Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn mótmælt í Tælandi Fjölmenn mótmæli hófust í morgun í Tælandi, þriðja daginn í röð. Þúsundir mótmælenda haf umkringt helstu stjórnarbyggingar höfuðborgarinnar Bangkok. 26.11.2013 08:09
Smita sig viljandi af HIV veirunni Á Grikklandi hefur það færst í vöxt að fólk smiti sig viljandi af HIV veirunni, til þess að komast á bætur. Þetta kemur fram í skýrslu frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni sem rannsakaði áhrif fjármálakreppunnar á löndin í Evrópu. 26.11.2013 07:43
Kallað eftir aðgerðum í Miðafríkulýðveldinu Aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna kallaði í gær eftir viðbrögðum frá öryggisráðinu vegna ástandsins í Miðafríkulýðveldinu. Jan Eliasson hvatti öryggisráðið til þess að efla sveitir friðargæsluliða í landinu þar sem til stendur að halda kosningar í næstu viku. 26.11.2013 07:35
Ætlaði að sofa úr sér í bílnum Lögregla hafði afskipti af ölvuðum manni, sem sat í bíl sínum í miðborginni um hálf fjögur leitið í nótt og var bíllinn í gangi. Hann sagðist hafa ætlað að sofa í honum í nótt, en niðursaðan varð sú, að hann færi á hótel og að lögreglan geymdi bíllyklana þar til að hann teldist hæfur til að aka á ný. 26.11.2013 07:34
Sjálfstæðismenn myndu missa meirihlutann í Árborg Hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Árborgar væri falllinn ef kosið yrði nú, samkvæmt skoðanakönnun, sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir Morgunblaðið. 26.11.2013 07:31
Mýrdælingar vilja halda vegi á skrá Sveitarstjórn Mýrdalshrepps harmar ákvörðun Vegagerðarinnar um að taka veg sem liggur inn í Heiðardal og að Heiðarvatni af vegaskrá. 26.11.2013 07:00
Vertíð lokið í Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum Þangslætti hjá Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum er nú lokið á þessari vertíð. Alls voru slegin 14.000 tonn af þara á vertíðinni og framundan næstu mánuði er mjölvinnsla úr hrossaþara. 26.11.2013 07:00
Skylda að upprunamerkja kjötvörur árið 2015 Áramótin 2014/2015 taka gildi nýjar reglur um merkingar kjötvara. 26.11.2013 07:00
Íslenskur þjálfari slapp naumlega frá drápshvelinu Sigfús Halldórsson var fyrsti þjálfari háhyrningsins Tilikums. Háhyrningurinn réðst á Sigfús þegar verið var að færa hann milli lauga í Sædýrasafninu, beit góðan bút úr baki blautbúningsins og dró hann niður. 26.11.2013 06:45
Reyna að fæla síld með upptökum af háhyrningum Hljóð frá háhyrningum að éta síld verða spiluð í Kolgrafafirði til að freista þess að reka síldina út. Veiðar smábáta verða leyfðar áfram. Fylgst er stöðugt með súrefnismettun í firðinum. Hafró mælir stærð síldartorfunnar þar inni á næstunni. 26.11.2013 06:15
Sammála um að svigrúm til launahækkana sé ekki mikið Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hélt fund um komandi kjarasaminga með ríkissáttasemjara í gær. 26.11.2013 06:00
Þúsundir ferðamanna traðka niður Laugaveginn Göngustígar í Þórsmörk og á nálægum svæðum eru að töluverðum hluta í afleitu ástandi. Innspýtingu fjármagns þarf ef mögulegt á að vera að snúa þróuninni við. Takmarka þarf fjölda ferðamanna og stýra umferð. 26.11.2013 06:00
Hundruð MR-inga á fund ráðherra Nemendur Menntaskólans í Reykjavík gengu fylktu liði að menntamálaráðuneytinu í gærdag og afhentu menntamálaráðherra undirskriftalista. 26.11.2013 06:00
Kynna aðgerðir í lok þessarar viku Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skuldamálum heimilanna verða kynntar í lok vikunnar. 26.11.2013 06:00
Kínverjar stefna á tunglið Senda könnunarjeppa til tunglsins í næsta mánuði. Geimstöð og mannaðar ferðir á teikniborðinu. 26.11.2013 00:01
Þjófur fær það óþvegið Myndband af Germaine Yeap, 28 ára malasískri konu, sem tekur í lurginn á óprúttnum þjófi, nýtur mikilla vinsælda á netinu. 26.11.2013 16:36
Fundu ekki ástæðu fyrir fjöldamorðinu í Sandy Hook Höfundum skýrslu um atvikið þegar Adam Lanza myrti 26 manns Sandy Hook skólanum í ríkinu Connecticut í Bandaríkjum, tókst ekki að finna neina ástæðu fyrir ódæðinu. 25.11.2013 23:56
Innyflum og hausum hent í fjöruna við Skarðsvík Úrgangi frá nýslátruðum hestum var hent á víðavangi á Snæfellsnesi. 25.11.2013 23:22
Misþyrmingar í svínabúi náðust á myndband Stærsti kjötframleiðandi Bandaríkjanna bregst við viðurstyggilegu dýraníði. 25.11.2013 23:12
Kvennalistakonur báru kyndla Félagsmál UN Women á Íslandi stóðu fyrir Ljósagöngu á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi í gær. 25.11.2013 23:00
Þorskstofninn aldrei sterkari Niðurstöður liggja nú fyrir úr haustralli Hafrannsóknastofnunar Íslands. Meðal niðurstaðna var að heildarvísitala þorsks mældist sú hæsta frá 1996. 25.11.2013 22:50
Kampavínsklúbburinn Strawberries opnaður á ný Staðnum var lokað í síðasta mánuði eftir að nokkrir gestir staðarins voru handteknir vegna gruns um vændiskaup. 25.11.2013 22:15
Vill endurmeta inngöngukröfur í Lögregluskólann Lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur mikilvægt að endurmeta inngöngukröfur í Lögregluskólann og segir þær vera barn síns tíma. Hún segir mikilvægt að lögreglustéttin endurspegli samfélagið. 25.11.2013 20:11
Landsbankinn opnar nýja kynslóð útibúa Landsbankinn opnaði í dag nýja kynslóð bankaútibúa og það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. 25.11.2013 20:00
Drápsháhyrningurinn Tilikum mögulega á heimleið Háhyrningurinn Tilikum, sem orðið hefur þremur einstaklingum að bana, er mögulega á heimleið til Íslands. 25.11.2013 19:54
Sex milljarða skattafsláttur skilar sér ekki til neytenda Afnám gjalda ríkisins á endurnýtanlegu eldsneyti rennur beint til erlendra birgja 25.11.2013 19:00
„Herbergisfélagi minn er á leiðinni í skólann til að skjóta fólk“ Byssumaður gengur laus við Yale-háskóla. 25.11.2013 18:35
Segir að stjórnarandstaðan hafi ítrekað farið með rangt mál Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að skuldatillögur ríkisstjórnarinnar muni uppfylla kosningaloforð beggja stjórnarflokka. Hann segir að tillögurnar séu nú þegar búnar að fara í gegnum álagspróf. 25.11.2013 18:11
Ræða meintar hleranir Bandaríkjamanna Fulltrúar frá Póst- og fjarskiptastofnun mæta á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag til að ræða samskipti Íslands og Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna. 25.11.2013 15:48
Erfiðar og ósanngjarnar hugsanir á meðgöngu Kristín Guðmundsdóttir, sem missti tvíburadrengi, fékk þær fregnir að hún væri ólétt á ný þegar hún barðist fyrir bættum aðbúnaði foreldra sem missa á meðgöngu eða í fæðingu. Ísland í dag fékk að fylgja Kristínu á meðgöngu og eftir fæðingu. 25.11.2013 15:30
Oddný kveður stjórnmálin í vor Oddný Sturludóttir segir skilið við stjórnmálin eftir átta ára starf sem borgarfulltrúi. Hún segir fyrra kjörtímabil sitt hafa verið netta brjálsemi. 25.11.2013 15:30
Mannræningjarnir í Lundúnum ráku kommúnískan sértrúarsöfnuð Hjónin sem héldu þremur konum föngnum í 30 ár voru dæmd árið 1978 fyrir að ráðast á lögregluþjón. 25.11.2013 15:10
Vilja senda drápshvalinn heim Háhyrningurinn Tilikum, sem þegar hefur drepið þrjár manneskjur, er hugsanlega á leið heim til Íslands. 25.11.2013 15:09
Of mikill hávaði á Iceland Airwaves Fulltrúar á vegum Heilbrigðiseftirlitsins gerðu hljóðmælingar með "nýjum Brüel & Kjær hljóðmæli“. Varanleg heyrnarskemmd getur orðið á sekúndubroti ef hávaði fer yfir 140 desibil. 25.11.2013 14:44
Skiptir máli hvaða upplýsingum er lekið Þingmenn Pírata krefjast þess að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins verði kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í þessari viku, vegna leka á upplýsingum um tvo hælisleitendur í Fréttablaðinu í síðustu viku. 25.11.2013 14:26
Safna fartölvum fyrir fólk í Sambíu í kjölfar tölvuleitar fyrir Franciscu Forsvarsmenn söfnunarinnar segja eina fartölvu sem legið hefur ónotuð uppi í skáp á íslensku heimili geti gjörbreytt lífi margra í Sambíu. 25.11.2013 14:21
Dapurlegur málflutningur Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna segir að yfirlýsing forsætisráðherra um að stjórnarandstaðan muni ekki hika við að ljúga til að gagnrýna skuldatillögur ríkisstjórnarinnar sé dapurleg. 25.11.2013 14:11
Stórstjörnur á leiðinni til landsins Tökur á fyrstu seríu af sjónvarpsþáttunum Fortitude munu hefjast hér á landi í febrúar á næsta ári en þættirnir eru samstarfsverkefni sjónvarpsstöðvanna Sky Atlantic í Bretlandi og Starz í Bandaríkjunum. Alls verða teknir upp þrettán þættir og fara tökur aðallega fram á Reyðarfirði og Eskifirði. 25.11.2013 14:01
Réttað í máli Hilmars Leifssonar gegn DV feðgum Tekjur Hilmars Leifssonar og Hans Aðalsteins Helgasonar voru gefnar upp í frétt um glæpamenn. 25.11.2013 13:52
Fimleikalandsliðið í sprengjuhættu í Belfast Rýma þurfti verslunarmiðstöð í Belfast í gær eftir að sprengjuhótun barst lögreglunni þar í borg. Íslenska landsliðið í áhaldafimleikum var í verslunarmiðstöðinni þegar sprengjuhótunin var tilkynnt til lögreglunnar. 25.11.2013 13:26
Píratar vilja Hönnu Birnu fyrir þingnefnd vegna leka Jón Þór Ólafsson þingmaður Píratar óskar eftir því að að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og ráðuneytisstjóri verði kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. 25.11.2013 13:20
Árni Páll: Ekki framganga sem sæmir forsætisráðherra í lýðræðisríki Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar furðar sig á yfirlýsingu Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar forsætisráðherra um að stjórnarandstaðan muni ekki hika við að ljúga til að gagnrýna skuldatillögur ríkisstjórnarinnar. 25.11.2013 13:18
Actavis tekur hóstasaft af markaði vegna misnotkunar Upplýsingafulltrúi lyfjaframleiðandans staðfesti þetta í samtali við Vísi. Faraldur í Bandaríkjunum þar sem saftinni er blandað í gosdrykki sem vímugjafi. 25.11.2013 12:15
Á fimmta hundrað nemenda mótmæla fyrir utan menntamálaráðuneytið Nemendur við menntaskólann í Reykjavík fjölmenntu fyrir utan menntamálaráðuneytið í dag til að mótmæla framlags ríkistjórnarinnar til skólans í fjárlögum ársins 2014. 25.11.2013 11:57
Jón Gnarr vill nýtt ríkisfang Borgarstjórinn er ósáttur þar sem hann fær ekki að taka upp nafnið Gnarr. Í bréfi sem hann skrifar á ensku óskar hann eftir hjálp þar sem hann vill nýtt ríkisfang. 25.11.2013 11:35