Fleiri fréttir

Kýs í fyrsta sinn í dag

Alma Ágústsdóttir kýs í dag í fyrsta sinn enda varð hún átján ára í gær. Hún hefur tekið sér góðan tíma til þess að velja hvað hún ætlar að kjósa og meðal annars heimsótt kosningaskrifstofur flestra flokka.

Ólöglegt að birta mynd af atkvæðaseðlinum sínum á Facebook

Þótt kjörsókn sé með dræmara móti er víst að þeir sem taka þátt í kosningunum hafa margir hverjir mikinn áhuga á atburðarrás dagsins og jafnvel að deila skoðunum sínum með öðrum. Þannig veit Vísir af minnst þremur tilvikum þar sem kjósendur hafa tekið mynd af atkvæðaseðlinum sínum inni í kjörklefa og birt á Facebook. Slík hegðun stríðir reyndar gegn 85. grein laga um kosningar til Alþingis.

"Far í friði bróðir"

Júlíus Agnarsson er látinn, sextugur að aldri. Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon kallar hann frumkvöðul í hljóðsetningu og hljóðblöndun. "Heiðursborgari í Miðbænum án þess að hafa fengið opinbera tilnefningu," segir Egill Helgason.

Hitað upp fyrir Kosningapartí

"Við fylgjumst að sjálfsögðu með nýjustu tölum um leið og þær berast, en fókusinn verður á stuðið,“ segir Logi Bergmann, umsjónarmaður Kosningapartís Stöðvar 2 sem hefst í opinni dagskrá klukkan 21 í kvöld.

Tsarnaev fluttur í fangelsi

Óánægja með að Dzhokhar Tsarnaev, annar bræðranna sem grunaður er um að hafa staðið að sprengjutilræðunum í Boston, skyldi dveljast á sama sjúkrahúsi og mörg fórnarlamba árásanna.

Hóta árásum á herstöðvar

Talíbanar í Afganistan hafa heitið því að hefja á næstunni fjölmargar árásir á erlendar herstöðvar og svæði þar sem erlendir erindrekar halda sig á í landinu. Þetta tilkynnti talsmaður þeirra með tölvupósti í dag.

Eve Online sprengdi utan af sér Hörpuna

Aðdáendahátíð tölvuleiksins Eve Online sem íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP heldur úti fer fram í Hörpu í níunda sinn um helgina. Gestir á hátíðinni eru hátt í 2.000 og áhuginn á henni svo mikill að Harpa dugir ekki til að rýma alla.

Gæslan berskjölduð eftir bilun í TF-GNÁ

Landhelgisgæslan hefur á næstunni aðeins eina björgunarþyrlu af þremur til afnota. Lenda þurfti TF-GNÁ tafarlaust eftir bilun á fimmtudag. Yfirmaður LSH segir ástandið alvarlegt enda treysti landsmenn allir mjög á þyrlurnar í neyð.

Fundu hluta af lendingarbúnað þotu sem flaug á tvíburaturnana

Lögreglan í New York fann hluta úr lendingabúnaði Boeing-þotu á miðvikudaginn sem flaug á tvíburaturnana árið 2001 á Ground Zero-svæðinu svokallaða. Svæðið hefur verið afgirt og flokkað sem glæpavettvangur en samkvæmt fréttavef BBC er hægt að sjá auðkennismerki þotunnar á búnaðinum.

Hundleiðinlegt kosningaveður víðast hvar á morgun

Hún er hundleiðinleg kosningaspáin á morgun - það er að segja þessi um veðrið, en spáð er rigningu, slyddu og jafnvel snjókomu þegar Íslendingar fara á kjörstaði til þess að nýta lýðræðislegan rétt sinn á morgun.

Framsóknarmenn jákvæðari á Facebook

Fólk er duglegra að deila neikvæðum fréttum um stjórnmálaflokkana á Facebook en jákvæðum. Oftast er fréttum um Sjálfstæðisflokkinn deilt á samfélagsmiðlinum en Framsóknarmenn deila frekar jákvæðari fréttum.

Fleiri hundruð manns kvöddu Jóhönnu

Fleiri hundruð manns komu saman fyrir utan stjórnaráðshúsið við Lækjargötu síðdegis í dag til þess að þakka Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra fyrir vel unnin störf. Síðasta dagur hennar sem þingmaður og ráðherra er í dag.

Danir tilbúnir að hjálpa

Danska herskipið Triton kom til hafnar í Reykjavík í morgun. Fulltrúar Landhelgisgæslunnar fóru um borð til viðræðna við skipherra skipsins til að athuga hver staðan væri með Lynx þyrlu sem er um borð og flogið er af flugmönnum danska flughersins.

Heitum potti stolið

Heitum potti, sem var staðsettur við sumarbústað, var stolið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í fyrradag.

Enginn opnaði sjúkraskrá án erindis

Eftirlitsnefnd með notkun rafrænnar sjúkraskrár hefur skilað ársskýrslu 2012 til framkvæmdastjóra lækninga, en nefndin starfar samkvæmt erindisbréfi frá árinu 2010.

Derrick var í SS-Panzer hersveitinni Totenkopf

Hinn heimsþekkti þýski leikari Horst Tappert, betur þekktur sem Derrick, var meðlimur í Waffen-SS í seinni heimsstyrjöldinni. Einnig er vitað að hann gekk í SS-Panzer hersveitina Totenkopf, sem tilheyrði Waffen-SS, þegar sú hersveit átti í blóðugum bardögum í norðurhluta Úkraníu árið 1943.

Markús Máni mætti ekki í dóminn

Markús Máni Michaelsson, sem ákærður er ásamt þremur öðrum fyrir umsvifamikil ólögleg gjaldeyrisviðskipti á árinu 2009, mætti ekki fyrir dóm við þingfestingu málsins í dag. Karl Axelsson verjandi hans mætti ekki heldur. Markús Máni er staddur í Bandaríkjunum.

Átti að hafa verið með apa til sölu

Íbúa í Reykjanesbæ brá heldur en ekki í brún í vikunni þegar hann fékk símtal þar sem hringjandi var að grennslast fyrir um órangútanapa, sem íbúinn átti að hafa auglýst á netinu.

Fluttur í fangelsi

Dzhokhar Tsarnaev, sem grunaður er um að hafa staðið að sprengjutilræðinu í Boston í síðustu viku, var í nótt fluttur af sjúkrahúsi í Fort Devens fangelsið í Massachusetts í Bandaríkjunum.

Brotist inn í níu bíla í Reykjanesbæ

Brotist var inn í níu bifreiðar í Reykjanesbæ í vikunni. Úr einni var stolið þremur greiðslukortum og ökuskírteini, sjúkrakassa úr annarri og staðsetningartæki úr hinni þriðju, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Um 25 þúsund búnir að kjósa

Fleiri kjósa utan kjörfundar en áður og kjörstjóri telur frídag í gær spila þar inn í. Einnig sé fólk meira á faraldsfæti en oft áður. Nær 25 þúsund manns höfðu kosið utan kjörfundar í gærkvöldi.

GNÁ verður fyrir austan framyfir helgi

Gná, þyrla Landhelgisgæslunnar verður Kvískerjum, skammt frá Höfn í Hornafirði, fram yfir helgi en í dag munu blöðin verða tekin af þyrlunni og þau send með flutningabíl til Reykjavíkur. Þyrlan lenti þar í gær eftir að bilun kom upp í gírkassa hennar.

Veðursuddi Norðanlands um helgina

Spáð er norðanhvassviðri- eða stormi, með vindhraða hærri en 20 metrar á sekúndu, með snjókomu og skafrenning N- og A-lands á sunnudag. Um kvöldið er búist við að veður gangi niður norðvestanlands og rofi til þar, en hvessi á SA-landi og að vindhviður þar geti orðið allt að 35 metrar á sekúndu. Þeir sem hyggja á ferðalög um helgina er bent á að fylgjast vel með veðurspám.

Viltu vita meira um kræklinga?

Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, og Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurnesjum, leiða ferð á slóðir kræklingsins í Hvalfirði á morgun. Kræklingi verður safnað og fræðst um hann og verkun hans. Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands klukkan 10 í fyrramálið. Hægt verður að sameinast þar í bíla. Gert er ráð fyrir að ferðin taki um það bil þrjár klukkustundir að akstrinum í Hvalfjörð meðtöldum. Mælt er með því að þátttakendur taki með sér stígvél og ílát fyrir krækling. Ferðin er farin í samvinnu við Ferðafélag barnanna.

Eineltið hefst heima

Nýleg rannsókn sýnir að ofvernduð börn eru miklu líklegri fórnarlömb eineltis í skóla en önnur; ef undan eru skilin þau sem sæta harðæði heima fyrir.

Sjá næstu 50 fréttir