Fleiri fréttir

Elgur stöðvaði flugumferð

Flug til og frá Midlanda flugvelli í sænska bænum Sundsvall stöðvaðist í um klukkustund fyrr í kvöld.

Hraunið nú rúmir sex ferkílómetrar

Jarðeðlisfræðingur Veðurstofunnar segir að mælingar hafi sýnt að frá klukkan tvö í dag hafi hraunið verið að hlaðast upp við jaðra hraunsins, frekar en að breiðast út.

Stærstu eldsúlurnar stærri en í gær

„Nú á þriðja degi eldgossins er ekki að sjá að neitt hafi dregið úr kraftinum, þvert á móti virðist sem stærstu eldssúlurnar séu jafnvel talsvert hærri og meiri en þegar við vorum þarna í gær,“ segir Kristján Már Unnarsson fréttamaður.

Upplýsir ekki um leiguverð vegna Timberlake-tónleika

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogsbæjar segir að verð sem Sena greiddi fyrir leigu á Kórnum undir tónleika Justin Timberlake sé trúnaðarmál. Auk bæjarfulltrúa fengu makar bæjarfulltrúa boðsmiða á tónleikana en Ármann segir að boðsmiðar fyrir maka hafi verið vegna fjölskyldustefnu Kópavogsbæjar.

Leikskólakennarar semja

Félag stjórnenda leikskóla og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir nýjan kjarasamning í húsakynnum Ríkissáttasemjara um klukkan þrjú í dag.

„Sleggja“ verður ritstjóri

Kristinn H. Gunnarsson, fyrrum alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn og formaður þingflokksins, hefur verið ráðinn ritstjóri blaðsins Vestfirðir.

Heimsfrumsýning Volvo XC90

Aldrei fyrr hefur jeppi verið fáanlegur með jafn miklu afli samhliða jafn lítilli eyðslu og lítilli CO2-losun.

Ísafjarðarbær í samstarf við Skema

Ísafjarðarbær í samstarfi við Skema hafa skrifað undir 14 mánaða samstarfssamning sem miðar að því að byggja upp og tryggja árangursríka innleiðingu á upplýsingatækni í skólastarf Ísafjarðarbæjar og nágrennis.

Yfir ein og hálf milljón heimsókna

Rúmlega ein og hálf milljón hefur heimsótt síðu Mílu, livefromiceland.is frá því Míla setti upp vefmyndavélar við Vaðöldu með útsýni yfir Bárðarbungusvæðið og kom þeim í loftið.

Minni skjálftavirkni

Frá miðnætti hafa mælst um 300 skjálftar en 500 á sama tímabili í gær.

Funduðu vegna Hoyvíkursamningsins

Töluverð umræða hefur verið um Hoyvíkur-samninginn undanfarna daga eftir að færeyskt skip átti ekki að fá þjónustu í Reykjavíkurhöfn.

69 þúsund umsóknir

Áfram verður tekið við umsóknum um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán og hafa 27.500 einstaklingar þegar sótt um þann hluta aðgerðar stjórnvalda um lækkun höfuðstóls húsnæðisskulda.

„Ég er þjónandi leiðtogi“

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, nýr lögreglustjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, rifjaði upp skemmtilega sögu frá því hún var sýslumaður á Ísafirði í Íslandi í dag.

Sveinn Andri krefur DV um tíu milljónir króna

"Honum er velkomið að útskýra fyrir þjóðinni hvernig það gerist að maður á þessum aldri, líklega fimmtugur, er í sambandi við jafn ómótaðan einstakling og sextán ára stúlka hlýtur að vera,“ segir Reynir Traustason, ritstjóri DV.

Lögreglumaður tók "selfie“ á meðan maður reyndi sjálfsvíg

Vegfarandi sem var staddur á brúnni náði mynd af lögreglumanninum, þegar hann tók hina umdeildu "selfie“. Málið hefur vakið athygli á samskiptamiðlum og telja margir að lögreglumaðurinn hafi brotið á sér með því að taka þessa mynd.

Norrænt fæði bætir heilsuna

Norrænn matur, sem inniheldur til dæmis rótargrænmeti og kjöt af villtum dýrum, getur verið jafnhollur og Miðjarðarhafsmatur. Þetta er niðurstaða könnunar danskra vísindamanna

Samúðarfylgi Sjálfstæðisflokksins

Sigrún Magnúsdóttir telur hugsanlegt að framsóknarmenn séu of galvaskir og veltir því fyrir sér hvort þjóðarsálin sé farin að vorkenna sjálfstæðismönnum?

Sjá næstu 50 fréttir