Fleiri fréttir

Eldur í gasi í Hafnarfirði

Mikill viðbúnaður er í Gjáhellu í Hafnarfirði vegna elds í iðnaðarhúsnæði þar. Hefur Hellusvæðinu öllu verið lokað.

Telur reglugerðina brot á EES-samningnum

Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, gagnrýnir reglubreytingar á jarðarkaupum erlendra aðila á Íslandi. Innanríkisráðherra segir reglugerðina hagsmunamál fyrir íslenskt samfélag.

Rannsókn um samskipti á Facebook kynnt

Um helgina verður haldin Þjóðfélagsráðstefna við Háskólann á Bifröst þar sem yfir hundrað fyrirlestrar verða og margar nýjar rannsóknir kynntar.

Bættu 18 milljónum við lán í skuldaskjóli

Kona féll frá því að semja við Dróma um greiðslur af húsnæðisláni þegar í ljós kom að bætt var við lánið tæplega 18,5 milljónum króna í dráttarvexti. Umboðsmaður skuldara segir ekki mega leggja dráttarvexti á tímabil þegar lán voru í skuldaskjóli.

Eðvarð fór til Glasgow

Eðvarð Guðmannsson, sem lögreglan lýsti eftir í gær, fór til Glasgow. Nú þegar lögreglan veit hvað varð af honum hefur leitin verið afturkölluð.

Ólína í atvinnuleit

Ólína Þorvarðardóttir þingmaður bíður ekki boðanna og auglýsir eftir nýrri vinnu. Hún segir sjálfhætt í pólitíkinni eftir að hún datt út af þingi en hún ætlar að hafa skoðanir á þjóðmálum eftir sem áður.

Grunaðir smyglarar svara til saka

Ákæra var þingfest í morgun á hendur sjömenningum sem grunaðir eru um að hafa flutt inn 20 kíló af amfetamíni og 17 kíló af amfetamínbasa í byrjun ársins. Þetta er eitt stærsta fíkniefnamál sem komið hefur upp hér á landi í marga mánuði. Tíu manns voru handteknir á rannsóknarstigi málsins. Sex af þeim sættu gæsluvarðhaldi og voru fimm þeirra, auk tveggja annarra ákærðir. Tollvörður, sem sat um tíma í gæsluvarðhaldi, var ekki ákærður.

Skoppa og Skrítla mæta á hjólasöfnun

Hjólasöfnun Barnaheilla - Save the Children á Íslandi og hjólreiðakeppninnar Wow Cyclothon hefst í dag. Þetta er í annað sinn sem staðið er fyrir söfnun á notuðum reiðhjólum fyrir börn og unglinga, en söfnunin stendur til 3. júní 2013. Hjólunum verður safnað á endurvinnslustöðvum Gámaþjónustunnar, Hringrásar og Sorpu á

Bílveltur á Reykjanesbraut

Engin slasaðist þegar tveir bílar ultu með skömmu millibili út af Reykjanesbraut í Kúagerði á sjötta tímanum i morgun, en flughált var á brautinni.

Strandveiðibátur í klandri

Strandveiðibátur var dreginn til hafnar á Patreksfirði í gærkvöldi eftir að stýrisbúnaður bátisns bilaði og hann gat aðeins siglt í hringi.

Færri fara hringinn

Umferð um hringveginn dróst saman um 4,6 prósent í apríl, samanborið við sama mánuð í fyrra.

Sjóstöng á Vestfjörðum

Fyrstu hópar útlendinga mættir til að veiða á sjóstöng; þann gula, hlýra, steinbít og það sem bítur á.

Forsetinn keypti fyrsta armbandið

Sala á armböndum til styrktar ADHD-samtökunum hófst í gær en forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, keypti fyrsta armbandið við formlega athöfn á Bessastöðum. Salan á armböndum er liður í fjáröflun samtakanna en um leið er vakin athygli á starfi samtakanna og stöðu einstaklinga með ADHD.

Sigmundur segir enga fundi tímasetta

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í gær að engir fundir hefðu verið tímasettir í dag um hugsanlega stjórnarmyndun. „Menn eru að skoða málin og munu eflaust heyrast í framhaldi af því,“ sagði Sigmundur í svari til Fréttablaðsins.

Raflost gæti bætt framtíðarsýnina

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, var aðeins 19 ára gamall þegar hann fékk greiningu um að hann væri haldinn sjúkdómnum RP, eða Retinitis pigmentosa. Um hrörnunarsjúkdóm er að ræða sem minnkar sjónsviðið smátt og smátt. Sjón hans er takmörkuð við þröngan geisla niður fyrir tærnar á honum og til að sjá beint fram horfir hann upp á við. Helgi tekur nú þátt í tilraunaverkefni í háskólanum í Tübingen í Þýskalandi, þar sem rafstraumi er beint í augað í von um að sjónsviðið víkki.

Fíklar sækja í flogaveikilyf

Landlæknisembættið óttast viðvarandi misnotkun flogaveikilyfja. Brögð eru að því að fólk sem hefur lokið meðferð vegna vímuefnavanda falli aftur vegna notkunar lyfjanna, en þau ganga kaupum og sölum á götunni.

Yfirmaður Smartbíla á teppið vegna brota

Kópavogsbær hefur boðað Gunnar Torfason, yfirmann hjá Smartbílum, á fund vegna kynferðisbrota sem tvær þroskaskertar konur hafa tilkynnt af hendi bílstjóra fyrirtækisins. Smartbílar sjá um ferðaþjónustu fyrir fatlaða í Kópavogi, Mosfellsbæ og Garðabæ. Maðurinn hafði unnið í hálft ár hjá fyrirtækinu.

"Þetta eru einfaldlega umhverfishryðjuverk“

"Persónulega held ég að þetta sé keppni í því hver er mesti hálfvitinn. Svona eins og í sjónvarpsþáttunum Jack Ass,“ segir Bergljót Kristjánsdóttir, sérfræðingur Umhverfisstofnunar á verndarsvæði Mývatns og Laxár, um skemmdarverk sem voru unnin í Grjótagjá og gígbotni Hverfjalls í Mývatnssveit. "Þess vegna rukum við ekki með þetta í fjölmiðla strax vegna þess að umfjöllun er oft það sem svona skemmdarvargar eru að óska eftir.“

Karlforstjóri byggir á kvenlægum gildum

Hannes Frímann Hrólfsson er nýr forstjóri Auðar Capital. Hann tók við starfinu af Kristínu Pétursdóttur, sem gegnt hefur stöðunni frá upphafi, og er jafnframt fyrsti karlforstjóri fyrirtækisins.

Opnunartími Bláfjalla verður framlengdur

Útlit er fyrir aukaopnun í Bláfjöllum um helgina þar sem fjöllin eru enn þá snævi þakin. "Það er snjór eins og um miðjan vetur og verði bongóblíða er ekkert því til fyrirstöðu að hafa opið örlítið lengur,“ segir Einar Bjarnason, rekstrarstjóri Bláfjalla. Venju samkvæmt ættu skíðasvæðin að loka 1. maí. Opinber lokunarhelgi var því um síðustu helgi, en gekk ekki nógu vel að sögn Einars sökum veðurs.

23 á leið í læknanám í Slóvakíu

Alls þreyttu 23 íslenskir háskólanemar inntökupróf í læknisfræði við læknadeildina við Jessenius-háskóla í Slóvakíu í gær. Allir stóðust þeir prófið og munu því hefja nám við skólann næsta haust.

Sumarhúsin áður í eigu Björgólfs Thors

Þingvallanefnd hefur keypt þrjá sumarbústaði af LBI hf., slitastjórn gamla Landsbankans, sem staðsettir eru í landi þjóðgarðsins á Þingvöllum. Samningar um þetta voru undirritaðir 29. apríl síðastliðinn en kaupverð var 34,5 milljónir króna.

Ekkert klósettgjald næstu vikur

Gjaldhlið sem í fyrra var komið fyrir við salernin á Hakinu á Þingvöllum hafa verið tekin niður. Ástæðan er ekki sú að hætta eigi að innheimta aðgangseyri að salernunum heldur eru þau fjarlægð tímabundið á meðan reist verður tengibygging milli salernishúsanna tveggja.

11,4 milljónir í starfslokasamninga

Alls 9,9 milljóna króna tap varð af rekstri Ríkisútvarpsins (RÚV) á tímabilinu frá 1. september 2012 til 28. febrúar síðastliðins. Til samanburðar var níu milljóna króna hagnaður af starfsemi RÚV á sama tímabili ári fyrr. RÚV birti nýverið hálfsársuppgjör sitt vegna fyrrgreinds tímabils.

Deila ekki konum nema samkomulag liggi fyrir

Nýtt samkomulag liggur fyrir milli vélhjólagengjanna Bandidos og Hells Angels en í því má sjá meðal annars sjá að ekki eru það aðeins heilu bæjarfélögin sem klíkurnar deila.

Hverfandi áhrif klámgláps

Ný rannsókn leiðir það í ljós að klámgláp hefur lítil sem engin áhrif á kynferðislega hegðun.

Ögmundur breytir reglum um jarðarkaup útlendinga

Héðan í frá er erlendum aðila með lögheimili á evrópska efnahagssvæðinu óheimilt að kaupa jörð hér á landi nema kaupin séu sannarlega liður í því að hann nýti rétt sinn til að hafa hér á landi lögmæta dvöl eða starfsemi. Þetta felst í reglugerð sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra undirritaði þann 17. apríl síðastliðinn um kaup útlendinga með lögheimili á evrópska efnahagssvæðinu á fasteignum hér á landi. Ráðherra segir að reglugerðin sé sett með stoð í lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna nr. 19/1966 og hefur hún þegar öðlast gildi.

Páfar hittust í Vatíkaninu

Benedikt páfi emeritus sneri aftur í Vatíkanið í dag, tveimur mánuðum eftir að hann sagði af sér embætti páfa. Honum var flogið í Vatíkanið með þyrlu, en hann hefur verið fjarverandi að undanförnu. Þrátt fyrir að hafa látið af embætti páfa mun hann búa í Vatíkaninu til frambúðar, að því er segir á fréttavef BBC.

Kanadískt félag yfirtekur sérleyfi á Drekasvæðinu

Kanadískt olíufélag, Íþaka, er orðinn rétthafi og rekstraraðili annars af tveimur olíuleitarleyfunum á íslenska Drekasvæðinu eftir að það yfirtók breska olíufélagið Valiant. Ekki eru nema fjórir mánuðir liðnir frá því að íslensk stjórnvöld úthlutuðu fyrstu tveimur sérleyfunum til rannsókna og vinnslu olíu á Drekasvæðinu. Fulltrúi breska félagsins Valiant tók við öðru leyfinu sem rekstraraðili með 56,25% prósenta hlut en íslenska félagið Kolvetni, með 18,75%, og norska ríkisolíufélagið Petoro, með 25%, eru einnig aðilar að leyfinu. Nú hefur Ithaca Energy tekið yfir hlutverk Valiant sem rekstraraðili leyfisins en til þess þurfti samþykki Orkustofnunar. Kanadíska félagið gerði eigendum Valiant 36 milljarða króna yfirtökutilboð sem fallist var á og var endanlega gengið frá yfirtöku Íþöku á Valiant fyrir um tveimur vikum. Íþaka var stofnað í Alberta í Kanada árið 2004 og er skráð í kauphöllunum í Toronto og London. Meginstarfsemi félagsins felst í olíu- og gasvinnslu í Norðursjó þar sem félagið kemur að rekstri nokkurra svæða. Það stundar einnig olíuleit og olíuboranir. Það telst ekki stórt í olíuheiminum en velta þess á síðasta ári nam um 20 milljörðum króna.

Sigmundur ekki byrjaður í stjórnarmyndunarviðræðum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ekki sé hægt að tala um það að stjórnarmyndunarviðræður séu hafnar með Sjálfstæðisflokknum, jafnvel þótt hann og Bjarni Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi hist í annað sinn í dag. Hann sagði í samtali við Reykjavík síðdegis í dag að aðalmálið væri að ná samstöðu um skuldamál heimilanna.

Lýst eftir Eðvarði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Eðvarði Guðmannssyni. Eðvarð er 31 árs og hefur ekkert heyrst frá honum síðan 23. apríl síðastliðinn. Eðvarð er 180 sentimetrar á hæð, þybbinn , skolhærður ,stuttklipptur, Líklega klæddur í græna úlpu og svörtum buxum. Þeir sem vita um ferðir Eðvarðs eru beðnir um að láta lögregluna vita í síma 444-1000.

Sjá næstu 50 fréttir