kringum síðustu áramót og virðist sem um vel skipulagðan ásetning hafi verið að ræða en ekki óviljaverk óreglufólks. 10.11.2022 18:04
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tveir karlmenn sem lögregla grunar um að hafa skipulagt hryðjuverk hafa verið úrskurðaðir í tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald. Lögmaður annars þeirra segir úrskurðinn óskiljanlegan þar sem geðlæknir hafi metið þá hvorki hættulega sjálfum sér né öðrum. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 10.11.2022 18:01
Biðjast afsökunar á auglýsingu tengdri Kristalsnóttinni Skyndibitakeðjan KFC hefur beðist afsökunar á auglýsingaherferð sinni í Þýskalandi. Þar var fólk hvatt til þess að fagna því með ostum og kjúklingi frá KFC að 84 ár væru liðin frá Kristalsnóttinni. 10.11.2022 17:05
Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Karlmaður á þrítugsaldri sem lögregla grunar um að hafa skipulagt hryðjuverk hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald. Þetta staðfestir Sveinn Andri Sveinsson, verjandi mannsins, í samtali við fréttastofu. 10.11.2022 17:02
Hussein ber vitni frá Grikklandi Hussein Hussein, hælisleitandi frá Írak, verður ekki fluttur til Íslands til þess að vera viðstaddur aðalmeðferð í máli hans gegn íslenska ríkinu. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem taldi dóminn ekki hafa heimild til að gefa út sérstaka vitnakvaðningu í málinu. 10.11.2022 15:57
Garðabær og Samtökin´78 í samstarf Garðabær og Samtökin ´78 hafa gert með sér samstarfssamning um þjónustu samtakanna við Garðabæ. Markmiðið með samningnum er að stórefla hinsegin fræðslu og meðvitund um hinsegin málefni í sveitarfélaginu en á sama tíma að styðja við það fræðslustarf um hinsegin málefni sem nú þegar er unnið á vinnustöðum og skólum Garðabæjar. 10.11.2022 15:46
Slæmt gengi kemur niður á draumum McCarthy Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, vill verða forseti þingsins. Hann hefur ekki farið leynt með það en slæmt gengi flokksins í þingkosningunum á þriðjudaginn mun líklegast koma niður á vonum hans. 10.11.2022 15:40
Najliczniejszą grupą turystów są Amerykanie Według danych Islandzkiej Agencji Turystycznej, w październiku tego roku, z lotniska Keflavík za granicę wyleciało prawie 159 000 zagranicznych pasażerów. 10.11.2022 15:28
Málskostnaður og vextir sem falla á ríkið metið á um 70 milljónir króna Gestur Jónasson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fjárfestis, hefur ritað grein sem hann birtir á Vísi þar sem hann segist vona að aldrei muni það gerast aftur að einstaklingur þurfi að standa í svo langvinnum málarekstri. Orð hans má túlka sem harða gagnrýni á ákæru- og dómsvaldið. 10.11.2022 14:58
Umræðan verði að fara fram á grundvelli staðreynda – ekki tilfinningu Helga Vala Helgadóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í allsherjar-og menntamálanefnd Alþingis, er undrandi að loknum nefndarfundi með ráðherra og Útlendingastofnun um hælisleitendur. Hún segir fjölmörgum spurningum ekki svarað þrátt fyrir að gestir nefndarinnar hafi fengið þær fyrir fram. Skortur á upplýsingum og heildarsýn sé ekki góð því umræðan verði að fara fram á grundvelli staðreynda - ekki tilfinningu. 10.11.2022 14:37
Borgar sig síður að fara í skóla vegna krónutöluhækkana Krónutöluhækkanir síðustu ára hafa leitt til þess að það borgar sig síður hér á landi en annars staðar að fara í skóla, segir hagfræðingur BHM. Um fjórðungur Íslendinga er einungis með grunnskólapróf og hlutfallið er það hæsta á Norðurlöndum. 10.11.2022 14:30
4048 Islandczyków odmówiło oddania narządów Na początku 2019 roku weszła w życie znowelizowana ustawa o dawstwie narządów, która mówi o tym, że wszyscy obywatele zostają automatycznie zarejestrowani jako dawcy. Każdy ma jednak możliwość wyrejestrowania się z tej listy, za pośrednictwem strony Heilsuvera. 10.11.2022 14:18
25 íbúðir á besta stað á Flúðum Skrifað var undir verksamning milli Hrunamannahrepps og fyrirtækisins Gröfutækni ehf. í dag. Þar með er hafin uppbygging á fyrsta áfanga íbúðahverfisins Byggða á Bríkum á Flúðum. Alls verða byggðar 25 íbúðir. 10.11.2022 14:14
Fyrsta staðfesta smit BPIV3 Veiran BPIV3 (Bovine Parainfluenza Virus 3) greindist nýlega í nautgripum í fyrsta skiptið hér á landi. Um er að ræða veiru sem veldur vægri öndunarfærasýkingu í nautgripum. Ekki er ástæða til að grípa til sérstakra aðgerða. Veiran veldur ekki sýkingum í fólki. 10.11.2022 13:09