Fleiri fréttir

Útboð ríkisstyrktra strandsiglinga óþarfi

Forstjóri Eimskips telur ástæðulaust að ríkið bjóði út ríkisstyrktar strandsiglingar. Markaðurinn hafi þegar leyst málið og hugmyndafræði ríkisins tilheyri fortíðinni. Ný hugsun í siglingum myndar svigrúm fyrir tvö fyrirtæki í strandsiglingum.

„Það er kjaftshögg að fá krabbamein“

Tveggja barna faðir sem greindist með krabbamein í hálsi í desember fyrir rúmum tveimur árum segir veikindin hafa haft áhrif á allt og alla í kringum hann. Hann segir enga uppskrift vera til að því hvernig tilkynna eigi fjölskyldunni slík veikindi.

Vill ekki að ESB verði eilífðardeila

Björgólfur Jóhannsson, nýkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins (SA), segist þeirrar skoðunar að ljúka eigi aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið. Í samtali við RÚV sagði hann mikilvægt að fá niðurstöðu í málið til að það verði ekki eilífðardeilumál hér á landi.

Speglaveggurinn líklega áfram

Allt útlit er fyrir að glerveggurinn á húsi Menntaskólans í Reykjavík fái að standa, en um hann hafa staðið nokkrar deilur. Veggurinn var byggður síðasta sumar, en húsið hafði þá látið verulega á sjá.

Barkabólgu hefur líklega verið útrýmt

Matvælastofnun telur líkur á því að smitandi barkabólga hafi verið upprætt með slátrun allra þeirra gripa sem reyndust smitaðir á Egilsstaðabúinu á Völlum síðastliðið haust.

Skotbardagi kostaði tugi lífið í Malasíu

Rúmlega þrjátíu manns létu lífið í skotbardaga milli öryggissveita í Malasíu og liðsmanna soldáns frá Filippseyjum, sem gerir tilkall til landsvæðis á eyjunni Borneó.

ESA vill að Íslendingar leyfi kjötinnflutning

Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur komist að þeirri niðurstöðu að bann Íslands við innflutningi á hráu kjöti standist ekki EES-samninginn. Málið gæti endað fyrir dómstólum, en Íslendingar hafa frest til loka maí til að gera betur grein fyrir afstöðu sinni.

N-Kórea hótar kjarnorkuárás

Norðurkóreski herforinginn Kang Pyo Yong sagði landsmönnum sínum í gær að hernum væri ekkert að vanbúnaði að skjóta langdrægu flugskeyti með kjarnorkusprengju á Bandaríkin.

Óverðtryggð lán eru oft verri

„Verðtryggð lán eiga að vera valkostur fyrir lántakendur því verðtryggð lán eru ekki eins slæmur kostur og menn vilja vera láta,“ segir Agnar Jón Ágústsson, viðskipta- og hagfræðingur hjá gagnavefnum Datamarket.

Gistinóttum fjölgar mikið

Gistinætur á hótelum í janúar voru 90.300 og fjölgaði um 25% frá janúar í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Gistinóttum erlendra gesta fjölgaði um 28% en gistinóttum Íslendinga um 13%.

Eigum mjaltaþjónaheimsmet

Hvergi í heiminum er hlutfall mjólkur frá svonefndum mjaltaþjónabúum meira en hér á landi, að því er fram kemur hjá Landssambandi kúabænda.

Líkið verður til sýnis framvegis

Nicolas Maduro, sem nú gegnir forsetaembætti í Venesúela, segir að líkið af Hugo Chavez verði smurt og haft til sýnis um aldur og ævi.

Allir kardinálar komnir til Róm

Allir kardinálarnir 115, sem enn eru á kosningaaldri, eru nú komnir til Rómar. Sá síðasti kom í gær frá Víetnam og þar með er þeim ekkert að vanbúnaði að hefja páfakjör.

Fiskiskip sigla á milli Þorlákshafnar og Eyja

Annan daginn í röð var báðum ferðum Herjólfs á milli Þorlákshafnar og Vestamannaeyja aflýst í dag. Gámaskip hafa heldur ekki komist til Eyja en engu að síður sigla fiskiskip þarna á milli.

Fundaði með Oettinger

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með Günther Oettinger orkumálastjóra Evrópusambandsins og fulltrúa Þýskalands í framkvæmdastjórn ESB. Oettinger flutti fyrr í dag ræðu á alþjóðlegu jarðhitaráðstefnunni í Hörpu.

Boladagurinn er hafinn

Hætt er við því að erlendar stórstjörnur fái lítinn frið fyrir íslenskum Twitter-notendum næsta sólarhringinn. Í hönd er farinn Boladagurinn.

Stjórnarskrárferlið kostaði milljarð

Stjórnarskrárfrumvarpið hefur kostað skattgreiðendur um eitt þúsund milljónir króna en fjögur ár tók að undirbúa málið. Þingmenn eyddu fimmtíu klukkustundum í tala um frumvarpið sem var tekið af dagskrá í gær.

Mörg hundruð lán hjá Dróma í eigu Seðlabankans

Mörg hundruð af þeim fasteignalánum sem Drómi rukkar mánaðarlega eru í raun í eigu Seðlabanka Íslands, sem erfði þau við þrot SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans. Drómi er afar umdeilt félag og hefur verið sakað um samviskuleysi og óbilgirni gagnvart skuldurum.

Hefur þú pung fyrir CCP?

"Telur þú þig hafa víkingablóð sem þar til að halda út þorrablót fram á morgun? Hefur þú magastyrk til þess að horfast í augu við kind og borða hana? Hefur þú punginn í það?“

Skálað fyrir bestu vinum Íslendinga

Tveir íslenskir ráðherrar gerðu sér sérstaka ferð til Færeyja í vikunni til að þakka Færeyingum þann vinarhug sem þeir sýndu Íslendingum eftir hrunið. Ritað var undir viljayfirlýsingu í Þórshöfn um að efla samstarf frændþjóðanna, einkum á sviði orkumála og nýsköpunar. Þau Katrín Júlíusdóttir og Steingrímur J. Sigfússon, ráðherrar fjármála- og atvinnuvega, fengu hlýjar móttökur af hálfu Færeyinga, sem sýndu þeim nokkrar helstu perlur eyjanna, eins og Sörvogsfjörð og þorpið Böur en einnig öflug atvinnufyrirtæki eins og laxeldisstöðvar, en eldislax er orðinn verðmætasta útflutningsvara Færeyja.

Hvött til að nefna drenginn Garðar Ford

Ungur snáði kom í heiminn í stórhríð á leið um Dalsmynni í nótt. Foreldrarnir voru tiltölulega rólegir yfir öllu saman en þeir hafa nú verið hvattir til að nefna drenginn Garðar Ford, í höfuðið á björgunarsveit og sjúkrabíl.

Eldur kom upp á bílaverkstæði

Eldur kom upp á bílaverkstæði að Bygggörðum 8 í Reykjavík nú síðdegis. Þar kviknaði í vinnugöllum og dreifðist eldurinn upp með veggjum.

Rúmlega 25 milljarða hagnaður hjá Landsbankanum

Rekstrarhagnaður Landsbankans nam 25,5 milljörðum króna eftir skatta á árinu 2012 samanborið við 17,0 milljarða króna á árinu 2011. Þetta kemur fram í uppgjöri bankans sem sent var fjölmiðlum síðdegis.

Siðleysi auglýsenda og kynþokkavæðing barna

"Það er auðvitað alveg ótrúlegt að við ætlum að fara niður þessa götu aftur," segir Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, jafnréttiskennari um umdeilda auglýsingu verslunarinnar United Colors of Benetton í Kringlunni. Búið er að fjarlægja auglýsinguna úr búðarglugganum.

Provo hugmyndabíll frá Kia

Líkist Mini og Citroen DS3, enda líklega settur til höfuðs þeim. Er á 19 tommu flegum sem festar eru með einni ró.

„Ég er sprengja - Jihad, fæddur 11. september“

Boucha Bagour, þrjátíu og fimm ára gömul frönsk móðir, hefur verið ákærð eftir að hún sendi þriggja ára son sinn í leikskóla í haust í stuttermabol með áletruninni: "Ég er sprengja."

Berlusconi dæmdur í fangelsi

Fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi vegna ólöglegra hlerana.

Frestar vantrauststillögu svo þingmenn geti gert ráðstafanir

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir í tilkynningu sem hún sendi fjölmiðlum að meginsjónarmiðið fyrir því að vantrauststillaga Þórs Saari, þingmanns Hreyfingarinnar, hefði verið frestað fram á mánudaginn, væri það að allir þingmenn geti gert ráðstafanir til þess að vera við atkvæðagreiðsluna.

Kveiktu í Renault - lögreglan leitar vitna

Grunur leikur á að kveikt hafi verið í ljósgrænum Renault Megane Scenic sem stóð við Húsaskóla i Dalhúsum í gær Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna vegna rannsóknar á brunanum, en tilkynnt var um eldinn klukkan. 1.47 í nótt. Vegfarandi slökkti eldinn. Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is

Björn Zoëga vissi af alvarlegu ástandi Landspítalans

„Ég vissi þetta alveg," segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, spurður út í viðtal við Huldu Gunnlaugsdóttur, fyrrverandi forstjóra spítalans, í norska dagblaðinu Aftenposten en þar sagði hún að staðan í hruninu hafi verið orðin svo grafalvarleg að spítalinn hafi ekki átt fyrir launum né lyfjum.

1 af hverjum 23 börnum orðið fyrir líkamlegu ofbeldi á heimili sínu

Tæplega 70 prósent drengja sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi eru frekar eða mjög sammála þeirri fullyrðingu að stundum eigi ofbeldi rétt á sér, samanborið við tæp 29 prósent á meðal drengja sem hafa ekki orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Þetta kemur fram í viðmikilli skýrslu sem UNICEF á Íslandi gaf út í dag. Skýrslan ber heitið Réttindi barna á Íslandi: Ofbeldi og forvarnir.

Sjá næstu 50 fréttir