Bílar

Bílaleiga Akureyrar með 20 Hyundai Kona EV til leigu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Pálmi Viðar Snorrason, aðstoðarframkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar, og Heiðar J. Sveinsson, framkvæmdastjóri Hyundai á Íslandi, við nýjan Hyundai Kona EV.
Pálmi Viðar Snorrason, aðstoðarframkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar, og Heiðar J. Sveinsson, framkvæmdastjóri Hyundai á Íslandi, við nýjan Hyundai Kona EV.

Bílaleigan Akureyrar - Höldur ehf., hefur tekið við tuttugu bílum af gerðinni Hyundai Kona EV sem bílaleigan fékk afhenta nýlega hjá Hyundai á Íslandi við Kauptún í Garðabæ. Um er að ræða Premium útgáfu þessa 100% rafbíls sem búinn er ríkulegum öryggis- og þægindabúnaði ásamt stærri og langdrægari rafhlöðunni, 64 kWh, sem skilar 204 hestöflum og allt að 449 km drægni á rafhlöðunni.

Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá BL og Bílaleigu Akureyrar.

Vel búnir og langdrægir

Að sögn Pálma Viðars Snorrasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Bílaleigu Akureyrar, verða bílarnir til taks á stærri starfsstöðvum bílaleigunnar fyrir jafnt innlenda sem erlenda leigutaka. Einnig verða þeir í boði í langtímaleigu, þar sem leigutíminn eru allt frá 3 að 36 mánuðum. „Við rekum í dag tæplega 150 rafbíla af ýmsum tegundum, þar á meðal frá Nissan, Renault og BMW frá BL auk annarra rafbílategunda,“ segir Pálmi Viðar. Hann segir nýju Hyundai Kona EV rafbílana hreina viðbót við stækkandi rafbílaflota fyrirtækisins sem er í samræmi við þá hugarfarsbreytingu landsmanna að velja í auknum mæli umhverfismilda bíla, hvort sem það eru rafbílar, tengiltvinn- eða tvinnbílar. „Við erum mjög ánægð með nýju viðbótina frá Hyundai. Þarna er kominn mjög vel útbúinn og þægilegur bíll í allri umgengni með allt að 449 kílómetra drægni samkvæmt WLTP. Það eru einmitt svona bílar sem við höfum verið að bíða eftir. Það verður spennandi að sjá hvernig þeir reynast í rekstrinum,“ segir Pálmi.

Eina umhverfisvottaða bílaleigan

Bílaleiga Akureyrar er með ríflega 4.000 bíla í flota sínum og þar af meira en 500 umhverfismilda bíla af ýmsum gerðum. Markmið fyrirtækisins er að auka hlutfall þeirra í flotanum á næstu árum enda eru umhverfismál á meðal forgangsatriða í rekstrinum. Árið 2010 hlaut Bílaleiga Akureyrar umhverfisvottunina ISO 14001 sem viðhaldið hefur verið æ síðan og er fyrirtækið jafnframt eina bílaleiga landsins með vottunina.

Hlakka til að sjá erlenda ferðamenn á Kona EV

Heiðar J. Sveinsson, framkvæmdastjóri Hyundai á Íslandi, er ánægður með samninginn við Bílaleigu Akureyrar sem átt hefur áratugalangt farsælt samstarf við BL um val á bílaleigubílum. „Hyundai Kona EV hefur komið mjög vel út á mörkuðunum. Hann er hástæður og þægilegur í allri umgengni, tæknilega vel búinn og síðast en ekki síst langdrægur. Ég hlakka til að sjá þessa bílaleigubíla í borgarumferðinni og á þjóðvegum landsins þegar við fáum erlenda ferðamenn á ný til landsins. Ég er þess fullviss að viðskiptavinir Bílaleigu Akureyrar verða ánægðir með Kona EV,“ segir Heiðar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×