Fíklar sækja í flogaveikilyf Svavar Hávarðsson skrifar 3. maí 2013 07:00 Fangelsislæknar urðu þess fljótt áskynja að fangar misnotuðu flogaveikilyfið Lyrica. Það á við um fleiri slík lyf. fréttablaðið/pjetur
Landlæknisembættið óttast viðvarandi misnotkun flogaveikilyfja. Brögð eru að því að fólk sem hefur lokið meðferð vegna vímuefnavanda falli aftur vegna notkunar lyfjanna, en þau ganga kaupum og sölum á götunni. Magnús Jóhannsson, sérfræðingur hjá Landlækni, segir merki þess að misnotkun lyfjanna sé á undanhaldi, en talin hafi verið full ástæða til þess að benda á vandann, en um málið er fjallað í nýjasta fréttabréfi embættisins. Ekki fer á milli mála í fréttabréfinu að orðum er beint til lækna sérstaklega og þeir hvattir til að vera á varðbergi þegar lyfjunum er ávísað. Lyfin sem hér um ræðir eru tvö; pregabalín (Lyrica) og gabapentín sem notuð eru við flogaveiki en hafa einnig ýmsa aðra virkni. Þannig eru lyfin notuð við verkjum og kvíða. Hér leynist hætta fyrir fíkla í bata því Landlæknir greinir frá því að algeng ábending fyrir ávísun á lyfið Lyrica sé kvíði hjá þeim sem eiga við fíknivandamál að stríða. „Til eru frásagnir fólks af því að lyfið hafi valdið falli hjá fólki sem komið var á réttan kjöl,“ segir í fréttabréfinu. Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á sjúkrahúsinu Vogi, kannast við vandann, og þá helst hvað varðar lyfið Lyrica. Lyfið skaut upp kollinum hjá fólki í meðferð á Vogi stuttu eftir að það kom á markað. Hún tekur skýrt fram að hins vegar noti fjöldi fólks lyfið daglega án nokkurra vandkvæða, þar á meðal þeir sem hafa náð góðum árangri í meðferð. „Eftir að Lyrica kom á markað sýndi það sig fljótt að það var til vandræða fyrir þá sem hafa fíknisjúkdóm, og fólk notaði það til að fá vímuáhrif. Sumir lentu í vandræðum með lyfið sérstaklega, eða það varð undanfari að falli hjá fólki í bata. Við höfum fengið til okkar fólk þar sem notkun Lyrica er aðalvandamálið,“ segir Valgerður. Spurð hvort flogaveikilyf gangi kaupum og sölum á götunni segir Valgerður svo vera. „Lyrica gerir það. En það er eins og með róandi lyfin, og auðvitað líka rítalín sem er miklu stærra og alvarlegra vandamál.“ Lyrica er flokkað sem ávanabindandi lyf í eftirliti landlæknis, en mjög algengt er að þeir sem eiga við lyfjafíkn að stríða leiti til margra lækna til að verða sér úti um meira magn. Landlæknir beinir þeim tilmælum til lækna að kanna sögu um misnotkun efnanna, enda virðist sem þeir sem eiga við misnotkun að stríða noti lyfin samhliða ýmsum vímuefnum til að auka virkni þeirra.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira