Þessir spila á árshátíð Landsbankans 7. mars 2013 18:30 Meðal þeirra sem koma fram eru Bubbi Morthens, Retro Stefson, meðlimir Stuðmanna og Stefán Hilmarsson.
Starfsmannafélag Landsbankans fagnar 85 ára afmæli sínu á laugardaginn þegar árshátíð bankans verður haldin með pompi og prakt. Þjóðhátíðarþema verður á dagskránni og einvalalið söngvara mætir á svæðið til þess að koma um á annað þúsund starfsmönnum bankans í rétta stemmningu. Meðal þeirra sem fram koma eru Hreimur úr Landi og sonum, Matti Matt úr Pöpunum, Magni, Gylfi Ægisson, Stefán Hilmarsson, Bubbi Morthens og meðlimir Stuðmanna. Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, segir árshátíðina í ár umtalsvert ódýrari en undanfarin ár. Meðal annars hafi náðst sparnaður með því að halda veisluna í Fífunni í Kópavogi en ekki Laugardalshöll eins og undanfarin ár. „Við leitum svo alltaf bestu tilboða í mat og annað," segir Kristján. Hann vildi ekki gefa upp kostnaðinn við hátíðina en benti á að hafa yrði í huga að 1800 gestir yrðu á hátíðinni. Bankinn styrkti að sjálfsögðu árshátíðina eins og gengur og gerist hjá öðrum fyrirtækjum. Stóra stund kvöldsins verður þegar stuðsveitin Retro Stefson stígur á stokk. Þeir sem kjósa að skemmta sér undir gítarleik eiga kost á því að skella sér í gítarpartý í anda hvítu tjaldanna í Eyjum. Kristján tekur fram að kostnaður við árshátíðina breytist ekki mikið með tilkomu eins eða tveggja söngvara. Fyrrnefndir söngvarar koma ekki fram með hljómsveitum sínum heldur hljómsveit hússins og taka hver nokkur lög.
Mest lesið Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Mætti ekki í útför föður síns Erlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Fannst látinn í tjaldi Innlent Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Fleiri fréttir Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent