Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á tíunda tímanum í morgun á Sæbraut í Reykjavík á móts við afgreiðslustað Aktu taktu.
Þar varð gangandi vegfarandi fyrir rauðri Toyotu Carina E bifreið, sem ekið var á hægri akrein á vesturleið, en tilkynnt var um slysið kl. 9.11.
Þeir sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is
Óska eftir upplýsingum að umferðarslysi
