Innlent

Valgerður vill leiða í Reykjavík

Valgerður Bjarnadóttir.
Valgerður Bjarnadóttir.
Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hyggst gefa kost á sér í 1. til 2. sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fer dagana 16. til 17. nóvember.

Hún sækist því eftir að leiða annan hvorn listann í Reykjavík. Valgerður tilkynnti þetta á bloggsíðu sinni á Eyjunni en fyrir hafa þau Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Helgi Hjörvar gefið kost á sér í sömu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×