Harma að fyrirtæki sýni börn á kynferðislegan hátt í auglýsingum 7. mars 2013 15:17
Barnaheill- Save the Children á Íslandi segist harma að fyrirtæki skuli ítrekað sýna börn á kynferðislegan hátt í auglýsingum sínum. Svo segir í tilkynningu frá samtökunum, en í dag hafa verið fluttar fréttir af auglýsingu United Colors of Benetton í Kringlunni þar sem ung stúlka er sýnd klæðalaus. Enn fremur segir í tilkynningunni: Slíkt er brot á réttindum barna samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem Ísland hefur lögfest. Aldrei skal tengja barn við neitt sem er kynferðislegt eða klámfengið. Einstaklingur er barn til 18 ára aldurs. Kynferðisofbeldi gegn börnum og myndefni þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan hátt hefur aukist til muna á undanförnum árum, ekki síst eftir tilkomu netsins. Auglýsingar þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan hátt er ein birtingarmynd þessa efnis. Að búa til slíkt efni og dreifa því er brot á íslenskum lögum og brot á réttindum þeirra barna sem í hlut eiga. Einu gildir hvort barnið eigi að líta út fyrir að vera barn eða eldra en það er. Að barngera fullorðin einstakling og sýna hann á kynferðislegan hátt er líka bannað samkvæmt íslenskum lögum. Barnaheill- Save the Children á Íslandi skora á öll íslensk fyrirtæki að sýna ábyrgð þegar þeir birta auglýsingar með börnum, hvort sem verið að auglýsa vöru fyrir börn eða fullorðna. Barnaheill hvetur jafnframt almenning til að láta sig málið varða og tilkynna ef þeir verða varir við slíkt efni. Hægt er að tilkynna í gegn um ábendingahnapp Barnaheilla á vefsíðu samtakanna. Sýnum ábyrgð og verndum börnin okkar. Það þarf þjóð til að vernda barn.
Mest lesið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Erlent Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Fleiri fréttir Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Sjá meira