Innlent

Töluvert frost á nokkrum stöðum á landinu

Um og yfir sex stiga frost var á nokkrum stöðum á landinu undir morgun og allt upp í tíu stig á hálendi.

Akureyringar verða til dæmis margir að skafa bílrúðurnar áður en þeir leggja í hann nú í morgunsárið.

Svo hefur verið hvasst við Suðurströndina og austan stormur, eða liðlega 20 metar á sekúndu á Stórhöfða og 2,7 metra ölduhæð utanvið Landeyjahöfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×