Innlent

Harður prófkjörsslagur í Suðurkjördæmi

Það stefnir í harðan prófkjörsslag hjá Sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Kjartan Ólafsson, fjórði maðurinn, tilkynnti í gær um að hann sæktist eftir fyrsta sætinu.

Áður en það kom til lá fyrir að Alþingismennirnir Árni Johnsen og Ragnheiður Elín Árnadóttir, ásamt Halldóri Gunnarssyni sæktust eftir sætinu.

Halldór hefur ekki verið á Alþingi, en Kjartan Ólafsson sat á Alþingi frá árinu 2001 til 2009.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×