Frestar vantrauststillögu svo þingmenn geti gert ráðstafanir 7. mars 2013 14:50 Ásta Ragnheiður.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir í tilkynningu sem hún sendi fjölmiðlum að meginsjónarmiðið fyrir því að vantrauststillaga Þórs Saari, þingmanns Hreyfingarinnar, hefði verið frestað fram á mánudaginn, væri það að allir þingmenn geti gert ráðstafanir til þess að vera við atkvæðagreiðsluna. Þór lagði tillöguna fram í gær og óskaði fyrst eftir því að hún yrði tekin fyrir í dag en ekki reyndist meirihluti fyrir því. Að öllu jöfnu á að taka vantrauststillögu fyrir tveimur dögum eftir að hún er lögð fyrir. Í tilkynningu frá Ástu Ragnheiði segir: „Eftir að vantrauststillagan kom fram í gær, og með hliðsjón af óskum flutningsmanns, talaði ég við forustumenn flokkanna um tímasetningu umræðunnar um tillöguna og atkvæðagreiðslu um hana. Það var ekki vilji til þess að veita afbrigði fyrir því að hún kæmi á dagskrá í dag. Eftir þessi samtöl eru það áform mín að tillagan komi á dagskrá á mánudaginn, 11. mars, þegar í upphafi fundar, kl. 10.30. Ég mun beita mér fyrir því að samkomulag verði milli þingflokka um fyrirkomulag umræðunnar þannig að atkvæðagreiðslan verði á fyrirfram ákveðnum tíma dagsins. Ég hef þá í huga þingmenn, fjölmiðla og þá sem vilja fylgjast með málinu og úrslitum þess. Meginsjónarmiðið hjá mér er að allir þingmenn geti gert ráðstafanir til þess að vera við atkvæðagreiðsluna. Talsvert er um að þingmenn hafi bundið sig af ýmsum ástæðum, í dag og allra næstu sólarhringa, bæði hér á landi og erlendis. Allir ættu hins vegar að geta gert ráðstafanir fyrir mánudaginn til að vera viðstaddir atkvæðagreiðsluna um vantrausttillöguna þann dag, þannig að vilji þingsins geti þá komið skýrt fram."
Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Sjá meira