Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ströngustu aðgerðir frá upphafi tekið gildi í Noregi Borgaryfirvöld í Osló hafa kallað eftir því höfuðborgarsvæðið verði sett í forgang hvað varðar bólusetningu gegn covid-19. Ströngustu reglur um sóttvarnir og aðgerðir til að koma í veg fyrir útbreiðslu kórónuveirunnar hafa tekið gildi á ákveðnum svæðum í Noregi, þær ströngustu frá upphafi faraldursins. Aðgerðir voru hertar eftir að svokallað breska afbrigði veirunnar fór að skjóta upp kollinum í nágrannasveitarfélagi höfuðborgarinnar. 23.1.2021 14:08
Telur enga ástæðu til að hræðast kynningu Borisar Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur ekki ástæðu til að hræðast niðurstöður rannsókna á hinu svokallaða breska afbrigði kórónuveirunnar, sem forsætisráðherra Bretlands kynnti í gær. Niðurstöðurnar bendi vissulega til þess að afbrigðið gæti verið banvænna en önnur – en það sé þó alls ekki sannað. Þá eigi Íslendingar að halda áfram á sömu braut, sem hingað til hefur haldið afbrigðinu í skefjum. 23.1.2021 14:02
Bráðaofnæmi algengara í tilviki bólusetningar Pfizer en annarra bólusetninga 137 tilkynningar hafa borist Lyfjastofnun vegna gruns um aukaverkanir í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19. Sóttvarnalæknir segir rannsóknir sýna að bráðaofnæmi sé algengara í tilviki bóluenis Pfizer en annarra bólusetninga. 23.1.2021 13:24
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Hádegisfréttir Bylgjunnar hefjast á slaginu klukkan 12:00. 23.1.2021 12:03
Milljarðs halli á vetrarþjónustunni samhliða ákalli eftir aukinni þjónustu G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að þótt alltaf sé tekið mark á ábendingum frá vegfarendum um færð á vegum, þá þurfi Vegagerðin einnig að byggja ákvörðun um lokun vega á eigin upplýsingum. Þá sé um eins milljarðs halli á rekstri vetrarþjónustu á sama tíma og ákall séum aukna þjónustu. 23.1.2021 11:46
Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og var sá í sóttkví. Þrír greindust á landamærum í gær en ekki liggur fyrir hvort um virk smit var að ræða. Þetta staðfestir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu. 23.1.2021 11:20
„Þegar ég lendi í flóðinu þá er ég upp að hnjám þegar það stoppar“ Hannes Rúnarsson atvinnubílstjóri, sem lenti í snjóflóði á Öxnadalsheiði í gærkvöldi, kveðst undrandi yfir vinnubrögðum Vegagerðarinnar, sem hafi að hans mati allt of seint tekið ákvörðun um að loka heiðinni þrátt fyrir að hafa fengið upplýsingar um að heiðin væri ófær. Til allrar lukku hafi farið betur en á horfðist en snjóflóðið náði Hannesi upp að hnjám, en hann var í óða önn ásamt þremur öðrum við að moka upp fjölskyldubíl sem sat fastur í skafli þegar flóðið féll. 23.1.2021 11:07
Tugir mótmælenda handteknir í Rússlandi Tugir hafa verið handteknir í Rússlandi í morgun eftir að stuðningsmenn stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní komu saman til að mótmæla handtöku hans. Navalní og bandamenn hans kölluðu eftir mótmælum í kjölfar þess að hann var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir að hafa brotið gegn skilorði með því að fara til Þýskalands í sumar. 23.1.2021 10:57
Rýmingar vegna snjóflóðahættu á Ísafirði Ákveðið hefur verið að rýma hús á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Í tilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir að um reit níu sé að ræða og á honum sé atvinnuhúsnæði sem tryggt hafi verið að væru mannlaus í gærkvöldi. 23.1.2021 09:52
Biden biðst afsökunar vegna aðbúnaðar þjóðvarðliða Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur beðist afsökunar vegna aðbúnaðar liðsmanna í þjóðvarðliði Bandaríkjanna, sem stóðu vaktina við þinghúsið, sem neyddust til að sofa í bílakjallara. 23.1.2021 09:36
Ekkert ferðaveður fyrir norðan Akstursskilyrði á norðanverðu landinu eru víða slæm og ekki ferðaveður. Fjallvegir eru ófærir eða lokaðir víða á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi og var Öxnadalsheiðinni til að mynda lokað í gærkvöldi vegna snjóflóða. 23.1.2021 09:31
Málflutningur gegn Trump hefst 8. febrúar Málaferlin gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fyrir embættisbrot munu hefjast þann 8. febrúar næstkomandi. Þá munu lögmenn beggja fylkinga flytja upphafsræður sínar í öldungadeild Bandaríkjaþings. 23.1.2021 08:54
Ári eftir útgöngubann er lífið í Wuhan komið í fyrra horf Ár er liðið frá því að kínversku borginni Wuhan var svo gott sem lokað vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar og um ellefu milljónir íbúa borgarinnar þar sem veiran greindist fyrst í mönnum, settir í algjört útgöngubann. Í dag er líf íbúa að mestu komið í sitt gamla horf en heimurinn stendur enn í ströngu. 23.1.2021 08:04
Þjóðþekktir á meðal hinna hugrökku á slysstað í Skötufirði Lögreglan á Vestfjörðum segir að fjórir vegfarendur sem fyrstir komu á vettvang umferðarslyssins í Skötufirði þann 16. janúar hafi sýnt mikið hugrekki og unnið vel á vettvangi. Fjórmenningarnir eru sumir hverjir þjóðþekktir og segir lögregla að þeir hafi veitt fyrstu hjálp í slysinu. Á endanum kostaði slysið unga móður og barn hennar, sem búsett voru á Flateyri, lífið. 23.1.2021 08:00
Tekinn í fimmta sinn án gildra réttinda Þrjár tilkynningar bárust lögreglu um þjófnað í verslun á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldið og í nótt. Þá var mikið um ökumenn sem stöðvaðir voru vegna gruns um að þeir væru að aka undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. 23.1.2021 07:20
Bílaleiga Akureyrar með 20 Hyundai Kona EV til leigu Bílaleigan Akureyrar - Höldur ehf., hefur tekið við tuttugu bílum af gerðinni Hyundai Kona EV sem bílaleigan fékk afhenta nýlega hjá Hyundai á Íslandi við Kauptún í Garðabæ. Um er að ræða Premium útgáfu þessa 100% rafbíls sem búinn er ríkulegum öryggis- og þægindabúnaði ásamt stærri og langdrægari rafhlöðunni, 64 kWh, sem skilar 204 hestöflum og allt að 449 km drægni á rafhlöðunni. 23.1.2021 07:00
Útlit fyrir töf á afhendingu AstraZeneca innan Evrópusambandsins Færri skammtar af bóluefni AstraZeneca verða afhentir innan Evrópusambandsins næstu vikurnar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Búist var við hundrað milljónum skammta á fyrsta ársfjórðungi, en samkvæmt Financial Times gætu þeir orðið færri en fjörutíu milljónir. 22.1.2021 23:15
Harma að myndlistamenn tortyggi eigin fulltrúa Samband íslenskra myndlistarmanna hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðu um úthlutunarnefnd starfslauna myndlistarmanna. Yfirlýsingin kemur í kjölfar gagnrýni Snorra Ásmundarsonar myndlistarmanns, sem telur vinagreiða ráða för við úthlutunina. 22.1.2021 22:35
Fjölnir sigraði Snorra í formannskjörinu Fjölnir Sæmundsson, lögreglufulltrúi og varaþingmaður Vinstri grænna, hefur verið kjörinn nýr formaður stjórnar Landssambands lögreglumanna. Hann bar sigur úr býtum gegn Snorra Magnússyni sitjandi formanni. 22.1.2021 22:23
Dapurleg staða í Þýskalandi og víðar Á meðan staðan fer batnandi hér heima heldur faraldurinn áfram að herja af fullum krafti á önnur ríki Evrópu. Takmarkanir voru hertar víða í dag. 22.1.2021 21:37
Áhyggjuefni að færri fari í sýnatöku Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir fulla ástæðu til að gleðjast yfir þeim árangri sem hefur náðst í baráttunni við kórónuveiruna í þessari þriðju bylgju faraldursins. Enginn smit greindust innanlands í gær, en hátt í sjö hundruð fóru í sýnatöku. 22.1.2021 21:35
„Við máttum ekki alveg við þessu“ Forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir að gríðarlegur vatnsleki í skólanum í fyrrinótt sé enn eitt áfallið fyrir nemendur, ofan á erfiðar annir sem undangengnar eru í kórónuveirufaraldrinum. Hreinsunarstarf gekk vel í skólanum í dag. 22.1.2021 21:00
Réttarhöldin hefjast í næstu viku Réttarhöldin yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefjast í öldungadeild bandaríska þingsins í næstu viku. Þetta sagði Chuck Schumer, leiðtogi Demókrataflokksins í öldungadeildinni í dag. 22.1.2021 21:00
Eyvindur og Jóhannes hæfastir í Endurupptökudóm Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur komist að þeirri niðurstöðu að Eyvindur G. Gunnarsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, og Jóhannes Karl Sveinsson hæstaréttarlögmaður séu hæfastir umsækjenda um dómarastöðu við Endurupptökudóm. 22.1.2021 20:12
Zagrożenie lawinowe na północy Fiordów Zachodnich Istnieje ryzyko lawin spadających na drogę, w tym Súðavíkurhlíð, Eyrarhlíð i Flateyrarvegur. 22.1.2021 19:59
„Erfitt fyrir fólk að koma aftur í vinnuna eftir langa fjarveru“ Sóttvarnalæknir telur aðgerðir á landamærum hafa skipt sköpum í baráttunni við kórónuveiruna. Hann er bjartsýnn á að það takist að slaka á sóttvarnaraðgerðum fyrr en til stóð en segir þó mikilvægt að flýta sér hægt. Sálfræðingur segir erfitt fyrir marga að mæta aftur til vinnu eftir langa fjarveru nú þegar vinnustaðir eru farnir að bjóða fleirum að mæta aftur á skrifstofurnar. 22.1.2021 19:41
Niska liczba nowych zakażeń napawa optymizmem Wczoraj w kraju nie zdiagnozowano żadnych nowych przypadków, a zbadanych zostało prawie siedemset osób. 22.1.2021 19:06
Áfram hættustig á Siglufirði Óvissustig verður áfram á öllu Norðurlandi og hættustig á Siglufirði vegna snjóflóðahættu. Afleitt verður hefur verið fyrir norðan í dag, hvöss norðanátt með snjókomu eða éljum. 22.1.2021 18:58
„Ég ætla að hugsa vel um hendurnar hans“ Guðmundur Felix Grétarsson, sem gekkst undir handaágræðslu í Frakklandi í síðustu viku, braggast vel eftir aðgerðina. Hann hlakkar mest til að verða sjálfbjarga á ný og er hæstánægður með nýju hendurnar, sem hann segir meira að segja dálítið líkar höndunum sem hann missti. 22.1.2021 18:17
Óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum, en nokkur minni snjóflóð hafa verið að falla á svæðinu. Ekkert þeirra hefur þó náð niður á veg. 22.1.2021 18:16
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir telur aðgerðir á landamærum hafa skipt sköpum í baráttunni við kórónuveiruna og er bjartsýnn á að það takist að slaka á sóttvarnaraðgerðum fyrr en til stóð. 22.1.2021 17:57
Mögulega hærri dánartíðni meðal þeirra sem smitast af breska afbrigðinu Fyrstu niðurstöður rannsóknar á hinu svokallaða breska afbrigði kórónuveirunnar benda til þess að það gæti verið hættulegra heilsu fólks og leitt til verri veikinda. Þetta er haft eftir Boris Johnson forsætisráðherra á vef breska ríkisútvarpsins. 22.1.2021 17:27
Fyrsti þeldökki varnarmálaráðherra Bandaríkjanna Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur staðfest tilnefningu fyrrverandi herforingjans Lloyd J. Austin til embættis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Hann er fyrsti þeldökki varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. 22.1.2021 16:31
Skotið á skrifstofur þriggja flokka og SA á einu ári Lögregla telur að skotið hafi verið á skrifstofur Viðreisnar, Sjálfstæðisflokksins, Samtaka atvinnulífsins og nú Samfylkingarinnar á einu ári. Talið er að notast hafi verið við loftriffil í öllum tilvikum. 22.1.2021 16:20
Mál Jón Baldvins sent aftur heim í hérað Héraðsdómur Reykjavíkur þarf að taka aftur fyrir frávísunarkröfu Jóns Baldvins Hannibalssonar fyrrverandi utanríkisráðerra í dómsmáli er varðar meinta kynferðislega áreitni hans á hendur Carmen Jóhannsdóttur. Þetta er niðurstaða Landsréttar. 22.1.2021 16:01
Leiðtogar smyglhringsins dæmdir í fangelsi Fjórir menn hafa verið dæmdir samtals 78 ára í fangelsi vegna dauða 39 farandmanna og kvenna frá Víetnam sem fundust í gámi í Essex árið 2019. Fólkið hefði kafnað í gámnum á meðan verið var að flytja hann frá Belgíu til Bretlands. 22.1.2021 15:19
Þóra áfrýjar málinu gegn Íslensku óperunni Þóra Einarsdóttir óperusöngkona hefur ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 8. janúar, þar sem Íslenska óperan var sýknuð af kröfu Þóru um vangoldin laun vegna þátttöku hennar í uppsetningu óperunnar á Brúðkaupi Fígarós árið 2019. 22.1.2021 15:12
Börnin nutu vafans og skólabílstjóri fær engar bætur Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað Dalabyggð af kröfu manns um miska- og skaðabætur fyrir að hafa neitað honum um starf sem skólabílstjóri. Sveitarfélagið sendi verktakafyrirtæki sem annaðist aksturinn bréf þar sem tilkynnt var um þá ákvörðun að hafna því að maðurinn myndi sinna slíkum akstri. 22.1.2021 15:09
Sex mánaða dómur fyrir að keyra á nágranna sinn Landsréttur staðfesti í dag sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir Ragnari Val Björgvinssyni fyrir að hafa ekið á nágranna sinn Hreggvið Hermannsson í desember 2017. Dómur var kveðinn upp klukkan 14 og staðfesti Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari niðurstöðuna í samtali við fréttastofu. 22.1.2021 14:33
Tomasz og fjölskylda þakka þeim sem komu að slysinu Lögregla hefur komið á framfæri kæru þakklæti frá Tomasz Majewski og fjölskyldu hans til vegfarenda sem voru fyrstir á vettvang í Skötufirði á laugardag og til allra viðbragðsaðila auk starfsfólks Landspítalans. 22.1.2021 14:26
Rúmlega fimmtíu þúsund Þjóðverjar hafa dáið vegna Covid-19 Fjöldi þeirra sem hafa dáið vegna Covid-19 í Þýskalandi er kominn yfir fimmtíu þúsund. Yfirvöld þar opinberuðu í dag 859 dauðsföll milli daga og samkvæmt opinberum tölum hafa 50.642 dáið þar í landi. 22.1.2021 14:26
Tókst að fá samband við Trump um borð í Air Force One með því að þykjast vera Piers Morgan Óprúttnum aðilum tókst að fá samband við Donald Trump, þáverandi forseta Bandaríkjanna, í október síðastliðnum með því að þykjast vera sjónvarpsmaðurinn umdeildi Piers Morgan. 22.1.2021 14:07
Sex vilja gegna embætti forstjóra Hafró Alls sóttu sex um embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar sem auglýst var þann 19. desember 2020. Umsóknarfrestur rann út þann 19. janúar síðastliðinn, en í hópi umsækjenda er núverandi forstjóri, Sigurður Guðjónsson. 22.1.2021 13:35
Bandamenn Navalnís handteknir vegna mótmæla Bandamenn rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní, hafa verið handteknir vegna ætlana þeirra um að halda mótmæli vegna handtöku Navalnís víða um Rússland á morgun. Meðal þeirra eru þær Lyubov Sobol, og Kira Jarmísj, talskona Navalnís. 22.1.2021 12:42
Endurtekið skotið á skrifstofur íslenskra stjórnmálaflokka Svo virðist sem endurtekið sé skotið á skrifstofur íslenskra stjórnmálaflokka hér á landi. Starfsmenn á skrifstofu Samfylkingarinnar sáu göt á rúðum skrifstofu flokksins í Sóltúni. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu fundust litlar byssukúlur á vettvangi. 22.1.2021 12:26
Loðin svör gervigreindar sem brjóti gegn höfundarrétti: „Engin þakklæti til stofnunarinnar“ Innlent