Fleiri fréttir

Landsmönnum fjölgaði um 500

Landsmönnum fjölgaði um 500 á tímabilinu júlí fram í október, eða á þriðja ársfjórðungi. Í lok ársfjórðungsins bjuggu 320.660 á landinu. Um 160.870 karlar og 159.790 konur. Erlendir ríkisborgarar voru 20.820 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 204.630 manns.

Sérstök gát vegna sjálfsvígshættu

Fjórir karlar dvelja nú á réttargeðdeildinni á Kleppi. Elsti sjúklingurinn er 46 ára og sá yngsti 27 og hefur sá sem dvalið hefur lengst þar verið inni í tíu ár. Á deildina vistast þeir sem eru dæmdir ósakhæfir og ekki ábyrgir gjörða sinna á þeirri stund sem glæpur var framinn. Ofsóknargeðklofi (e. paranoid schizophrenia) er algengasti sjúkdómurinn meðal einstaklinganna.

Síldveiðar hafnar í Breiðafirði

Þrjú stór fjölveiðiskip eru nú komin inn á Breiðafjörð til veiða á íslensku sumargotssíldinni, sem hefur haft þar vetursetu undanfarin ár.

Fjölskylda slapp ómeidd úr brennandi einbýlishúsi

Fjögurra manna fjölskylda slapp heil á húfi út úr einbýlishúsi úr timbri í Keflavík í nótt eftir að eldur kom þar upp, og lögreglumenn, sem voru fyrstir á vettvang, björguðu heimilishudninum út úr reykjarkófinu innandyra.

Harður prófkjörsslagur í Suðurkjördæmi

Það stefnir í harðan prófkjörsslag hjá Sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í vor, því fjórði maðurinn tilkynnti í gær um að hann sæktist eftir fyrsta sætinu.

Anonymous hætt að styðja Wikileaks vegna Assange

Tölvuþrjótasamtökin Anonymous hafa hætt stuðingi sínum við Wikileaks. Financial Times segir frá þessu og þar kemur fram að Anonymous samtökin séu mjög óánægð með framkomu og gjörðir Julian Assange á undanförnum mánuðum.

Írar herða á kröfum um eignarhald yfir Hatton Rockall

Írar hafa hert á kröfum sínum um eignarhaldið á Hatton Rockall klettinum í miðju Atlantshafinu en auk Íra gera Íslendingar, Bretar og Danir, fyrir hönd Færeyinga, kröfu um eignarhaldið á þessum kletti.

Vilja fráveitu orkuvers í umhverfismat

Umhverfisstofnun telur að fráveita orkuvers HS Orku í Svartsengi sé líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og því skuli framkvæmdin háð umhverfismati. Það gengur þvert á mat fyrirtækisins sem telur að framkvæmdin muni ekki hafa umtalsverð umhverfisáhrif í för með sér í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum. Því muni mat á umhverfisáhrifum ekki veita frekari svör um hugsanleg áhrif framkvæmdarinnar en þegar liggja fyrir.

Staðbundin undanþága möguleiki

Enn er unnið að söfnun upplýsinga vegna ágangs af völdum álfta og gæsa á ræktarlönd. Að gagnaöfluninni standa umhverfisráðuneyti, Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands og Bændasamtök Íslands, að því er fram kemur í svari Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar, þingmanns Framsóknarflokks, á Alþingi í lok ágúst.

Finnar jákvæðir en Svíar ekki ákveðnir

Finnar eru mjög jákvæðir fyrir því að stunda loftrýmisgæslu á Íslandi í samstarfi við Svía og Norðmenn. Þeir bíða hins vegar eftir ákvörðun Svía um málið.

Afsláttur aukist með minni útblæstri

Unnið er að reglugerðarbreytingu í fjármálaráðuneytinu sem veitir fólki, sem hefur fyrirtækjabíla til umráða, afslátt af hlunnindasköttum vegna þeirra eftir því sem þeir menga minna. Samkvæmt heimildum blaðsins er verið að útfæra breytinguna nánar, en gert er ráð fyrir því að

Skjöldur settur við Langabar

Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur, afhjúpaði bókmenntamerkingu til heiðurs rithöfundinum Elíasi Mar í Aðalstræti í gær. Þetta er fyrsti skjöldurinn af níu sem Reykjavík, bókmenntaborg UNESCO, kemur upp í borginni á þessu ári í tilefni af fyrstu Lestrarhátíðinni í Reykjavík. Bókin Vögguvísa eftir Elías Mar er í brennidepli á hátíðinni. Skjöldurinn er staðsettur í Aðalstræti 6 til 8 þar sem Sódabarinn Adlon, oft

Lesa fyrir farþega í strætó

Sameiginleg lestrarhátíð grunnskólanna í Vesturbæ Reykjavíkur í samstarfi við leikskólana og Borgarbókasafnið er hafin og stendur út vikuna. Hátíðin er haldin í framhaldi af því að skólarnir (Vesturbæjar-, Haga-, Granda- og Melaskóli) hafa unnið að sameiginlegri læsistefnu. Nemendur lesa sér til yndisauka milli níu og hálftíu árdegis alla vikuna, en síðan taka við heimsóknir á milli skólastiga, auk þess sem nemendur heimsækja stofnanir og fyrirtæki og lesa upp. Stefnt er að því að nemendur lesi upp í strætó. - óká

Algjör óvissa hvernig eigi að túlka svör

Algjör óvissa virðist ríkja um hvernig túlka á svör í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga þótt nú sé aðeins tæp vika í kosningarnar.

Felix sló þrenn heimsmet

Felix Baumgartner er lentur á heilu og höldnu en hann sló rétt í þessu heimsmet í að stökkva úr hvað mestri hæð. Hann stökk úr loftfari sínu úr rúmlega 38 kílómetra hæð. Það er óhætt að segja að stökkið hafi verið gríðarlega dramatískt, en um stund hringsnérist hann og virtist eiga í erfiðleikum. Honum tókst aftur á móti að ná jafnvægi á ný.

Valgerður vill leiða í Reykjavík

Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hyggst gefa kost á sér í 1. til 2. sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fer dagana 16. til 17. nóvember.

Felix kominn í loftið - bein útsending

Austurríkismaðurinn Felix Baumgartner ætlar að freistast til þess að falla niður hátt í 37 kílómetra og jafnvel rjúfa hljóðmúrinn í leiðinni. Takist stökkið mun hann slá nokkur heimsmet, meðal annars mun hann verða fyrsti maðurinn sem fer svo hátt með loftbelg.

Tyrkir banna allt sýrlenskt flug í sinni lofthelgi

Utanríkisráðherra Tyrklands hefur tilkynnt um algjört flugbann sýrlenskra flugvéla í tyrkneskri lofthelgi. Samskipti þjóðanna hafa því kólnað enn frekar Sýrland á landamæri að Tyrklandi.

Máli Gunnlaugs vísað frá Hæstarétti

Hæstiréttur hafnaði kröfu um að taka meiðyrðamál Gunnlaugs M. Sigmundssonar til efnislegrar málsmeðferðar síðasta föstudag. Gunnlaugur áfrýjaði frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur á öðrum tölulið ummæla sem hann kærði bloggarann Teit Atlason fyrir en hann tapaði meiðyrðamálinu í héraðsdómi og var gert að greiða Teiti eina og hálfa milljón króna í málskostnað.

Snarpur skjálfti í Vatnajökli í hádeginu

Skömmu fyrir klukkan hálf eitt í dag mældist jarðskjálfti um það bil fjórum kílómetrum norðnorðaustan við Kistufell í Vatnajökli samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

Fáir ferðamenn sækja Vestfirði heim

Aðeins 3,2 prósent ferðamanna sem komu hingað til lands síðasta vetur fóru til Vestfjarða eða litlu fleiri en fóru á hálendið. forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða segir erfiðar samgöngur helstu ástæðuna.

Bókmenntamerking afhjúpuð

Klukkan tvö í dag verður fyrsta bókmenntamerking Bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur afhjúpuð. Það gerir Einar Örn Benediktsson formaður Menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur, en þessi skjöldur er sá fyrsti af níu merkingum sem Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO mun koma upp í borginni á þessu ári.

Æfinga- og kennsluflug bannað í dag

„Þetta er frekar tilfallandi en eitthvað annað," segir Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Isavia en allt æfinga- eða kennsluflug verður bannað á Keflavíkurflugvelli í dag vegna manneklu flugumferðastjóra. Slík mannekla bitnar þá helst á Flugakademíu Keilis sem heldur úti flugnámi á svæðinu.

Kristján Þór: Til marks um „mikinn metnað“ hjá Tryggva Þór

Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist hvergi banginn við mótframboð Tryggva Þórs Herbertssonar í baráttunni um fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, fyrir alþingiskosningarnar í apríl á næsta ári. Kjördæmisþing flokksins stendur nú yfir í Mývatnssveit.

Tölvuþrjótar hringja aftur á íslensk heimili

Eitthvað hefur borið á því í vikunni útlendir einstaklingar hafi hringt á íslensk heimili og þóst vera starfsmenn tölvufyrirtækja, svo sem Microsoft, og reynt að beina fólki inn á sýktar heimasíðu í þeim tilgangi að komast yfir aðgang að heimilistölvum Íslendinga. Vísi bárust nokkrar ábendingar um þetta, en málið svipar til tölvuþrjóta sem hringdu hingað til lands í nafni Microsoft síðustu páska.

Eldur í flugvél - skelfing greip um sig

189 farþegar og 7 manna áhöfn voru í hættu þegar eldur braust út í flugvél rétt fyrir flugtak á flugvellinum í Antalya, í Tyrklandi, í morgun.

Sterkur skjálfti við Salómonseyjar í morgun

Jarðskjálfti upp á sex stig reið yfir Salómosneyjar klukkan fimm í morgun. Skjálftinn átti upptök sín á sextíu kílómetra dýpi í um fimmhundruð kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Honiara.

Rasmusar minnst við Reykjavíkurtjörn

Minningarathöfn verður haldin í dag um færeyska gítarleikarann Rasmus Rasmussen sem svipti sig lífi 10. október. Frá þessu greinir tónlistarspegúlantinn Jens Guðmundsson á síðu sinni.

Breskir hermenn ákærðir fyrir morð

Fimm breskir hermenn hafa verið ákærðir fyrir morð á óbreyttum borgara í hernaðaraðgerðum í Afganistan, í fyrra. Breska varnarmálaráðuneytið staðfesti þetta við breska ríkisútvarpið BBC í morgun og segir varnarmálaráðherrann Philip Hammond í viðtali við BBC, að hermennirnir eigi að þekkja þær reglur sem séu í gildi þegar þeir eru barist er í stríði.

Fjölmenning í ráðhúsinu

Alþjóðatorg ungmenna stendur fyrir fjölmenningarlegri sýningu í ráðhúsinu sem hefst klukkan tvö í dag og stendur fram á miðvikudag.

Réðist að foreldum sínum og lögreglu

Það var um þrjúleitið í nótt þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var send að heimili í Hlíðunum. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu hafði rúmlega tvítugur maður veist að foreldrum sínum. Þegar lögregla kom á vettvang reyndi hann að berja lögreglumenn með húsmunum.

Handtekinn fyrir að hringja í Neyðarlínuna

Um miðnætti hafði tæplega fertugur maður hringt 50 sinnum í neyðarlínu 112. Maðurinn var ölvaður og höfðu neyðarverðir ítrekað beðið manninn um að láta af þessum hringingum sem voru allar tilefnislausar samkvæmt upplýsingum lögreglunnar.

Magnaðar myndir frá hinstu för Endeavour

Það er óhætt að segja að stemmingin á götum Los Angeles sé sérkennileg þessa dagana. 75 tonna faratæki fer nefnilega þar um á um 3 kílómetra hraða.

Frygðardrykkur og bíómynd á leiðinni

Dominique Strauss-Kahn leitar nú uppreisn æru og endurskilgreiningar á sér sjálfum með aðstoð ráðgjafafyrirtækis, hann kom meðal annars í viðtal við franska blaðið Le Point þar sem hann sagðist hafa staðið í þeirri barnslegu trú að hann gæti lifað lífi sínu eins og hann vildi.

Leita ferðamanns í hlíðum Esjunnar

Upp úr klukkan sex í kvöld voru björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu kallaðar út vegna slasaðs manns í Esjuhlíðum. Staðsetning mannsins liggur ekki nákvæmlega fyrir en samkvæmt samferðarmanni hans eru þeir staddir austan við hefðbundna gönguleið.

Ríflega helmingur kennara tilbúin að mæta raddlaus til vinnu

Yfir sjötíu prósent leikskólakennara hafa engar sem litlar áhyggjur af því hvort nemendur heyri til þeirra og sami fjöldi hefur ekki kynnt sér heyrnarsögu barnanna. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri íslenskri rannsókn.

Segir skort á vegriðum skapa stórhættu

Varaformaður FÍB gagnrýnir að ekki sé búið að setja upp vegrið á milli akbrauta á Reykjanesbrautinni en mildi þykir að ekki hafa farið illa í umferðarslysi þar í gær. Umferðin um brautina er þess eðlis að núverandi aðstæður skapa hættu á stórslysi.

Dæmi um að geðfatlaður hafi tekið smálán upp á aðra milljón

Skuldir vegna smálána sliga sífellt fleiri einstaklinga sem leggjast inn á Klepp. Dæmi eru um að sjúklingar hafi tekið skammtímalán upp á eina og hálfa milljónir króna. Margir eiga í erfiðleikum með að hætta að taka lánin segir félagsráðgjafi.

Sjá næstu 50 fréttir