Yfirmaður Smartbíla á teppið vegna brota Sunna Valgerðardóttir skrifar 3. maí 2013 07:00
Kópavogsbær hefur boðað Gunnar Torfason, yfirmann hjá Smartbílum, á fund vegna kynferðisbrota sem tvær þroskaskertar konur hafa tilkynnt af hendi bílstjóra fyrirtækisins. Smartbílar sjá um ferðaþjónustu fyrir fatlaða í Kópavogi, Mosfellsbæ og Garðabæ. Maðurinn hafði unnið í hálft ár hjá fyrirtækinu. Arna Schram, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, segir verkferla verða endurskoðaða vegna málanna. „Þegar velferðarsvið fær fyrra málið inn á sitt borð er því strax vísað til lögreglu og manninum er vikið til hliðar,“ segir hún. „Síðan lesum við um hitt málið í Fréttablaðinu sem átti sér stað í Mosfellsbæ og því töldum við ástæðu til að boða Gunnar á fund.“ Smartbílum barst bréf þann 8. mars þar sem greint var frá því að þroskaskert kona í Mosfellsbæ hefði orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu bílstjóra fyrirtækisins. Manninum var þó ekki vikið úr starfi eða málið tilkynnt til lögreglu, því nokkrum dögum síðar var hann kærður fyrir að nauðga þroskaskertri konu í Kópavogi. Bæði atvikin áttu sér stað í bíl á vegum Smartbíla. Arna segir grafalvarlegt að ofbeldið í Mosfellsbæ hafi ekki verið tilkynnt yfirvöldum eða Kópavogsbæ. Hvorki Mosfellsbær né Garðabær höfðu fengið vitneskju um nein brot er varða Smartbíla þegar Fréttablaðið hafði samband. Ásgeir Sigurgestsson, hjá fjölskyldusviði Mosfellsbæjar, segir enga tilkynningu um brotið sem átti sér stað í bænum hafa borist honum. Hann segir allt ferðaþjónustukerfi fyrir fatlaða vera í endurskoðun. Bergljót Sigurbjörnsdóttir, félagsmálastjóri Garðabæjar, sagði að málið yrði skoðað í ljósi upplýsinganna, en engin mál hafi enn komið inn á hennar borð. Hvorki náðist í Gunnar Torfason né Einar Valsson, yfirmenn hjá Smartbílum, í gær.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira