Fleiri fréttir

Ferðaþjónustuaðilar skipuleggja ferðir á gosstöðvar

Lokanir vega vegna eldgoss norðan Vatnajökuls hafa kostað ferðaþjónustufyrirtæki allt að tvær milljónir á dag. Mesta tjónið af lokun Dettifossvegar að vestan. Byrjað er að skipuleggja ferðir að gosstöðvum í Holuhrauni.

„Frábærar fréttir, ég er klár ásamt maka“

Bæjarstjóri Kópavogs segir hvern og einn bæjarfulltrúa hafa þegið tvo boðsmiða á tónleika Justins Timberlake. Varabæjarfulltrúi Framsóknar, sem telur siðareglur kunna að hafa verið brotnar, fékk enga miða því bæjarfulltrúi flokksins nýtti þá.

Grænt ljós á pípurnar úr Hverahlíð

"Af sex holum sem boraðar hafa verið við Hverahlíð eru fjórar vinnsluhæfar og gefa gufu sem er fyrir um það bil eina vél í Hellisheiðavirkjun,“ segir í samþykkt sveitarstjórnar Ölfuss sem hefur leyft Orkuveitunni leyfi fyrir framkvæmdum í Hverahlíð.

Sækja fast að vígasveitum IS í Írak

Sameinuðu þjóðirnar tilkynntu í dag að til standi að senda teymi til Íraks til að rannsaka þau stórkostlegu grimmdarverk sem hafa verið framin í landinu af hálfu liðsmanna IS.

Flatarmál hraunsins nú rúmir fjórir ferkílómetrar

TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, flaug yfir umbrotasvæðið við norðanverðan Vatnajökul milli klukkan 13:45 og 16:30 í dag. Gossprungan er um 1,5 kílómetri og er samfellt gos á um 600 til 800 metra löngum kafla.

Hvað á nýja eldstöðin að heita?

Fjölmargar tillögur um nafn á nýju eldstöðina hafa borist fréttastofu. Flestir leggja til Drekahraun og þá hafa einnig fjölmargir lagt til Bárðarhraun.

Álíka en kraftmeira en gosið 1984

Eldgosið í Holuhrauni stendur enn yfir, en geta í fyrramálið lagt mat á það hvort þrýstingurinn í bergganginum hafi minnkað eða einfaldlega færst annað. Vísindamenn hafa nú áhyggjur af gasmagni á svæðinu.

Mikið vatnstjón árlega

Meira en 150 tilkynningar hafa borist tryggingafélögum í dag vegna vatnstjón í gær samkvæmt upplýsingum, Sjóvá, VÍS og TM í dag en búist er við að þeim fjölgi á næstu dögum. Vatnstjón verður víða á hverju ári.

Siggi hakkari mætti fyrir dóm

Fyrirtaka var í máli Sigurðar Inga Þórðarsonar, oft nefndur Siggi hakkari, í Héraðsdómi Reykjaness í dag en þá lagði ákæruvaldið fram vitnalista.

Fura og fjallaþinur sviðin

Talsvert er um að tré hafi drepist á Suðurlandi en skógarbændur tóku fyrst eftir skaðanum í apríl.

Án súrefnis á sjötta hæsta tindinn

Vilborg Arna Gissurardóttir og vinur hennar Atli Pálsson hefja á miðvikudaginn leiðangur upp fjallið Cho You í Tíbet, sjötta hæsta fjall jarðarinnar.

Vara við tölvuþrjótum

Síminn varar eindregið við þrjótum sem hafa sent tölvupóst á landsmenn þar sem óskað er eftir kreditkortaupplýsingum í nafni fyrirtækisins.

"Ég öskraði og fangaverðirnir komu“

"Reiðin í andliti hans er mér minnistæðust,“ segir starfsmaður Litla-Hrauns sem í dag bar vitni í máli Matthíasar Mána Erlingssonar sem varð fyrir fólskulegri líkamsárás samfanga sinna í samnefndu fangelsi á síðasta ári.

Hvolpurinn kostar 350 þúsund krónur

Ásta í Dalsmynni segir kolsvarta starfsemi fara fram í hundaræktun hér á landi og því sæti hún ofsóknum, með umdeilda starfsemi sína. Ásta vill fá tvær milljónir frá lögmanninum Árna Stefáni Árnasyni vegna meiðyrða.

Báðir aðilar sekir um ódæði

Bæði vígamenn Íslamska ríkisins og hermenn íraska hersins hafa gerst sekir um ýmiss ódæði í Írak undanfarna mánuði.

Læknir um eyrnakerti: "Ósigur skynseminnar“

"Eyrnakerti eru hvorki virk né hættulaus. Þau soga ekki einu sinni merg, hvað þá annað," segir Björn Geir Leifsson skurðlæknir og bendir á niðurstöður vísindarannsókna máli sínu til stuðnings.

Breyttur útivistartími tekur gildi

Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. september. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00.

Sjá næstu 50 fréttir