Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
79-81 árs fengu bólusetningu í dag Allir sem eru 79 ára til 81 árs á höfuðborgarsvæðinu, fæddir á árunum 1940-1942, fengu boð um bólusetningu í Laugardalshöll í dag. Byrjað verður að bólusetja fólk með undirliggjandi sjúkdóma í næstu viku. 9.3.2021 15:59
Barnið útskrifað af gjörgæslu og braggast vel Drengur á þriðja ári, sem varð fyrir mannlausum bíl í Áslandshverfi í Hafnarfirði á sunnudag, er útskrifaður af gjörgæsludeild og líðan hans góð eftir atvikum, samkvæmt upplýsingum frá foreldrum hans. 9.3.2021 15:50
Sér fram á að á annað hundrað verði í sóttkví í lok dags Smitrakningarteymi almannavarna er nú önnum kafið við að ná utan um alla þá sem gætu hafa orðið útsettir fyrir smiti vegna þeirra tveggja sem greindust með kórónuveiruna utan sóttkvíar í gær. 9.3.2021 15:25
Starfsmaður Pizzunnar í Núpalind smitaður og tíu í sóttkví Allir starfsmenn Pizzunnar í Núpalind í Kópavogi, um tíu talsins, eru komnir í sóttkví eftir að starfsmaður greindist með kórónuveiruna um helgina. Starfsmaðurinn er pítsusendill og fór með nokkrar pítsur til viðskiptavina. 9.3.2021 14:59
„Köld tuska sem dómsmálaráðherra hendir framan í almenning“ Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, er hneyksluð á Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra sem samið hefur verið við Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmann og fyrrverandi dómara við Hæstarétt um aðstoð við vinnu ráðuneytisins að styttingu málsmeðferðartíma í refsivörslukerfinu. 9.3.2021 14:41
Upptökur sýna hvað gerðist í Sundhöllinni Upptökur úr öryggismyndavélum í Sundhöll Reykjavíkur sýna hvað gerðist í aðdraganda andláts ungs manns, sem fannst látinn á botni laugarinnar 21. janúar síðastliðinn. Þá staðfesta upptökurnar að maðurinn lá á botninum í rúmar sex mínútur, að sögn lögreglu. 9.3.2021 14:39
Hundur Joes Biden til vandræða og sendur burt úr Hvíta húsinu Tveimur hundum bandarísku forsetahjónanna Joe og Jill Biden, hefur verið vísað burt úr Hvíta húsinu í Washington og þeir sendir aftur til heimilis Biden-hjónanna í Delaware. Þetta var gert í síðustu viku eftir að annar hundanna, Major Biden, sýndi af sér árásargjarna hegðun. 9.3.2021 14:19
Dwa krajowe przypadki COVID-19 wykryte wczoraj Aktywnego wirusa zdiagnozowano u kolejnych dwóch osób będących poza kwarantanną. 9.3.2021 13:44
„Við erum að rannsaka morðmál hérna“ Margeir Sveinsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem fer fyrir rannsókn Rauðagerðismálsins gefur lítið fyrir ummæli Steinbergs Finnbogasonar í Fréttablaðinu í morgun þess efnis að lögreglan vilji losna við Steinberg sem verjanda. 9.3.2021 13:41
Um þrjátíu starfsmenn Hagkaups í sóttkví Um þrjátíu starfsmenn Hagkaups í Garðabæ eru nú í sóttkví eftir að starfsmaður þar greindist smitaður af kórónuveirunni í gærkvöldi. 9.3.2021 13:34
Pracownik Hagkaup w Garðabær zdiagnozowany z COVID-19 Działalność sklepu, w którym wykryto COVID-19 pozostaje niezmieniona, ale sytuacja jest ściśle monitorowana. 9.3.2021 13:21
Ætla að framleiða rússneska bóluefnið á Ítalíu Rússar hafa gert samkomulag um að framleiða Spútnik V-bóluefni sitt við kórónuveirunni á Ítalíu, fyrsta samninginn þess efnis í Evrópu. Lyfjastofnun Evrópu hefur hvatt Evrópusambandsríki til að veit ekki leyfi fyrir rússneska bóluefninu í bili. 9.3.2021 13:15
Gul viðvörun á fjórum spásvæðum Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði og Strandir. Viðvörunin tekur gildi klukkan sex í fyrramálið og gildir til miðnættis. Varað er við hvassviðri eða stormi, snjókomu eða hríð og versnandi akstursskilyrðum, einkum á fjallvegum. 9.3.2021 12:46
Tengjast öðrum þeirra sem greindist um helgina og líklega með breska afbrigðið Þeir tveir sem greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, og voru ekki í sóttkví, tengjast öðrum þeirra sem greindist með veiruna um helgina. Gengið er út frá því að hinir tveir nýgreindu séu með breska afbrigði veirunnar, líkt og þeir sem greindust dagana á undan. 9.3.2021 12:29
Ætlar að halda áfram að ræða við fjölmiðla þar til Meghan talar við hann Thomas Markle, faðir Meghan Markle, hertogaynjunnar af Sussex og eiginkonu Harry Bretaprins, segist ætla að halda áfram að ræða við fjölmiðla þar til dóttir hans talar aftur við hann. 9.3.2021 12:12
Kvikan hefur þrjá möguleika til þess að vaxa Jarðskjálftavirkni við Fagradalsfjall jókst um klukkan tuttugu mínútur yfir fimm í morgun. Samhliða henni myndaðist óróakviða sem stóð í um tvær klukkustundir. 9.3.2021 12:01
98 látnir eftir sprengingarnar í Bata Fjöldi látinna eftir sprengingarnar á herstöðinni í hafnarborginni Bata í Miðbaugs-Gíneu er nú kominn í 98. Auk þeirra slösuðust rúmlega sex hundruð manns og gæti fjöldi látinna því hækkað enn frekar þegar fram í sækir. 9.3.2021 11:52
Galli á jafnréttislögum sem nú sé búið að laga Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir mál menntamálaráðherra gegn Hafdísi Helgu Ólafsdóttur ekki hafa verið rætt á fundi ríkisstjórnar og heldur ekki við sig persónulega. Málið sé dæmi um galla á jafnréttislögum sem nú sé búið að laga. 9.3.2021 11:48
Halda áfram að nota nafn Trump þrátt fyrir mótbárur hans Repúblikanaflokkurinn í Bandaríkjunum ætlar að halda áfram að nota nafn Donalds Trump fyrrverandi forseta í fjáröflunarskyni og kynningarefni þrátt fyrir að hann hafi látið lögfræðinga sína krefjast þess að flokkurinn léti af því í síðustu viku. 9.3.2021 11:46
Bein útsending: Hvað eru markahlutir og hvernig eru þeir nýttir í tækninýsköpun? Marina Candi, prófessor og forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar í nýsköpun og frumkvöðlafræðum, heldur þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis þar sem hún fjallar um ferli tækninýsköpunar og markahluti (e. boundary objects). Fyrirlesturinn hefst klukkna tólf og stendur í klukkustund. 9.3.2021 11:45
Bóluefni Pfizer virðist virka gegn brasilíska afbrigðinu Ný rannsókn bendir til að bóluefni Pfizer og BioNTech við Covid-19 vinni gegn meira smitandi afbrigði kórónuveirunnar sem kennt hefur verið við Brasilíu. 9.3.2021 11:44
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni um þróun kórónuveirufaraldursins hér á landi en tveir greindust utan sóttkvíar í gær og tengjast þeir smiti sem upp kom á föstudaginn var. 9.3.2021 11:34
Í leyfi frá störfum fyrir ríkisstjórnina vegna framboðs fyrir VG Róbert Marshall er kominn í launalaust leyfi frá störfum sem upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur vegna framboðs hans í forvali Vinstri grænna í suðurkjördæmi. Hann sækist eftir því að leiða lista flokksins þar. 9.3.2021 11:00
Kvenleiðtogum hrósað á alþjóðlegum baráttudegi „Það hefur sýnt sig að þar sem konur eru æðstu valdhafar eru öflugar viðbragðsáætlanir við heimsfaraldrinum,“ segir í frétt UN Women á Íslandi. 9.3.2021 10:54
Boðar breytt fyrirkomulag samræmdra prófa á næsta ári Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir að fjölbreytt, stutt og hnitmiðuð rafræn próf og verkefni verði notuð til að kanna stöðu nemenda og bera saman frá og með næsta ári. Hún segir mjög mikilvægt að fram fari samræmt mat svo hver og einn nemandi viti hvar hann standi. 9.3.2021 10:53
Ákvörðun um áfrýjun „auðvitað ekki léttvæg“ Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra segir það ekki hafa verið léttvæga ákvörðun að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli hennar gegn Hafdísi Helgu Ólafsdóttur til Landsréttar. Hún hafi leitað til sérfræðinga við ákvörðunina og farið vel yfir málið. 9.3.2021 10:46
Tveir greindust innanlands í gær og voru báðir utan sóttkvíar Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Báðir voru utan sóttkvíar. 9.3.2021 10:42
Réttarhöldin vegna dauða Floyd gætu frestast um fleiri vikur Krafa saksóknara um að bæta nýjum lið við ákæru á hendur lögreglumanninum sem er ákærður vegna dauða Georges Floyd gæti þýtt að upphaf málflutnings tefjist um fleiri vikur og jafnvel mánuði. Byrjað er að velja kviðdómendur í málinu. 9.3.2021 10:25
Þurftu að loka fyrir heita vatnið á töluvert stærra svæði en áætlað var Veitur hafa þurft að loka fyrir heita vatnið í stórum hluta af Grundum og Ásum í Garðabæ. Upphaflega átti einungis að taka vatnið af fjórum húsum við Njarðargrund vegna viðgerðar en komið hafi í ljós að loka hafi þurft fyrir töluvert stærra svæði en áætlað var í fyrstu. 9.3.2021 10:23
Piers Morgan móðgaðist og strunsaði út úr stúdíóinu Piers Morgan, einn þáttastjórnanda Good Morning Britain á ITV-sjónvarpsstöðinni, strunsaði út úr myndverinu í beinni útsendingu í morgun í kjölfar umræðu um hið margumtalaða viðtal Opruh Winfrey við Meghan Markle og Harry Bretaprins. 9.3.2021 10:13
Starfsmaður Hagkaups í Garðabæ smitaður Starfsmaður Hagkaups í Garðabæ greindist jákvæður fyrir Covid-19 í gærkvöldi. Umræddur starfsmaður vinnur á nóttunni við áfyllingar og var við störf aðfaranótt laugardags og sunnudags um liðna helgi. 9.3.2021 09:56
Svipta Puigdemont og tvo til viðbótar friðhelgi Meirihluti Evrópuþingsins hefur samþykkt að svipta Evrópuþingmanninn Carles Puigdemont friðhelgi. Puigdemont er fyrrverandi forseti héraðsstjórnar Katalóníu, en auk Puigdemont hafa tveir Evrópuþingmenn til viðbótar verið sviptir friðhelgi. 9.3.2021 08:53
Krísufundir hjá konungsfjölskyldunni vegna viðtalsins Breska konungsfjölskyldan hefur haldið krísufundi í kjölfar viðtals Opruh Winfrey við hertogahjónin af Sussex, þau Meghan Markle og Harry Bretaprins. Viðtalið var frumsýnt á CBS-sjónvarpsstöðinni á sunnudagskvöld en sýnt í Bretlandi í heild sinni í gærkvöldi. 9.3.2021 08:42
Þrettán ára stúlka játar lygar sem leiddu til grimmilegs morðs Frönsk stúlka hefur játað að hafa logið um Samuel Paty, kennara sem var myrtur á grimmilegan máta í október. Lygar hennar og ófrægingarherferð föður hennar eru sagðar hafa leitt til dauða kennarans. 8.3.2021 23:50
Skólastjóri Salaskóla segir vandamál í prófunum „alvarleg mistök og hreinlega skandal“ Hafsteinn Karlsson, skólastjóri Salaskóla í Kópavogi, segir samræmdu prófin ekkert gildi hafa fyrir hvorki nemendur né skólastarf og það megi láta þau róa. Það séu alvarleg mistök að leggja próf fyrir nemendur í handónýtu kerfi. 8.3.2021 23:23
Á þessum bæ átti rekaviður stóran þátt í lífsafkomunni Gamlar eyðijarðar geyma merkilegar minjar um horfna búskaparhætti, sem afkomendur síðustu bænda hlúa að. Þannig má víða á strandjörðum norðaustanlands vel sjá hvað nýting rekaviðar átti stóran þátt í lífsafkomu fólksins. 8.3.2021 23:04
Leita að nýra fyrir Glóð: „Við ætlum að gera allt sem við getum til að bæta lífsgæði Glóðar“ „Ég spurði lækninn hvað fólk gerði. Hvort það væri jafnvel að auglýsa eftir nýra á Facebook og hann sagði já. Fólk gerir það, þannig að við ákváðum að prufa,“ segir Selma Dan Stefánsdóttir, sem í kvöld birti færslu á Facebook þar sem hún auglýsir eftir nýra fyrir dóttur sína, Glóð. 8.3.2021 22:21
Ráðuneytið þurfi að tryggja fullnægjandi kerfi eða fella niður samræmd próf Salvör Nordal, umboðsmaður barna, segir óásættanlegt að samræmd próf séu ítrekað lögð fyrir í prófakerfi sem sé metið „algjörlega ófullnægjandi“ af skipuleggjendum þeirra. Menntamálaráðuneytið þurfi annað hvort að tryggja fullnægjandi prófakerfi eða fella alfarið niður samræmd próf. 8.3.2021 21:03
Lilja þurfi að svara fyrir ákvörðun um áfrýjun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra verða að svara því hvers vegna hún ætlar að áfrýja dómi héraðsdóms, sem komst að þeirri niðurstöðu að úrskurður kærunefndar jafnréttismála stæði óhaggaður. 8.3.2021 20:27
Vísar á bug gagnrýni um að starfsfólk hafi ekki verið látið vita nógu fljótt Sýni hjá 70 starfsmönnum og sjúklingum hafa verið tekin á Landspítala eftir að starfsmaður greindist með kórónuveiruna á laugardag. Sýni hafa verið tekin í gær og dag og hafa hingað til öll reynst neikvæð. 8.3.2021 19:59
Hlutfallslega margir sem fari á hjúkrunarheimili Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, segir Norðurlöndin standa Íslandi mun framar í þjónustu við eldri borgara. Þar bjóðist eldri borgurum heimahjúkrun í meira mæli og fólk fari seinna á hjúkrunarheimili en þekkist hér á landi. 8.3.2021 19:00
Jarðhræringar á Reykjanesi: Kvikan á um eins kílómetra dýpi Aðeins hefur dregið úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesi frá því á miðnætti en sérfræðingar telja þó jarðskjálftavirknina ekki í rénun. Kvikan sem ferðast á milli í kvikuganginum sem hefur myndast við Fagradalsfjall er að mati sérfræðinga á um eins kílómetra dýpi. 8.3.2021 18:30
Islandczycy powinni zachować ostrożność Minister ma nadzieję, że nie dojdzie do nowej fali. 8.3.2021 18:21
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Mikill fjöldi fólks hefur farið í sýnatöku í dag og í gær vegna tveggja einstaklinga sem smituðust utan sóttkvíar um helgina. Þar á meðal starfsmenn Landspítala, tónleikagestir í Hörpu og íbúar í fjölbýlishúsi þar sem smitið átti sér stað. 8.3.2021 18:01
Nowe przypadki COVID-19 Obecnie w izolacji przebywa piętnaście osób, w piątek było ich dziesięć. 8.3.2021 18:00