Erlent

Trump liggur undir feldi og íhugar næstu skref

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Trump fékk ekki þá siguröldu sem hann beið eftir í þingkosningunum.
Trump fékk ekki þá siguröldu sem hann beið eftir í þingkosningunum. AP/Andrew Harnik

Innsti hringur stuðningsmanna Donald Trump er sagður klofinn þegar kemur að því hvort forsetinn fyrrverandi ætti að tilkynna um forsetaframboð 2024 í næstu viku, eins og hann hefur gefið í skyn að hann hyggist gera.

Efasemdir eru nú uppi um hvort það sé hyggilegt fyrir Trump að taka í gikkinn svo skömmu eftir þingkosningarnar í landinu, þar sem hin „rauða alda“ sem spáð var reyndist aðeins spræna. Margir hafa kennt Trump um óvenju slakt gengi Repúblikanaflokksins en margir af þeim frambjóðendum sem hann studdi náðu ekki kjöri.

Þá er útlit fyrir að Demókratar eigi góðan möguleika á því að halda meirihluta sínum í öldungadeildinni og jafnvel bæta við sig.

Af þessum sökum hafa margir af nánum samstarfsmönnum Trump nú lagt til að hann bíði með tilkynningu sína um forsetaframboð þar til úrslit liggja fyrir í Georgíu, þar sem önnur umferð í kosningum milli Demókratans Raphael Warnock og Repúblikanans Herschel Walker hefur farið fram.

Þankagangurinn er á þennan veg: Ef Walker sigrar getur Trump eignað sér heiðurinn af því, ef ekki er staða hans svo sem óbreytt frá því sem nú er. Þá eru menn uggandi yfir því að Trump gæti eyðilagt möguleika Repúblikana þar sem úrslit liggja ekki fyrir, með því að hefja kosningabaráttu sína strax.

Trump hefur verið óvenju þögull frá því að úrslit í þingkosningunum fóru að liggja ljós fyrir en gaf sér þó tíma í gær til að ráðast gegn Ron DeSantis, sem er mögulega eini samflokksmaður Trump sem á möguleika á því að sigra hann í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar.

Skaut Trump meðal annars á DeSantis, sem vann stóran sigur í þingkosningunum, fyrir að vilja ekki svara því beint hvort hann hygðist bjóða sig fram til forseta. Þá er DeSantis kominn í hóp þeirra sem Trump hefur gefið sérstakt uppnefni og er nú kallaður Ron DeSanctimonious af forsetanum fyrrverandi, sem mætti þýða sem Ron helgislepja.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×