Fleiri fréttir

Kínverjar vilja fjárfesta í umskipunarhöfn á Íslandi

Kínverjar hafa rætt við íslensk stjórnvöld um að byggja hafnarmannvirki á Íslandi vegna siglinga yfir Norðurskautið. Þetta upplýsir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra en á ráðstefnu í dag sagði hann mestu viðskiptatækifæri Íslendinga á þessari öld tengjast heimskautasvæðunum. Salurinn á Grand hótel Reykjavík var þéttsetinn á ráðstefnu sem utanríkisráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og Íslandsstofa efndu til um sóknarfæri á norðurslóðum.

"Saksóknari hefur horft á spilaborg sína hrynja fyrir framan sig"

Börkur Birgisson lýsti yfir sakleysi sínu þegar hann ávarpaði fjölskipaðan Héraðsdóm Reykjaness í dag. Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn honum og Annþóri Karlssyni og átta öðrum er nú lokið en þeir eru sakaðir um að hafa skipulagt stórfellda líkamsárás í janúar á þessu ári.

Annþór ávarpaði dóminn: Varla ofbeldi að hrækja á skikkju dómara

"Það sem stendur hérna er rangt!“ sagði Annþór Karlsson í Héraðsdómi Reykjaness í kvöld. Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn honum, Berki Birgissyni og átta öðrum er nú lokið. Við upphaf aðalmeðferðar í dag fóru þeir fram á að ávarpa dóminn að lokinni aðalmeðferð.

Tölvur gerðar upptækar: Tók nektarmyndir af útigangskonum

Kynferðirbrotadeild lögreglunnar hefur gert upptækar tvær tölvur í eigu karlmanns sem tekið hefur grófar nektarmyndir af útigangskonum og sett á Netið. Lögreglan telur að sumar konurnar hafi ekkert vitað af myndatökunum.

Stjórn Eirar verður leyst upp og ný stjórn skipuð

Fulltrúaráð hjúkrunarheimilisins Eirar verður leyst upp og ný stjórn skipuð á allra næstu dögum. Nauðsynlegt til að skapa trúverðugleika, segir einn þeirra sem hefur unnið að lausn á fjárhagsvanda heimilisins.

Óvissustig vegna Grímsvatnahlaups

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Eskifirði og Hvolsvelli, lýsir yfir óvissustigi vegna mælinga sem gefa til kynna aukið vatnsrennsli úr Grímsvötnum. GPS mælitæki sýnir að íshellan í Grímsvötnum hefur sigið undanfarna daga. Búast má við að jökulhlaup komi fram í Gígjukvísl á næstu dögum.

Krafa Sigurðar samþykkt að hluta

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í deilumáli Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, við slitastjórn bankans. Við slit Kaupþings lýsti Sigurður kröfu, meðal annars vegna vangoldinna launa og annarra launatengdra greiðslna.

Óska eftir upplýsingum að umferðarslysi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á tíunda tímanum í morgun á Sæbraut í Reykjavík á móts við afgreiðslustað Aktu taktu.

Verjandi sofnaði í dómssal

Verjandi í máli ákæruvaldsins gegn þeim Annþóri Karlssyni og Berki Birgissyni sofnaði þegar munnlegur málflutningur fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Annþór og Börkur fá að ávarpa dóminn

Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson, aðalsakborningar í stóra ofbeldisbrotamálinu, sem flutt er fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag munu fá að ávarpa dóminn áður en málflutningi lýkur. Þeir kröfðust þess við upphaf málflutnings í dag að þeir fengu að gera grein fyrir máli sínu að loknum málflutningi. Slíkt er ekki venja í dómsmálum sem þessum en ákvörðun um þetta er háð vilja dómarans.

10 milljón farþegar í lok árs?

Farþegum Strætó fjölgaði um tæplega 12 prósent í október mánuði, eða um 108 þúsund, miðað við sama tímabil í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá Strætó er þetta í fyrsta skiptið sem farþegafjöldinn er meiri en ein milljón í októbermánuði.

Segir sjö ára fangelsi allt of mikla refsingu

"Krafa um sjö ára fangelsi er einfaldlega allt of há." Þetta sagði verjandi Barkar Birgissonar í málflutningi sínum fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Börkur er, sem kunnugt er, ákærður fyrir aðild að miklu ofbeldisbrotamáli ásamt níu öðrum. Saksóknari hefur farið fram á sjö ára fangelsi yfir Berki en átta ára fangelsi yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni.

Perlan fari úr einum vasa í annan

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að borgin gangi til samninga við Orkuveitu Reykjavíkur um kaup á Perlunni í Öskjuhlíð. Þá mun borgin ganga til samninga við ríkið um að það leigi húsið í allt að 15 ár og komi þar upp náttúruminjasýningu.

Bátur sökk í Reykjavíkurhöfn

Það vakti eftirtekt fastagesta á Kaffivagninum að bátur sem er þar alla jafna fastur við bryggju hafði sokkið í nótt. Eftir því sem Vísir kemst næst sökk báturinn líka fyrir um ári síðan. Dæla í bátnum mun vera biluð og það veldur þessu.

Siv vill banna myndatökur í og við dómshús

Siv Friðleifsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, hefur lagt frumvarp fram á Alþingi þess efnis að myndatökur í og við dómshús verði bannaðar. Aðrir en dómstólarnir sjálfir mega því ekki taka upp myndskeið eða myndir í dómshúsum.

Uppreimaðir gönguskór kostuðu hann nærri lífið

Það tók Ingiberg G. Þorvaldsson um 20 sekúndur að komast úr uppreimuðum gönguskóm til að reyna að komast í lífgalla er báturinn Aníta Líf sökk á örskammri stundu. Áður en hann náði því fór báturinn á hliðina og hann kastaðist út í sjó.

Vinnumenn lagfærðu þakið á Bás

Vinnumenn voru í morgun að lagfæra þak á bílaverkstæðinu Bás á Siglufirði. Blindbylur var fyrir norðan í gærkvöld og í nótt, en þegar leið á nóttina fór svo að hlýna. Veður var svo orðið stillt í morgun og þá var hægt að hefjast handa við að laga þakið.

Hlaup að hefjast í Grímsvötnum

Vatnamælingar í Grímsvötnum benda til þess að hlaup sé að hefjast þar. Samkvæmt upplýsingum frá vatnamælingamanni Veðurstofunnar verður ekki um stórt hlaup að ræða í ljósi þess að hlaup varð þar í byrjun árs.

Skólinn rýmdur

Hvassaleitisskóli, sem nú er hluti af Háaleitisskóla, var rýmdur klukkan ellefu í morgun. Ástæðan er sú að eldvarnarátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hófst í dag. Í tilefni af því fræddu Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar, og Sverrir Björn Björnsson, formaður LSS, börn í 3. bekk um eldvarnir. Þá fær starfsfólk skólans kennslu í notkun slökkvitækja og eldvarnarteppa. Loks fá börnin að skoða lsökkvi- og sjúkrabíl Slökkviliðsins.

Fjörutíu þúsund hafa fallið í Sýrlandi

Stjórnarhermönnum í Sýrlandi tókst ekki að berja aftur stórsókn uppreisnarmanna í bænum Mayadeen í nótt. Stjórnarandstæðingarnir hertóku bækistöð stjórnarhersins við bæinn og ráða nú yfir stórum landsvæðum í austurhluta Sýrlands.

Ekið á gangandi vegfaranda

Ekið var á gangandi vegfaranda á Sæbrautinni, við Snorrabraut, upp úr klukkan níu í morgun. Sæbrautinni var lokað um tíma vegna slyssins. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var einn fluttur á bráðadeild, en ekki er vitað um ástand hans að svo stöddu. Lögreglan rannsakar slysið.

Enn einn Íslendingurinn handtekinn í stóru fíkniefnamáli

Þrír hafa verið handteknir í tengslum við stóra fíkniefnamálið sem greint var frá í september. Áður höfðu sjö Íslendingar, þrír Danir og einn Frakki verið handteknir. Nú hafa þrír verið handteknir í Noregi. Þar af er karlmaður á fertugsaldri sem búsettur er í Stavanger, sambýliskona hans og 41 árs gamall karlmaður. Þau eru sökuð um að hafa haft undir höndum mörg kíló af amfetamíni.

Ölvuð amma með barnabarnið í bílnum

Í vikunni var kona stöðvuð við umferðareftirlit á höfuðborgarsvæðinu, en sú reyndist vera drukkin við stýrið. Konan var ekki einsömul á ferð því með í för var ólögráða barnabarn hennar. Amman var handtekin og flutt á lögreglustöð, en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu barnsins og barnaverndaryfirvöld jafnframt upplýst um málið. Lögreglan segir að henni berist í hverjum mánuði tilkynningar um ölvaða ökumenn sem eru með börn sín í bílnum.

„Ég er ekki í neinum hefndarhug“

"Ég dró mig úr sviðsljósinu meðan þetta mál var í gangi. Afhverju ætti ég að draga mig úr sviðsljósinu til lengri tíma, ég er saklaus af þessum viðbjóði sem ég var sakaður um. Það kemur náttúrulega ekkert til greina að ég láti nokkra vitleysinga og rangar sakargiftir stjórna lífi mínu," segir Egill "Gillzenegger" Einarsson, í einlægu viðtali við unglingablaðið Monitor sem kom út í dag.

Rúta hafnað á vegriði

Rútubíll með fimm manns um borð snerist í hálku á Gemlufallsheiði á milli Önundarfjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörum um áttaleytið í morgun og hafnaði á vegriði. Það hélt rútunni, en annars er snar bratt út af veginum. Rútan var hinsvegar í sjálfheldu utan í riðinu og voru björgunarsveitarmenn sendir til hjálpar. Engan sakaði í rútunni og fluttu björgunarmenn fólkið og rútuna til byggða.-

Sleggjuárás í Háholti dregur dilk á eftir sér

Hinn 9. október síðastliðinn kom 26 ára maður á lögreglustöðina í Kópavogi og lagði fram kæru á hendur Bergi Má Ágústssyni fyrir alvarlega líkamsárás. Maðurinn, Smári Valgeirsson, kvað Berg hafa ráðist að sér á Moe's bar í Breiðholti, stungið hann í lærið með hnífi og snúið hnífnum í sárinu.

Hjón í eina gröf eftir mistök í kirkjugarði

"Þetta er út í hött. Ástvinir vilja vera saman," segir Gísli Líndal í Holti í Garðabæ, sem telur að ókunnug kona hafi verið jarðsett í leiði sem frátekið var fyrir fjölskylduna í kirkjugarðinum í Garðaholti.

Línuveiðiskip fékk á sig ólag undan Norðfirði

Engan sakaði þegar 200 tonna línuveiðiskip fékk á sig ólag um fjórtán sjómílur austur af Norðfirði um klukkan fimm í morgun í sérstöku veðrafyrirbrigði sem líkist einskonar hvirfilbyl.

Upprættu kókaínsmyglhring í Hollandi

Lögreglan í Hollandi hefur upprætt kókaínsmyglhring í landinu og handtekið 12 manns í tengslum við rannsókn málsins sem er eitt stærsta fíkiniefnamál sem komið hefur upp í landinu á síðustu árum.

Loftslagsbreytingar í Evrópu eru staðreynd

Umhverfisstofnun Evrópu segir í nýrri skýrslu að loftslagsbreytingar í Evrópu séu staðreynd. Síðasti áratugur hafi verið sá heitasti í álfunni síðan að veðurmælingar hófust.

Vopnahléið á Gaza heldur

Vopnahléið sem samið var um á Gazasvæðinu hefur haldið í gærkvöldi og nótt þótt fréttir hafi borist um að nokkrum eldflaugum hafi verið skotið frá Gaza skömmu eftir að formlega var gengið frá vopnahléssamkomulaginu síðdegis í gærdag. Enginn skaði varð af þeim eldflaugaskotum og Ísraelar svöruðu ekki í sömu mynt.

Margir berjast um öruggu sætin

Línur verða æ skýrari fyrir alþingiskosningarnar í vor og um helgina ræðst hvernig skipað verður á lista Sjálfstæðisflokksins í þremur kjördæmum; báðum Reykjavíkurkjördæmunum og Norðvesturkjördæmi. Þá kjósa félagar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði um frambjóðendur í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi. Sé litið til skoðanakannana má áætla sem svo að fækka muni í þingliði Vinstri grænna, en fjölga hjá Sjálfstæðisflokknum. Slagurinn um efstu sætin hjá báðum flokkum verður því nokkuð spennandi.

Gögn hækka bætur til þolenda ofbeldis

Sérfræðigögn í kynferðisbrotamálum gegn börnum virðast skipta sköpum fyrir rétti þegar kemur að því að dæma fórnarlömbum ofbeldisins bætur. Alla jafna eru bætur hærri í dómum þar sem sérfræðigögn eru lögð fram í málinu; eins og umsagnir um líðan þolanda frá sálfræðingum, geðlæknum, sjúkrahúsum, lögreglu og fleiri aðilum, samkvæmt rannsókn síðan í ár.

Sjá næstu 50 fréttir