Innlent

Lét ekki ellina aftra sér frá því að mæta á kjörstað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hin 103 ára gamla Anna Margrét Franklínsdóttir kaus í dag.
Hin 103 ára gamla Anna Margrét Franklínsdóttir kaus í dag. Mynd/ dfs.
Anna Margrét Franklínsdóttir á Selfossi lét ekki háan aldur stöðva sig í því að mæta á kjörstað í hádeginu á Selfossi og taka þátt í Alþingskosningunum. Hún verður 103 ára þann 15. júní í sumar.

Fréttavefurinn DFS segir að Anna Margrét hafi gefið sér góðan tíma inn í kjörklefanum til að fara yfir framboðin enda kjörseðilinn langur því það eru 11 framboð, sem hægt er að velja úr í Suðurkjördæmi. Hún segir jafnframt í samtali við DFS að X-ið hafi farið á réttan stað.

Anna Margrét  er frá Litla  Fjarðarhorni í Kollafirði í Strandarsýslu, fimmta í röðinni úr hópi 13 systkina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×