Stór hluti skotfimiiðkunar yrði bönnuð með nýrri vopnalöggjöf Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 23. nóvember 2012 19:58
Stór hluti skotfimiiðkunar yrði bönnuð með nýrri vopnalöggjöf sem nú liggur fyrir á Alþingi segir framkvæmdastjóri Skotfélags Reykjavíkur. Hann vill ekki að hræðsluáróður í samfélaginu bitni á þeim sem fara löglega með skammbyssur. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra voru tæplega sextíu þúsund vopn skráð fyrsta apríl síðastliðinn, þar af tæplega sautján hundruð skammbyssur en mjög ströng skilyrði eru fyrir skammbyssueign almennings hér á landi. „Þú þarft að vera í skotfélagi, vera búinn að vera þar í 2 ár, vera með svokallað meirapróf í annað ár og þarft að vera félagi og sýna að þú sért að stunda skotfimi þegar þú færð þessi leyfi," sagði Guðmundur Kr. Gíslason, framkvæmdastjóri Skotfélags Reykjavíkur. Guðmundur selur byssur af öllum stærðum og gerðum í gegnum fyrirtækið Ísnes en á heimasíðu þess má meðal annars finna ýmsar notaðar skammbyssur sem minna á Hollywood hasarmyndir. „Byssur sem þið sjáið í bíómyndunum eru 9 mm oft, þær eru óbreyttar, hér má nota slíkar byssur ef búið er að breyta þeim, hér eru til nokkrar þannig byssur sem hefur verið breytt, komnar með betri sigti, stillanleg og skefti líka og þar af leiðandi eru þær löglegar í keppni," segir Guðmundur. Hann segir að ný vopnalöggjöf sem nú liggur fyrir Alþingi geti haft mikil áhrif á skotfimiiðkun hér á landi, þar sem grófar skammbyssur yrðu bannaðar. Þá sé sorglegt að hræðsluáróður í kjölfar aukinna umsvifa skipulagðra glæpasamtaka bitni á þeim sem nota byssurnar löglega. „Það vantar betri kynningu á þessu, við höfum reyndar boðið allsherjarnefnd að koma í kynningu hjá okkur sem ég vona að þau munu þiggja, til að hjálpa þeim að taka ákvörðun um þetta, byssurnar sem slíkar eru ekki hættulegar það er mannskapurinn á bak við þær," sagði Guðmundur. „Ef hið opinbera hefur vitneskju um það að menn séu með þessi leyfi og byssur á fölskum forsendum þá segjum við bara farið í manninn, takið þá fyrir en leyfið okkur að stunda þetta í þeim ramma sem er til staðar," segir Guðmundur.
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira