Boladagurinn er hafinn 7. mars 2013 21:47 Sigurður Mikael Jónsson, sigurvegari keppninnar í fyrra, ásamt Henry Birgi Gunnarssyni, einum af forsprökkum keppninnar. Mynd/Daníel
Hætt er við því að erlendar stórstjörnur fái lítinn frið fyrir íslenskum Twitter-notendum næsta sólarhringinn. Í hönd er farinn Boladagurinn. Í stuttu máli gengur Boladagurinn út á að Íslendingar trufla erlendar stórstjörnur og reyna að fá svar frá þeim á Twitter með öllum tiltækum ráðum. Sá sem fær besta svarið frá stærstu stjörnunni, að mati dómnefndar Boladags, stendur uppi sem sigurvegari. Boladagurinn hófst klukkan 22 en honum lýkur á miðnætti annað kvöld.Á heimasíðu keppninnar kemur fram að ekki séu gefin atkvæði fyrir að trufla íslenskar stjörnur. Aðeins erlendar stjörnur má ónáða en sigurvegari í keppninni í fyrra, blaðamaðurinn Sigurður Mikael Jónsson, fékk svar frá körfuboltahetjunni Dennis Rodman. Óhætt er að segja að Sigurður Mikael hafi lagt sig allan fram. Þannig sendi hann Rodman mynd af gömlum körfuboltamyndum sem hann átti af kappanum, og uppskar svar frá hetjunni sinni fyrir vikið.Sigurtístið í fyrra.Veitt voru fjölmörg verðlaun í keppninni í fyrra sem lesa má um hérna. Aðalverðlaunin í ár eru Ipad Mini í boði Símans. Aðeins notendur Twitter geta tekið þátt í keppninni og því þarf að skrá sig á síðuna. Hins vegar geta allir fylgst með gangi mála með því að smella hér. Til að allir sjái það sem fram fer á Boladeginum er nauðsynlegt að nota "hashtagið" #boladagur, þ.e. merkja færslur sínar með merkinu # og textanum 'boladagur'. Þeir sem fá svar, eða 'retweet' eins og það er kallað, þurfa að senda skjáskot af samskiptunum á boladagur@boladagur.is. Um 9000 tíst voru send til stórstjarnanna í fyrra og bárust um 200 svör frá fræga fólkinu. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Íslendingum gengur að ná til stjarnanna úti í hinum stóra heimi.
Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Sjá meira